Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGÚR 15. ÁGÚST 1990. 41 Ólyginn sagði... John Malkovich sem lék skúrkinn í Dangerous Liaisons stendur á tímamótum í lífi sínu. Hann hefur sagt skilið við konuna sína eftir sex ára hjónaband og er að flytjast bú- ferlum frá Bandaríkjunum til Englands. „Ég ætla að segja skilið við fortíðina," segir Malkovich. „Ég fer ekki til Bandaríkjanna í náinni framtíð, ekki einu sinni til að vinna.“ Malkovich fer þó ekki einn til Englands. Hann er strax búinn að finna sér kærustu og fregnir herma að þau eigi von á barni. Sviðsljós Á þessari mynd sjáum við verðlaunahafa í Flipp-Open. Talið frá vinstri: Jóhanna Margrét Einarsdóttir, Herbert Guðmundsson, Rósa Guðbjartsdóttir, Jónas Haraldsson, Óttar Sveinsson, Geir Þórðarson, Bergur Garðarsson, Yngvi Halldórsson og Halldór Bragason. DudleyMoore hinn lágvaxni á ekki í vandræð- um með að næla sér í kvenmenn. Þær dragast að honum og láta smæð hans ekki á sig fá enda eru þær undantekningarlaust mun hærri en hann. Moore, sem orðinn er 55 ára gamall, var nú fyrir skemmstu að skilja við þriðju konuna sína, Brogan Lane. Lane er leikkona og það voru fyrri konur hans tvær einnig. DonnyOsmond sló rækilega í gegn árið 1977 og söng sig inn í hjörtu ungra stúlkna um allan heim. En gæfan er fallvölt og stjarna hans hrap- aði fljótt. Núna er Donny orðinn 32 ára gamall og staðráðinn að slá í gegn á ný. Hann er bitur vegna gamalla tíma. „Þegar einhver nær að slá í gegn þá er nauðsynlegt að sá hinn sami fómi öllu fyrir frægð- ina. Fólkið í kringum hann not- færir sér frægð hans og reynir að komast áfram á hans kostnað. Þetta er nákvæmlega þaö sem kom fyrir mig,“ segir Donny. Nú er hann hins vegar staðráðinn í því að vera vel undir frægð- ina búinn ef hún kemur á nýjan leik. Árlegt golfmót starfsmanna DV haldið í Hvammsvík: Flipp-Open í sól og sumaryl Það var fríður hópur starfsmanna DV sem lagði leið sína síðastliðinn laugardag í blíðskaparveðri í Hval- fjörðinn. Þar, á hinu glæsilega úti- vistarsvæði Laxalónsmanna, skyldi haldið árlegt golfmót DV sem gengur undir nafninu Flipp-Open. í Hvalfirðinum var eins og annars staðar vestanlands mikil bhða með nær stanslausri sól og hafði það góð áhrif á keppendur sem léku við hvern sinn fingur og voru slegin per- sónuleg met sem og önnur met. Flipp-Open var haldið í þrettánda sinn í ár. Er ávallt farið eitthvað út fyrir bæinn og golfleikurinn samein- aður skemmtiferð. Og eins og mörg- um er kunnugt er ekki aðeins golf í Hvammsvík heldur einnig boðiö upp á veiði og hesta. Verðlaun í golf- mótinu voru vegleg og voru gefin af Japis og fleiri velunnurum DV. Mot a i Honoi Jóhannes Reykdal afhendir sigurvegara mótsins, Óttari Sveinssyni, farand- gripinn góða og hengir um háls honum verðlaunapening. Auk þess fékk hann vandað útvarpstæki í verðlaun. Magnús Ólafsson, sá fjölhæfi skemmtikraftur, lét sér ekki nægja að leika golf heldur brá sér á hestbak í lokin. Eitthvað virðist Gunnar Andrésson Ijósmyndari vantreysta sjóninni hjá Jónasi Haraldssyni fréttastjóra, alla- vega sér hann ástæðu til að sýna honum hvar holan er. DV-myndir S Þrir hressir blaðamenn, kátir að loknum leik. Talið frá vinstri: Sigurjón M. Egilsson, Gísli Kristjánsson og Óttar Sveinsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.