Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990. 3 dv Viðtalið Hagsmunamál stúdenta Nafn: Siguijón Þorvaldur Árna- son Aldur: 23 ára Staða: Formaður Stúdentaráðs Aðspurður um starflð sagði Sig- urjón það fyrst og fremst felast í því að gæta hagsmuna stúdenta. Þetta er metið sem fullt starf þó Sigurjón segi það vera miklu meira en það. í raun er hann skrifstofustjóri stúdentaskrif- stofunnar sem m.a. rekur atvin- numiðlun stúdenta og húsnæðis- miðlun. Réttindamál nemenda koma inn á hans borð s.s aö ýta á kennara með einkunnaskil, taka við gæðakönnun á kennsl- unni og kennurum skólans, auk þess sem málefní Lánasjóðsins eru alltaf ofarlega á baugi. Stóra málíð um þessar mundir er þó að reyna að fá jólaprófunum flýtt fram fyrir jólaleytt. Þegar hafa félagsvísindadeild og lækna- og tannlæknadeild að hluta, ákveðið að flýta prófunum og vonast er til að fleiri deildir fylgi í kjölfarið. Sigmjón segir stúdentaráð vera mitt á milli þess að vera stéttafé- lag og nemendafélag og viðfangs- efni þess vera hagsmunainál en ekki stjórnmálalegt dægurþras eins og hann orðaði það. Yngsti kennarinn Sigurjón útskrifaðist af eðlis- fræðibraut 1 1986 frá M.R. Haus- tið eftir starfaði hann sem stærð- fræðikennari við M.R, Hann var þá aðeins tvítugur að aldri og því liklega yngsti kennari skólans frá upphafi. Nemendur hans eru aö útskrifast í vor og munu þvi væntanlega sumir þeirra koma inn í Háskólann i haust. Samhhða kennslunni hóf hann nám í véla- verkfræði viö H.t Hann er á loka- árinu en hlé verður á náminu á meðan nýja starfið á hug hans allan. Fi'tir aö hafa lokið námi hér heima hyggst Sigurjón fara til Bandaríkjanna í rekstrarverk- fræði. Félagsstörf hafa átt hug hans allan síðustu ár. Hann hóf feril sinn sem formaður félags véla- verkfræðinema, var siðan kjör- inn í Háskólaráð og varð því jafn- framt stúdentaráðsfulltrúi. i vor var hann síðan kosningastjóri Vöku en hefð hefur myndast fyrir þvi að sá aðili verði formaður Stúdentaráðs nái þeir meirihluta. Sigurjón segist lesa mikið af tímaritum, einkum um verkfræði og viðskiptafræði. Þegar tími vinnst til fer hann gjarnan á skíði, les bækur eftir Halldór Laxnes eða fylgist með pólitík. Kærastan með Foreldrar Sigurjóns eru þau Snjólaug Anna Sigurjónsdóttir kennari og Árni Bergþór Sveins- son heildsali en fósturfaðir hans er Tryggvi Viggóson lögfræðing- ur. Kærasta Sigurjóns heitir Sig- urlaug Guðmundsdóttir. 'ún stundar nám í læknisfræði og er jafnframt varaformaður Vöku. Siguijón telur það ómögulegt að standa 1 þessu nema kærastan sé með, því í raun búi hann á skrif- stofunni. -Pj Fréttir Útsendingartími styttur: Lít ekki á þetta sem ósigur fyrir okkur - segir Ema Indriöadóttir Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: Útvarpsráð hefur ákveðið að stytta útsendingartíma svæðisútvarpanna um rúmlega hálfa klukkustund. Svæðisútvarp hefur verið daglega virka daga á tímanum 18 -19 á Norö- urlandi, en tvívegis í viku á Aust- fjörðum og Vestfjörðum. Þá hefur svæðisútvarpið á Norðurlandi verið með útsendingartíma á morgnana í hálfa klukkustund og verður sú út- sending óbreytt áfram. „Ég get ekki litið svo á að þessi ákvörðun sé ósigur fyrir okkur" seg- ir Erna Indriðadóttir deildarstjóri sem veitir Ríkisútvarpinu á Akur- eyri forstöðu. „Það var spurning