Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990.
9
Utlönd
Fulltrúar 34 þjóða munu ræða um gróðurhúsaáhrifin svokölluðu á ráð-
stefnu sem hefst i Noregi í dag.
Ráðstefna um gróðurhúsaáhriíin:
Baráttuaðferðir úreltar
- segir einn serfræðinganna
í Bergen í Noregi hefst í dag al-
þjóðleg umhverfismálaráðstefna
þrjátíu og tjögurra auðugustu ríkja
heims um „gróðurhúsaáhrifin“ svo-
kölluðu - hækkandi hitastig jarðar.
Þessa ráðstefnu sækja umhverfls-
verndarsinnar, fulltrúar iðnaðar-
mála sem og fulltrúar ríkisstjórna.
Þeirra er að semja uppkast að „Að-
gerðum í umhverfismáium“ sem þeir
munu svo leggja fyrir ráðherra ríkj-
anna sem koma saman til tveggja
daga fundar dagana 14.-16. maí næst-
komandi.
En sumir sérfræðinga segja að bar-
áttuaðferðir þeirra kunna þegar að
vera orðnar úreltar og hafa margir
lýst yflr vonbrigðum með uppkast
að yfirlýsingu ráðherranna sem
þeim flnnst ekki ganga nógu langt.
Þar er ekki gert ráö fyrir lögbundn-
um aðgerðum. „Margar þær skýrsl-
ur og gögn, sem lögð verða fram á
ráðstefnunni, gætu vel hafa verið
skrifaðar fyrir tíu árum,“ segir Lest-
er Brown, fulltrúi Worldwatch-
samtakanna.
Ráðstefnan í Bergen er ein flögurra
ráðstefna til að undirbúa viðræður
Vill láta loka
Gizur Helgason, DV, Kaupmannahöfn:
Formaður þingflokks danska íhalds-
manna, Lars Gammelgaard, sem
jafnframt er varaformaður dönsku
sendinefndarinnar í Norðurlandráði,
segir í samtah við Berlingske Tid-
ende sunnudag að Danmörk, Noreg-
ur og Sviþjóð þurfi að velta því fyrir
sér hvort ekki væri rétt að leggja
niður sendiráð landanna hvert hjá
öðru.
fulltrúa víðs vegar að af jarðar-
kringlunni sem fram eiga að fara í
Brasilíu árið 1992. Þá er Bergen-
ráðstefnan einnig haldin í beinu
framhaldi af Brundtland-skýrslunni
svokölluðu en í henni er hvatt til
tafarlausra aðgerða vegna gróður-
húsaáhrifanna. Þar eru ríkisstjórnir
varaðar við því að gastegundir ýms-
ar, s.s. koltvísýringur, virka sem
nokkurs konar teppi umhverfis jörð-
ina og hækka hita loftslags.
Þær þrjátíu og flórar þjóðir, sem
taka þátt í ráðstefnunni, eiga sök á
sjötíu prósent þeirrar mengunar sem
kemur þegar jarðefnaeldsneyti er
brennt, s.s. olíu og kolum. Brennsla
þessa eldsneytis er orsök gróður-
húsaáhrifanna. Hvorki Bandaríkin
né Bretar munu senda ráðherra til
fundarins í næstu viku en bæði þessi
ríki hafa legið undir ámæli umhverf-
isverndarsinna fyrir að setja ekki
strangari mengunarlöggjöf innan
eigin landamæra. Bæði ríkin vilja
frekari rannsóknir á áhrifum gróð-
urhúsaáhrifanna áður en þeir herða
reglur' sínar og löggjafir.
Reuter
sendiráðum
Gammelgaard segir m.a: „Það tek-
ur aðeins eina klukkustund að fljúga
frá höfuðborg til höfuðborgar og þá
er hægt að fá allar þær upplýsingar
sem maður villHann bendir enn-
fremur á að tungumálin séu lík og
að dagleg samvinna sé í gangi á
stjórnmála- og atvinnumálasviðinu á
milli landanna. Það er því gamaldags
að hta svo á að hér sé um framandi
ríki að ræða eða er ekki svo? spyr
Gammelgaard.
