Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990. Úflönd Afsagnar forseta Indónesíu kraf isi Rúmlega ílmmtíu stjóniarand- stœöingar í Indónesiu hafa undir- ritað bænaskjal þar sem i'arið er fram á aö forseti landsins, Suharto, segir af sér embætti og heimili auk- ið lýðræði í þessu fimmta stærsta ríki heims. Að baki þessu skjali standa rúmlega fimmíu stjórnand- stæðingar, ílestir þekktir í stjórn- málum í lndónesíu. Orörómur um að slik krafa kæmi fram hefur ver- ið á kreiki í landinu í nokkurn tíma en fréttin um það kom samt á óvart. Þetta er fimmta kjörtímabil Su- hartos en hann hefur setið á valda- stóli í nærfellt aldafjórðung. í skjali stjórnarandstæðinga er þess kraf- ist að hann láti af embætti og að framvegis verði valdaseta forseta takmörkuð við tvö kjörtímabil. Fyrirhugaö er að gengið verði til Mynd afforsetahjónum Indónesíu. atkvæða um forseta árið 1993, ári Símamymi Reuter eftir almennar kosningar. Suharto hefur ekki skýrt frá því hvort hann hyggist bjóða sig fram. Mannskæð sprengja á Indlandi Að minnsta kosti fjónr létust og tuttugu slösuðst þegar öflug sprengja sprakk í Nýju Dehli, höfuðborg Indlands, í gær, aðeins tæpum sólarhring áður en hátíðahöld vegna þjóðhátíöardagsins eiga aö hefjast. Sprengjan sprakk skömmu fyrir miðnætti í garði í noröausturhluta borgarinnar. Fjöldi fólks hafði safnast saman í garðinum að sögn sjónarvotta. Grunur leikur á að aðskilnaðarsinnar standi að baki tilræðinu en alls hafa þijú þúsund manns týnt lífi í sprengiuárásum aðskilnaðarsinna það sem af er ári. í Punjab-héraði látast að meðaltali tuttugu manns á degi hveijum vegna baráttu íbúa héraðsins fyrir sjálfstæði. Auk Punjab berj- ast íbúar tveggja annarra héraða, Kasmír og Assam, fyrir aðskilnaði. Sonur Brandos laus Marlon Brando ásamt syni sínum, Christian, í réttarsal í Kaliforníu í gær. Simamynd Reuter Syni leikarans íræga Marlon Brandos, Christian Brando, hefur verið sleppt úr haldi lögreglu gegn tveggja milljón dollara tryggíngu eða sem svarar til hundrað og tuttugu milljónum íslenskra króna. Marlon Brando lagði fram fjögurra milljón dollara höll sína í Holly wood í Bandaríkjunum. sem veð fyrir tryggingarfé piltsins. Christian Brando hefur verið ákærð- ur fyrir moröið á kærasta hálfsystur sinnar. Morðið átti sér stað á heim- ili Brandos í Hollywood i maí síðasthðnum og var kærastinn, Dag Drol- let, skotinn til bana. Christian segir að skotiö hafi hlaupið úr byssunni af slysni í átökum um skotvopnið milli sins og Drollet. Marlon Brando segir að mál ákæruvaldsins gegn syni sinum sé byggt á sandi. Það mesta sem þeir geti sakfellt hann fyrir er manndráp af slysni. Dómarinn í málinu setti kvaðir á lausn Christians, meðal annars að hann fari reglulega til læknis til að taka áfengis- og fíknieíhapróf. Christian er áfengissjúklingur auk þess sem hann neytir eiturlyija. Nýtt hneykslismál í Argentínu? Maria Julia Alsogaray, háttsettur ráðgjafi Carlosar Menem, forseta Argentínu, hefur ákveðið að lög- sækja tímarit nokkurt fyrir að birta „óviðurkvæmilegar" myndir. Tímaritið, Humour, birti myndir af nær nöktum líkama ungrar konu og var mynd af andliti ráð- gjafans sett í stað andlits ungu kon- unnar á myndunum. Líkaminn var aftur á móti ekki Alsogarays. Alsogaray er ekki allsendis óvön því að djarfar myndir af henni birt- ist í fjölmiðlum. í júli lét hún mynda sig, að því er virtist, í feldi einum fata fyrir tímaritið Noticias og olii mikilli hneykslan. í grein sem birtist með myndunum var gefiö í skyn aö ástarsamband væri milli Menems og Alsogaray. For- Maria Jutia Aisogaray, ráðgjafi setinn sagðí aftur á móti að þau argentinska forsetans, hefur væru einungis vinir. Síðar kvaðst ákveðið að lögsækja timarit nokk- Alsogaray sjá eftir að hafa heimilað urt fyrir að birta „óviðurkvæmileg- birtingu myndanna. ar“myndir. Símamynd Reuter Fylkingar námsmanna og lögreglu á háskólalóðinni í Seoul í Suður-Kóreu í morgun. Lögreglan beitti á endanum táragasi á námsmennina. Símamynd Reuter Vaxandi órói í Suður-Kóreu: Lögregla barðist við námsmenn í morgun Óeirðalögregla í Suður-Kóreu beitti í morgum táragasi til að brjóta á bak aftur mótmæli þúsunda náms- manna á háskólalóðinni í Seoul. Námsmennirnir voru að krefjast þess að haldið yrði sérstaklega upp á fullveldisdag þjóðarinnar við landamæri Norður-Kóreu. Námsmennimir notuðu