Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1990.
7
Fréttir
Atvinnutryggingar- og hlutaQársjóður:
Sambandsfrystihúsin
fengu mesta aðstoð
- sjö af tíu mestu sjóðaútgerðarmönnunum eru Sambandsfrystihús
Af þeim tólf fiskvinnslufyrirtækj-
um, sem hafa fengið úthfutað úr
hlutafjársjóði Byggðastofnunar, eru
tíu Sambandsfrystihús. Hin tvö
frystihúsin eru í Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna.
Hlutfallið á milli þessara tveggja
útflutningsaðiia sjávarafurða er öllu
jafnara hjá Atvinnutryggingarsjóði.
Þar hafa 40 Sölumiðstöðvarhús feng-
ið fyrirgreiðslu en 21 Sambands-
frystihús.
Hlutfallið hjá Atvinnutryggingar-
sjóði endurspeglar nokkuð vel hlut-
fall Sambandsins og Sölumiðstöðvar-
innar í útflutningi freðfiskafurða.
Eins og DV skýrði frá nýlega er hlut-
deild Sölumiðstöðvarinnar um 60
prósent en Sambandsins 30 prósent.
Aðrir hafa síðan 10 prósent af út-
flutningnum.
Fyrirgreiðsla þessara fyrirtækja
hjá sjóðnum er einnig svipuð í fjár-
hæðum; Sambandsfrystihúsin hafa
fengið um 66 milljónir að meðaltali
en Sölumiðstöðvarhúsin um 64 millj-
ónir.
Hlutfallið hjá hlutafjársjóði er
mjög á skjön við hlutdeild Sam-
bandsins og Sölumiðstöðvarinnar í
útflutningnum. Miðað við að tíu
Sambandsfrystihús hafa fengið að-
stoð ættu tuttugu Sölumiðstöðvar-
hús að fá það sama. Þau eru hins
vegar ekki nema tvö eins og áður
sagði. Á sama hátt ættu Sölumið-
stöðvarhúsin að fá um 1.580 milljónir
úr sjóðnum til að jafna Sambands-
húsin en fengu hins vegar ekki nema
109 milljónir.
Ef aðstoð þessara sjóða tveggja er
lögð saman kemur í ljós að Sam-
bandsfrystihúsin hafa fengiö um
2.175 milljónir en Sölumiðstöðvar-
húsin um 2.770 milljónir. Ef Sölumið-
stöðvarhúsin fengju aðstoð frá þess-
um sjóðum í takt við hlutdeild sína
í útflutningnum þyrfti hún að vera
um 1.580 milljónum hærri til að jafna
Sambandshúsin.
Aö meðaltali fékk hvert Sambands-
hús um 104 milljónir í aðstoð en Sölu-
miðstöðvarhúsin hins vegar 68 millj-
ónir.
Af þeim tíu fiskvinnsluhúsum, sem
hafa fengið mesta aðstoð úr sjóðun-
um tveimur, eru sjö Sambandsfrysti-
hús; meðal annars methafmn, Meit-
illinn í Þorlákshöfn, sem fékk sam-
anlagt 249 milljónir. Önnur Sam-
Þess má geta að DV ræddi viö einn
nemanda sem var að ljúka þarna
prófi. Sá sagði að þetta hefði verið
þungt próf, kennslan til fyrirmyndar
og hann sagðist ekki skilja hvað þeir
bandsfrystihús á þessum lista eru
Tangi á Vopnafirði, Hraðfrystihús
Þórshafnar, Freyja á Súgandafirði,
Fáfnir á Þingeyri, Hraðfrystihús
Grundarfjarðar og Búlandstindur á
Djúpavogi.
Sölumiðstöðvarhúsin þrjú á listan-
um eru Hraðfrystihús Stokkseyrar
(númer 2), Hraðfrystihús Vest-
mannaeyja (númer 3) og Síldar-
vinnslan á Neskaupsstaö (númer 7).
-gse
væru að fara sem rækju þennan ófrið
á hendur forstöðumanninum.
-S.dór
Miklar deilur innan Bifreiðaprófs ríkisins:
Forstöðumaðurinn kærður
fyrir afglöp í starfi
- sömu menn og gerðu upphlaupið í vetur, segir Guðjón Andrésson forstöðumaður
Karl Valdemarsson bifreiðakennari,
sem séð hefur um ökupróf meira-
prófsnemenda við Bifreiðapróf ríkis-
ins sem verktaki, hætti fyrirvara-
laust störfum síðastliðinn mánudag,
í miðjum prófum. Síðan gerðist þaö
í gær að hann kærði Guðjón Andrés-
son forstöðumann fyrir afglöp í opin-
beru starfi.
Það hefur mikið gengið á innan
hins nýstofnaða Bifreiðaprófs ríkis-
ins að undanfornu. Upphaf deiln-
anna má rekja til þess þegar Bifreiða-
skoðun ríkisins var lögð niður og
færð einkaaðilum. Þá var prófdeild
meiraprófsins gerð aö sérstöku fyrir-
tæki, Bifreiðaprófl ríkisins. Dóms-
málaráðherra skipaði Guðjón Andr-
ésson forstöðumann. Það líkaði ýms-
um starfsmönnum við meiraprófið
illa. Upp úr sauð þegar Guðjón vildi
ekki ráða tvo starfsmenn áfram í
vetur og síðan hefur deilum ekki
linnt.
