Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1990. Spumingin Hefurðu komið í Viðey? Bryndís Kristensen, nýbökuð móðir: Já, einu sinni og gekk um eyjuna. Björn Ingimundarson nemi: Þó skömm sé frá að segja þá hef ég kom- iö til Kaíró en aldrei í Viðey. Öm Ólafsson iþróttakennari: Nei, en fyrst þú minnist á það getur verið að maður hafi það af í sumar. Ragnar Jónsson málari: Nei, en það hefur oft hvarflað að mér að skreppa. Jón Þórarinsson verslunarmaður: Ég hef farið þangað einu sinni og það var alveg virkilega gaman. Guðmundur Ingason nemi: Nei, því miður en kannski læt ég verða af því einhvem tima. Lesendur Amarflug og þjóðarþotur: Sjálfsmorð í flugsamgöngum? flugs. - Flugleiðir hf. geta ekki bætt miklu við sig nú eins og fram kemur hjá samgönguráðherra í viðtali við hann í Mbl. 15, þ.m. og þeirri flutningaleið sem Arnarflug hefur annast verður að sinna. Því verður vart trúað að við ís- lendingar séum svo heillum horfn- ir að vilja fremja eins konar sjálfs- morð í flugsamgöngum okkar með því að standa ekki saman og verja þau innlendu flugfélög sem hér eru. Fyrr hefur flugfélag átt í rekstrar- erflðleikum og ekki hlotist þjóðar- mein af - nema síður væri. Þess mega menn minnast. Þráinn skrifar: Það ætlar ekki að verða lát á frét- taflutningi ljósvakamiölanna af erfiðleikum Arnarflugs. í útvarps- fréttum hjá RÚV 14. maí var sagt frá því að þar sem leiguþota Arnar- flugs myndi ekki koma fyrr en á miðvikudag (talað á mánudags- kvöldi) væri ástandið hjá Arnar- flugi afar slæmt og eiginlega látið að því Uggja að félagið væri nú endanlega búið að vera! - Sérstök áhersla var lögð á orðið „miðviku- dag“ eins og um margar vikur væri að ræða! En hvað er eiginlega að ske, og af hverju láta menn sér svona annt um að blása erfiðleika Arnarflugs svo út sem raun ber vitni? Hvers vegna getur ríkið ekki Uðkað betur til fyrir þessu nauðsynlega sam- göngufyrirtæki svo að það megi halda velli, þar til gengið hefur verið frá leigusamningnum um þotuna sem nú verður leigð til fjög- urra ára? Á sama tíma og Amarflug greiðir ofQár til erlendra og innlendra að- ila (og veröa að staðgreiða hinum innlendu) þá leigir fjármálaráð- herra fyrrverandi þotu Arnarflugs (sem tekin var af þeim vegna skulda) til annars aðila, sem greið- ir rúmar 7 milljónir í leigu á mán- uði, vegna þess að þeim aðfla hefur heldur ekki tekist að standa í skil- um ef marka má fréttir! Mér hefði því ekki fundist óeðlilegt að ríkið hefði gert sitt tU að liðka til fyrir Arnarflugi þessa fáeinu daga sem það hefur orðið að heyja baráttu sína í fjölmiðlum og orðið að greiða offjár til erlendra og innlendra að- ila á meðan gengið er frá leigu- samningi um þotu til lengri tíma. Við getum alveg bókað það að ef Arnarflug verður „látið“ rúlla vegna yfirstandandi erfiðleika, sem eru fyrst og fremst tU komnir vegna þess að það fær ekki sambærilegar flugleiðir og helsti samkeppnisaðU- inn, þá verður óðar komið í burðar- liðinn annað farþegaflugfélag, sem heldur uppi því merki sem almenn- ingur hér vill að verði haldið á lofti, þ.e. að hér verði ávallt tvö innlend flugfélög til alþjóðlegs Llfsbjörg Magnúsar Guðmundssonar: Að þora ekki Inga Magnúsdóttir skrifar: Er ég hafði hlýtt á fréttaþátt Bylgj- unnar fimmtud. 