Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Síða 30
42
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990.
Afmæli
Daníel Teitsson
Daníel Teitsson búfræðingur, Há-
túni 12, er fertugur í dag. Daníel er
fæddur á Grímarsstöðum í Andakíl
og ólst þar upp. Hann var í Klepp-
járnsreykjaskóla í Reykholtsdal og
lauk búfræðiprófi í Bændaskólan-
um á Hvanneyri 1969. Hann vann
við almenn sveitastörf í foðurgarði
og í sláturtíð á haustin 1969-1978.
Daníel vann á Vinnuheimilinu á
Reykjalundi 1978-1984 og var kaup-
maður í Rvík 1984-1987. Hann vann
á Múlalundi 1987 og hjá bílaumboð-
inuTöggi, síðar Glóbusi, 1987-1989.
Daníel lauk námi í Starfsþjálfun
fatlaöra 1989 og hefur unniö á
Reykjalundi frá 1990. Daníel var í
dansnefnd Sjálfsbjargar 1985, ferða-
nefnd Sjálfsbjargar frá 1985. Hann
var formaður nemendaráðs í Starfs-
þjálfun fatlaðra 1988 og var í Félags-
málaskóla Alþýðu 1980 og 1982.
Systkini Daníels eru: Þórhallur, f. 7
apríl 1949, b. á Grímarstööum í
Andakíl; Grímar, f. 17. febrúar 1952,
húsasmiður á Akranesi, kvæntur
Petrúnu B. Sveinsdóttur og eiga þau
þrjú börn en Grímar átti son af fyrra
hjónabandi; Guðmundur, f. 26. jan-
úar 1954, verkstjóri á Akranesi,
kvæntur Elínu Bjarnadóttur og eiga
þau fjögur börn; og Auðun, f. 6. jan-
úar 1957, d. 24. september 1982, bú-
fræðingur og b. á Grímarsstööum,
unnusta hans var Heiða Björk
Karlsdóttir.
Foreldrar Daníels eru Teitur
Daníelsson, f. 12. október 1924, fyrrv.
b. á Grímarsstöðum í Andakíl, og
kona hans, Halldóra Þórðardóttir,
f. 26. apríl 1925. Teitur er sonur
Daníels Fjeldsted, b. á Grímarsstöð-
um, Teitssonar, b. á Bárustöðum í
Andakíl, Símonarsonar. Móðir
Daníels var Ragnheiður Daníels-
dóttir Fjeldsted, b. á Hvítárósi,
Andréssonar Fjeldsted, b. á Narf-
eyri á Skógarströnd, Vigfússonar
gullsmiðs Sigurðssonar, ættfööur
Fjeldstedsættarinnar. Móðir Andr-
ésar var Karítas Magnúsdóttir,
sýslumanns í Búðardal, Ketilsson-
ar. Móðir Magnúsar var Guðrún
Magnúsdóttir, systir Skúla land-
fógeta. Móðir Daníels Fjeldsted var
ÞorbjörgÞorláksdóttir, b. í Látrum,
Grímssonar og konu hans, Katrínar
Einarsdóttur, systur Eyjólfs „Eyja-
jarls“, alþingismanns í Svefneyjum.
Móöir Ragnheiðar var Sigurlaug
Ólafsdóttir, b. á Norðurreykjum í
Hálsasveit, Jónassonar, prests í
Reykholti, Jónssonar, föður Þórðar,
dómstjóra í landsyfirdómi.
Halldóra er dóttir Þórðar, b. í Haga
í Skorradal, Runólfssonar, b. á Háls-
um í Skorradal, Arasonar, bróður
Salvarar, móður Ara Gíslasonar,
fræðimanns á Akranesi. Móðir
ÞÓrðar var Ingibjörg Pétursdóttir.
Móðir HaUdóru er Halldóra Guð-
jónsdóttir sjómanns, lengst á Fossi
í Innri-Akraneshreppi, Einarsson-
ar. Móðir Guðjóns var Geirdís
Narfadóttir, b. á Gröf í Skilamanna-
hreppi, Gíslasonar. Móðir Narfa var
Guðleif Björnsdóttir, b. á írafelli,
Stefánssonar og konu hans, Úrsúlu
Jónsdóttur, b. á Fremra-Hálsi í Kjós,
Ámasonar, ættföður Fremra-Háls-
Daníel Teitsson.
ættarinnar. Daníel tekur á móti
gestum á afmælisdaginn á setustof-
unni á 5. hæð í Hátúni 12 eftir kl. 20.
Kristj án Valdimar
Kristjánsson
Kristján Valdimar Kristjánsson,
Kjötiðnaðarmeistari, Lambhól í
Reykjavík, er sjötugur í dag.
Kristján Valdimar er fæddur í
Reykjavík og ólst þar upp. Hann
læröi kjötiðn hjá fóstuiifööur sínum,
J.C. Klein, og einnig í Danmörku
um skeið og að kjötiðn hefur hann
starfað ævilangt. Kristján kvæntist
31. maí 1952 Ragnhildi Jónu Magn-
úsdóttur, f. 1. ágúst 1924. Foreldrar
Ragnhildar era Magnús H Jónsson
prentari, sem lengi var formaður
HÍP, og kona hans, Sigurlína
Ebenezerdóttir. Böm Kristjáns og
Ragnhildar eru: Sigurlína Sjöfn, f.
