Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1990, Qupperneq 32
44 MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 1990. Menning Listalína frá Alafossi Viðvarandi rekstrarvandi Álafoss er hluti af tvö- faldri harmsögu, annars vegar íslensks ullariðnaðar, hins vegar íslenskrar hönnunar. í stórum dráttum er söguþráðurinn þessi: Við íslendingar eigum kynstrin öll af einhverri bestu ull sem þekkist. Við eigum einn- ig harðan kjarna vel menntaðra textílhönnuða. Hins vegar hefur aldrei tekist að skapa varanleg tengsl þama í millum, sem er meginástæða þess að stór hluti íslensku ullarinnar er jafnan sendur Sovét- mönnum sem hluti af vöruskiptakvóta, og þess að ís- lenskir textílhönnuðir hafa dregist aftur úr starfs- bræðrum sínum annars staðar á Norðurlöndum í meðhöndlun og úrvinnslu ullar. Sögulok. Hefði aðeins htill hluti þess fjármagns, sem veitt hefur verið til vinnslu og markaðsfærslu íslenska fisksins, verið notað til þess að hlúa að íslenskum ulla- riðnaði værum við nú stórveldi í hönnum og fram- leiðslu nútímalegrar ullarvöru; klæðnaðar, áklæða, teppa o. fl. Höfum hugfast að hið mikla Benetton vefn- aðarvörufyrirtæki varð til í bakherbergi í lítilli ít- alskri borg, Prato. Værðarvoðir Ekki hefur skort á skyndilegar hugljómanir ráða- manna í íslenskum ullariðnaði. Áætlanir hafa verið geröar, hönnuðir ráðnir og markaðsfræðingar hvattir til dáða. Eftir nokkur misseri er allur vindur úr voðum „átaksins“ og treflar í sauöalitunum hlaðast upp fyrir næstu Sovétsendingu. Því sækja að manni ákveðnar efasemdir í hvert sinn sem tilkynnt er um nýtt „átak“ í ullariðnaði. Vonandi skiptir sköpum aö óvenju skynsamlega virðist staöið að nýjasta „átakinu“, sem er kynning Álafoss á værð- arvoðum sem ganga undir nafinu „Art Line-Lista- hna“. Þessar værðarvoðir eru unnar á Akureyri und- ir yfirstjórn finnsks textílhönnuðar, Siw Schalin, en höfundur sjálfrar „línunnar" er Guðrún Gunnars- dóttir. Sjal og stofustáss Þessar voðir eru gerðar úr 100% lambsull, eru þunn- ar, þétt ofnar og laufléttar, og því mjög frábrugðnar þeim voðum sem Álafoss var áður með í sölu. Á minu heimli hefur ein þessara nýju voða verið í notkun um nokkurra vikna skeið og gert mikla lukku, sem Guðrún Gunnarsdóttir textílhönnuður ásamt einni værðarvoða sinna. Ljósm. Guðm. Ingólfsson Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson ábreiða, sjal og stofustáss. í „línunni" (ekki nógu gott orð en brúklegt þó), eru sex voðir, og er hver þeirra 130x200 sm að stærð. Lá- réttar og lóðréttar áherslur eru einkenni á formgerð þeirra, en litirnir, sex að tölu, eru djúpir, heitir og fagurlega samstilltir. Er hönnun Guðrúnar til fyrir- myndar að öllu leyti. Helst verður mér hugsað til málverka Bandaríkjamannsins Ads Reinhardt. Fag- menn hafa greinilega séð um markaðssetninguna. Stíl- hreinir og htríkir kynningarbæklingar hafa verið hannaðir, auk þess sem búin hefur verið til sérstök gjafapakkning fyrir hstalínuna sem er svartur sex- hyrndur kassi. Heitir litir og kaldir í kynningarbæklingum kemur fram að listalínan er aðeins ein af þremur gerðum værðarvoða sem nú eru í þróun hjá Álafossi. Verið er að vinna baðmullarsjöl, 127x152 sm, sem einkennast af svipaðri formgerð en bjartara.litrófi, og svo stærri voðir úr tvinnuðu ullar- bandi, jafnt í heitum litum sem köldum. Framleiðend- um og hönnuöi óska ég til hamingju með áfangann. Vonandi fara þeir ekki út af línunni. H uggulegt formúlurokk Kanadamenn hafa verið iðnir við það gegnum árin aö framleiða rokkara fyrir alþjóðamarkaðinn. Má í því sambandi nefna Bryen Adams, Richard Marx og hka hljómsveitir á borö við Loverboy og Rush. Nýasta afurðin af þessu tagi frá Kanada er svo söng- konan Alannah Myles sem hefur