Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Side 4
4
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1990.
Fréttir
Dómur fallinn vegna dauðaslyss á Hótel KEA:
Afkomendum dæmdar
rúmar tvær milljónir
- vegna slyss sem varð í nóvember 1986
I bæjarþingi Reykjavíkur er fallinn
dómur í máli sem var höföað gegn
Hótel KEA vegna dauðaslyss sem
varö þar í nóvember 1986. Eiginkonu
og börnum þess sem lést voru dæmd-
ar 2.170 þúsund krónur í bætur.
Dómurinn komst að þeirri niður-
stöðu að Hótel KEA bæri ábyrgð að
tveimur þriðju og sá látni að einum
þriðja. Það er meðal annars skýrt
meö ölvunarástandi hans þegar slys-
ið varð.
Maöurinn var gestur á Hótel KEA
þegar slysið varð. Hann fannst látinn
í porti við hótelið. Viðbygging úr tré
var við hótelið á þessum tíma vegna
stækkunar hússins. Efst á viðbygg-
ingunni voru breiðar dyr með tví-
skiptri hurð. Hægt var aö loka henni
með slagbrandi að innanverðu. Um
það bil átta til tíu metrar voru frá
neðri brún dyragatsins aö jöröu og
þar fyrir neðan var steypt stétt. Þeg-
ar komið var að manninum látnum
var ljóst af öllum verksummerkjum
að maðurinn haföi dottið út um dyra-
opið og látist af völdum áverka eftir
fallið niður á stéttina.
Krafan var 7,6 milljónir
Gerðar voru kröfur um 7,6 milljón
króna bætur. Dómurinn ákvað aö
bæturnar yrðu mun lægri eða 2.170
þúsund krónur.
í rökstuðningi stefnanda, það er
ekkjunnar og barna hennar, segir
meðal annars aö frágangur í stiga-
gangi viðbyggingarinnar hafi verið
með glæfralegasta móti. Þá segir
einnig að gera verði strangar kröfur
til Hótel KEA vegna alls búnaðar
hótelsins enda sé fasteignin rekin í
ágóðaskyni, meðal annars með
skemmtanahaldi og áfengissölu fyrir
utan leigu herbergja.
Forráðamenn hótelsins vildu að
þeir yrðu sýknaðir cif öllum kröfum
og vísuðu tU þess að þeir hefðu ráðið
byggingastjóra sem bæri alla bóta-
ábyrgð. Að öðru leyti sögðu þeir að
slysiö yrði ekki rakiö til neinna at-
vika eða áhættu sem hótelið gæti
borið ábyrgö á aö lögum gagnvart
hinum látna.
Dómurinn tók ekki undir þetta þar
sem hinn látni hafði átt viöskipti við
hótelið en ekki byggingastjórann.
Reistur til bráðablrgða
Þá segir einnig í rökstuðningi
þeirra að aðstæður og frágangur í
stigahúsinu, sem reist hafði verið til
bráöabirgða meðan á byggingar-
framkvæmdum stóð, hafi veriö í full-
nægjandi horfi með tilliti til öryggis
þeirra sem þar gátu átt leið um í
eðlilegum erindum og með eðlilegum
hætti. Þar sem stigahúsið var
mannvirki til bráðabirgða hafi ekki
verið óeðlilegt að þar væri ýmislegt
með í frumstæðara horfi með tilliti
til útlits en í hliðstæðu mannvirki
byggðu til frambúðar.
í rökstuöningi þeirra segir einnig
að slysið verði eingöngu rakið til
ástands hins látna vegna ofurölvun-
ar og stórlega afbrigðilegrar fram-
göngu hans sem ætla verði að ofur-
ölvun hans hafi valdiö.
Vjtavert athæfi
í niðurstöðum dómsins segir meðal
annars: „Þegar litið er til þess sem
hér hefur verið rakið um ástand og
fyrirkomulag í stigahúsinu, meðal
annars umbúnað vöruopsins, og haft
í huga, að hótelrekstri fylgir umferð
fjölda fólks, sem dvelur um skamm-
an tíma á staðnum og er því ókunn-
ugt staðháttum og jafnframt að sala
áfengis var þáttur í rekstri hótelsins,
þá var sú ráðstöfun, að fjarlægja
plasthlífina, sem vera átti yfir neyð-
arlæsingunni, sérstaklega þegar til
þess er litiö, að ekki varð aftur snúið
við af stigapallinum og inn á hótel-
ganginn ef hurð hefði fallið að stöf-
um, svo vítavert athæfi aö fella verð-
ur á stefnda (það er Hótel KEA) fé-
bótaábyrgð í máli þessu að % hlut-
um, en eftir atvikum þykir rétt, að
stefnandi beri 'A hluta tjónsins.“
-sme
Slökkviliðið var kallað að þessum bíl I gærmorgun. Bíllinn var alelda og
hafði verið skilinn eftir i Rauðhólunum, ofan við Reykjavik. Hafi eitthvaö
verið heilt i vagninum tyrir brunann þá er það ónýtt nú. DV-mynd JAK
Selfoss:
Grímsnesið leynir á sér
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Stjórn Félags eldri borgara á Selfossi
bauð hinn 3. maí í ferðalag austur í
Grímsneshrepp. 50 manns þáöu boð-
ið. feiga Bjamadóttir, forstöðukona í
opnu húsi í Tryggvaskála, var farar-
stjóri en hún er fædd og uppalin í
hreppnum. Böðvar Pálsson, oddviti
í Grímsneshreppi, var leiösögumað-
ur, fjölhæfur maður og skemmtileg-
ur, og stjórnar sínum hrepp vel. Odd-
viti, hreppstjóri, meðhjálpari og for-
söngvari og spilar á flest hljóöfæri.
