Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Side 5
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1990.
5
DV
Framkvæmdir við Hvalflarðargöng eiga að heflast 1992:
Fréttir
Rætt um
aukaskatt
að fá virðis-
felldan niður
Væntanlegir framkvæmdaaöilar
aö jarðgöngum viö utanverðan Hval-
fiörð hafa sent Steingrími J. Sigfús-
syni samgönguráðherra bréf þar sem
óskað er eftir undirbúningsviðræö-
um um stofnun hlutafélags um fram-
kvæmdina. Um leið leita þeir eftir
samningum við samgönguráðuneyt-
ið.
Að beiðninni standa Sementsverk-
smiöjan, Járnblendiverksmiðjan og
Akranesbær. Það er Akranesbær
sem leiðir vagninn en athyglisvert
er að afstaða verksmiðjanna hefur
breyst nokkuð enda hefur staöa
þeirra versnað frá því í fyrra er þau
lýstu yfir áhuga sínum á að standa
að framkvæmdunum. Samkvæmt
heimildum DV hefur áhugi þeirra
minnkað nokkuð þótt hann sé engan
veginn slokknaður.
Að sögn Gísla Gíslasonar, bæjar-
stjóra á Akranesi, er ekki hægt að
segja neitt til um það hvernig hlutafé
verður skipt. Hann sagði þó að ljóst
væri aö Akranesbær yrði ekki burð-
arás. Einnig er áhugi á því að fá fleiri
sveitarfélög til aö taka þátt í þessu
starfi.
Framkvæmdin tefst enn
Það er nú talið ljóst að rannsóknum
vegna verksins verði ekki lokið fyrr
en sumarið 1991. Það er þó bundið
þvi að lokið veröi samningum við
ráðuneytið í sumar. Framkvæmdir
gætu þá hafist 1992 en gert er ráð
fyrir að þær gangi hratt fyrir sig og
verði kannski röskt ársverk. Sem
fyrr er gert ráð fyrir að verkið kosti
um 3 milljarða króna.
Virðisauki felldur niður
Að sögn Gísla hafa komið upp
vangaveltur um að virðisaukaskatt-
ur af verkinu verði felldur niður og
er gert ráð fyrir að slík ósk verði
lögð fyrir ríkisstjórnina. Þær tölur
sem nefndar eru vegna verksins eru
með söluskatti þannig að líklega má
gera ráö fyrir að verkið verði hag-
kvæmara en áður var talið. Gæti
jafnvel munað um 18% sem gæti
lækkað verðið um rúman hálfan
milljarö. -SMJ
Hvalfj arðargöngin:
Verður ríkisábyrgð á
göngin niðurstaðan?
- þrátt fyrir óskir framkvæmdaaðila um annað
„Þetta tal um ríkisábyrgö á sér
fyrst og fremst stað í þágu stjórnsýsl-
unar og þingmanna en ekki þeirra
sem eru aö hrinda verkinu af stað.
Það liggur alveg ljóst fyrir aö það er
ríkið sem ákveður sjálft hversu mik-
inn þátt það vill taka í þessu verki,"
sagði Gísli Gíslasop, bæjarstjóri á
Akranesi, en einhverra hluta vegna
er farið aö ræöa um ríkisábyrgð í
sambandi við væntanleg jarðgöng
við mynni Hvalfjarðar.
I DV fyrir stuttu var haft eftir 01-
afi Þ. Þórðarsyni, þingmanni Vest-
firðinga en hann situr bæði í fjárveit-
inganefnd Alþingis og samgöngu-
nefnd neðri deilar, áð hann teldi að
ef ráðist yrði í gerð jaröganga um
Hvalfjörð þá yrði það ríkisfram-
kvæmd. Vísaði hann meðal annars
til hugmynda starfshóps um jarð-
göngin en þar er ríkisábyrgð nefnd.
Taldi hann það sýna að menn hefðu
ekki trú á aö hægt væri að ráðast í
verkið án aðstoðar hins opinbera.
Svo bregður hins vegar við að að-
stendendur verksins neita því að
þeir hafl hokkurn áhuga á ríkis-
ábyrgð. Sagði til dæmis Jón Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Járnblendis-
ins á Grundartanga og einn af frum-
kvöðlum verksins, að þegar hug-
mynd að verkinu hefði verið kynnt
í upphafi þá hefðu þeir einmitt lagt
eindregið til að ekki yrði ríkisábyrgð
á verkinu.
Samkvæmt heimildum DV þá
undrast forvígismenn verksins hug-
myndir um að blanda ríkisábyrgð í
verkið. í skýrslu starfshóps um verk-
ið sem skipaður var af samgönguráð-
herra er nefnd ríkisábyrgð. Þar er
bent á að hún gæti verið með tvenn-
um hætt: Annars vegar væri fengin
ríkisábyrgð á lánum í því skyni að
lækka vexti af þeim og hins vegar
gæti komið ríkisábyrgð á kostnað
umfram eðlileg frávik. Rétt er að taka
fram að bæði Gísli og Jón áttu sgeti
í starfshópnum.
í athugasemdum með heimildar-
lögum þeim sem Alþingi samþykkti
í vor um framkvæmdina er tekið
fram að í því lagafrumvarpi felist
engar fjárhagslegar skuldbindingar
af hálfu ríkissjóðs, svo sem um öflum
lánsflár til framkvæmda eða veitingu
ríkisábyrgðar.
-SMJ
Vegtenging um utanverðan Hvalfjörð
Ekki hefur verið ákveðið neitt um það hvar Hvalfjarðargöngin verða ná-
kvæmlega en hér sést á hvaða svæði þau verða.
Vegagerð rikisins og Náttúruverndarráð hafa nú gefið út fyrsta kort sumars-
ins um ástand fjallvega. Vegir á skyggðu svæðunum eru lokaðir allri um-
ferð þar til annað verður auglýst. Næsta fjallvegakort verður gefið út 24. maí.
Athugasemd
í gær sagði DV frá nýjum forseta-
bíl af gerðinni Cadillac. Þar sagði
m.a. að þar með ætti forsetaembættið
orðið þrjá viðhafnarbíla, ársgamlan
Chevrolet og átta ára Cadillac, auk
hins nýja. Vegna þessa vill forsetarit-
ari taka fram að í raun eigi embættið
aðeins einn viðhafnarbíl, þann nýja.
Auk þess verði annar fyrri bíla
embættisins seldur, sennilega Chev-
roletinn.
Unglingar um allt land sitja nú með sveittan skallann í vorprófum. Úti er
veðurblíða og miklar freistingar. Prófum lýkur þó brátt og þá kemst ungvið-
ið út í sólina. Myndin var tekin af prófmönnum i Réttarholtsskólanum í
Reykjavík. DV-mynd Brynjar Gauti
TOLVULB
mikið úrvai af
frábærum iölvuleikjum fyrir ATARi, PC, ,,
AMIGA, COMMANDORE 64, AMSTRAD, \1U
og SPECTRUM. __;J - m\l\
opid
laugard. til 16
Hafnarstræti 5, 2. hæð
s. 21860 - 624861