gert það gott í sumar bæði vestan hafs og austan með plötu sem ber nafn hennar. Alannah leikur nokkuð hefðbundiðamerískt iðnað- arrokk eða þessa blöndu af rokki sem gælir pínulítið við að vera þungarokk, er mjög melódískt og kraftmik- ið en bhtt sem sunnanblærinn inná milli. Hér má líka kenna blúsáhrif og er það síst til skaða. Obbinn af lögunum á plötunni er eftir þá Christop- her Ward og David Tyson og stjóma þeir upptökum Nýjarplötur Sigurður Þ. Salvarsson jafnframt. En það era samt ekki prýðisgóðar lagasmíð- ar þessara manna sem lyfta þessari plötu upp úr með- almennskunni heldur vegur þar þyngst feiknagóð söngrödd og söngur Alönnuh Myles. Stúlkan hefur mikið raddsvið og kraftmikla rödd, passlega hása til að gefa rokklögunum réttan blæ og rólegu lögunum sjarma. -SþS- Mánudaga - föstudaga. 9.00 - 22.00 Laugardaga. 9.00 - 14.00 Sunnudaga. 18.00 - 22.00 Andlát Indíana Gísladóttir, Dalbraut 27, Reykjavík, áður til heimilis á Akur- eyri, lést á Borgarspítalanum þriðju- daginn 14. ágúst. Kristín Guðmundsdóttir, dvalar- heimilinu Hraunbúðum, Vest- mannaeyjum, andaðist þriðjudaginn 14. ágúst. Gunnar E. Bjarnason, Suðurgötu 64, Hafnarfirði, andaðist 14. ágúst. Jarðarfarir Magnús Guðmundsson frá Odda, Reyðarfirði, sem lést á heimili sínu, Miðvangi 22, Egilsstöðum, 9. ágúst sl. verður jarðsunginn frá Reyðar- fjarðarkirkju fimmtudaginn 16. ágúst kl. 14. Aldís Ösk Sveinsdóttir verður jarð- sungin frá Dómkirkjunni fimmtu- daginn 16. ágúst kl. 15. Séra Óskar J. Þorláksson, fyrrum dómprófastur, Aragötu 15, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 16. ágúst kl. 13.30. Þórarinn Árnason frá Stóra-Hrauni verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni í Reykjavík fóstudaginn 17. ágúst kl. 15. a||®3 - , Sigrún Eiríksdóttir lést 7. ágúst. Hún fæddist í Þykkvabæjarklaustri í Vestur-Skaftafellssýslu þann 2. júní 1911. Foreldrar hennar voru þau hjónin Rannveig Jónsdóttir og Eirík- ur Ormsson. Sigrún var tvígift. Fyrri maður hennar var Heinrich Durr, þau slitu samvistum. Þau eignuðust þijár dætur. Seinni maður Sigrúnar var Páll ísólfsson en hann lést árið 1974. Þau eignuðust eina dóttur. Út- för Sigrúnar verður gerð frá Dóm- kirkjunni í dag kl. 13.30. Tilkynningar Nýtt póst- og símahús á Kópaskeri Nýtt póst- og símahús hefur veriö form- lega tekiö í notkun á Kópaskeri. Húsiö er 137 fermetrar og 557 rúmmetar aö stærö. í húsinu hefur veriö komiö fyrir nýrri stafrænni símstöö með 258 númer- um. Hafa 214 númer nú þegar verið tekin í notkun. Starfsemi Pósts og sima á Kópa- skeri hefur um langt árabil farið fram í gömlu íbúðarhúsi sem hefur nú hin síð- ari ár hentað illa fyrir afgreiðslu- og tækjabúnað. Með tilkomu þessa húss breytist aðstaða öll, jafnt fyrir starfs- menn sem viðskiptavini, í það horf sem best gerist nú. Þjónustusvæði póst- og símaafgreiðslunnar nær yflr Presthóla- hrepp, Öxarfiarðarhrepp og Keldunes- hrepp. Stöðvarstjóri Pósts og síma á Kópaskeri er Kristveig Árnadóttir. Hjónaband Þann 21. júli voru gefm saman í hjóna- band af séra Frank M. Halldórssyni Shannon M. Sears og Davíð Skúlason. Heimili þeirra verður í Dallas, Texas. Ljósm. Sigr. Bachmann. Ný heilsumiðstöð í Kjörgarði Ný heilsumiöstöð, sem ber nafnið Dalur, hefur hafið starfsemi sína í Kjörgarði að Laugavegi 59 í Reykjavík og er hún rekin af Þuríði Jónu Gunnlaugsdóttur. Þar er boðið upp á margvíslega þjónustu, svo sem fótaaðgerðir, svæðameðferö, nudd og nýja megrunaraðferð (Thermo-trim) sem um leið er mýkjandi og styrkjandi fyrir vöðva og vefi og hefur sýnt sig að hún hefur góð áhrif á liðagigt og vöðva- bólgur. Þuríður Jóna hefur langa reynslu innan hefðbundinnar hjúkrunar og heilsugæslu sem sjúkraliði. Hún hefur stundað nám í sálaifræöi viö