Hefur mikla frásagnargáfu.
Ekki vissi ég að í hreppnum væri
laxeldisstöð, svínabú og gróöurhús
meðal hinna stærstu á landinu svo
að segja við bæjardyrnar hjá okkur
Selfossbúum. Allt tölvuvætt. Þar
voru hrein og feit svín, gróðurhúsið
angandi af útsprungnum allavega lit-
um blómum.
íbúatala í Grímsneshreppi er 260
manns en á góðviðrisdögum eru þar
tuttugu sinnum fleiri þegar fólk er
komiö í bústaði sína því þarna er
geysimikið af sumarhúsum. Eflaust
eru aöaltekjur Grímsneshrepps leiga
af landi fyrir þessi hús til 25 ára. í
lokin var komiö í bústað, sem Helga
og Sigurliði Kristjánsson (Silli og
Valdi) áttu og hreppurinn keypti.
Stór og glæsilegur. Ollum boðið inn
og þar var vel rúmt. Bryndís, 17 ára
dóttir Böövars oddvita, var búin að
hella léttum vínum í glös fyrir 50
manns og sælgæti var með. Þarna
var tilkomumikil gleðistund. Kona
Böðvars, Lísa Thompsen, gefur út
fréttablað mánaðarlega í hreppnum.
Drukkið var gott kaffi á Borg í
Grímsnesi með góðu meðlæti, sem
Karen Jónsdóttir veitti af rausn. Svo
var komið við á Sólheimum og skoð-
uð þar nýjustu mannvirki eins og til
dæmis íþróttahúsið hans Reynis
göngugarps. Vistfólkiö greinilega
ánægt og heilbrigt fólk gæti margt
af því lært. Ferðin afar vel skipulögð
og alls staðar flaggað þar sem við
komum. Já, ég gleymdi að segja frá
því að fyrst var komið við í Alviðru.
Þar er alltaf reisn á þeirri jörð þó
ekki sé hún stór og laxinn gefur þar
mikið af sér. Þökk sé Böðvari Páls-
syni fyrir góða og skemmtilega leið-
sögn og óskandi væri að allir kennar-
ar væru eins góðir að segja frá og
hann. Einnig ættu fleiri hreppsfélög
að gefa út fréttablöð mánaöarlega.
Þá myndi fólk þekkja landið sitt bet-
ur.
Alþýðuskólinn á Eiðum:
106 nemendur og öflugt félagslíf
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum:
í Alþýðuskólanum á Eiðum stund-
uðu 106 nemendur nám á fyrri önn
í vetur, þar af 66 í framhaldsdeildum.
Þetta kom fram í skólaslitaræðu
Kristins Kristjánssonar, þegar skól-
anum var slitið 12. maí sl. Félagslíf
var öflugt í vetur enda kennari í
hálfu starfi að sinna því.
Skólastjóri gat þess að framlag til
viðhalds hefði verið skorið niður um
Þau útskrifuðust frá Eiðaskóla 1940. Þórólfur Stefánsson, Vilhjálmur Emiisson, Helga Björg Jónsdóttir, Guömund-
ur Magnússon, Herbjörn Björgvinsson, Þórarinn Bjarnason, Ragnheiður Hóseasdóttir og Árni Halldórsson.
DV-mynd Sigrún
Kristinn Kristjánsson skólastjóri afhendir Einari Erni Hreinssyni verðlaun.
- Einar fékk þrjár viöurkenningar fyrir góðan námsárangur. DV-mynd Sigrún
þriðjung en á þessu ári verður unniö
við að klæöa íþróttahúsið aö utan en
það hefur setið á hakanum í mörg
ár. Fulltrúar nemenda og kennara
fluttu ávörp og skólastjóri afhenti
verðlaun fyrir góðan árangur í námi
og við félagsmálastörf.
Við skólaslitin voru átta nemendur
sem útskrifuðust vorið 1940 og í til-
efni af 50 ára afmælinu gáfu þeir
skólanum forláta gestabók í útskorn-
um tréspjöldum, sem unnin var hjá
Eik hf. á Miðhúsum. Það var Guð-
mundur Magnússon á Egilsstöðum
sem hafði orð fyrir hópnum. í máli
hans kom fram að þau voru fyrstu
nemendur, sem komu til náms eftir
aö Þórarinn Þórarinsson tók við
skólastjórn þar. Það voru 26 nemend-
ur sem hófu þar nám haustiö 1938.