Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990. 9 Utlönd Ringulreiðin heldur áfram í stríðinu í Líberíu: Hugsanlegt að Prince Johnson seenna - Bandaríkjastjómtelursögurumdauðahansrangar Óstaðfestar sögusagnir um dauða uppreisnarleiðtogans Prince Jo- hnson í Líberíu hafa enn aukið á ringulreiðiuna sem ríkir í landinu. Fyrrum vopnabræður hans í Þjóð- frelsisfylkingunni lýstu því yfir í gær að þeir hefðu fellt hann í fyrirsát og boðuðu þá sýningu á líki leiðtogans fallna en í morgun hafði ekkert kom- ið fram sem tekið gæti af öll tvímæli um afdrif Prince Johnson. Prince Johnson hafði farið fyrir annarri fylkingunni sem sótti að Samuel Doe forseta undanfarna mánuði. Johnson keppti þar um völdin við Charles Taylor, leiðtoga Þjóðfrelsisfylkingarinnar. Báðar þessar fylkingar eru fyrir nokkru komnar til höfuðborgarinnar Monrovíu en vígi forsetans þar stendur enn. Talsmaður Þjóðfrelsisfylkingar- innar segir að Prince Johnson hafl falhð í fyrirsát rétt norðan við höfuð- borgina. Þar á líkið að vera til sýnis á plantekru en fréttamenn sem fóru til að kanna máhð fundu ekkert sem tekiö gæti af tvímæh um afdrif sækruliðaforingjans. í Bndaríkjunum hafa komið fram upplýsingar um að Prince Johnson sé enn á lífi. Utanríkisráðuneytið þar hefur sagt að þessar heimildir séu áreiðanlegar og breska útvarpið hef- ur fengið upphringingu frá manni sem kynnti sig sem Prince Johnson en gat ekki sannað að hann væri sá eini rétti. Prince Johnson og Charles Taylor voru vopnabræður í baráttunni gegn Samuel Doe þar til í febrúar á þessu ári þegar Taylor stóð fyrir réttar- höldum þar sem Doe var dæmdur til dauða. Johnson sagði þá að Taylor hefði einungis áhuga á völdum fyrir sjálfan sig en ekki að koma á lýðræði í landinu. Prince Johnson hefur lýst ánægju sinni með að erlendar friðarsveitir komi til landsins og stihi þar til frið- ar ef fijálsar kosningar fylgja í kjöl- farið. Sögur hafa verið á kreiki um að Bandaríkjastjórn styðji Prince Jonson bak við tjöldin í Washington er því neitað. Prince Jonson er fyrrum höfuðs- maður í her Samuels Doe forseta og þar var Charles Taylor einnig hátt- settur foringi. Þeir studdu báðir Doe þegar hann rændi völdum árið 1980 en árið 1987 skildi leiðir endanlega og nú hafa uppreisnarmenn allt landið á valdi sínu fyrir utan hluta af höfuðborginni þar sem Doe verst. Reuter Prince Johnson, hinn vígreifi skæruliðaforingi í Líberiu. Enn hafa fréttir um dauða hans ekki verið staðfestar og hugsanlegir banamenn hans hafa engar sannanir lagt fram. símamynd Reuter Þrír breskir her- f lugmenn farast Þrír flugmenn úr breska flughern- um fórust þegar tvær orrustuþotur af gerðinni Tornado rákust á norð- austur af Englandi í gær. Fjórða manninum var bjargað með þyrlu. Hann hggur nú stórslasaður á sjúkrahúsi. Önnur flugvéhn kom frá herstöð í Vestur-Þýskalandi en hin hafði bæki- stöðvar á Englandi. í fyrstu taldi strandgæslan að önnur vélin hefði verið bandarísk af gerðinni A-10 en það hefur verið borið til baka. Talsmaður flughersins hefur ekk- ert viljað segja um aðdraganda slyss- ins. Þó er vitað að báðar vélarnar voru á æfingu og svo virðist sem flug- menn þeirra hafi ekki vitað hvor af örðum. Reuter Rúmenía: Herinn neitar hug- myndum um valdarán Herinn í Rúmeníu hefur gefið út sérstaka yfirlýsingu þess efnis að hann hafi ekki í hyggju að ræna völd- um í landinu. Fréttir hafa borist um samsærishygmyndir meðal foringja í hernum sem hafi hug á að koma á einræði hans. Þessu er harðlega neit- að af foringjunum. í yfirlýsingunni segir að herinn verði hér eftir sem hingað til trúr desemberbyltingunni þegar Ceau- sescu flokksleiðtoga og einræðis- herra var steypt af stóli. Einkum er tahð að óreiða á efna- hagslífi landins hafi vakið upp hug- myndir meðal einhverra í hernum um að koma á betra skipulagi undir stjórn hersins, í það minnsta þar til ástæður batna. Reuter Hestum f órnað á altari djöf ulsins Yfirvöld í Mexíkóborg hafa tekið í sína vörslu þrjá lögreglumenn sem grunaðir eru um að hafa drepið eitt hundrað og fimmtíu hesta og fórnað djöfhnum þeim. Hestarnir hafa verið að finnast æ síðan í maí, hangandi í tijám, í nágrenni bæjarins Tecpan de Galeano í suðvesturhluta Mexíkó. Hausarnir hafa verið skornir af til hálfs. Lögreglumennirnir viðurkenna að hafa drepið skepnurnar „ánægjunn- ar vegna og til að fórna þeim djöfhn- um,“ sagði Antonio Sohs, bæjarritari í Tecpan de Galeano. Reuter MAC eigendur! Diskatilboóió framlengt til 17. ágúst Missió ekki af þessu einstaka tækifæri! MICROTÖLVAN hefur ákveðið að flytja inn eina safnsendingu af hörðum diskum til að seðja hungur þeirra fjölmörgu sem hafa nýlega keypt Apple Macintosh Plus tölvu. Með safnsendingu er hægt að halda niðri liöum eins og fjármagnskostnaði, flutningskostnaöi og meö því að halda álagningu óbreyttri, en láta viðskiptavinina njóta hag- ræðisins, fæst þetta ótrúlega tilboösverð. Og þaö er ekki verið að bjóöa upp á neina afganga! Micronet CPK-20 (20Mb) diskurinn er nýjasta tækni, hraðvirkur (27ms) og kemur tilbúinn til notkunar! Allt sem þarf til að notfæra sér þetta tilboð er að panta og greiða 15.000 króna staðfestingargjald fyrir 17. ágúst n.k. og verða diskarnir síðan afgreiddir 10.-15. september n.k. MICROTÖLVAN Sudurlandsbraut 12 -108 Reykjavík - s. 688944

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.