Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGUST 1990. 15 Nýtt, sameinað Þýskaland gæti orðið fyrirmynd: Valddreifing Þegar múrinn var fallinn var grundvöllur Austur- og Vestur-Þýskalands einnig horfinn, segir m.a. í greininni. Nýtt, sameinaö Þýskaland er staðreynd sem ekki veröur þokað úr þessu. Og þaö gerðist hraðar en nokkur hafði búist við: enn ein sönnun þess að breytingar verða tíðum hraðar ef þær verða á annað borð og einnig sönnun þess að múrvirki heimsku og grimmdar eru eins og hús reist á sandi: þau er hægt að fella. En vitaskuld eru spurningarnar margar og svörin færri þegar slíkir atburöir verða: hvað ber tíminn í skauti sér? Það veit enginn nákvæmlega. Gott veganesti Eftir athurði síðastliðins hausts varð í raun ljóst að Þýskaland hlyti að sameinast fyrr en síðar. Þessi tiltekna tvískipting byggðist á múr- virki sem stóð fyrir efnalega og menningarlega rangskiptingu ekki síður en misskiptingu frelsis. Þegar múrinn var fallinn var grundvöllur þessara tveggja tilteknu ríkja, Austur- og Vestur-Þýskalan'ds, einnig horfmn. Nú spyrja menn vitaskuld: er Þjóðverjum treystandi fyrir einu, stóru ríki? Er ekki sagan nægileg sönnun þess að svo sé ekki? Svarið er vissulega ekki einhlítt, enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér, enginn getur fullyrt um það hvemig þetta ríki mun þróast ná- kvæmlega. En það leggur upp með gott veganesti í þeirri þróuðu vald- dreifingu, sem vestur-þýskt stjórn- kerfi byggist á. Fyrri sameinuð stórveldi á þess- ari öld í Þýskalandi byggðust á miðstýringu: keisaraveldið og veldi nasismans, auk Weimarlýðveldis- ins, sem féll meðal annars vegna ákvæða um miðstýringu forseta. Vestur-þýskt stjórnkerfi byggist á hinu gagnstæða, mjög þróðuð kerfi valddreifingar, sem nær frá sveit- arstjórnum gegnum fylkjastjórnir og upp í landstjórnina sjálfa. Kjallarinn Einar Heimisson háskólanemi, Freiburg, Vestur-Þýskalandi Lýðræði — alltaf Nokkrar mikilvægar staðreyndir um þýskt lýðræði: Fylkjaskipting: Sameinuðu Þýska- landi verður skipt upp í fylki, sem hvert um sig hefur sjálfstæða pen- ingastjórn og menntastjórn. Hvert fylki hefur þannig ráðstöfunarrétt að mestu yfir eigin aflafé, svo eitt- hvað sé nefnt. Tvískipt löggjafarvald: Auk þess mynda fulltrúar fylkjanna hið svo- nefnda Fylkjaþing (Bundersrat), sem hefur ásamt Sambandsþinginu (Bundestag) löggjafarvald í hönd- um. Löggjafarsamkomurnar eru þannig tvær og kosnar á mismun- andi hátt í aðskildum kosningum. Ríkisstjórnin styðst við meirihluta í Sambandsþinginu en ekkert tryggir að hún hafi einnig meiri- hluta í Fylkjaþinginu. Svo er ein- mitt nú að þótt við völd sé hægri- sinnuð ríkisstjórn er vinstrimeiri- hluti í Fylkjaþinginu. Samspil stjórnmálablokka: Kost- irnir af þessari skiptingu eru aug- ljósir: hún þýðir að sé lítill munur á stærðum hinna pólitísku blokka, á önnur blokkin erfiðara með að hafa öll völd í landinu á kostnað hinnar, eins og til dæmis er í Bret- landi. Stöðugt lýðræði: Þessi skipting lýð- ræðisins tengist vitaskuld hug- myndum um það að það sé alltaf, stöðugt fyrir hendi og ekki aðeins á nokkurra ára fresti. Kosið er til fylkjanna á mismunandi tímum þannig að meirihluti í Fylkjaþing- inu er stöðugum breytingum háð- ur. Beint lýðræði: í sameinuöu Þýska- landi verður sömuleiðis skýr möguleiki á beinu lýðræði á sveit- arstjórnargrundvelli; kjósendur geta hvenær sem er farið fram á kosningar um tiltekin málefni og nægir að tíu prósent þeirra geri það til að kosning verði að fara fram. Tvöföld atkvæði í þingkosningum: Hugmyndin á bak við þetta ákvæði er sú að kjósendur geti um leið kosið annars vegar lista, kosið stefnu og hins vegar stutt tilteknar persónur, sem þeir hafa trú á. Hlut- fallskosning og persónukosning eru þannig sameinaðar. Fimm prósent regla: Flokkar verða að fá að minnsta kosti fimm pró- sent atkvæða í þingkosningum. Lit- ið er á flokkakerfið sem mikilvæga undirstöðu þjóðfélagsins sem við- heldur tilteknum pólitískum stöð- ugleika. Stefnt er að færri en breið- ari flokkum, greinilegri útlínum stjórnmálanna, færri og smærri umbúðum utan um skoðanir. Er líka alltaf lýðræði hjá okkur? Undirstaða nýs, sameinaðs Þýskalands verður þetta vald- dreifða stjórnkerfi, sem tryggir það að fáir geta aldrei ráðið yfir mörg- um: Raunar er tæpast hægt að hugsa sér stjórnkerfi sem í grund- vallaratriöum er fjarlægara mið- stýrðu stórveldi. Valddreifingin er nauðsynleg undirstaða farsæls þjóðfélagskerfis