Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1990, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990. Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SÍMI (91J27022 - FAX: (91 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð i lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Kannanir og kosningar Þessa dagana er kosningabarátta frambjóðenda í byggðakosningunum í hámarki. Á laugardaginn munu líklega um 150 þúsund kjósendur nota kosningaréttinn til að velja sér forystumenn til fjögurra ára. Víða er úrslitanna beðið með nokkurri eftirvæntingu, ekki síst þar sem búast má við umtalsverðum breyting- um á fylgi flokkanna og jafnvel meirihlutasamstarfi. í höfuðborginni virðist spurningin hins vegar ekki hvort Sjálfstæðisflokkurinn haldi meirihluta sínum, heldur hversu mikill sá meirihluti verði. Að undanförnu hafa birst þrjár skoðanakannanir um stöðu framboðslistanna í Reykjavík. Ýmsir hafa undrast þann mun sem er á birtum niðurstöðum þessara kann- ana. Þegar nánar er að gáð er raunverulegur munur þó minni en virðist við fyrstu sýn. Skoðanakönnun um fylgi framboðslista endurspeglar viðhorf kjósenda eins og þau eru á þeim tíma sem könn- unin er gerð. Slik könnun er þess vegna engin spá um það sem gerast muni einhvern tíma í framtíðinni. Niður- stöður nýjustu skoðanakönnunar DV sýna þess vegna einungis hug reykvískra kjósenda til framboðslistanna í borginni um síðustu helgi þegar könnunin var gerð. Hins vegar er hægt að sjá hvert straumar fylgis liggja með því að bera saman nokkrar kannanir sem gerðar eru á sambærilegan hátt yfir lengra tímabil. Kannanir DV að undanfórnu sýna þannig að fylgi Sjálfstæðis- flokksins hefur farið dalandi á sama tíma og Nýr vett- vangur hefur bætt við sig, og sömuleiðis að aðrir fram- boðslistar eiga í mikilli baráttu um að fá mann kjörinn. Af tólf hundruð reykvískum kjósendum í könnun DV, sem birt var á mánudaginn, tóku rúmlega 65 prósent afstöðu til framboðslista. 70,1 prósent þeirra sem afstöðu tóku lýsti fylgi við Sjálfstæðisflokkinn, sem var um 5 prósentustigum minna en í könnun DV fyrir þremur vikum. 14,6 prósent kváðust styðja Nýjan vettvang og var það aukning um 5,8 prósentustig frá fyrri könnun. Slík úrslit hefðu í för með sér að Sjálfstæðisflokkurinn fengi þrettán borgarfulltrúa, Nýr vettvangur tvo en aðr- ir hstar engan - þótt þeir væru sumir mjög nærri því að ná manni. Skoðanakönnun sem Skáís gerði á svipuð- um tíma og DV sýndi mjög hliðstæðar niðurstöður. Félagsvísindastofnun breytti hins vegar niðurstöðum sinnar könnunar áður en þær voru birtar á þann hátt að tekið var tillit til þess munar sem varð á niðurstöðum könnunar stofnunarinnar fyrir síðustu borgarstjórnar- kosningar og kosningaúrslitunum þá - en í öllum þeim þremur könnunum sem birtar voru í vikunni fyrir kosn- ingarnar 1986 var Sjálfstæðisflokkurinn með um 5 pró- sent meira fylgi en hann fékk í sjálfum kosningunum. Slík lagfærð niðurstaða gaf Sjálfstæðisflokknum níu borgarfulltrúa, Nýjum vettvangi þrjá og Alþýðubanda- lagi, Framsóknarflokki og Kvennalista einn hverjum. Þegar DV birti niðurstöðu könnunar sinnar á mánu- daginn var jafnframt vakin athygli á því hverju það breytti um úrslit hennar ef gera mætti ráð fyrir sams konar breytingu á fylgi frá könnun til kosninga nú og varð vorið 1986. Þeir útreikningar sýndu að Sjálfstæðis- flokkurinn fengi tíu fulltrúa í borgarstjórn, Nýr vett- vangur þrjá og Framsóknarflokkur og Álþýðubandalag einn fulltrúa hvor. Hvað borgarfulltrúa snertir er það því mjög hliðstætt og hjá Félagsvísindastofnun. En slíkir útreikningar eru fremur í ætt við kosninga- spá en hefðbundna niðurstöðu skoðanakönnunar. Elías Snæland Jónsson NJÓTUM LANDS ■ - NÍÐUM El . Aðaláherslan hjá ráöinu hefur verið á landkynningu án rökrétts framhalds af mótaðri ferðamálastefnu, seg- ir greinarhöfundur m.a. Landkynning og ferðamálastefna: Á annarra kostnað Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra hefur verið iðinn við að skipa nefndir sem ætlað er að koma með tillögur um hvemig kynna megi ísland erlendis. Þannig hefur hann á síðastliðnum 3-4 árum skipað 3 nefndir um þessi mál ásamt því að bjóða nokkrum Bretum í mat hingað til lands og um