Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1990, Síða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsíngar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1990.
Sljórn Sýnar
í viðræðum
við Frjálsa
fjölmiðlun
Samningaviðræður eru nú á mOli
stjórnar Sýnar og Frjálsrar Fjölmiðl-
unar hf. um mat á hlutabréfum
Frjálsrar fjölmiðlunar í Sýn við sam-
einingu sjónvarpsstöðvanna tveggja.
Frjáls fjölmiðlun hf. gerði stjórn
Sýnar formlegt tilboð í gær um að
ganga inn í kaup Stöðvar 2 á hluta-
bréfum Sýnar. Áður hafði félagið
sent bréf þar sem lýst var yfir áhuga
á að nýta sér forkaupsréttinn og
ganga inn í kaupin.
Samningaviðræðurnar ganga út á
að hækka mat á hlutabréfum Frjálsr-
ar fjölmiðlunar í Sýn upp í sölugeng-
■ '■*ið 2,0, en það sölugengi sættir Frjáls
fjölmiðlun sig við. Hlutabréfin í Sýn
voru metin á genginu 1,5 þegar sam-
ið var um sameiningu sjónvarps-
stöðvanna.
Ekki er gert ráð fyrir að önnur
hlutabréf í Sýn hækki að sama skapi.
Einnig er í þessum samningaviðræð-
um rætt um tilboð Frjálsrar fjölmiðl-
ar um að ganga inn í kaup Stöðvar 2
á bréfunum.
Náist enginn árangur í þessum við-
ræðum og hluthafafundurinn í Sýn
í hádeginu breyti samþykktum fé-
lagsins og felli niður forkaupsréttinn
vegna samnings sem gerður var fyrir
hálfum mánuði, eins og tillaga er um,
hyggst Frjáls fjölmiðlun láta reyna á
málið fyrir dómstólum.
-JGH
Lést í slysi
á Mallorca
Tæplega átján ára íslenskur piltur,
Þórólfur Baldvin Hiimarsson, lést í
umferðarslysi er hann var í ferðalagi
á Mallorca síðastliðinn miðvikudag.
Slysið varð með þeim hætti að piltur-
inn ók bifhjóli sem lenti í árekstri
* við bíl með fyrrgreindum afleiðing-
um.
Þórólfur hefði orðið átján ára 23.
maí. Hann var nemandi í Laugaskóla
og átti heima að Árnesi í Aðaldæla-
hreppi í S-Þingeyjarsýslu.
-ÓTT
Grundarkjör í þrot
Grundarkjör var úrskurðað gjald-
þrota í gær. Verið er að lýsa eftir
kröfum í þrotabúið. Búið er að skipa
tvo bústjóra að þrotabúinu.
Þrotabúið hefur látið innsigla tvær
verslana Grundarkjara, við Furu-
grund og Reykjavíkurveg. Það er
^ gert vegna þess að í þeim verslunum
eru lagerar sem þrotabúið telur sína.
-sme
Um þjú hundruð þúsund laxaseiði drepin vegna nýmaveiki:
Tjónið er allt
Mt HJI ■■■■ * ■
30 30 milljonir
- dauð seiðin í opinni þró 60 metra frá annarri seiðaeldisstöð
Tæplega þrjú hundruð þúsund hrognum eyðilagðir að Læk og stöðvum. Hins vegar er vitað um ir bótalaust á hausinn. Því verður
laxaseíði, 50-100 grömm að þyngd, tjónið þá metið á um fimm og hálfa smit í fjórum framhaidseldisstöðv- að ganga þannig frá málum að
voru drepin í laxeldisstöð fslenska milljón. Að viðbættu tjóni gær- um og þá metið í hverju tilfelli smitið fari ekki beint í næstu stöð.
fiskeldisfélagisns hf. að Læk í Ölf- dagsins og framreiknuðu verðmæti hvað gert er,“ sagði Sigurður Það var enginn varaður við þessu
usi í gær. Úrskurður um að seiðin hrognanna ef þau hefðu verið Heigason, forstöðumaður fisksjúk- á nokkurn hátt. Það er óskaplega
skyldu drepin vegna nýrnaveiki ræktuð áfram geta menn sér til um dómadeildar Tilraunastöðvar Há- klaufalega að þessu staðið," sagði
kom frá landbúnaðarráðaherra að heildartjón íslenska fiskeldis- skólans að Keldum. Þorvaldur Garðarsson, forstjóri
fyrir viku að fengnu áliti fisksjúk- félagsins geti numið einhvers stað- Dauðu seiðunum var sturtað í Smára, við DV.