26. apríl sl., þar sem taka átti fyrir kærumál grænfrið- unga í Noregi á hendur Magnúsi Guðmundssyni vegna myndar hans um lífsbjörgina, setti mig hljóða er kynnt var í upphafi þáttarins að Magnús neitaði að ræða máhð í þætt- inum ef Magnús Skarphéðinsson hvalavinur væri þar til staðar líka. Þetta fannst mér vægast sagt mjög lélegt af Magnúsi Guðmundssyni og sýna skort á sannfæringu fyrir eigin málstað. Að þora ekki að fá gagnrýni á sig lýsir venjulega einhverju öðru en sterkum málstað. - Hvernig eig- um við hlustendur aö mynda okkur skoðanir á málum ef aðeins önnur hUðin fæst rædd? Fyrir utan hroka gagnvart and- Rannveig hringdi: Sl. sunnudag var á dagskrá Sjón- varpsins (RUV) þátturinn Ung- mennafélagið, sem er í umsjá þeirra Valgeirs Guðjónssonar og Eggerts Gunnarssonar. Þetta hefur til skamms tíma verið sá sjónvarpstími sem börnin hafa notfært sér. - Nú var þessi þáttur, Ungmennafélagið, ætlaður krökkum á aldrinum 12 ára og þar yfir. Ég var satt að segja mjög fyrir vonbrigðum með að þessi þátt- ur skyldi hafa verið tekinn til sýning- ar yfirleitt, og þá endilega á þessum tíma, sem börnin hafa haft. í þessum „Ungmennafélags“-þætti voru umsjónarmennimir að velta fyrir sér ofbeldi í samfélaginu og kanna form þess og myndir, eins og segir í dagskrártilkynningu. Eitt og annað átti að koma þama fram sem „Pussycats“ skrifa: Við eram níu ungar konur hér í Reykjavík og langar til aö koma á framfæri þakklæti til starfsfólks á veitingahúsinu Fiðlaranum á þak- mælanda sínum fannst mér þetta líka sýna litla stórmennsku, að þora ekki þrátt fyrir allt að fá andstæð sjónarmið, hverju nafni sem þau nefnast. Ég varð bara orðlaus þegar fréttamaðurinn kynnti hvernig kom- ið væri og að þeir nafnarnir, sem báðir vora mættir á staðinn, gætu ekki tekist á, hvor með sitt sjónar- miö. - það er eitthvað bogið við svona vinnubrögð. En kvikmyndagerðarmaðurinn hleypti einnig illu blóði í mig vegna annars. - Þegar eyðing regnskóg- anna barst í tal og annað sem nátt- úruverndarsamtök á borö við Gre- enpeace berjast gegn, fuUyrti Magn- ús Guðmundsson það í beinni út- sendingu aö eyðing skóganna væri að mestu leyti uppflnning grænfrið- unga og ætti sér litla stoð í raun- var í tengslum við atburði í miðbæ höfuðborgarinnar undanfarið, sýnd- ar eftirlíkingar af drápstólum í leik- fangaformi, og einnig átti að kanna sálfræðilegar orsakir ofbeldis. - Síð- ast en ekki síst voru svo sýndar teikningar úr efninu, sem var tekið ftjálslega til meðferðar af teiknaran- um. Það má vel vera, að hér sé um sjón- varpsefni að ræða sem sé siðferöilega sýningarhæft fyrir 12 ára krakka. En hryllingsmyndir eru sannarlega ekki neinn gleðigjafi fyrir böm fyrir neðan þann aldur, eða þann aldur sem mest horfir á bamaefni sjón- varps. - Ég á strák á 7. ári, en sá ald- ur dugði engan veginn fll að hann fengi ekki martröð næstu nótt, eftir aö hafa horft á Ungmennafélagsþátt- inn. inu, á Akureyri, þar sem viö áttum mjög svo ánægjulegt kvöld sl. laugar- dag (12. maí). Þar sem maturinn var frábær og frábær þjónusta var höfð í fyrirrúmi veruleikanum. - Væri bara ein leið til að láta á sér bera og afla sér fjár og frægðar. í hvaða heimi lifir þessi maður eig- inlega? Það veit hvert mannsbarn að eyðing regnskóganna er yfirþyrm- andi vandamál mannkyns í dag. Um þetta vitna aUar skýrslur vísinda- manna sem hið minnsta hafa kannað málið. Ég hefi nú ekki haft neinar sérstak- ar skoðanir á hvalaveiðum okkar íslendinga til þessa en ef röksemda- færsla og vinnubrögð hjá okkur eru eitthvað lík þessu sem heyra mátti hjá kvikmyndagerðarmanninum