leið til skrafs og ráðagerða. Nefndaskipan Steingríma En forsætisráðherra er ekki einn um að skipa nefndir sem tengjast landkynningarmálum. - Sam- gönguráðherrann, sem samkvæmt lögum um skipulag ferðamála nr. 79 frá 1985 fer með yflrstjórn ferða- mála, skipaði í fyrra 9 manna nefnd sem ætlað er m.a. að endurskoða opinbera stefnu í ferðamálum. Nefnd samgönguráðherra kynnti stefnumótunarvinnu sína á ferða- málaráðstefnu sem haldin var á Egilsstöðum um miðjan febrúar sl. Nefndarmenn höfðu rætt við hina og þessa sem tengjast ferðaþjón- ustu á íslandi og höfðu í framhaldi af því sett upp tillögur að markmið- um í ferðamálum og bent á leiðir. En eins og þeir sem þekkingu hafa á stefnumótun vita, á þetta lítið skylt við stefnumótun! Mótun ferðamálastefnu á að ganga út á þaö að staðsetja íslenska feröaþjónustu þannig í framtíðinni í samkeppni við erlenda ferðaþjón- ustu, að sú íslenska sé sem arð- bærust. Til þess að þetta sé hægt þarf að vega og meta hvar styrkur þeirrar íslensku hggur og hvar helstu veik- leikar hennar eru samhliða því að meta hvar helstu tækifærin liggja og hverjar séu helstu hættumar. Á ferðamálaráðstefnunni var ekkert rætt um áhrif innri markað- ar Evrópu 1992 eða þær breytingar sem átt hafa sér stað í Austur- Evrópu, rétt eins og þær komi ekki til með að hafa nein áhrif á kcmur erlendra ferðamanna til landsins! Áhugaverðustu umræðurnar á ráðstefnunni voru um það hvort taka ætti gjald af útlendingum fyrir notkun á útikömrum!! Nefndin sem Steingrímur forsæt- isráðherra skipaði áður en hann skipaði nefndina sem hann skipaði síöast „og átti að undirbúa sérstakt KjaUarinn Friðrik Eysteinsson rekstrarhagfræðingur kynningarátak íslands á sviði markaðs- og sölumála og ferða- mála“ lagði til „að varið yrði um 250 milljónum króna á ári til að skapa ímynd fyrir Island og íslen- skar vörur erlendis. - ímyndin átti að vera sú að ísland sé hreint og ómengað land og þangað geti fólk sótt sér heilsubót og hollustu" eins og sagði í frétt í DV 5. okt. sl. Væri helber ósannindi Við sem fylgjumst með því sem er að gerast í kringum okkur vit'- um, að ísland er langt frá því að vera hreint og ómengað land, og að setja má spurningarmerki við heilsubótina og hollustuna líka! Landkynning sem byggðist á ofan- greindu væri því helber ósannindi sem örugglega myndi skaða okkur meira en við högnuðumst á henni þegar til lengri tíma væri litið. En þeir eru fleiri sem berja höfð- inu viö steininn á kostnað skatt- borgaranna þegar nútíma þekking er annars vegar. Ferðamálaráð ís- lands er í þessum hópi, en meðal verkefna ráðsins er skipulagning og áætlanagerð um íslensk ferða- mál, landkynning og markaðsmál. Það er skemmst frá því að segja að aðaláherslan hjá ráðinu hefur verið á landkynninguna, án þess að hún væri í rökréttu framhaldi af mótaðri ferðamálstefnu, leiddi af markaðsrannsóknum eöa væri hluti af stærri markaðsáætlun. Steininn tók þó úr hvað Ferða- málaráð varðar þegar ráðið var í stöðu markaðsstjóra ráðsins fyrir skömmu og í það starf ráðinn mað- ur sem ekki hefur hlotið menntun á sviði markaðsmála eða í stjórnun fyrirtækja. Starf hans á þó m.a. að vera fólgið í yflrumsjón með skipu- lagningu markaðsmála fyrir ís- lensku ferðaþjónustuna í heild og á ennfremur að veita fyrirtækjum almenna ráðgjöf. - Það mætti halda að Spaugstofan væri hér í försvari! Á villigötum Hér að ofan hefur verið tæpt á tveimur málum, annars vegar kynningu íslands og hins vegar mótun stefnu í ferðamálum. Það verður að segjast alveg eins og er að bæði þessi mál sýnast vera á algjörum villigötum, ekki síst fyrir það að þeir sem um þau fjalla eða taka endanlegar ákvarðanir hafa ekki þá lágmarkSmenntun sem til þarf. Það væri þó ekkert við þetta að athuga ef þeir aðilar sem um var rætt hér að ofan væru aö hætta sínum eigin fjármunum. Málið snýst bara því miður um skatt- peningana okkar hinna og óskyn- samleg notkun þeirra hefur þegar skert lífskjör okkar og komandi kynslóða nóg. - Mál er að linni. Friðrik Eysteinsson „Málið snýst bara því miður um skatt- peningana okkar hinna og óskynsam- leg notkun þeirra hefur þegar skert lífs- kjör okkar og komandi kynslóða nóg.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.