Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990. Fréttir Hættuleg eiturefni fundust í tengslum viö morðmálið: Höfðu grafið blásýru og arsenik í jörð - Snorri og Guðmundur höfðu brotist inn í geymslur Iðunnarapóteks Rannsóknarlögreglan komst á laugardaginn yfir nokkra tugi kílóa af eiturefnum og stórhættulegum hráefnum sem notuö eru við að laga lyf. Mál þetta tengist þeim Snorra Snorrasyni og Guðmundi Helga Svavarssyni, þeim sem grun- aðir eru um morðið í bensínstöö Esso við Stóragerði þann 25. apríl síðastliðinn. Efnin voru grafin upp fyrir utan Reykjavík en þar höfðu þau verið falin. Mennirnir tveir brutust inn í gamlar geymslur í Iöunnarapóteki við Laugaveg, nokkru áður en morðið var framið. Innbrotið var kært þann 23. apríl. Mennirnir komust þarna yfir margs konar stórhættuleg efni sem höfðu verið geymd i langan tima. Samkvæmt heimildum DV var hér um að ræða nítróglyserín, blásýru, arsenik, sem er rottueitur, og efni sem með- al annars tengjast amfetamíni og sterkum fikniefnum. Efnin munu þeir Snorri og Guðmundur Helgi hafa ætlað að selja eða útbúa með einhveiju móti og nota til fíkni- efnasölu og neyslu. Við innbrotið gerðu þeir sér þó ekki grein fyrir hvað þeir voru með í höndunum. Eiturefnin sem fundust við upp- Út um dyrnar, þar sem vörumóttaka fer fram við Iðunnarapótek á Laugavegi, báru Snorri Snorrason og Guðmundur Helgi Svavarsson nokkra þunga kassa sem i voru sprengivökvi, blásýra og ýmis lyfjaefni sem voru geymd í bakhúsi. Þetta stórhættulega þýfi fannst niðurgrafið fyrir utan Reykjavik síðastliðinn laugardag. DV-mynd JAK gröftinn voru í mjög miklu magni - meðal annars í flöskum og hylkj- um með fljótandi vökva í. Þetta hafði verið látið standa í geymslu- plássi í húsnæði apóteksins. Efni þessi eru stórhættuleg og heföu getaö valdið stórtjóni í höndum innbrotsþjófanna - jafnt mönnum sem umhverfi. Apótekarinn í Ið- unnarapóteki vildi ekkert ræða um þetta mál við DV og vísaði á Rann- sóknarlögreglu. DV hefur upplýsingar um að eftir að ljóst varð að eiturefnin hurfu hafi lögregla og þeir sem til þekktu orðið mjög uggandi um afdrif þýfis- ins vegna hættunnar sem hefði get- aö skapast. Til að mynda er nítróg- lyserín sprengiefni, sem verður að handleika með mikilh varúð auk þess sem blásýran og önnur af lyfj- unum eru hreinu formi og ban- eitruð. Úrskurður um gæsluvarðhald yfir Snorra Snorrasyni, Guðmundi Helga Svavarssyni og sambýlis- konu hans rann út í dag. RLR fer fram á það hjá Sakadómi í dag að gæsluvarðhald yfir karlmönnun- um veröi framlengt. -ÓTT Magnús Hjaltested um lausagöngu hrossa sinna um borgarlandið: Lýsi allri ábyrgð á hendur Davíð Oddssyni „Eg lýsi allri ábyrgð vegna þessa máls á hendur Davíð Oddssyni. í þinglýstum kaupsamningi á milli mín og Reykjavíkurborgar á að vera löglegt rörahhð á þjóðveginum við Vatnsendalandið. Þetta hlið hefur ekki verið sett upp á umsömdum stað. Hhðið sem stendur þama núna hefur valdið umferðaróhöppum. Meðal annars hefur þurft að lóga einu hrossi frá mér. Hliöið er ólög- legt á allan hátt. Ég hef því lýst allri ábyrgð á hendur borginni. Ég geri ekki við neinar girðingar fyrr en þessu hefur verið kippt í lag,“ sagði Magnús Hjaltested bóndi á Vatns- enda við DV þegar hann var inntur álits á nær daglegri lausagöngu