Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Síða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990.
Utlönd
DV
Dýr koss
Það má segja að sumir kossar séu dýrari en aðrir. Þetta mólverk sem
ber nafnið Kossinn II og var gert árið 1962 af Roy Lichtenstein, seldist
fyrir rúmar sex miiljónir doltara á uppboði hjá Christie’s í gær. Árið
sem málartnn iauk við verkið var það selt svissnesku listasafni á 1000
doflara. Simamynd Reuter
Friðarganga á Mount Everest
Sex fiallgöngumenn frá Bandaríkjunum, Sovétríkjunum og Kína náöu
toppi Mount Everest á mánudaginn. Félagarnir sex voru þátttakendur í
alþjóðlegri friöargöngu.
Eftir þvi sem talsmaður hópsins sagði þá bundu fjallgöngumennirmr
sig þrír og þrír saman, einn frá hverju landi. Fyrir tveimur dögum setti
hópurinn upp búðir tæpum 200 metrum frá toppnum og eins og áður
sagði korast hann á toppinn í gær. Búist er við að fjórir hópar til við-
bótar munir reyna við tindinn á miðvikudag og fóstudag.
Hin vel heppnaða ganga mun vera sönnun þess að með vináttu og sam-
vinnu er hægt aö ná fram hinum ótrúlegustu markmiöum, jafnvel iriði
og hreinu umhverfi. Á niðurleið munu fjaílgöngumennirnir einmitt
hreinsa upp rusl eftir sig og aðra leiðangra.
fsræiar krefjast endurbóta
Þúsundir reiðra ísraelsbúa komu
saman fyrir utan þinghúsið í Jerú-
salem í gær til aö krefjast breytinga
á kosningalöggjöfinni. Einnig pú-
uðu þeir og skynnu á lögregluna.
Mótmælin fóru fram á sama tíma
og þingið hóf sumarstörf sín og
minnst var þess að 45 ár eru liðin
frá strfðslokum.
ísraelar eru búnir að fá nóg af
stjómmálaástandinu í landinueftir
að stjórnarsamstarfi Verkamanna-
ílokksins og Iikud-flokksins lauk i
mars vegna friðamðræðna við
Palestínuaraba. MótmælendmTiir
vilja að forsætisráöherra verði kos-
inn beinni kosningu.
Lögreglan stjakar við æstum Isra-
elsmönnum sem kröfðust breyt-
inga á kosningaiöggjölinni í gær.
Símamynd Router
ítalskir kommúnistar tapa fylgi
Útlit er nú fyrir að ítalski kommúnistaflokkurinn, sá stærsti í Vestur-
Evrópu, hafi tapað töluverðu fylgi í bæjarstjómarkosningum sem fram
fóm í gær. Aðeins tveir mánuðir eru síðan flokkurinn ákvað að kenna
sig viö jafnaðarstefnuna. Fyrstu tölur sýndu að kommúnistaflokkurinn
fékk aðeins um 23% atkvæða, eða 5 prósentustigum minna en fyrír Evr-
ópuþingið í júnímánuöi á síðasta ári.
Achille Ochetto, formaöur flokksins, sagði aö niðurstöðumar væru langt
í frá að vera viðunandi, en ekki hefði verið viö öðm aö búast eftir fall
kommúnismans í Austur-Evrópu.
Páfi heimsækir Mexíkó
Jóhannes Póll pófi II. blessar mannfjöidann i Mexíkóborg.
Simamynd Reuter
Jóhannes Páll páfi II. er nú í heimsókn í Mexíkó og hefur heimsókn
hans beint sjónum manna að þeirri fátækt sem er að finna í kringum
Mexíkóborg og breiöist út eins og eldur f sinu.
ur enda eftir að þeir koma til borgarinnar í leit aö betri lífskjörum. A
hveijum degi þurfa milljónir að berjast við hungur og sjúkdóma í kofa-
skriflum.
Talið er að um þrjár railljónir manna búi Nezahuacoyotl sem er stærsta
fátækrahverfi borgarinnar. Til samans er íbúafiöldi þessara hverfa raeiri
en Panama.
Fyrirhugaðar kosningar í Búlgaríu:
Stjórnarandstaðan
á erfitt uppdráttar
Nú, þegar aðeins er mánuður til
kosninga í Búlgaríu, berst stjómar-
andstaðan enn fyrir því að byggja
upp stuðning meðal bænda og íbúa
á landsbyggðinni. Kosningarnar,
sem fram fara þann 10. og 17. júní
næstkomandi, verða fyrstu frjálsu
kosningarnar í Búlgaríu í tugi ára
og setja jafnframt endapunktinn á
kosningaölduna sem gengið hefur
yfir Austur-Evrópu í kjölfar hrans
valda og áhrifa kommúnista.
Forysta Bandalags lýöræðisafl-
anna, stjórnarandstöðu Búlgaríu,
kveðst fullviss um sigur í kosningun-
um. En margir, einkum á lands-
byggðinni, segja að ekki megi af-
skrifa kommúnista, alltént ekki al-
veg strax. Ekki er að merkja að mik-
ill áhugi sé meðal bænda eða eldri
íbúa landsbyggðarinnar á stefnumál-
um eða stefnuskrá Bandalagsins.