1. maí 1947, gift Trausta Björnssyni
kennara og eiga þau tvö böm og tvö
barnaböm; Sylvía Hrönn, f. 11. sept-
ember 1952, sjúkraliði; Kristján, L
1. apríl 1954, verlsunarmaður, og á
hann einn son með Hrefnu Ólafs-
dóttur; Magnús Helgi, f. 3. maí 1955,
sjómaður, kvæntur Imagula Ada
Morales; Jóhannes Bragi, f. 7. jan-
úar 1960, skrifstofumaður á Blöndu-
ósi, kvæntur Svövu Hansdóttur fós-
tm og eiga þau tvö böm; Auður
Gróa, f. 22. júlí 1963, skrifstofumað-
ur, gift Guðmundi Bragasyni vél-
stjóra og Unnar Jón, f. 12. maí 1966,
byggingarverkamaður, kvæntur
Guðnýju Einarsdóttur og eiga þau
tvöbörn.
Foreldrar Kristjáns vora Kristján
Jónsson, hann fórst með m.b. Valtý
í febrúar 1920, sjómaður frá Laufási
á Akranesi og kona hans, Sylvía
Þorláksdóttir. Við fráfall Kristjáns
Jónssonar hafði Sylvía fyrir Kristj-
áni að sjá og albróður hans Gústavi,
síðar matsveini, sem giftist Magda
Rönne hjúkrunarkonu en hún er
nú látin. Sylvía giftist síðar mági
sínum J.C. Klein kjötkaupmanni,
sem misst hafði konu sína, Elínu
systur hennar, og ólust Kristján og
bróöir hans upp á meðal barna
þeirra. Þau uppeldis- og frændsystk-
ini Kristjáns og bróður hans vora:
Carl Klein kjötkaupmaður, kvænt-
ur Þóra Færseth; Jens Klein kjöt-
kaupmaður, kvæntur Elínu Fær-
seth, og Hulda Klein, gift Jóhanni
Kristjánssyni, kaupmanni í Kópa-
vogi.
Bræður Kristjáns Jónssonar vora
Karl Valdimar, stýrimaður í
Grindavík, kvæntur Þorbjörgu
Jónsdóttur, og Axel, kaupmaður í
.Sandgerði, kvæntur Þorbjörgu Ein-
arsdóttur. Bróðir Kristjáns Jóns-
sonar samfeðra var Geir, á Akra-
nesi, en systkini Kristjáns sam-
mæöra vora: Kristján Linnet, bæj-
arfógeti í Vestmannaeyjum, kvænt-
ur Jóhönnu Júlíusdóttur, og Hans-
ína Linnet, gift Þórði Bjamasyni,
kaupmanni frá Reykhólum, foreldr-
ar Regínu leikkonu. Kristján var
sonur Jóns Guðmundssonar frá
Hávaröarstöðum í Leirársveit og
konu hans, Gróu Jónsdóttur. Gróa
var dóttir Jóns Guðmundsssonar,
b. í Vallarhúsum í Grindavík, og
konu hans, Guðrúnar Þórðardóttur.
Kristján Valdimar Kristjánsson.
Systkini Sylvíu voru Nikolína, gift
Guðmundi Oskarsyni bakara; Karl
úrsmiður, sem fluttist til Ameríku;
Anna, sem giftist til Danmerkur;
Dagmar, gift Mekkinó Bjömssyni
kaupmanni; Margrét, gift Guð-
mundi Jónssyni úrsmið; Elín, gift
J.C. Klein kjötkaupmanni og Inga,
gift Óla Andreassyni vélstjóra. Syl-
vía var dóttir Þorláks, smiðs og
pósts á ísaflrði, Magnússonar frá
Skerðingsstöðum í Reykhólasveit og
konu hans, Júlíu Ingimundardótt-
ur, prentara í Rvík, Ingimundarson-
ar, b. í Bollagörðum, Ingimundar-
sonar, b. á Völlum á Kjalarnesi,
Bjamasonar.
Ágústa Friðrika Gísladóttir
95 ára
Sigríður Eyjólfsdóttir,
Norðurbrún 1, Reykjavík.
Þorlákur Guðjónsson,
Laxárvatnsvirkjun, Torfalækjar-
hreppi.
Stefnir Þorvaldsson,
Garðarsbraut 31, Húsavík.
Bjami Guðmundsson,
Meistaravöllum 31, Reykjavík.
Jóhann B. Brynjólfsson,
Dvalarheimilinu Skjaldarvik,
Glæsibæjarhreppi.
Jens G. Viborg,
Barmahlíð 36, Reykjavík.
Stefán Jónsson,
Kirkjuvegi 19, Selfossi.
Sigurjón Runólfsson,
Dýrfmnustööum, Akrahreppi.
70ára
Kristján V. Kristjánsson,
Þormóðsstöðum, Lambhól, Reykja-
vík.
