Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1990. Viðskipti DV Bónus fer vestur í - verið að ganga frá leigu á gamla Steindórshúsinu Jóhannes Jónsson, eigandi versl- unarinnar Bónus, hyggst opna þriðju Bónus-verslun sína á næstunni. Ætl- un hans er að verslunin verði vestur í bæ í 450 fermetra húsnæði í gamla Steindórsshúsinu við Hringbrautina, gegnt gamla JL-húsinu. Að sögn Jóhannesar Jónssonar eru samningar um leigu á húsnæðinu á lokastigi og yfirgnæfandi líkur á að samningar takist. „Gangi allt upp verður verslunin opnuð um miðjan júní næstkomandi." Jóhannes var búinn að leigja gömlu Ellingsen-skemmuna vestur á Granda síðastliðinn vetur til að opna þar Bónus-verslun. Borgaryfirvöld komu þá inn i málið og bentu á að skemman væri ekki inni í skipulagi og ætti að hverfa. „Það er klárt mál að ég mun opna Bónus-verslun í vesturbænum. Þetta er ákaflega heillandi markaður og ég veit að þaö er vilji margra vest- urbæinga aö fá Bónus-verslun vestur í bæ.“ Bónus á sér ekki langa sögu í reyk- vískum verslunarrekstri. Fyrsta búöin var opnuð 15. apríl í fyrra í Skútuvogi. Síðan var seinni Bónus- búðin opnuð í Faxafeni. Hjá fyrir- tækinu vinna tíu starfsmenn, flmm í hvorri verslun. Jóhannes er með- talinn. Verslunin á sér erlenda fyrirmynd. Hún er svonefnd afsláttarverslun og býður 975 vöruflokka. Viðskipta- menn hafa það svona meira á tilflnn- ingunni að þeir séu að koma inn í stóra heildsölu fremur en smásölu- verslun. íburðurinn er minni, starfs- fólk færra og vöruúrval minna en í stórmörkuðum. Ekki er tekiö við krítarkortum. Á móti kemur að verð- ið er lægra. - Hvaö telur þú að það sé stór markaður hérlendis á matvöru- markaðnum fyrir afsláttarverslanir? „Ég veit það ekki en reynslan frá Danmörku er sú að þar eiga afslátt- arverslanir um 10 til 12 prósent hlut af matvörumarkaðnum. Eflaust er það eitthvað svipað hérlendis." -JGH Þetta er Mazda. Umboðslaus sem stendur. Á annan tug fyrirtækja vilja hins vegar fá umboðið. Allt á huldu hver fær Mazda-umboðið Enn er allt á huldu um það hver fær umboð fyrir Mazda-bíla á ís- landi. Búist við ákvörðun C.Itoh, sölufyrirtækis Mazda, upp úr næstu mánaðarmótum. Bílaborg hf., sem nú er gjaldþrota, var með umboðið fyrir Mazda. Samkvæmt upplýsingum DV hafa tiltölulega margir, eða á annan tug fyrirtækja, sýnt því áhuga að fá Maz- da-umboðið. Þetta eru bæði fyrirtæki sem þegar eru með bílaumboð og önnur sem standa utan við bílasölu. Japanir, sem hingað hafa komið frá C.Itoh fyrirtækinu, hafa rætt viö alla þá sem sýnt hafa áhuga á umboðinu og kynnt sér aðstæður. Ljóst er aö þeir gefa sér mjög góðan tíma til að taka ákvörðun þar sem nokkrir mán- uðir eru liðnir síðan Bílaborg fór á höfuðið. Af einstökum fyrirtækjum, sem innan viðskiptalífsins eru oftast nefnd sem líklegust til að hreppa hnossið, má nefna Bifreiðar- og land- búnaðarvélar, Bílaumboöið (BMW), Ræsi og nýtt fyrirtæki þeirra Haralds R. Jónssonar og Kristins Breiðíjörð en Kristinn var einn eigenda Bíla- borgar. Þessum fyrirtækjum er nefnt til framdráttar, í baráttunni um umboð- ið, að þau selji ekki japanska bíla fyrir en Japanir vilja síður að sama bílaumboðið sé með fleiri en eina tegund japanskra bíla. -JGH Nýr ritstjóri Vísbendingar Sigurður Jóhannesson hagfræð- ingur Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, BSRB, hefur verið ráðinn ritstjóri Vísbendingar, efnahags- tímaritsins sem Kaupþing hf. gefur út. Vísbending kemur út vikulega. Fyrsti ritstjóri þess var Sigurður B. Stefánsson, hagfræðingur og fram- kvæmdastjóri Verðbréfamarkaðar íslandsbanka hf. Sigurður Jóhannesson tekur við ritjórastarflnu af Finni Geirssyni, sem ráöinn hefur verið sem forstjóri sælgætisgerðarinnar Nóa-Síríusar hf. Sigurður er menntaður hagfræð- ingur í Kaupmannahafnarháskóla. Hann er fæddur 6. október 1961. -JGH Sigurður Jóhannesson, annar tveggja hagfræðinga BSRB, hefur verið ráð- inn ritstjóri Vísbendingar. Hann tekur við starfinu 1. júni næstkomandi. Nýir stjórar hjá Visa Draga verður úr sköltum Vinnuveitendasamband ís- lands leggur nú áherslu á að dregið verði úr sköttum í íslensku efnahagslífl. Vinnuveitendur benda sérstaklega á aö horflð verði frá aðstöðugjaldi fyrirtækja og jafnframt dregið úr tekju- skatti. Þetta kemur fram í álykt- un aðalfundar Vinnuveitenda- sambandsins frá því fyrr í vik- unni. Vinnuveitendur segja að það þoli enga bið að íslenskt atvinnu- líf búi