um að koma þessu fyrir á dreifikerflnu þannig að menn gætu búið í árekstralausri sambúð á Rás 2 og niðurstaðan varð þessi. Við munum bara laga okkur að þessari ákvörðun og búa til góða fréttaþætti. Við fáum tæplega hálfa klukkustund síðdegis í stað klukku- stundar áður, og notum þann tíma fyrir fréttir og auglýsmgar". Þarf að fækka starfsmönnum svæð- isútvarpsins vegna þessarar ákvörð- unar? „Ég vona ekki. Ég vona að starfs- fólkið hér geti unnið meira fyrir Rás 2 en verið hefur. Þaö hefur verið rætt um að æskilegt væri að fá meira efni utan af landi inn í landsútvarpið og þá hggur það beint fyrir að starfs- fólkið hér taki aukinn þátt í því". Það sem fyrst og fremst liggur að baki þessarar ákvörðunar Útvarps- ráðs er að fólk á þeim stöðum þar sem svæðisútvarp er, hefur kvartað mikið undan því að geta ekki hlustað á „Þjóðarsálina“, en henni er útvarp- að á sama tíma síðdegis og útsend- ingar svæðisútvarpanna hefur staðið yflr. Á Raufarhöfn og Þórshöfn var t.d. safnað undirskriftum meðal fólks sem vildi hlusta á „Þjóðarsálina". Símaskráin komin út Símaskráin 1990 er komin út. Hún verður afhent símnotendum á póst- og símstöðvum um land allt næstu daga gegn framvísun afhendingar- seöla sem póstlagðir hafa verið. Skráin kemur út í 157 þúsund eintök- um og brot hennar er óbreytt. Áfram verður boðið upp á skrána inn- bundna í hörð spjöld gegn 175 kr. aukagjaldi. Skránni fylgir farsíma- skrá og skrá um bæi í sveitum. Sama útlit er á skránni nú og í fyrra. Mynd af Lagarfljóti og Snæfelli prýðir for- síðuna. Ný götu- og númeraskrá yfir höfuðborgarsvæðið er einnig komin út og kostar kr. 1200. Kalt rign- ingasumar Regina Thorarensen, DV, Selfossi: Ég talaði nýlega við Mörtu Jónas- dóttur, Austurvegi 33, Selfossi, og spuröi hana hverju hún spáði un veðráttuna. Hún hefur oft verið glög; að spá um veðrið, reynst sannspá þar eins og í öðru. Það kom vel fram hjá henni í fyrrasumar. Marta sagðist hafa spáð í apríl að vorið kæmi seint og yrði kalt. Þá spurði ég hana um sumarið. Æ, sagði hin aldna kona, ætli það verði ekki kalt og rigning, sólarlítið ef dæma má eftir skýjunum í loftinu. Kalt rigningasumar. Veður fer versnandi, sagði hún, eins og flestir vita. Vet- umir hafa orðið harðari eftir því sem liðið hefur á öldina sem mun ná há- marki 1995. Þá kemur slær” - vetur, sagði hin 86 ára kona með .pamann- legu augun fallegu. MiUFLBODÍ JAPISð Víð bjóðum nú takmarkað magn af vörum með stórkostlegum afslættí DÆMI UM FRÁBÆR KÁUP Verðlistaverð Maítilboð PANASONIC TC-C22 21" stereo sjónvarpstæki 76.500 56.600stgr. PANASONIC NVL 25 Fullkomið myndbandstæki 64.700 54.900stgr. PANASONIC SG HM 30 Glæsileg fjarstýrð hljómtækjasamstæða 42.600 35.900stgr. PANASONIC MCE 89 Kraftmíkíl ryksuga með ínnbyggðum fýlgihlutum 11.350 8.750stgr. PANASONIC ES 815 Rafmagnsrakvél 1.660 1.250stgr. SAMSUNG RE 576 ÖrbYlgjuofnöOOvött, 17 lítra, 5 hitastíllíngar 23.500 16.900stgr. KYNNTU ÞÉR MAÍTILBOÐ JAPIS JAPISS Brautarholti 2 s. 91-27133 býður þér betrí álangastað á Mallorca í sumarleYfinu á aðeíns 29.500 kr. 29. maí 10 sætí laus * Eín víka frá kr. 29.500 * Þrjár vikur frá kr. 47.100 5. júní uppselt Austurstræti 17, 101 Reykjavík, sími: (91)622011 & 622200. ÍXl Hjón með tvö börn, 2-11 ára. esk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.