Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990. 11 I Utlönd Byltingarmenn i Austur-Evrópu sögðust i vetur vilja lifa í réttarriki en hafa enga reynslu af sliku. Upplýst hefur verið um siðleysi leiðtoga kommúnistanna en nú eru það óbreyttir borgarar sem fremja afbrotin. Myndin er af mótmælendum á Wenseslastorgi í Prag í nóvember síðastliðnum. Símamynd Reuter Glæpaaldaí Austur-Evrópu Skuggahlið lýðræðisbylgjunnar í Austur-Evrópu er nú að koma í ljós. Óbreyttir borgarar leyfa sér það sem áður var bannað og síðasta hálfa árið hefur afbrotum á öllum sviðum fjölg- að gífurlega. Er talað um að algjört stjórnleysi ríki í löggæslunni. Mótmælendur og byltingarmenn lýstu því yflr eftir nýfengið frelsi að þeir vildu lifa í réttarríki en í Aust- ur-Evrópu hafa menn ekki neina reynslu af shku. Það sem einkenndi gömlu kommúnistalöndin var ekki bara pólítísk kúgun heldur siðleysi ráðamanna sem höfðu rétt til þess sem þeir vildu. Mynstrið var svipað í öllum lönd- um en mesta athygli vakti þó upp- ljóstrunin um tilhneigingu austur- þýskra ráðamanna til að gera ekki mun á eignum ríkisins og því sem menn höfðu til einkanota. í skýrslu um spillingu og valdamis- beitingu ráðamanna í Austur-Þýska- landi, sem lögð var fram á þingi í febrúar, kom fram að stjórnmálaráð- ið áleit það ekki bara sjálfsagt að nota vörur og verða sér úti um ýmsa þjónustu heldur einnig að selja varn- ing. Svipuð spilling ríkti reyndar í Pól- landi á áttunda áratugnum en þar batt Samstaða, hin óháðu verkalýðs- samtök, enda á ástandið og Edward Gierek, leiðtogi kommúnistaflokks- ins, var látinn svara til saka. í Búlg- aríu er það komið í dagsins ljós hversu marga bústaði leiðtoginn Zjivkov hafði tfl umráða og í Tékkó- slóvakíu og í Júgóslavíu er nú verið að koma upp um starfsemi ýmissa smákónga. Studdu hryðjuverkamenn En þessi glæpastarfsemi var bara hluti myndarinnar. Upplýst hefur verið að þessar stjórnir studdu al- þjóðleg hryðjuverkasamtök. Lög- reglan í Tékkóslóvakíu segir að þar hafi verið æfingabúðir fyrir arabíska hryðjuverkamenn og í A-Þýskalandi gátu félagar úr Rauðu herdeildinni, vestur-þýskum hryðjuverkasamtök- í Austur-Þýskalandi, þar sem reiður almúginn réðst inn í aðalbygginar öryggislögreglunnar í janúar, hafa menn minni áhyggjur af afbrotum en annars staðar í Austur-Evrópu. Eftir nokkra mánuði verður það v- þýsk lögregla sem laetur til skarar skríða gegn þeim sem ekki virða lög og reglur. Simamynd Reuter um, búið undir fölsku flaggi með samþykki yfirvalda. Nú eru það borgararnir í Austur- Evrópu sem fremja afbrotin. Þús- undir stunda svartamarkaðsbrask með gjaldeyri og þeim ijölgar einnig stöðugt sem stela, ræna og myrða. Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs fjölgaði afbrotum í Búlgaríu um tíu prósent en mestan óhug vakti aukning morða og nauðgana. Pólska þingið lýsti því yfir í síðast- liðnum mánuði að almenningur byggi við mikið óöryggi, afbrotum hefði fjölgað um sextíu og níu pró- sent og að æ færri mál væru rann- sökuð. í Varsjá eru ránmorð og inn- brot á allra vörum. Árásir á sígauna og Víetnama Þær fréttir, sem berast frá Tékkó- slóvakíu, þykja enn óhugnanlegri. Þar hafa tékknesk krúnurökuð ung- menni ráðist á sígauna og víet- namska farandverkamenn. Hat á sígaunum ríkir um alla Aust- ur-Evrópu þar sem þeir eru neðst í þjóðfélagsstiganum. I Tékkóslóvakíu hafa sígaunar fyrst og fremst búið