Gestur O. Hallbjörnsson,
Greniteigi 22, Keflavík.
Siguijón Stefánsson,
Austurbrún 33, Reykjavik.
Ölafur Þórðarson,
Smáratúni 20, Keflavík.
Oddný Angantýsdóttir,
Engihlíð, Hofshreppi.
Brynja Óskarsdóttir,
Álmholti 15, Mosfellsbæ.
50 ára
Eysteinn G. Hafberg,
Breiðvangi 2, Hafnarfirði.
Magnús Tryggvason,
Bleikjukvísl 4, Reykjavík.
Guðbjörg Kristjánsdóttir,
Logafold 50, Reykjavík.
Helga S. Þorsteinsdóttir,
Njálsbúð, Vestur-Landeyjum.
ívar Særaundsson,
Hátúni 8,Reykjavík.
Ragnhildur Húnbogadóttir,
Brekkubyggð 28, Blönduósi.
Særún Magnúsdóttir,
Túngötu 44, Tálknafirði.
Jónina Stefánsdóttir,
Fannafold 132, Reykjavík.
Elísabet Sigtryggsdóttir,
Faxastíg 3, Vestmannaeyjum.
Kristín Gunnarsdóttir,
Kríuhólum 2, Reykjavík.
Steinunn Eldjárnsdóttir,
Túngötu 10, Seyðisflrði.
Steinunn Theódórsdóttir,
Funafold 83, Reykjavík.
Ásgeir Þórðarson,
Birkiteig 24, Keflavík.
Ágústa Friðrika Gísladóttir, Hlé-
gerði 9, Kópavogi, er sjötíu og fimm
ára í dag. Ágústa Friðrika er fædd
á Gjögri í Strandasýslu og ólst þar
upp. Hún var í barnaskóla á Finn-
bogastöðum í Ámeshreppi og flutt-
ist til Drangsness um tvítugt og hef-
ur átt þar heima í um tuttugu ár.
Ágústa fluttist til Reykjavíkur 1954
og síðan í Kópavog 1965 og hefur
búið þar síðan. Maður Ágústu er
Halldór Jónsson, f. 14. júlí 1913,
smiður, þau hófu sambúð 1934 og
giftust 1945. Foreldrar Halldórs era
Jón Kjartansson, b. í Asparvík í
Strandasýslu, og kona hans, Guð-
rún Guðmundsdóttir. Böm Ágústu
og Halldórs era: Guðmunda Sigur-
borg, f. 19. september 1934, húsmóð-
ir í Rvík, maður hennar var Ingi-
mundur G. Jörandsson, f. 26. febrú-
ar 1922, d. 16. október 1979, og eiga
þau tvö böm. Núverandi sambýlis-
maður Guðmundu er Samúel Richt-
er. Ólöf Svava, f. 8. febrúar 1941,
húsmóðir í Hvammi í Skprradal,
maður hennar er Ágúst Ámason,
böm þeirra era fjögur. Gísh, f. 29.
apríl 1945, kaupmaöur í Kópavogi,
kvæntur Ástu M. Asgeirsdóttur,
böm þeirra era tvö. Agústa átti sex
alsystkini en tvær systur eru á lífi,
Agnes, f. 20. desember 1911, hús-
móðir á Gjögri í Strandasýslu, gift
Axel Thorarensen og era börn
þeirra níu, og Vigdís, f. 27. ágúst
1924, húsmóðir í Sandgerði, gift
Elíasi Benediktssyni og eru böm
þeirrafjögur.
Foreldrar Ágústu voru Gísli Guð-
mundsson, f. 26. október 1876, d.
1960, farkennari á Gjögri, og kona
hans, Steinunn, f. 15. ágúst 1880, d.
1953, Ólafsdóttir, b. á Bessastöðum
á Heggsstaðanesi, Guðmundssonar.
Gísh var sonur Guðmundar, b. í
Kjós, Pálssonar, b. á Kaldbaki, Jóns-
sonar, ættföður Pálsættarinnar.
Móðir Gísla var Guðríður Jónsdótt-
ir, b. í Kjós, Þórólfssonar, b. á
Óspakseyri, Jóhannssonar, prests í
Garpsdal, Þórólfssonar, b. á Múla á
Skálmarnesi, Nikulássonar, bróður
Guðrúnar, ömmu Eggerts Ólafsson-
ar skálds. Móðir Guðríðar var Helga
Hjálmarsdóttir, b. í Kjós, Jónssonar,
bróður Ragnheiðar, langömmu,
Ragnheiðar, móður Snorra skálds
Ágústa Friðrika Gisladóttir.
og Torfa, fyrrv. toUstjóra og sátta-
semjara, Hjartarsona. Móöir Hjálm-
ars var Þuríður Ólafsdóttir, systir
Eggerts í Hergilsey, langafa Þóru,
móður Matthíasar Jochumssonar
skálds. Ágústa verður að heiman í
dag.
Gerum ekki margt í einu
við stýrið..
Akstur krefst fullkominnar
einbeltingar!
UMFERÐAR
RÁÐ