háskólann í Lundi í Svíþjóö. Auk fótaaðgerða og svæðameðferðar hefur hún lært aku- punktur, kinesiologi, tauganudd og reiki-heilun i viðurkenndum skólum í . Svíþjóð og Danmörku. Einnig hefur hún sótt námskeið í irisgreiningu og nám- skeið varðandi náttúrumeðul og heilsu- ráðgjöf í því sambandi. Hún hefur rekið heilsumiðstöð í Svíþjóð í sjö ár. Grund- vallaratriði svæðameðferöarinnar, sem er þungamiðjan í starfsemi Þuríðar, er ævagömul en hefur í nýjum útfærslum notið vaxandi viðurkenningar á Vestur- löndum um nokkurt skeið. Einnig er boö- ið upp á klassískt nudd fyrir herðar, bak og höfuð við streitu, spennu og höfuð- verk. Þuríður hefur einnig sérhæft sig í léttu tauganuddi. Sýningar Myndlistarsýning í Galleríi Sævars Karls Nú stendur yfir í Galleríi Sævars Karls, Bankastræti 9, myndlistarsýning Halld- óru Emilsdóttur. Hún stundaði nám viö Myndlista- og handíðaskóla íslands, mál- aradeild 1982-1987 og Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam 1987-1989. Halld- óra hefur haldið tvær einkasýningar og tekiö þátt i nokkrum samsýningum. Myndirnar eru unnar með vatnshtum á pappír og eru án titils. Sýningin stendur til 31. ágúst og er opin á verslunartíma, frá kl. 9-18. Fjökniðlar Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þórarinn Árnason frá Stóra-Hrauni verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 17. ágústki. 15. Blóm og kransar afbeðið en þeim sem vildu minnast hans er bent á liknarsjóði. Kristín Þórarinsdóttir Lára Þórarinsdóttir Beck Elísabet Þórarinsdóttir Elín Þórarinsdóttir Inga Þórarinsdóttir Gyða Þórarinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Einar Nikulásson Halldór Beck Stefán Gíslason Hans Gústafsson ÓlafurG. Eyjólfsson Hafliði Guðjónsson Krækt í hrút Ekkert fer meira í taugarnar á mér en þegar auglýsingum er bland- að saman við dagskrárgerð. Þetta hefur viljað bera við á ftjálsu stöðv- unum alla tíð. Ástæðan er augljós, fyrirtækin kosta þættina og vilja hafa eitthvaö fyrir sinn snúö í stað- inn. Fjárhagsstaða einkaljósva- kanna á auðvitað alla sökina og manni finnst þaö ansi hart að fjár- mögnunin skuli þuría að koma á þennan hátt en ekki í venjulegum auglýsingatímum. Heiðar Jónsson var með stuttan pistil á Aðalstöðinni í gærkvöldi um karlmenn í stjörnumerkjum. Þetta var greinilega sett upp sem grín sem enginn ætti að taka alvarlega og all- ir geta skemmt sér yfir. Það var því hrein eyðilegging á gamansemínni þegar Heiðar í tvígang benti fólki að fara í ákveöiö stjömukortafyrir- tæki til að fá að vita meira um sig. Efþetta fyrirtæki tók þátt í kostnaði þáttarins átti hreinlega að gefa því kost á auglýsíngum i auglýsingatím- um stöðvarinnar. Hitt með stjörnu- merkin - ég er heppin að hafa krækt í hrút. Sjónvarpið hóf sýningar á bresk- um fræðsluþætti sem nefnist Á langferðaleiðum. Þáttur sem lofar mjög góðu enda Bretar sérfræðing- aráþessusviði. Og í allt annað: Margir nýir frétta- menn era nú á báðum stöðvum. Óneitanlega tekur maður eftir þessu nýja fólki og hvernig það ber sig að. Til dæmis gleymdist alveg að taka eftir hvaö Jón Baldvin sagði um ís- lenskaaöalverktaka í Sjónvarpinu því öll athyglin beindist að skjálf- andi míkrafóninum. Þá er stúlka ein á Stöð 2 sem les erlendar fréttir af slíkum eldmóð og með þannig hreimi að maöur gæti haldið að hún væri búin að gleyma íslensku máli. Annars er fataval fréttamanna á margan hátt umhugsunarvert. Hvemig skyldi t.d. standa á því að fréttamenn Stöðvar 2 eru ávallt bet- ur til hafðir og i skemmtilegri litum en kollegar þeirra á hinni stöðinni. Kannski þaö væri rannsóknarefni fyrir Heiðar Jónsson á Aðalstöð- inni. -Markús Örnmyndi kannski vifiakostaþáttinn... -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.