dómanefndar. Samkvæmt heimúd- ar milli 30 og 100 milljónum króna opna þró um 60 metra frá seiðaeld- „Eyðing dauðra seiða veröur að
um DV var þá sýnt að engar bætur á þessu ári. isstöð Smára hf. í Þorlákshöfn. Var fara fram með mikilli gát og skiptir
yrðu greiddar vegna tjónsins, þrátt Erling Magnússon er stjórnar- þeim ekið þangað á opnum vöru- miklu máli hvernig að henni er
fyrirtryggingar,þarsemtilskípun- formaður íslenska fiskeldisfélags- bfl, framhjá stöð Smára hf. staöið. Það verður að koma í veg
in um drápið kom frá stjómvöld- ins og einn stærstu hluthafa, Hann „Ég veit ekki hver hættan á smiti fyrir smitdreifingu og því má ekki
um. Þótti tilverugrundvöllur fyrir- vildi ekki láta hafa neitt eftir sér er en einhver er hún þar sem dýr eyða sýktum fiski á þann hátt að
tækisins því brostinn og það lýst um málið að svo stöddu. eiga greiðan aðgang að dauðu seið- það setji aðra í hættu,“ sagði Sig-
gjaldþrota. „Okkur er ekki kunnugt um unum. Það er ekkert smámál þegar urður.
Fyrr í vetur voru 710 lítrar af nýmaveikismit í öðrum seíðaeldis- skoriðersvonaniður ogmennsett- -hlh
Dauðum seiðunum frá seiðaeldisstöðinni að Læk í Ölfusi var komið fyrir
á opnum vörubílspalli og þeim siðan ekið í opna þró í Þorlákshöfn - 60
metra frá seiðaeldisstöð Smára hf. þar sem um milljón seiði eru.
DV-mynd Brynjar Gauti
Arnarflug:
Flugvélin er á leið til landsins
- segir stjórnarformaöur Arnarflugs
„Það voru margir góðir menn sem
gengu í lið með okkur til að fá þessa
skráningu í gegn og fá bandarisku
flugmálastjórnina opnaða til að af-
skrá vélina í Bandaríkjunum,“ sagði
Hörður Einarsson, stjórnarformaður
Arnarflugs, í samtali við DV í morg-
un. Hörður sagði að með aðstoð utan-
ríkisráðherra, utanríkisráðuneytis-
ins, bandaríska sendiráðsins og fleiri
aðila hefði tekist að koma vélinni í
gegn en þegar skrifstofunni úti var
lokað í gærkvöldi var Arnarflugs-
þotan næst í röðinni. Sagði Hörður
að þeir hefðu taliö óviðunandi að búa
við það og því hefði allra ráða verið
leitað til að opna og hefði tekist að
fá flugvélina afgreidda.
Flugvélin fer frá Montreal kl. 6.30
að staöartíma en fyrr er ekki hægt
að komast í loftið. Þetta er kl. 10.30
að íslenskum tíma en gert er ráð fyr-
ir að vélin lendi hér kl. 16 í dag.
Sagði Hörður að vélin færi í áætl-
unarflug strax í dag þó ljóst væri að
veruleg seinkun yrði hjá þeim far-
þegum sem átt hefðu pantað far í dag.
í gær fóru þrír lífeyrissjóðir fram
á lögtak hjá félaginu vegna um 30
milljón króna skulda við sjóðina.
„Það hefur verið rætt við forsvars-
menn þessara sjóða og ég yeit ekki
annað en að þar sé mikilli lipurð að
mæta og ég hef ekki trú á öðru en
að málið við þá leysist farsællega,“
sagði Hörður.
- En hefur þú trú á að félagiö nái
sér á skrið eftir umtal og erfiðleika
síðustu daga?
„Auðvitað hafa þessir erfiðleikar
félagsins skaðað að undanfórnu en
ég hef trú á því að það muni mjög
fljótt takast að vinna aftur tiltrú flug-
farþega,“ sagði Hörður.
Málefni Arnarflugs voru rædd á
ríkisstjórnarfundi í gær og þá átti
samgönguráðherra fund með for-
ráðamönnum félagsins. Að sögn
Steingríms J. Sigfússonar sam-
gönguráðherra spurði hann Arnar-
flugsmenn hvernig þeir sæju fram á
að greiða úr rekstri félagsins.
„Þeir lögðu fram gögn sem eiga að
sýna að það séu þegar komnir um-
talsverðir peningar í reksturinn og
út af fyrir sig held ég að það hljóti
að vera því þeir hafa þó haldið sér
gangandi undanfarnar vikur. Ég tek
það til marks um að það séu ákveðn-
ir peningar að koma inn og vissulega
er það í rétta átt,“ sagði samgöngu-
ráðherra. -SMJ
LOKI
Það hefur þá ekki verið
grundvöllur fyrir þessum
kjörum.
Veðrið á morgun:
Sums
staðar
smáskúrir
Á morgun verður hæg, breyti-
leg átt og skýjað að mestu um
allt land. Sums staðar smáskúrir
suðvestanlands en þokubakkar
við norðurströndina. Hitinn
verður á bilinu 5 til 10 stig.
SAFARÍKAR
GRILLSTEIKUR
uu/
Jarlinn
TRYGG VAGÖTU SPRENGISANDI
BÍLALEIGA
v/Flugvallarveg
91-61-44-00