viö sams konar starfsskil- yrði varðandi skatta og fyrirtæki í helstu samkeppnislöndunum. „Tvennt skiptir mestu, að horf- ið verði frá skattlagningu kostn- aðar við atvinnustarfsemi á borð við aðstöðugjöld og aö hvatt sé til aukningar eigin fjár í atvinnu- rekstri. Tekjuskattshlutfall fyrir- tækja verður að lækka. Einnig er brýnt að gjaldeyrisreglur verði aðlagaðar því sem gerist meðal allra nálægra þjóða. Síðast en ekki síst verður að draga úr opin- berum umsvifum og þannig úr sífelldum kröfum um aukna skattheimtu,“ segir enn í ályktun Vinnuveitendasambandsins. -JGH Miklar skipulagsbreytingar eiga sér nú stað hjá Visa íslandi. í stað þriggja rekstrarsviða áður, íjármála- og rekstrarsviðs, markaðssviðs, og tölvu- og tæknisviðs, verða þau fjög- ur framvegis; stjórnsýsla, hagsýsla, þjónusta og gæðastjórnun og tölvur og tækni. Forstöðumaður stjórnsýslusviðs, en undir það fellur fjármálastjórn, almennur rekstur og starfsmanna- hald, verður Leifur Steinn Elísson hagfræðingur. Hann hefur gegnt starfi aðstoðarframkvæmdastjóra Visa frá 1986. Leifur Steinn Elísson. Forstöðumaöur hagsýslusviðs er nýráðinn til Visa og heitir Anna Inga Grímsdóttir viðskiptafræðingur. Undir hagsýslusvið fellur yfirumsjón með öllu reikningshaldi, skýrslu- og áætlanagerð, hag- og markaðsrann- sóknum. Anna Inga var fjármála- stjóri hjá Bræðrunum Ormsson en var þar áöur hjá Búnaðarbankanum. Forstöðumaður þjónustu- og gæða- stjórnunar er einnig nýráöinn til Visa. Hann heitir Þórður Jónsson og hefur síðastliðin sjö ár starfað hjá Arnarflugi. Á sviði þjónustu og gæðastjórnunar verður yfirumsjón Anna Inga Grímsdóttir. með almannatengslum og markaðs- tengdri starfsemi svo og starfsemi þeirra stoðdeilda sem veita korthöf- um, kaupmönnum, bönkum og spari- sjóðum þjónustu. Fjórða sviðið er tölvur og tækni. Forstöðumaður þar er Júlíus G. Óskarsson, kerfls- og viðskiptafræð- ingur. Hann hefur verið forstöðu- maður þessa sviðs frá árinu 1987. Starfsmenn Visa eru nú 35 talsins. Framkvæmdastjóri Visa er Einar S. Einarsson. -JGH Þórður Jónsson. Jóhannes Jónsson, eigandi Bónus. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggö Sparisjóðsbækurób. 3,0 Allir Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 3-4 ib.Sb,- Sp 6mán.uppsögn 4-5 Ib.Sb 12mán. uppsögn 4-5,5 ib 18mán.uppsögn 11 ib Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib Sértékkareikningar 3,0 Allir Innlan verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5 Allir 6mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb.Bb,- Sb Innlán með sérkjörum 2,5-3,25 ib Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 7-7,25 Lb.Sb Sterlingspund 13,6-14,25 Sb Vestur-þýskmörk 6,75-7,5 Lb Danskarkrónur 9,25-10,75 Sb ÚTLÁNSVEXTIR (%) 'lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv.) 13,5-13,75 Bb.Sb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 14,0 Allir Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17,5 Bb Utlan verðtryggð . Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb Utlántilframleiðslu Isl.krónur 13,75-14,25 Bb SDR 10,75-11 Bb Bandarikjadalir 10,10-10,25 Bb Sterlingspund 16,8-17 Sp Vestur-þýskmörk 9,9-10,5 Bb Húsnæðislán 4,0 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 23,0 MEÐALVEXTIR Óverðtr. mai 90 14,0 Verðtr. maí 90 7,9 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala maí 2873 stig Lánskjaravísitala apríl 2859 stig Byggingavisitala mai 541 stig Byggingavísitala maí 169,3 stig Húsaleiguvísitala 1,8% hækkaði 1. april. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4,858 Einingabréf 2 2,656 Einingabréf 3 3,200 Skammtímabréf 1,648 Lífeyrisbréf Gengisbréf 2,123 Kjarabréf 4,823 Markbréf 2,568 Tekjubréf 1,972 Skyndibréf 1,443 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2.341 Sjóðsbréf 2 1,757 Sjóðsbréf 3 1,637 Sjóðsbréf 4 1,388 Vaxtasjóðsbréf 1,6590 Valsjóðsbréf 1,5565 HLUTABREF Söluverð að lokinni jofnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 650 kr. Eimskip 420 kr. Flugleiðir 168 kr. Hampiðjan 159 kr. Hlutabréfasjóður 180 kr. Eignfél. Iðnaðarb. 159 kr. Skagstrendingur hf. 367 kr. Islandsbanki hf. 155 kr. Eignfél. Verslunarb. 126 kr. Olíufélagið hf. 449 kr. Grandi hf. 166 kr. Tollvörugeymslan hf. 105 kr. Skeljungur hf. 441 kr. (1) Viö kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkaö- inn birtast í DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.