Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1990.
Uflönd
Munu mótmæla komu De Klerk
Tass-fréttastofan um fund Prunskiene og Gorbatsjovs:
De Klerk, forseti Suður-Afriku, er hér ásamt belgiska forsætisráðherran-
um. De Klerk hefur vertð á ferðalagi um Evrópu. Simamynd Reuter
Andstæðingar kynþáttaaðskilnaðarstefnu suður-afrískra stjómvalda
hyggjast efna tíl mikilla mótmælaaðgeröa í Bretlandi í dag en þá er fyrir-
hugað að de Klerk, forseti Suður-Afríku, ræöi við Thatcher, breska forsæt-
isráðherrann. Thatcher er einn dyggasti stuðningsmaður de Klerks og
umbóta hans og var ein e vrópskra leiðtoga til að aflétta að hluta viðskipta-
banni þjóðar sinnar við Suður-Afríku.
Breskir embættismenn sögðu í gær að de Klerk, sem verið hefur á ferða-
lagi um Evrópu, myndi ræða við Thatcher í dag um umbætur þær sem
hann hefur staðiö fyrir í Suður-Afríku og breytingar á kynþáttaaðskiln-
aðastefnunni. De Klerk hefur til að mynda aflétt banni á starfsemi Af-
ríska þjóðarráðsins og látið lausa pólitíska fanga, þar á meðal Nelson
Mandela. í ljósi þessa vill forsetinn fá aðildarríki EB, Evrópubandalags-
ins, til að endurskoða refsiaðgerðir þær sem þau samþykktu gegn stjóm
Suður-Afríku.
14 þúsund rekin fyrir svindl í prófum
Yfir þrjú þúsund námsmenn hafa verið reknir vegna svindls í inntöku-
prófum í háskóla í Bangladesh undanfarna þrjá daga. Alls hafa þvi fjórt-
án þúsund verið rekin vegna svindls í þessari viku, að sögn emhætt-
ismanna. Yfir fimm hundruð kennarar hafa verið leystir frá störfum fyr-
ir að hafa aðstoöað nemendur við svindl frá því að prófin hófust fyrir
átta dögum.
Nær þrjú hundruð námsmenn hafa verið handteknir og fiögur hundruð
hafa raeiðst í átökum milli embættismanna og þeirra sem svindluðu. Að
sögn embættismanna hafa orðið róstur á hundrað þeirra staða af þeim
fimm hundruð þar sem nær hálf milljón námsmanna þreyta prófin.
í Bangladesh þykir það mikili álitshnekkir tyrir fjölskyldur ef börnin
standa sig ekki nógu vel í þessum prófum.
Kreppa í Sambandsflokknum í Færeyjum
Ágreiningur er um skiptingu afla til fiskvinnslustöðva i Færeyjum.
Sambandsflokkurinn í Færeyjum, sem er einn stjómarflokkanna, er
nú án forystu. Bæði formaður flokksins, Pauli Ellefsen, og flokksbróðir
hans, Jogvan I. Olsen, sjávarútvegsráðherra, hafa tilkynnt að þeir muni
láta af embætti. Ágreiningur er innan Samhandsflokksins um hvernig
skiptingu afla milli fiskvinnslustöðva skuli háttað.
Sjávarútvegsráðherrann hefur veitt samþykki sitt fyrir að fiskvinnslu-
stöðvarnar fái kvóta þar sem miðað er við ákveðinn kílóafjölda. Ellefsen
og fleiri í Sambandsflokknum vilja hins vegar að aflanum verði skipt
eftir hundraðshlutum eins og ákveðið haíði verið fyrr í vor.
Ellefsen sagöist draga sig í hlé vegna ágreiningsins innan flokksins og
bætti því við að hvorki hann né aðrir krefðust afsagnar sjávarútvegsráö-
herrans. En nokkrum klukkustundum eftir að Ellefsen hafði greint frá
þvi aö hann léti af embætti tilkynntí Olsen um að hann myndi segj a af sér.
Eins og málin stóðu i gær leit ekki út fyrír að kreppan innan Sambands-
flokksins ógnaði stjórnarsamstarflnu.
Hvatt til áframhaldandi hvalveiðibanns
Evrópuþingið hvatti í gær til áframhaldandi banns við hvalveiðum í
ágóðaskyni. Bann við þeim hefur verið í gildi frá því 1986 en hvalveiðí-
þjóðir þrýsta nú á Alþjóðahvalveiðiráðið um að breyta því þegar það
verður tekið til endurskoðunar í júlí.
Talsmaður grænfiiöunga lýsti yfir ánægju sinni með ákvörðun Evrópu-
þingsins sem hann sagði hafa sent hvalveiðiþjóðum þau skilaboð að þjóö-
ir Evrópu væru algjörlega andvígar hvalveiðum i ágóðaskyni.