Litla hafmeyjan skorin á háls
Gizur Helgason, DV, Kaupmannahöfn:
Það á ekki af Litlu hafmeyjunni á
Löngu línu við Kaupmannahöfn að
ganga. Árið 1964 tóku einhverjir
óþokkar sig til og skáru hausinn af
styttunni og hefur aldrei fundist
tangur né tetur af honum síðan. Nú
hafa einhverjir aðrir tekið sig til og
skorið snótina á háls.
Það var í gær að ungur athugull
maður uppgötvaöi 18 sm skurðsár á
hálsi meyjarinnar. Talið er sennhegt
að vikur eða ef til vill mánuðir séu
síðan ódæðisverkið var framið því
komin var skángræna í sárið. Lög-
reglan telur sennilegt að nú hafi átt
að endurtaka hausstuldinn frá ’64 en
viðkomandi skemmdarvargur verið
truflaöur við iðju sína eða orðið
þreyttur og vhjað ljúka verkinu síð-
ar.
Viðgerð á Litlu hafmeyjunni mun
í dag hefiast svo hún svíki ekki ferða-
mennina sem þegar eru farnir að
flykkjast til Kaupmannahafnar.
Hér er annars spáð 25 stiga hita og
bláum himni í dag en það er sama
veðrið og verið hefur síðastliðna 10
daga og dönsku ferðaskrifstofurnar
stynja þungan vegna afpantana og
eru nú sólarlandaferðir komnar á
útsölu.
Ný hljóðfrá þota í burðarliðnum
Síðar í þessari viku munu Frakk-
land og Bretland kunngera áætlan-
ir um að hanna þotu sem verður
bæði stærri og hraðskreiðari en
Concorde.
Þessi sömu lönd hönnuðu einmitt
hina hljóðfráu Concorde fyrir 20
árum, en hún getur flogið á mhli
Evrópu og Tokýo í Japan á fimm
tímum en nú tekur það venjulega
þotu um 12 tíma.
Eftir því sem heimildarmenn Re-
uters segja er búist við að hin nýja
þota muni hafa um 200 sæti. í lang-
an tíma munu bæði löndin hafa
unnið að hönnum vélarinnar en
ekki er gert ráð fyrir að hún fari í
loftið fyrr en í fyrsta lagi árið 2005.
Til bráðabirgða hefur hún fengið
nafnið FAST (Future Aircraft Su-
personic Transport) og gert er ráð
fyrir að hún geti flogið th Tokýo frá
Vestur-Evrópu á tveimur til þrem-
ur tímum.
Concordevélin var bylting á sín-
um tíma en markaðssetning henn-
ar misstókst vegna þess að hún var
talin of hávær. Á undanfórnum
árum hefur hún þó átt vaxandi vin-
sældum að fagna og nú eru fullbók-
að í flestar ferðir hennar.
Reuter
Concordevélin var bylting á sínum tíma en nú munu vera uppi áætlan
ir um að hanna ennþá hraðskreiðara farartæki.
I Húsgagnahöllinni eru útstillingar-
gangarnir einn kilómetri á lengd
Þrír kílómetrar á dag og heílsan og línurnar komast i lag - segja hollustufræðing-
arnir - og svo á að vera best að naga hrátt grænmeti á meðan.
Við glottum nú út í annað hér í Húsgagnahöllinni þegar við lásum þetta þvi víð
göngum svo míkíð að þrír kilómetrar eru bara upphitun fyrir morgunkaffið.
Gangarnir í Húsgagnahöllínni - sem eru með fallegar húsgagnaútstillingar á báða
vegu — eru nefnílega um eínn kilómetrí á lengd. Hugsaðu þér bara hvílikt feíkna-
úrval af húsgögnum við bjóðum þér. ALÞJÓÐLEGT ÚRVAL.
KÍLÓMETRIAF HÚSGÖGNUM FYRIR ÞIG Á BÁÐAR HENDIR
M0BLER
FAX 91-673511 SÍMI 91-681199
BILDSHÖFÐI 20 112 REYKJAVÍl