Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990. Fréttir Jónatan Þórmundsson, sérstakur ríkissaksóknari í Hafskipsmálinu: Neistafluginu haldið áfram í réttarsalnum - lítill neisti varð að nýjum skýringum 1 launamálum forstjóranna Hjördís Þorsteinsdóttir dómritari hefur komið mikið við sögu við málsmeðferðina i Sakadómi Reykjavíkur. Hjör- dis hefur þurft að skrifa upp allar vitnaleiðslur og þær blaðsíður eru taldar í þúsundum. DV-mynd KAE Jónatan Þórmundsson, sérstakur ríkissaksóknari í Hafskipsmálinu, lauk seinni ræðu sinni í málinu í gær. Hann hefur þar með lokið öllum ræöum í Sakadómi. Veijendur flytja seinni ræður sínar í dag. Meðal þess sem Jónatan gerði að umtalsefni í seinni ræðu sinni voru launakjör Björgólfs Guðmundsson- ar, Ragnars Kjartanssonar og Páls Braga Kristjónssonar. Jónatan sagði meðal annars að það hefði ekki verið fyrr enn á seinni stigum málsins aö fram komu nýjar skýringar á hlaupareikningum, sem kallaðir hafa verið leynireikningar, og hann sagði ástæðu þess að teknar voru upp nýjar skýringar fmnast í skýrslu sem Sveinn R. Eyjólfsson, sem var í stjórn Hafskips, gaf hjá rannsóknarlögregl- unni. Sveinn mun hafa sagt að hann teldi 60 prósent regluna hafa verið nokkurs konar launauppbót. Jónatan nefndi að Sveinn hefði ekki vitað af sérstökum hlaupareikn- ingum fyrr en hann las um það í fjöl- miðlum og eins að Sveinn hefði sagt að hann hefði ekki verið beinn þátt- takandi í samningaviðræðum um launakjör forstjóranna. Jónatan sagði að þessi neisti, sem Sveinn kveikti, hefði orðið til þess að nýjar skýringar hefðu orðiö til og neista- flugið hefði haldið áfram alla leið í Sakadóm. Jónatan nefndi framburði, svo sem Helga Magnússonar, máli sínu til stuðnings þegar hann sagði að forstjóramir hefðu ekki mátt nota hlaupareikninganá til einkaneyslu, óháðrar starfi þeirra hjá Hafskip. Bréf verjendanna Jónatan nefndi að Jón Magnússon og Guðmundur Ingvi Sigurðsson, sem eru veijendur Ragnars Kjart- anssonar og Björgólfs Guðmunds- sonar, heföu báðir skrifað bréf vegna reikninganna þar sem þeir óskuðu eftir að skjólstæöingar sínir fengju að fara yfir þá og ef þeir gætu ekki gefið skýringar á einstaka greiðslum þá myndu þeir taka þær á sig. Þessi bréf, með öðru, sagði saksóknari að ekki hefði verið talað um á fyrri stig- um málsins, og ekki heldur að for- stjórarnir hefðu mátt nota þessa reikninga í persónulega þágu. Jónatan sagöi að Helga Magnús- syni hefði verið falið það hlutverk af stjórn Hafskips að hafa eftirlit með því að hlaupareikningarnir væru notaðir á réttan hátt. Þá sagði Jónatan að svo virtist sem þessi síðbúna túlkun á 60 prósent reglunni væri til margra hluta nyt- samleg. Það hafi verið næstum sama hvað var nefnt, allt hefði átt að falla undir þá skýringu. Mótmælir allri gagnrýni í lok ræðu sinnar sagði Jónatan að hann mótmælti allri gagnrýni sem hefði komið fram vegna sóknarræðu sinnar og vegna ákærunnar. Hann sagðist ekki ætla að nefna hvert eitt dæmi, það tæki of langan tíma. Þá sagði Jónatan að halda mætti af málflutningi veijenda að Hafskip hefði orðið gjaldþrota af ýmsum ástæðum öðrum en verkum ráða- manna félagsins. „Það verður enginn gjaldþrota einungis vegna frétta í f]ölmiðlum,“ sagði hann meðal ann- ars. Hann sagði að Hafskipsmenn væru fyrir rétti vegna þess að fyrir Uggi að þeir frömdu refsiverð brot en ekki einungis vegna þess að fyrirtækið varð gjaldþrota. „Mál þetta er prófsteinn á það hvort lög í landinu nái yfir alla, lága sem háa,“ voru lokaorð Jónatans Þórmundssonar, sérstaks ríkissak- sóknara. Viðhéldu rangri mynd Fyrr í ræðu sinni sagði hann að greiðslustöðvun, sem Hafskip fékk, hefði engu breytt heldur hefði verið haldiö áfram á sömu braut. Annars staðar í ræðunni sagði Jónatan að Hafskipsmenn hefðu við- haldið rangri mynd af stöðu félagsins gagnvart stjóm Útvegsbankans. Hann sagði að milliuppgjörið, fyrir fyrstu átta mánuði ársins 1984, hafi verið veigamest í þeim vef sem spunninn var. Varðandi áætlanir sagði hann að ekki hefði þýðingu í þessi máli hvort áætlanir Hafskips eða annarra fyrir- tækja stæöust eða ekki heldur frekar ídómsáLnum Sigurjón M. Egiisson að áætlanirnar hafi verið byggðar á röngum og villandi upplýsingum. Hann tók sem dæmi að við