Það er einkum yngra fólkið sem sýn-
ir því áhuga, segja íbúar í dreifbýli.
Sumir óttast að verði markaðshag-
kerfi innleitt í Búlgaríu muni það
hafa í fór með sér versnandi kjör
landsbyggðarfólks og endalok þess
ókeypis mennta- og heilsugæslukerf-
is sem nú er við lýði. Þeir eru hrædd-
ir við hvaö framtíðin kunni að hafa
í för meö sér undir forystu fólks sem
það kann engin skil á.
Að sögn heimildarmanna reynist
stjómarandstöðunni erfitt að keppa
við kosningavél kommúnista á
landsbyggðinni. Kommúnistar, sem
breytt hafa nafni flokks síns í Sósíal-
istaflokkur Búlgaríu, hafa góða að-
stöðu um allt land, stóra sali fyrir
kosningafundi, útgáfufyrirtæki sem
Kosið verður i Búlgaríu í næsta mánuði og er þá loks rekinn endahnútur
á kosningaölduna í ríkjum Austur-Evrópu sem hófst í kjölfar hruns kommún-
ista á síðasta ári. Þessi mynd var tekin á mótmælafundi gegn stjórn komm-
únista í desember á síöasta ári. Símamynd Reuter
og fjármagn. Stjómarandstaðan hef-
ur ekki getað sett á laggirnar neitt
sem keppt gæti við slíka aðstöðu á
j afnréttisgrundvelli
inni.
á landsbyggð-
Reuter
Metverð fyrir nasista
Þýskir og bandarískir nasista-
veiðarar hafa upplýst að vestur-
þýska stjórnin veitti 310.000 dollara
verðlaun til þess er gat gefið upp-
lýsingar um dvalarstað Josef
Schwammberger, fyrrum yfir-
manns dauðabúða SS. Einnig kom
fram að einum af virtari banka-
mönnum Þýskalands hefur verið
bannaö aö koma til Bandaríkjanna.
Þessar upplýsingar komu fram á
alþjóðaráðstefnu gyðinga. Verðið
fyrir upplýsingamar um
Schwammberger var tíu sinnum
hærra en hingað til hefur verið
borgað en Schwammberger, sem
bjó í Argentínu í þijá tugi ára, er
nú sakaður um að hafa myrt 5000
gyðinga í stríðinu.
Bankamaðurinn, sem minnst var
á, er Hermann Abs en hann er tal-
inn hafa átt stóran þátt í því að svo
vel tókst til með endurreisn þýska
efnahagskerfisins eftir stríð. Hann
er á svarta lista Bandaríkjamanna
þar sem hann tók þátt í því að gera
eigurgyðingaupptækar. Reuter
Verkföllin í Suður-Kóreu:
Samningaviðræður hafnar
Samningaviðræður em nú hafnar
milli verkamanna og eigenda í skipa-
verksmiðjum Hyimdai í borginni
Ulsan í Suður-Kóreu. Verkfoll og
róstur hafa staðið í hafnarborginni
síðan þann 25. apríl síðastliðinn þeg-
ar verkamenn í Hyundai verksmiðj-
unum lögðu fyrst niður vinnu í mót-
mælaskyni við handtöku nokkurra
verkalýðsleiðtoga.
Samningaviðræður hafa nú hafist milli verkamanna og forystumanna í
Hyundai-skipaverksmiðjunum. Miklar róstur milli lögreglu og verkamanna
hafa átt sér stað á lóó verksmiðjunnar eins og þessi mynd, sem tekin var
í april, ber með sér. Símamynd Reuter
Verkföllin snerust fljótlega upp í
hörð átök við lögreglu og alvarlegar
róstur bmtust út hvað eftir annað.
Nokkrir verkamenn, vopnaðir bens-
ínsprengjum, hafast nú við upp á
risastóran krana á lóð verksmiðj-
unnar. í gær lýstu þeir því yfir að
þeir hefðu hafið hungurverkfall til
að leggja áherslu á kröfur sínar.
Verkamennimir kreíjast þess að all-
ar ákærur á hendur verkalýðsleið-
togunum verði látnar niður faila og
að lögreglumenn, sem veriö hafa á
lóð verksmiðjunnar frá því að verk-
föilin hófust, láti sig hverfa á braut.
Bæði forystumenn Hyundai-verk-
smiðjanna og lögreglu hafa sagt að
ekki komi til að lögregla geri áhlaup
á verkfallsmenn vegna hættunnar á
blóðbaði. „Við höfum engra annarra
kosta völ nema bíöa þar til þeir klifra
niður af fúsum og frjálsum vilja,“
sagði talsmaður skipaverksmiðjunn-
ar í gær. Hann kvaðst bjartsýnn á
friðsamlega lausn deilunnar nú þeg-
ar samningaviöræður hafa hafist.
Vinna hefur alveg legið niðri í Hy-
undai-verksmiðjunum frá því verk-
föllin hófust en alls lögðu 20 þúsund
verkamenn niður vinnu.
Reuter