Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Síða 28
40 MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990. Sviðsljós Ólyginn sagði... Julia Roberts hin fagra er nú óöum að kom- ast að vanköntum frægðarinnar. Þegar hún var að leika í nýju myndinni sinni, „Sleeping with the Enemy“, fékk hún ekki frið fyrir strákum sem hópuðust fyrir utan húsið hennar. Julia segist ekki getað annað en verið vin- gjarnleg við alla og því hafi hún ekki fengið það af sér að segja þeim að hypja sig í burtu. Núna hefur hún leyst vandamálið með því að fá lögregluþjón til að vakta húsið. Það er ekki allt fengiö með frægðinni. BruceWillis stendur í ströngu við að rétt- læta ofbeldið í myndinni sinni, „Die Hard 2“. Myndin hefur af mörgum verið talin vera alltof ofbeldisfull og hefur Willis verið gagnrýndur af þeim sökum. Hann tekur því létt og bendir fólki á að horfa á fréttimar í sjón- varpinu til samanburðar. „Þar er þetta allt saman raunverulegt. Þar rennur alvörublóð og alvöru manneskjur deyja. Við eram hins vegar bara að þykjast," segir Willis. StevieNicks söngkonu Fleetwood Mac lang- ar til að verða móðir. „Ég sé ekki eftir neinu öðra á mínum 15 ára rokkferli nema að ég skyldi ekki hafa stoppað í einhvem tíma og eignast bam,“ segir hún. Stevie er orðin 42 ára gömul og er ólof- uð. Hún hyggst ættleiða barn fljótlega eftir að tónleikaferðalagi í tilefni að nýútkominni plötu Fleetwood Mac lýkur. „Ég er svo sannarlega tilbúin til þess að sjá um bam. Og svo er aldrei að vita nema ég eignist barn sjálf, það er að segja ef rétti maðurinn læt- ur sjá sig.“ I>V Hár hefðarfólksins: Diana breytir um hárgreiðslu Diana prinsessa hefur löngum vak- ið athygli fyrir klæðaburð og klipp- ingu. Allar enskar stúlkur vilja líkj- ast prinsessunni og alltaf þegar hún breytir um stíl þá fylgja þúsundir stúlkna fordæmi hennar. Síðustu tíu árin hefur Díana oft breytt um hárgreiðslu. Það er þó allt- af sami stíllinn yfir hári hennar. Hún vfil hafa það millibrúnt og hálfsítt. Núna bregður hins vegar svo við að prinsessan hefur gjörbreytt um hárgreiðslu. Hárið er orðið alveg stutt og hún hefur látið lýsa það mik- ið með ljósum strípum. Það þarf ekki að efa það að næsta hártískubylgja í Bretlandi mun bera mikinn keim af þessari nýjustu hár- greiðslu Diönu. 1980. Þetta var hárgreiðslan sem þúsundir stúlkna i Bretlandi vildu líkja eftir. 1990. Alveg ný lína. Stutt og glæsilegt. 1984. Hérna er hárið orðið sítt og nær alveg niður fyrir axlir. 1987. Hárið tekið frá andlitinu og upp í hnakkanum. Mamma Stallones leysir frá skjóðunni: Sylvester fæddist hálflamaður Mamma Sylvesters Stallone segir að það hafi verið stærstu mistök lifs sins stolt af syninum og vildi ekki hafa misst af því að eignast hann. fátækt fólk sem ekki á pening til að fara á fæðingardeildir sjúkrahú- sanna. „Læknamir voru ungir strák- ar, nýskriðnir úr skóla. Þeir vildu bara ljúka fæðingunni sem fyrst svo að þeir gætu komist heim. Til að flýta fyrir fæðingunni drógu þeir Sylvest- er út með töngum þannig að hann lamaðist í andlitinu og hluta af lík- amanum. Læknarnir sögöu mér að hann væri krypplingur og að ég ætti að setja hann strax á stofnun. Ég sagðist ekki taka það í mál. Sylvester hefur lagast mikið síðan hann var barn en hann er ennþá hálflamaður í andlitinu og þess vegna talar hann svona skringfiega; hægt og draf- andi,“ segir mamma Sylvesters. Ekki er hægt að segja að Sylvester Stallone hafi fæðst með silfurskeið í munni. Mamma hans, sem í dag er mjög stolt af syni sínum, segist til að giftast föður hans. Hún er þó mjög dæmis ekki hafa átt peninga fyrir körfu handa drengnum til að leggja hann í og því hafi hann sofið sínar fyrstu nætur í skúffu - og líkað vel. Seinna skfidi Jackie við Frank, gift- ist pizzakóngi og varð rík. Frá ungl- ingsaldri kynntist Sylvester því allt annars konar lífi en á fyrstu árum sínum. „Það allra versta sem fyrir mig hefur komið var að hitta Frank Stall- one, fóður Sylvester,“ segir Jackie Stallone, móðir leikarans. „Viö eram löngu skilin en árum saman hefur hann stöðugt gert mér lífiö leitt. Þeg- ar við kynntumst vann ég í sirkus og Frank var nýfluttur til Bandaríkj- anna frá Ítalíu. Ég tók fyrst eftir hon- um því hann talaði enga ensku og að auki hafði hann veriö munkur í klaustri einhvers staðar í íjöllum Sikileyjar. Frank hafði aldrei veriö með konu áður en hann hitti mig og ég ákvað að ég yröi að ná í þennan mann. Það er vitlausasta ákvörðun sem ég hef tekið um dagana." Frank og Jackie giftust og bjuggu við mikla fátækt. Fljótlega varð Jackie ólétt að Sylvester og hann fæddist árið 1946 á sjúkrastofu fyrir Sylvester Stallone fæddist hálflam- aður i andliti og er það skýringin á málfæri leikarans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.