áætlana- gerð vegna Atlantshafssiglinga fé- lagsins hafi verið gert ráð fyrir tekj- um af flutningum Varnarliðsins, þrátt fyrir að óvíst hefði verið hvort og þá hvenær Hafskip fengi þá flutn- inga á ný. Þá sagði Jónatan að þrátt fyrir að málið hefði alltaf orðið alvarlegra og alvarlegra hafi alltaf sama bjartsýn- in verið í gangi varðandi Atlants- hafssiglingarnar. Jónatan eyddi nokkrum tíma í að veija kröfur um að sakir kunni að vera fyrndar. -sme I dag mælir Dagfari Eitt djé enn Frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík hafa tekið það rólega í kosningabaráttunni. Þeir gengust fyrir því að flokkarnir bönnuðu auglýsingar í ljósvaka- miðlum og sluppu þar með við það erfiði að sitja fyrir í sjónvarpsaug- lýsingum. Einn sunnudag buðu þeir borgarbúum út að aka og skoða borgina og munu nokkrir aðfluttir sveitamenn hafa þekkst boðið. Davíð opnaði nokkra nýja leikskóla sem var svo lokað aftur svo unnt væri að klára þá og Magn- ús forseti opnaði dýragarð. Ef marka má Tímann stal Sigrún framsóknarkaupmaöur senunni þar með þvi að gefa börnunum ís. Sjálfstæðismenn hafa ekki tekið þátt í kosningabaráttunni að öðru leyti en þvi að einstaka frambjóð- andi hefur drepið niður penna í Mogganum og lýst því yfir að mál- flutningur andstæðinganna sé hel- ber lygi frá upphafi til enda. Síðan hafa frambjóöendur hallað sér á hina hliðina. Fulltrúar hinna flokkanna kvarta undan þessu áhugaleysi Davíðsmanna og segja að þetta sé eins og að spila hand- bolta við sjálfan sig. Ekki raskar þetta ró D-listamanna en þeir létu þó auglýsingastofu útbúa myndabækling um Borg í blóma og senda inn á heimilin. Að öðru leyti segjast þeir láta verkin tala og minnir það á sögu eftir Gísla J. Ástþórsson. í þeirri sögu var mað- ur ráðinn til að mála á skilti „Lát- um verkin tala“ og koma þeim upp víðs vegar um borgina. Maðurinn málaði á skiltin af miklum móð og dreif þau upp á þeim tíma sólar- hrings sem fáir voru á ferli. Mikið fát greip hins vegar flokksmenn þegar þeir vöknuðu upp við þann vonda draum að málarinn góði var slakur í stafsetningu því á skiltun- um stóð stórum stöfum. „Látum verkinn tala“. En það hefur komið berlega í ljós að þetta áhugaleysi sjálfstæðis- manna skilar sínu. Skoðanakann- anir sýna að flokkurinn stóreykur fylgi sitt og munar ekki miklu að frambjóðendur hans fylli alla stóla í borgarstjóm. Einhver hætta er þó talin á að Ólína kræki þama i sæti og jafnvel Kristín Á. líka, en aðrir geta bara gleymt þessu. Þetta hefur vinstra liðið upp úr því að vera með stööuga munnræpu hvar og hvenær sem hægt er að koma því við. Auk þess er þetta fólk með alls konar skuggalegar tillögur sem fara fyrir brjóstið á kjósendum. Eins og það, aö almenningur eigi að fá að ráða meiru um stjóm borg- arinnar, stofna hverfafélög og þar fram eftir götunum. Að sjálfsögðu snúast kjósendur öndverðir gegn þessari atlögu að friðhelgi heimil- anna. Það er víst nóg að dragnast á kjörstað á fjögurra ára fresti og krossa þó ekki bætist við að al- menningur fari að skipta sér eitt- hvað af rekstri borgarinnar. Þess vegna eru kjósendur þakklátir Davíö fyrir að velja bara sjálfur á listann sinn svo borgarbúar þyrftu ekki að leggja það á sig að taka þátt í prófkjöri og gera upp á milli frambjóðenda sem enginn veit einu sinni hvað heita. Þó ekki væri nema fyrir þaö eitt að heyja enga kosningabaráttu er sjálfsagt að þakka fyrir sig með því að krossa við D. Þar sem Davíð liggur sjúkur ákvaö forseti borgarstjórnar að minna á sig með því að efna til sig- urhátíðar á Lækjartorgi í dag. Enda ekki eftir neinu að bíða því úr þessu eru kosningamar bara formsatriði. Á skemmtuninni koma fram Anna og Maggi og Sigga og Grétar og fagna sigri í keppninni um Borgar- lagið undir stjórn Óla B. Þar með er þessum kosningaslag lokið af hálfu D-listans án þess að hann hafi nokkum tímann hafist. Hinir flokkarnir hafa varla áttað sig á þessu ennþá og halda því uppi fundum og samkomum fram á síð- ustu stundu með þeim afleiðingum að frúrnar tvær sem nú eru inni samkvæmt skoðanakönnunum eiga örugglega eftir að detta út. Svona er það þegar fólk er ekki í jarðsambandi og áttar sig ekki á því að með þögninni hefst það. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.