og raunar for- senda þess að það sé heilbrigt og virki rétt: valdiö á alltaf og á öllum tímum að koma frá þjóðinni sjálfri, hún stjórnar sér sjálf en er ekki stjórnað að ofan og ber þannig sjálf stöðugt ábyrgð á sjálfri sér. Vald- dreift þjóðfélag á miklu erfiðara með að sýkjast og visna en mið- stýrt enda á það sér miklu fleiri mikilvæg burðarlíffæri, sem bæta hvert annað upp. Og þá komum við vitaskuld að spurningunni: Gæti árangur þessa þýska stjórnkerfis orðið okkur fyr- irmynd? Gætum við aukið vadd- dreifingu og eflt lýðræði? Auðvitað. Við búum við kosningakerfí sem mismunar fólki stórlega eftir bú- setu. Um leið höfum við óþarflega miðstýringu frá suðvesturhorninu; landsbyggðin, sjávarplássin, hand- hafar undirstöðugreinanna hafa of lítil völd yfir eigin aflafé, svo eitt- hvað sé nefnt. í þriðja lagi skortir algjörlega möguleikann á beinu lýðræði í sveitarstjórnum í íslenskt þjóðfélag. Það er grundvallaratriöi sem tilheyrir þroskuðu þjóðfélagi þar sem kjósendur hafa alltaf og á öllum tímum völdin í sínum hönd- um. Lýðræði - alltaf, það er stað- reynd, sem á við um þýskt stjórn- kerfi fremur en ýmis önnur. Við ættum að gaumgæfa okkar lýð- ræði, fara yfir einstaka þætti þess og spyrja svo að lokum: Er líka alltaf lýðræði hjá okkur? Einar Heimisson „Valddreift þjóðfélag á miklu erfiðara með að sýkjast og visna en mistýrt, enda á það sér miklu fleiri mikilvæg burðarlíffæri sem bæta hvert annað upp.“ Ert þú hetja? Þú veist að barnið er inni í brenn- andi húsinu og þú gætir bjargað því. Þú sérð að maðurinn er að sogast niður í hringiðuna. Þú gætir hugsanlega náð honum. Þú gengur fram á hóp af unglingum sem eru að misþyrma gamalli konu. Þú gætir stokkið hnarreistur fram. Sennilega finnst þér að þú myndir gera allt þetta. Þú átt auðvelt með að setja þig í spor hetjunnar. í huganum stekk- urðu inn í húsið og færir grátandi móður barnið sitt. Þú hendir þér á ystu nöf og hrífur manninn úr dauðanum. Unglingarnir flýja sem fætur toga er þú stekkur fram með tvöfoldu herópi. En raunveruleikinn er oft annar. Eiturgufur berja þig til jarðar og slökkvihðsmenn hrasa um þig er þeir reyna að bjarga barninu. Hringiðan gómar ykkur báða. Orðalaust dregur unglingur upp byssu og skýtur þig. Ekki einfalt mál Flestir geta verið sammála um að rétt sé að koma nauðum stödd- um náunga til hjálpar. Sumir álíta að slík hjálparhvöt sé innbyggð í konur og menn. Aðrir telja sig ein- faldlega vera að hlýða kristnu boði um náungakærleik, samanber sög- una um miskunnsama Samveijann sem flestir hafa einhvern tímann lesið eða heyrt. Og allir geta verið sammála um að einhver náunga- kærleikur sé nauðsynlegur til þess að samfélög virki. KjaUarinn Sr. Baldur Kristjánsson En hvað á náungakærleikurinn að ganga langt? Hver segir að þú eigir að leggja þig í lífshættu fyrir aðra? Það getur verið óbærilegt að vita af barni inni í brennandi húsi, sjá mann sogast í iðuna eða horfa á unglinga misþyrma konu. En málið er ekki eins einfalt og virðist í fyrstu. Þú berð nefnilega ábyrgð gagnvart fleirum en því nauðum stadda fólki sem verður á vegi þín- um. Heima bíður þín sennilega fólk sem þarfnast þín. Þú átt líklega börn. Þú ert ef til vill í miðjum klíð- um við að ala þau upp, veita þeim skjól, vernd, leiðsögn, ást og um- hyggju. Verður þú ekki að vega ábyrgð þína gagnvart þeim móti ábyrgð þinni gagnvart hinúm nauðum stadda? Hversdagslegt líf Sumir hafa haldið því fram að gagnvart yfirvofandi hetjudáð væru aðeins til tvenns konar manneskjur. Annars vegar þær sem umhugsunarlaust stykkju öðr- um til bjargar og hins vegar þær sem hugsuðu sig um. Við kunnum flest að greina frá dæmum um hið fyrrnefnda. Stund- um er hetjan til frásagnar, stund- um ekki. Það er hins vegar líklegt aö flest okkar fylli seinni flokkinn. Hiki þegar á hólminn er komið, ur? hugsi sig um og samkvæmt kenn- ingunni: Aðhafist ekkert sem gæti verið lífshættulegt. Líf okkar flestra er það hvers- dagslegt að við komumst aldrei að því hvorum hópnum við tilheyrum. En til eru þeir sem bögglast með sektarkennd alla ævi vegna þess að þeir reyndu ekki aö fremja hetjudáð heldur fóru með löndum eða hurfu af vettvangi. Þeir geta huggað sig við það að flestir hefðu gert það sama. Sr. Baldur Kristjánsson .. til eru þeir sem bögglast með sekt- arkennd alla ævi vegna þess að þeir reyndu ekki að fremja hetjudáð heldur fóru með löndum eða hurfu af vett- vangi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.