Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990.
5
Fréttir
Búnaðarmálastjóri um breytta hestadóma:
Rætt í kynbótanefnd að
gera þessa tilraun
- árangurinn verður metinn í haust
„Það var rætt í kynbótanefnd að
gera tilraun með kynbótadómana í
sumar og það mjög að kröfu þeirra
manna sem hafa farið fyrir gagnrýn-
endum núna. Því er ekki að leyna
að ekki eru allir á eitt sáttir í þessu
máli. Þannig eru margar óánægju-
raddir með framgöngu þessara
manna sem hafa haft sig mest í
frammi að undanfórnu. En það eru
sáttaumleitanir í gangi. Að vísu voru
engar ákvarðanir teknar á fundinum
á dögunum en eðlilega heyrir mikið
af þessum málum undir hrossarækt-
amefnd sem mun funda einhvern
tíma með haustinu," sagði Jónas
Jónsson búnaðarmálastjóri í samtali
við DV.
Hópur hrossabænda hitti búnaðar-
málastjóra og stjórn Búnaðarfélags-
ins á fundi í síðustu viku þar sem
lögð var fram ályktun hinna fyrst-
nefndu um skýrari verkaskiptingu
milli iandsráðunauta í hrossarækt,
endurskoðun framkvæmdar kyn-
bótadóma og um heimild til að aftur-
kalla kynbótadóma frá þessu ári.
Mikil óánægja hefur verið meðal
margra hrossabænda með störf kyn-
bótanefndar í ár og hefur óánægjan
beinst sérstaklega gegn Kristni
Hugasyni, ritara og oddamanni kyn-
bótanefndar. Þykir hrossabændum
að forsendum kynbótadóma, varð-
andi byggingarlag hesta, hafi verið
breytt og þær gerðar strangari án
undanfarandi umræðna í kynbóta-
nefnd.
„Það er alltaf hægt að deila um
hrossadóma en það verður að hafa í
huga að þetta var á vissan hátt til-
raun til kéríisbreytinga og það stóð
alltaf til að meta árangurinn að
sumrinu loknu. Þetta verður allt til
endurskoðunar þegar sumarsýning-
um lýkur.“
- Nú beinist reiði bænda aðallega
gegn Kristni Hugasyni sem sagður
er standa öðrum fremur fyrir þess-
um þreyttu forsendum:
„Hann stendur ekki fyrir þeim. Við
finnum engin rök fyrir því að reiðin
skuh beinast sérstaklega gegn hon-
um. Það hafa alltaf verið þrír menn
í dómnefnd og þeir telja sig alla bera
ábyrgð á kynbótadómunum."
-hlh
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
k
MARKADSÞJÓNUSTAN
Skipholti 19 3.hæd
(fyrir ofan Radíóbúðina)
sími: 2 6911
traust og vönduð
VESTUR-ÞÝSK 2,5 tonna bílalyfta
* Eigin þyngd 740 kg.
* Sjálfvirkar armalæsingar.
* Tekur lága bíla (12,5 sm undir sílsa).
* Verð kr. 256.540 + vsk.
TRYGGÐU ÞÉR STRAX LYFTU
Á TILBOÐSVERÐI, KR. 223.600
Gengi 8/8 1990
Slys á VeUinum:
Á svif-
dreka með
mótor
Vegna fréttar um slys á Keflavíkur-
flugvelli í DV í fyrradag, þar sem
segir að maður hafi fallið í svifdreka
og slasast töluvert, vildi Jón Sigurðs-
son, formaður Svifdrekafélags
Reykjavíkur, koma athugasemd á
framfæri.
Jón vildi ítreka að umræddur mað-
ur, sem hryggbrotnaði reyndar, hafl
verið að æfa sig á svifdreka með
mótor eða „fisi“, eins og slík tæki
hafa verið nefnd, en ekki hefðbundn-
um svifdreka. Væri reginmunur á
þessum tveimur fyrirbærum. í mót-
ordrifna svifdrekanum væru allt
önnur öfl að verki og væri það tæki
stórhættulegt viðvaningum og flkt-
urum.
„Það er mjög mikilvægt að menn
geri greinarmun á þessu tvennu,
hefðbundnum svifdreka og mótor-
drifnum. Það er afar slæmt fyrir svif-
drekamenn þegar slysafréttir tengj-
ast þeim á þennan hátt. Slys í hefð-
bundnum svifdrekum eru fátíð, eins
og tölur sýna fram á. Við höfum ver-
ið að reyna að kaupa okkur trygging-
ar en fréttir sem þessar gera okkur
mun erfiðara fyrir í þeim efnum.“
-hlh
Vagnstjórar í Reykjavík:
¥ilja gæslu
í strætis-
vagnana
- þartilönnurlausnfinnst
Fulltrúar vagnstjóra hjá Strætis-
vögnum Reykjavíkur hafa beint
þeim tilmælum til vagnstjóra að þeir
aki ekki síðustu ferðir í Breiðholt á
fóstudags- og laugardagskvöldum
nema viðunandi gæsla fáist í strætis-
vagnana. Fulltrúarnir vilja að þessi
háttur verði hafður á þar til önnur
lausn verði fundin til öryggis fyrir
vagnstjórana.
Þá er þeim tilmælum einnig beint
til vagnstjóra að þeir aki ekki frá
unglingasamkomum, svo sem tón-
leikum, skóladansleikjum og fleiri
samkomum, ef ætla má að áfengi
hafl verið haft þar um hönd.
Þessi tilmæli voru samþykkt á
fundi fulltrúanna í gær. Ástæðan er
fólskuleg árás sem vagnstjóri varð
fyrir í Breiðholti síðasthðið laugar-
dagskvöld. -sme
Parísarferð
Forsala aðgöngumiða
STEINAR
Reykjavík: Skifan, Kringlunni og Laugavegi 33; Hljóðfærahús Reykjavikur, Laugavegi 96; Steinar, Austurstræti, Alfabakka 14, Glæsibæ,
Laugavegi 24, Rauðarárstig 16 og Eiðistorgi; Myndbandaleigur Steina; Plötubúðin, Laugavegi 20. Hafnarfjörður: Steinar, Strandgötu 37.
Akranes: Bókaskemman. Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga. isafjörður: Hljómborg. Sauðárkrókur: Kaupfélag Skagfirðinga. Akureyri:
KEA. Húsavfk: Bókaverslun Þórarins Stefánsson. Neskaupstaður: Tónspil. Höfn: KASK. Vestmannaeyjar: Adam og Eva. Selfoss: Ösp.
Keflavík: Hljómval.
Einnig er hægt að panta miða í sima 91-667 556. Giróseðill verður sendur og er hann hefur verið greiddur verða miðarnir
sendir um hæl. Munið að greiða strax.
Munið:
Flugleiðir veita 35% afslátt af verði flugferða gegn framvísun aðgöngumiða að risarokktónleikunum.
Beint þotuflug til Akureyrar nóttina eftir risarokkið.
SEL Athugið Sm
'*™r Enn eru nokkrir miðar eftir á tónleika Whitesnake og Quireboys i Reiðhöllinni föstudaginn 7. september.