Reuter og Ritzau
Litháar ganga
ekki nógu langt
Forsætisráðherra Litháens, Kazimiera Prunskiene, ræddi í gær við Gor-
batsjov Sovétforseta en það var í fyrsta sinn sem forsetinn ræddi við full-
trúa lýðveldisins frá því Litháar iýstu yfir sjálfstæði. Simamynd Reuter
Kazimiera Prunskiene, forsætis-
ráöherra Litháen, sagði að loknum
fundi sínum með Gorbatsjov Sovét-
forseta í gær að forsetinn hefði sagst
reiðubúinn að ræða við fulltrúa lýð-
veldisins að tilteknum skilyrðum
uppfylltum. En ummæli ráðherrans
stangast á við það sem sagði í fréttum
Tass-fréttastofunnar opinberu að
tilslakanir Litháa gengju ekki nógu
langt til að uppfylla kröfur sovéskra
ráðamanna. Fundur Prunskiene og
Gorbatsjovs í gær var fyrsti opinberi
fundur ráðamanna lýðveldisins og
háttsettra sovéskra embættismanna
síðan Litháen lýsti yfir sjálfstæði
þann 11. mars síðastliðinn. Forsetinn
hefur hingað til neitað aö ræða við
fulltrúa Litháa fyrr en þeir falla frá
eða fresta gildistöku sjálfstæðisyfir-
lýsingarinnar.
Prunskiene sagði að fundurinn
heföi verið jákvæður en að sovéskir
ráðamenn krefðust þess enn að yfir-
lýsingin yrði afturkölluö eða gildis-
töku hennar að minnsta kosti frest-
að. Ráðherrann gaf þó í skyn að Lit-
háar kynnu að finna málamiðlun á
deilunni með því að fella úr gildi lög
og reglur sem sett hafa veriö síðan
sjálfstæði var lýst yfir. Prunskiene
kvaðst nú mundu fara fram á við lit-
háiska þingið að það samþykki að
afturkalla þessi lög. Ef slík þingsam-
þykkt nægir til að minnka bilið sem
ríkir milli afstöðu litháiskra ráða-
manna og sovéskra geta samninga-
viöræður hafist, sagði ráðherrann á
fundi með blaðamönnum í g'ær.
Afstöðubreyting Sovétforseta, það
er aö ræða viö fulltrúa Litháa þrátt
fyrir ítrekaðar yfirlýsingar um að
slíkt myndi hann ekki gera, kom á
sama tíma og Baker, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, er staddur í
Moskvu til að undirbúa leiðtogafund
stórveldanna. Bandaríkjastjórn hef-
ur þrýst á sovéska ráðmenn að hefja
samningaviðræður við Litháa frá því
að deilumar fyrst hófust.
Baker mun ræða viö Gorbatsjov
forseta í dag sem og Prunskiene.
Sumir telja að með því að samþykkja
að hitta forsætisráðherra Litháen
kunni bandaríski utanríkisráðherr-
ann að vekja gremju sovéskra ráða-
manna. Baker er í Moskvu til að
reyna til hins ítrasta að greiða fyrir
samningum um fækkun langdrægra
kjarnorkuvopna en leiðtogar stór-
veldanna vonast til að undirrita drög
að samningi á fyrirhuguðum leið-
togafundi í maí. Bandarískir og so-
véskir embættismenn unnu fram á
nótt til að reyna að ná málamiðlun
um helsta ágreiningsatriðið, það er
stýriflaugar. Háttsettur bandarískur
embættismaður sagði að viðræðurn-
ar væru erfiðar og að alls ekki lægi
fyrir hver niðurstaðan yrði. Fundur
Bakers og Gorbatsjovs í dag virðist
besta tækifærið fram til þessa til að
losa um hnút þann sem kominn er á
viðræður embættismannanna.
Reuter
Flugvél hrapaði í
íbúðarhverfi
Tuttugu og fimm manns iétu lifið er flugvél skall til jarðar i íbúðarhverfi i
Manila í morgun. Símamynd Reuter
Tveggja hreyfla flugvél frá Filipps-
eyjum skall til jarðar í íbúðarhverfi
í Manila í morgun með þeim afleið-
ingum að tuttugu og fimm manns
biðu bana, allir sem um borð voru í
véhnni og fjögurra manna fjölskylda
á jörðu niðri.
Framhluti flugvélarinnar, sem var
af gerðinni Beechraft 1900, lenti inn
í aðalsvefnherbergi fiölskyldu jap-
ansks kaupsýslumanns. Stél flugvél-
arinnar stöðvaðist við sundlaug við
hús fiölskyldunnar.
Slysið átti sér stað nokkrum mínút-
um eftir flugtak en vélin var á leið
til borgarinnar Suriago sem er fyrir
sunnan Manila.
Þetta var þriðja flugslysið í Filipps-
eyjum á einni viku. Atta farþegar
biðu bana og tugir slösuðust á föstu-
daginn í síöustu viku þegar spreng-
ing varð um borð í farþegaþotu á
flugvellinum í Manila. Sex manns
létu lífið þegar herþyrla fórst á laug-
ardaginn á eyjunni Mindanao.
Reuter