í Slóvakíu en margir þeirra hafa nú flutt til Prag. Yfirvöld í höfuðborg- inni láta ekki hjá líða að benda á að sígaunar standi að baki tíu prósenta afbrotanna. Fjöldi sígauna í Prag er langt undir tíu prósentum allra höf- uðborgarbúa. Sígaunar reyna nú að veija sig og hafa um alla Austur- Evrópu myndað eigin stjórnmála- flokka og samtök. Mikil andúð hefur ríkt á ví- etnömskum farandverkamönnum í Tékkóslóvakíu. Nú eru þeir á heim- leið þar sem samningum við þá hefur verið sagt upp. Tékkum þykja þó flutningarnir ekki ganga nógu hratt fyrir sig, sérstaklega eftir að Víet- namarnir fóru að verja sig gegn árás- um. Kaupa vopn af hermönnum Frá Tékkóslóvakíu berast einnig þær fréttir að íbúarnir reyni að kaupa vopn af þeim sovésku her- mönnum sem nú eru á heimleið. Skotvopn, handsprengjur, skotfæri og hnífar eru eftirsóknarverðir hlut- ir. í allri Austur-Evrópu hafa yfir- völd tekið þau vopn sem öryggislög- reglan, félagar í kommúnistaflokkn- um og aðrir höfðu á heimilum sínum. í Búlgaríu voru meira segja byssur veiðimanna gerðar upptækar. Föngum þeim sem sleppt var í jan- úar síðastliðnum er kennt um helm- ing allra afbrotanna í Tékkóslóvakíu. Ránum, morðum og inbrotum hefur fjölgaö og telur lögreglan að fólk sé þeirrar skoðunar að lýðræði þýði að því leyfist hvað sem er. Skortur. er á lögreglumönnum í landinu en tekin hefur verið sú ákvörðun að þeir sem unnið hafa fyrir öryggislögregluna og hafa nokkum veginn óflekkað mannorð eigi að ganga til liðs við lögregluna og reyna að bæla niður glæpaölduna. DN ÞORLÁKSHÖFN Nýr umboðsmaður okkar frá 15. ágúst er Unnur Jónsdóttir, Oddabraut 17, sími 98-33779. RÍKISSPÍTALAR Dagheimilið Sólbakki Fóstra og starfsmaður óskast til starfa frá 1. septemb- er nk. við dagheimilið Sólbakka við Vatnsmýrarveg. Nánari upplýsingar veitir Bergljót Hermundsdóttir forstöðumaður í síma 601593. Dagheimilið Sunnuhlíð v. Klepp Öskum eftir að ráða fóstrur og starfsmenn til starfa í heilar og hálfar stöður. Sveigjanlegur vinnutími. Nánari upplýsingar veitir Kolbrún Vigfúsdóttir for- stöðumaður í síma 602584. Reykjavík 15. ágúst 1990 VERKEFNA- OG NÁMSSTYRKJASJÓÐUR KENNARASAMBANDS ÍSLANDS AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM UM NAMSLAUN Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að úthluta námslaunum til kennara sem hyggjast stunda nám skólaárið 1991-1992. Um er að ræða styrkveitingar skv. a-lið 6. greinar um Verkefna- og námsstyrkjasjóð KÍ frá 15. febrúar 1990. Væntanlegir styrkþegar munu fá greidd laun á náms- leyfistíma í allt að 12 mánuði eftir lengd náms. Hlut- fall launagreiðslna verður í samræmi við umfang námsins. Umsóknum ber að skila á eyðublaði sem fæst á skrif- stofu Kennarasambanduíslands/Grettisgötu 89,105 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 10. september nk. ARFAX 1000 FJÖGUR TÆKI í EINU SlMI, SÍMSVARI, MYNDSENDIR OG LJÓSRITUNARVÉL Hefur þú kynnt þér ARFAX 1000 hágæðamyndsenditækið? Hagstættverð • sjálfvirkt endurval • tvöfalt skammval • 100 minnishólf • leiðbeiningar á skjá • sjálfvirk villugreining • há- hraðavinnsla • hraðsending • tímastillt sending • fjarstýrð send- ing • sjálfvirk móttaka skilaboða HEILDSALA • SMÁSALA Karl H. Björnsson Sími 642218 og 45622 Fax 45622 Umboðsmenn: Nýja fdmuhústð, Akureyri Húsgagnalofiið, ísafirðl sími 96-27422 sími 94-4566 L

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.