Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Qupperneq 2
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1990. Fréttir Vinnudeilan hjá Islenskum aðalverktökum: Tökum enga aukavinnu fyrr en deilan leysist - segir Jón Halldórsson, trúnaðarmaður á Helguvikursvæðinu „Við vinnum frá klukkan 7.30 á morgnana til klukkan 18.00 síðdegis en tökum enga aukavinnu meðan vinnudeilan stendur. Okkur býðst að vinna til klukkan 22.00 á kvöldin en sjáum enga ástæðu til þess eins og er,“ sagði Jón Halldórsson, trúnaðar- maöur Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur hjá íslenskum aðalverk- tökum á Helguvíkursvæðinu, í sam- tali við DV í gær. Jón sagðist vonast til að lausn væri í sjónmáli í deilunni sem staðið hefur yfir í meira en tvær vikur. Deilan spratt upp vegna þess að iðnaðarmenn breyttu vinnutíma sín- um þannig að þeir vinna samfelldan vinnutíma án matar- og kaffihléa og fá hærra aukavinnukaup í staðinn. Verkamenn geta fengið sams konar vinnutímafyrirkomulag en þeim er neitað um hækkun á aukavinnunni og um það snýst deilan. Verkamenn hafa haldið fund um þessa deilu og samstaða þeirra er alger. Varnamálanefnd hefur áhyggjur af þeim töfum á framkvæmdum í Helguvík og á Keflavíkurflugvelli sem fyrirsjáanlegt er að verða ef vinnudeilan heldur áfram. Það mun ekki síst vera þrýstingur frá nefnd- inni sem eykur líkurnar á því að vinnudeilan sé að leysast. -S.dór Unnið við botn olíutanks við Helguvík í gær. DV-mynd GVA Hilmar Kjartansson og Olafur Jón Georgsson, starísmenn að Stað, ásamt Gunnari Sigurþórssyni stöðvarstjóra með eina eldislúðuna. DV-mynd GVA Lúðueldi Hafrannsóknastofnunar: Þetta má kalla frumrannsóknir Sigurþórsson, stöðvarstjóri að Stað - segir Gunnar „Allt sem við erum að gera hér í fiskeldisstöðinni að Stað við Grinda- vík mega kallast frumrannsóknir á lifnaðarháttum lúðunnar. Við vitum n\jög takmarkað hvemig best er að haga lúðueldinu en það er Ijóst að hér virðist vera um mjög áhugavert fiskeldi að ræða,“ sagði Gunnar Sig- urþórsson, stöðvarstjóri í fiskeld- isstöð Hafrannsóknastofnunar að Stað við Grindavík, þegar tíðinda- menn DV sóttu stöðina heim í gær. Fyrir utan þá klaktilraun, sem skýrt var frá í DV í gær, sem verið er að gera í stöðinni og vonir standa til að ætli að heppnast, er verið að kanna margt annað varðandi lifnað- arhætti lúöunnar. Gunnar sagði að verið væri að kanna meðal annars hve þéttleikinn mætti vera mikill í kerunum án þess að það kæmi niður á vexti fisksins. Kannað er hve aíTóllin eru mikil og hvort þau stafi af umhverflsþáttum eða fóðrinu. Þá er einnig verið að kanna hvert sé kjörhitastig þess sjáv- ar sem lúðan er alin í. Þær lúður, sem nú eru í eldi, voru veiddar, sem kunnugt er, eins til eins og hálfs kílós þungar smálúður í Faxaflóa. Þá var talið að þær væru þriggja til fjögurra ára gamlar. Þær hafa verið aldar í 3 til 4 ár og eru orðnar um 10 kíló að þyngd. Eins og áður hefur komið fram fást 700 krón- ur fyrir kOóið þannig að hver lúöa er um 7 þúsund króna virði. Varðandi tilraunirnar með klakið fór það fram í fyrsta sinn í vetur er leið. Talið er að fyrsta klak heppnist sjaldan vel hjá lúðu, það er varla talið marktækt fyrr en í annað sinn. Samt hefur tekist að halda lífi í um tvö þúsund seiðum og menn eru að vonast til að þaö takist að koma þeim upp. Eldislúða hagar sér líkt og gælu- dýr. Um leið og kerin voru opnuð, en lúðan lifir í algeru myrkri, komu þær að opinu og vildu gjarnan láta koma við sig og mjög auðvelt var aö handsama þær. Gunnar sagði að ef lúða yrði hrædd færi hún þegar til botns og græfi sig í sandinn sem hyldi botninn. Hann sagði mjög gaman að fylgjast með hegðun hennar og lífsmunstri. Ljóst er að ef lúðuklak tekst í