Karl Valdemarsson hefur sinnt
ökuþætti meiraprófsins í 20 ár. Hann
er verktaki viö þetta starf og á sér-
hannaða bifreiða til að prófa á. Á
mánudag kom til orðaskipta milli
hans og Guðjóns og þeim lauk með
því að Karl hætti. Þá hafði hann lok-
ið við að prófa 18 nemendur af 42 sem
voru að ljúka meiraprófsnámskeiði.
„Þegar ég mætti til vinnu á mánu-
dag höfðu mér borist fréttir af því
að til stæði að reka mig. Ég hafði
tekið sýnishorn af prófverkefnunum
nemenda, eins og ég hef gert í allan
vetur. Það kom til orðaskipta milli
okkar Guðjóns þegar ég neitaði að
skila þeim sýnishornum sem ég hafði
tekið. Það endaði svo þannig að ég
gekk út. Guðjón er einnig búinn að
hirða af mér vinnuna sem ég hafði
við að prófa í Keflavík og láta son
sinn hafa hana. Því sagði ég að best
færi á því að ég hætti og sonur hans
tæki þá bara við öllu saman,“ sagði
Karl í samtali við DV.
Karl sagði að ekki væri lengur
hægt að vinna hjá Bifreiðaprófi ríkis-
ins eftir að Guðjón tók við. Hann
sagðist hafa sagt Guðjóni að hann
skammaðist sín fyrir að vera þátttak-
andi í þessu meiraprófi sem væri
hvorki fugl né fiskur og ekki meira
en venjulegt ökupróf. Svona hefði því
hrakað undir stjórn Guðjóns. Karl
viðurkenndi aö hér væri um áfram-
hald þeirrar deilu að ræða sem hófst
við ráðningu Guðjóns í vetur.
Hann sagðist hafa verið búinn að
taka fullt gjald af öllum 42 nemend-
unum. Hann sagðist vera byrjaður
að greiða þeim sem hann náði ekki
að prófa til baka. Þeir gætu líka vitj-
að peninganna á skrifstofu Sigurðar
Arnar Gíslasonar að Borgartúni 29.
Guðjón Andrésson forstöðumaður
sagði í samtali við DV að Karl stæði
ekki einn í þessu máli. Þeir sem
hefðu stofnað til deilna við sig í vetur
stæðu á bak viö hann. Hann ásakaði
þá menn og Karl fyrir að misnota
vinskap við lögregluvarðstjóra og
tollverði til að koma á sig höggi.
Guðjón sagðist hafa fengið aðra bif-
reið til að ljúka prófum á þegar Karl
hætti. Þá komu þegar í stað á vett-
vang tollverðir og lögregluvarðstjóri
til að skoða alla pappíra varðandi
þennan bíl sem að sjálfsögðu reynd-
ist í fullkomnu lagi. Samt töföu þeir
aö próf gætu haldið áfram í nærri
heilan dag. Þetta framferði varðstjór-
ans hefur Guðjón kært til yfirlög-
regluþjóns og er verið að kanna
hversvegna varöstjórinn mætti
þarna á staðinn og tafði prófin.
„Karl var að skipta sér af þeim
hluta meiraprófsins sem honum
kemur hreint ekkert við. Hann á
aðeins að sjá um verklega þáttinn,
aksturinn. En hann og þeir hinir sem
með honum standa að þessari rógs-
herferð á hendur mér hafa gert allt
sem í þeirra valdi stendur til að gera
mér erfitt fyrir í starfi," sagöi Guö-
jón.
Hann sagði þessa menn vera rekna
áfram af hatri á sér persónulega en
málefnalega væri staöa þeirra engin.
Guðjón Andrésson, forstöóumaður Bifreiðaprófs rikisins, fyrir framan bif-
reiðina sem lögregla og tollþjónar gerðu tilraun til að stöðva sem prófbil.
DV-mynd GVA
CGMBhCAMP
®
COMBI CAMP er traustur og
góður félagi í ferðalagið. Léttur í
drætti og auðveldur í notkun.
Það tekur aðeins 15 sek. að tjalda.
COMBI CAMP er hlýr og
þægilegur með fast gólf í svefn og
iverurými.
COMBI CAMP er á
sterkbyggðum galvaniseruðum
undirvagni, sérhönnuðum fyrir
íslenskar aðstæður, á fjöðrum,
dempurum og 10” hjólbörðum.
COMBICAIVIP
COMBI CAJVIP er einn mest
seldi tjaldvagninn á íslandi
undanfariri ár og á hann fæst
úrval aukahluta.
COMBI CAMP-er til sýnis í
sýningarsal okkar og tií
afgreidslu strax.
TÍTANhf
LÁGMÚLA 7
SÍMI 84077