hrossa hans í Breiöholti og Selás- hverfi að undanfórnu vegna óheldra girðinga í landi hans. Eins og fram hefur komið í DV hefur það gerst allt að þrisvar á dag að hross frá Vatnsenda og víðar sleppa úr girðingu og inn í borgar- landið. Tugir kvartana hafa borist frá húseigendum vegna skemmda á gróðri og túnflötum í einkagöröum að undanfornu. „Ég hef verið algjörlega svikinn samkvæmt kaupsamningnum. Þetta hlið, sem átti að vera greiðsla til mín, var sett upp í bhndbeygju og þar er hætta á stórslysum. Ábyrgðin er því í höndum Davíðs núna. Ég geri ekki við neinar girðingar fyrr en hliðamálin eru komin í lag sam- kvæmt kaupsamningi," sagði Magn- ús Hjaltested. DV hafði samband við Inga U. Magnússon gatnamálastjóra en þessi mál heyra undir hann hjá borginni. Ingi sagðist ætla að halda skyndifund með vörslumanni borgarlandsins, sem hefur þurft að reka hrossin nær daglega úr húsagörðum í borgar- landinu, og bera undir hann til hvaða aðgerða skuh grípa vegna þessarar tíðu lausagöngu hrossanna frá Vatnsenda. -ÓTT - sjá nánar bls. 5 Saltfiskframleiðendur: Vilja einokun á útflutningi áfram Á aðalfundi SÍF í gær komu fram harkaleg viðbrögð gegn hugmynd utanríkisráöherra um aö útflutningsleyfi á saltfiski veröi gefin öðrum aðilum en SÍF. I ræðu sinni sagöi formaöurinn, Dagbjartur Einarsson, meðal annars: „Hugmyndir utanríkis- ráðherra, og hann virðist dyggi- lega studdur af nafna sínum í við- skiptaráöuneytinu, um að svipta SÍF því sérleyfi sem það hefur haft í nær 60 ár, er vanhugsuö aðgerð sem byggist fyrst og fremst á þekkingarleysi viðkom- andiaöila.“ pj Norræn skólaskák: Harðskeytt sveit til Danmerkur Frækin sveit ungra skákmanna heldur til Esbjerg í Danmörk í dag til að taka þátt í norrænni skólaskák 1990. Þetta er hin árlega einstakhngs- keppni og verður teflt í fimm aldurs- flokkum og á hvert Norðurlandanna rétt á að senda tvo keppendur i hvern flokk. Tefldar verða sex umferöir eft- ir Monradkerfi í öllum flokkum. í einstaklingskeppninni á síðasta ári unnu íslendingar fjóra flokka af fimm og þótti það frækilegt afrek enda hafði það ekki gerst áöur síðan keppnin hófst að eitt land nýti slíkrar velgengni. Fyrir sveit íslendinga fara tveir alþjóðlegir meistarar en þeir Hannes H. Stefánsson og Þröstur Þórhallsson tefla í elsta flokknum. Aörir kepp- endur eru Snorri Karlsson, TR, Ragnar Fjalar Sævarsson, TR, Magn- ús Örn Úlfarsson, TR, Þórleifur Karlsson, SA, Helgi Áss Grétarsson, TR, Stefán Freyr Guðmundsson, SH, Jón Viktor Gunnarsson, TR, og Matt- hías Kjeld, TR. Athygli vekur að Héöinn Stein- grímsson fer ekki með að þessu sinni en hann hefur átt fádæma velgengni að fagna á þessum mótum til þessa. Mun ástæða þess vera deilur á milh foreldra Héðins og taflfélagsmanna. -SMJ Fyrir sveit íslendinga fara tveir alþjóðlegir meistarar en þeir Hannes H. Stefánsson og Þröstur Þórhallsson tefla í elsta flokknum. Aðrir keppendur eru Snorri Karlsson, TR, Ragnar Fjalar Sævarsson, TR, Magnús Örn Úlfarsson, TR, Þórleifur Karlsson, SA, Helgi Áss Grétarsson, TR, Stefán Freyr Guðmundsson, SH, Jón Viktor Gunnarsson, TR, og Matthías Kjeid, TR. Með þeim á myndinni eru Ólafur H. Ólafsson unglingafrömuður og Rikarður Sveins- son fararstjóri. DV-mynd BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.