þarna á Bylgjunni gef ég ekki mikið fyrir þann málflutning. - En lélegast af öllu var að þora ekki að mæta í rökræður - hvað sem öðra líður. Eg hringdi tU Sjónvarpsins og kvartaði undan þessu myndefni svo og sýningartímanum. Svarið var ein- faldlega að þetta væri nú einu sinni efni fyrir 12 ára krakka og eldri. Ég er þó þeirrar skoðunar aö svona myndir sem þarna vora sýndar myndu ekki vera sýndar í kvik- myndahúsi án þess að banna þær yngri en 16 ára. Hér er vissulega ver- ið að taka upp sýningartíma sem allt- af hefur verið fyrir yngri börnin. - Það fer ekki vel á því að á sama tíma og brýnt er fyrir foreldrum að láta krakka ekki horfa á hryllingsmyndir sé Sjónvarpið að svíkja lit með því að efna til myndþátta undir hinu sakleysislega heiti Ungmennafélagiö og demba yfir krakka hryllingi sem engan veginn á heima á besta útsend- ingartíma fyrir börnin. á starfsfólkið lof skilið fyrir skemmtilegt og ógleymanlegt kvöld. - Og ekki var það verra að maturinn var mjög vel úti látinn - og á viðráð- anlegu verði. - Takk fyrir okkur. Námslán og framfærsla Lánþegi skrifar: Mér var að berast illur póstur inn um lúguna. Það var bréf frá mennta- málaráðherra vorum, Svavari Gests- syni, þar sem hann dásamaði upp- hæð námslánanna og útskýrði fjálg- lega hversu mikið lánin heíðu hækk- að, miöað við ýmsar vísitölur. - Svavar virðist þó alveg hafa gleymt að útskýra hvers vegna mitt námslán hefur lækkað um talsverða flárhæð. Ég get ekki sagt um hvort erfitt er að lifa af almennum námslánum, en lækkunin á lánum námsmanna í for- eldrahúsum er fyrir neðan allar hell- ur. Segi Svavar rétt til um aö námsl- án til einstaklinga í leigu- eða eigin húsnæði verði kr. 53.573 á mánuði í sept. 1990 er það gott og blessað. í það minnsta er það hærra en laun margra eftir skatta. - Hins vegar verður mitt lán aðeins 50% af þessu, þ.e. kr. 26.786,50 á mánuði. Hvernig á ég að lifa af því? Það eru ekki allir sem eiga efnaða foreldra. Sumir námsmenn í foreldr- ahúsum eru svo heppnir að hafa allt til alls og geta því stungið námslán- inu sínu beint í sparigrísinn. Aðrir þurfa að borga kr. 15.000 á mánuði eða meira fyrir fæði og húsnæði. Taka verður tillit til þeirra líka því þeir ættu ekki eftir nema 11.786,50 fyrir bókum, ritföngum, fötum og strætisvagnakortum. Þar að auki hefur bókalánið lækk- að. Hámarks bókalán verður kr. 16.071,90 á hverri önn en t.d. eyddi ég um 21.000 kr. í bækur á síðustu önn. Þetta hámarkslán gildir þó bara fyrir þá sem geta sannað að bækurn- ar nýtist þeim ekki að námi loknu, svo líklegra er að bókalánið verði bara það sem fæst án sannanna, þ.e. kr. 9.643,15 á önn. - Það verður því þröngt í búi hjá mörgum nemum í foreldrahúsum næsta vetur og flnnst mér líklegt að margir verði að hætta námi eða flytja í leiguhúsnæði, til þess að fá meira út úr lánasjóðnum. Margir hafa bent á að með auknu tekjutilliti verði meira um að nemar vinni skattfrjálst til að koma tekjum sínum undan en ég tel að jafnmikið verði um það að nemar í foreldr- ahúsum geri falska leigusamninga við vini og ættingja til þess að geta betur séð fyrir sér. Það sem ég vildi sjá er að framfærsla námsmanna í foreldrahúsum verði aftur færð upp í 70% af grunnframfærslu. - Það myndi a.m.k. leysa minn vanda og eflaust margra annarra. HryUingsmyndir í bamatímum: Sjónvarpið svíkur lit Góður Fiðlari á Akureyri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.