Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Side 11
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1990.
11
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
.
@1 n® Js k Gabríe m HÖGGDEYFAR I
i STERKIR, ÖRUGGIRjj^ } ÓDÝRIR! ÆM
1 ■IABER Zlk (9
SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91 ■8 47 88
Iiza Minnelli
er ákaflega hriflnn af hundinum
sínum Lilly. Eins og menn muna
var hún dæmd til sektar í Svíþjóö
í fyrra fyrir aö reyna aö smygla
Lilly inn í landið. Hún lét sér
þetta aö kenningu veröa. Minn-
elli er mikiö á ferðalögum, enda
vinsæll skemmtikraftur og þegar
hún fer til íjarlægra staða hefur
hún ekki hundinn sinn meö sér,
í stað þess eyðir hún sem svarar
sex þúsund krónum á dag i síma-
reikning. Hún hringir nefnilega
heim til sín og þar lætur umsjón-
armaður hundsins tóhð viö eyra
Lilly og Liza getur þá talaö að
vild viö gæludýrið sitt. Þaö fylgir
sögunni aö fátt sé um svör öörum
megin á línunni.
Burt
Reynoids
og Tom Sélleck eru miklir vinir.
Vinskapur þeirra er ekki ein-
göngu í einkalífinu, heldur eiga
þeir saman fyrirtæki sem fram-
leiöir kvikmyndir. Þeir kynntust
með nokkuö spaugilegum hætti.
Þegar þáttarööin Magnum PI var
að hefja göngu sína sögöu blöö
að Selleck væri mjög líkur Burt
Reynolds bæöi í úthti og leik.
Reynolds sendi Selleck mynd af
sjálfum sér og myndinni fylgdi
þessi texti: „Kæri Tom, þaö er
kominn tími til að þú vitir sann-
leikann, ég gaf þig Selleck hjón-
unum þegar þú varst þriggja
mánaöa, ég er íúnn raunverulegi
faöir þinn.“ Tom Selleck kunni
vel að meta grínið og uröu þeir
brátt perluvinir og eru þaö enn
þann dag í dag.
Donald
Sutherland
hefur nú loks fengiö sambýlis-
konu sína í átján ár, Francine
Racette til aö giftast sér, Racette
er frönsk/kanadísk leikkona.
Veröur þaö þriöja hjónaband Sut-
herlands en fyrsta hennar. Meö
annarri eiginkonu sinni á hann
þijá syni, meðal þeirra er Kiefer
Sutherland, sem er vinsæh leik-
ari í dag. Sutherland sagðist alltaf
hafa viljað giftast Racette, en hún
hafi ávallt veriö á móti hjóna-
bandi. „Ég er búinn að biöja
hennar aö minnsta kosti einu
sinni á ári, en svarið sem ég hef
alltaf fengiö þar til nú er aö
hjónaband bæti engu viö sam-
band okkar.“
Dýrasta golfsett í heimi
Sjálfsagt á enginn kylfingur eftir aö „pútta“ meö þessari golfkylfu sem sést
á myndinni, enda er hún skreytt demöntum sem og boltinn og tíiö. Verö-
mæti þessara þriggja hluta er talið vera 663.000.00 dollarar sem er eitt-
hvað nálægt fjörutiu milljónum íslenskra króna. í pútternum eru 288 demant-
ar, boltinn 318 demanta og tíið 44 demanta. Þessir hlutir skreyta mikla
demantasýningu sem haldin er í Tokýo þessa dagana. Ekki fylgir sögunni
hvort þeir eru til sölu.
ÚRVAL á næsta blaðsölustað
Úrval