eldis- stöð er lúðueldi mjög álitlegur kostur í fiskeldinu, enda verð fyrir hana mun hærra en fyrir lax. -S.dór Mál ákæruvaldsins gegn Halli Magnússyni blaðamanni: Málinu vísað frá og það fellt úr gildi - vegna málatilbúnaðar ákæruvaldsins Meirihluti Hæstaréttar hefur kom- ist að þeirri niðurstöðu að rétt sé að vísa máli ákæruvaldsins gegn Halli Magnússyni, blaðamanni á Tíman- um, frá vegna. málatilbúnaðar ákæruvaldsins. Þrír hæstaréttar- dómarar af fimm komust að þessari niðurstöðu en tveir dómarar tóku undir dóm héraðsdóms þar sem Hall- ur var dæmdur til að greiða miska- bætur og sekt. Ríkissaksóknari gaf út ákæru á hendur Halli vegna skrifa hans um séra Þóri Stephensen, staðarhaldara í Viðey. Ákæruvaldið sótti ekki þing í hér- aðsdómi. Verjandi Halls, Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, hafði sagt að ákæruatriöi væru svo óglögg að ekki væri unnt að koma að vörnum með eðlilegum hætti. „Mál þetta varðar rétt manna til að láta í ljós hugsanir sínar á prenti samkvæmt ákvæði 72. greinar stjórnarskrárinnar og ábyrgð sem því fylgir. Er hér um að ræða svo þýðingarmikið úrlausnarefni og slík vafaatriði eru í málinu að ríkissak- sóknara hefði verið rétt að sækja þing í héraði. Með vísan til þess sem að framan er rakið þykir málatilbúnaði ákæru- valds vera svo áfátt að fella beri hinn áfrýjaða dóm og málsmeðferð úr gildi og visa málinu frá héraösdómi,“ en svo segir meðal annars í niðurstöð- um meirihlutá Hæstaréttar. Dómur snýst því ekki um réttmæti skrifa Halls - heldur um málatilbún- að ákæruvaldsins. Sakarkostnaður á að greiðast úr rikissjóði. í ákvæði minnihluta Hæstaréttar var tekið undir með Sakadómi þar sem Hallur var sakfelldur og dæmd- ur til að greiða séra Þóri 150 þúsund krónur í miskabætur, 40 þúsund króna sekt í ríkissjóð og til að greiða allan sakarkostnað. Þá var hluti skrifa hans dæmdur ómerkur. í meirihluta Hæstaréttar voru dómararnir Guðmundur Jónsson, Guðrún Erlendsdóttir og Hrafn Bragason. í minnihluta voru Harald- ur Henrysson og Gunnar M. Guð- mundsson. -sme Hæstiréttur: Tvær milljónir í gjaldþrotabú Hæstiréttur hefur dæmt Vátrygg- ingafélagið til að greiða þrotabúi Böggvisstaðabúsins á Dalvík 2,2 milljónir í bætur fyrir dauða hvolpa og yrðlinga. Það var á árinu 1985 sem tók aö bera á óeölilega miklum hvolpa- og yrðlingadauöa á búinu. Eigandi bús- ins hafði strax samband við dýra- lækni og Tilraunastöð Háskólans í meinafræði vegna dauðatilfellanna. Ástæða hvernig fór er rekin til fóð- ursins - en það var fengið frá Fóður- stöðinni á Dalvík. AUs drápust 1.959 minkahvolpar og 1.527 yrðlingar á árinu 1985. Hæstiréttur komst að þeirri niður- stöðu að búinu, en það er til gjald- þrotaskipta, beri að fá 2,2 milljónir frá tryggingafélaginu vegna áfall- anna á árinu 1985. -sme Sjálfstæðismenn með 55,9 prósent Samkvæmt niðurstööum skoðana- könnunar sem Félagsvísindastofnun hefur gert fyrir Morgunblaðið fengi Sjálfstæðisílokkurinn einungis 55,9 prósent atkvæða í borgarstjórnar- kosningunum eftir rúma viku. Þetta er um 15 til 20 prósentum lægra en hann hefur fengið í öðrum könnun- um að undanfornu. Ástæðan liggur meðal annars í því að starfsmenn Félagsvísindastofnunar breyta nið- urstöðum könnunarinnar með hlið- sjón af því fráviki sem var á síðustu könnun stofnunarinnar fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar og raun- verulegum úrslitum þeirra. Félagsvísindastofnun birtir ekki niðurstöður úr skoðanakönnuninni sjálfri en útreikningar starfsmanna hennar gefa sjálfstæöismönnum 55,9 prósent, Nýjum vettvangi 23,3 pró- sent, Kvennalista 7,2 prósent, Al- þýðubandalagi 6,7 prósent og Fram- sókn 6,1 prósent. -gse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.