barefli úr járni gegn lögreglunni þegar þeir reyndu að koma átta langferðabílum út af háskólalóðinni. Ferð þeirra var heitið að landamærunum. Það eru stjómvöld í Norður-Kóreu sem standa fyrir hátíðahöldunum viö landamærin en stjórnin í Seoul hefur gert allt til að koma í veg fyrir að þegnar hennar taki þátt í þeim. í átökunum í morgun vom nokkrir lögreglumenn hætt komnir þegar þeir urðu fyrir bensínsprengjum. Námsmenn urðu fyrir einhveijum meiðslum við barsmíð lögreglunnar en þegar síðast fréttist var enginn alvariega sár. Slagsmálunum lauk á þann veg að langferðabílamir komust ekki af há- skólalóðinni og lögreglunni tókst að dreifa námsmönnunum þar sem þeir stóðu þéttast við hlið háskólans. í langferðabílunum vom að sögn lögreglunnar um 400 námsmenn. Til- gangurinn með hátíöahöldunum við landamærin er að minnast þess að 45 ár eru liðin frá því landið losnaði undan hernámi Japana. Stjórnvöld í Norður-Kóreu vilja nota þetta tilefni til að krefjast sam- einingar ríkjanna á Kóreuskaganum undir forystu þeirra. Hugmyndir um sameiningu og viðræður við stjórn Norður-Kóreu eiga miklu fylgi að fagna meðal námsmanna í Suður- Kóreu. Þessar hugmyndir eiga líka fylgi að fagna meðal klerkastéttar- innar í Suður-Kóreu. Stjórnvöld í Suður-Kóreu segja að aflt tal um sameiningu sé út í hött þegar íbúar í norðrinu fá ekki einu sinni að feröast frjálsir ferða sinna úr landi. Hugmyndir stjómarinnar þar um sameiningu fái ekki staðist nema komið verði á lágmarkslýðrétt- indum. Reuter Morð á flóttamönnum í Vestur-Þýskalandi: Llk knattspyrnu- manns graf ið upp Talið er líklegt að lík austur- þýska knattspyrnumannsins Lutz Eigendorf verði grafið upp til að komast að því hvort honum hafi verið byrlað eitur áður en hann lét lífið í bílslysi í Vestur-Þýskaiandi árið 1983. Eigendorf hafði flúið frá Austur- Þýskalandi og er talið að hann sé einn þeirra flóttamanna sem aust- ur-þýska stjómin lét myrða. Fréttir hafa verið um það í Vestur-Þýska- landi undanfarna daga að dauða- sveitir á vegum stjómarinnar í Austur-Þýskalandi hafi myrt fjöl- marga flóttamenn á liðnum árum. Sérfræðingar eru ekki á einu máli um hvort leifar af eitri geti fundist í líki sem legið hefur í gröf- inni í sjö ár. Verði það talinn mögu- leiki er líklegast að lík Eigendorfs verði grafið upp. Það sem vakið hefur upp gran- semdir um aö Eigendorf hafi verið myrtur em upplýsingar komnar frá fyrrum starfsmönnum Stasi, hinnar illræmdu leynilögreglu Austur-Þýsklands. Þeir fullyrði aö Eigendorf hafi verið myrtur að undirlagi yfirmanns Stasi. Fleiri flóttamenn urðu fyrir barð- inu á Stasi. Starfsmenn Stasi segja að aðaflega hafi verið notað eitur til að myrða mennina. Einnig hafi slys verið sett á svið og morðin jafnvel látin líta út sem sjálfsmorð. Talsmaður innanríkisráðuneytis Vestur-Þýskalands segir að ráðu- neytið hafi aflað sér leynilegra upp- lýsinga um máhð og þeim hafi ver- iö komið áleiðis til réttra aðila. Mál Eigendorfs og annarra flótta- manna hafa vakið mikla athygh í Vestur-Þýskalandi og talsmaður innanríkisráðuneytisins sagði að stjórnin tæki þær mjög alvarlega og hygðist komast til botns í mál- inu. Reuter Pakistan: Kosningarnar verða haldnar Hinn nýi forsætisráðherra Pakist- ans, Ghulam Mustafa Jatoi, segir að rannsókn á meintri spillingu stjóm- ar Benazir Bhutto muni ekki verða til að seinka kosningunum sem hafa verið boðaðar 24. október. Margir Pakistanir óttast að ásak- animar á hendur Benazir verði not- aðar sem tylliástæða fyrir frestun á kosningunum. Jatoi hélt sjónvarps- ræðu í gær þar sem hann sagði að „ekkert geti orðið til að fresta kosn- ingunum. Jatoi hefur sagt að stjóm Benazirs sé sú spilltasta í Pakistan allt frá því ríkið var stofnað fyrir 43 árum. Hann hefur jafnframt fullyrt að enginn fyrram stjórnarliða, sem gerst hafi sekir um glæpi, sleppi við refsingu. Benazir hefur fengið saðfest að hún megi fara úr landi en hún hefur hug á að fara til fundar við móður sína sem dvelur nú í London. Hún segist full efasemda um að kosningarnar verði haldnar í haust. Verði þær haldnar sé engin ástæða til að treysta núverandi stjórn til að gæta hlutleysis. Lögreglan í Karachi notaði í gær táragas til að dreifa stuðningsmönn- um Benazirs en að öðm leyti hefur verið rólegt í landinu eftir valdatöku Jatoi. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.