Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1990, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1990, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990. Fréttir Ríkistogarinn Hafþór verður sleginn hæstbjóðanda: Skiptir varla sköpum fyrir Suðurnesjamenn - segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra „Þaö er stefna ráðuneytisins að taka því tilboði í togarann sem er metið best. Það er eftir þeim reglum sem gilda í almennum viöskiptum hér í landinu og ég fæ ekki séð að það sé hægt að bregða út af því. Okk- ur er skylt aö virða viðskiptaleg sjón- armið viö sölu þessa skips,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra en ráðuneytið er nú að fara yfir þau 14 tilboð sem bárust í ríkis- togarann Hafþór. Að sögn ráðherra er búið að ræða við alla þá sem sendu inn tilboð og er aðeins eftir að meta þau. Togarinn hefur verið um margra ára skeið á Vestfjörðum og sagði ráö- herra að ísfirðingar hefðu lengi vel verið að íhuga að kaupa togarann og hefði þess vegna lengi verið beöið eftir tilboði frá þeim. Menn-í ráðu- neytinu hefðu hins vegar orðið þreyttir á að bíða eftir viðunandi til- boði og þess vegna hefði togarinn verið boðinn til sölu á almennum markaði. Eitt tilboðanna er reyndar frá ísfirðingum. - Nú hafa Suöurnesjamenn sótt það fast að fá togarann. Hverjir eru þeirra möguleikar? „Þeirra tilboð verður að sjálfsögðu skoðað með sambærilegum hætti og tilboð annarra aðila. Það er rétt að erfiðleikar eru í þeirra atvinnulífi eins og reyndar víða annars staðar á landinu. Það verður hins vegar að taka mið af því að Hafþór er skip sem fyrst og fremst hefur rækjuveiðiheimildir og verður ekki rekið nema með því að frysta rækjuna um borð. Hann þarf því jafnframt á viðbótarveiði- heimildum að halda. Ég get nú ekki séð að koma þessa skips til Suður- nesja muni skipta sköpum því það mundi vanta afla þar til vinnslu. Jafnframt veröur að gæta þess að rækjuveiðin fer fyrst og fremst fram fyrir norðvestan landið. Ég segi þetta ekki vegna þess að ég sjái ekki vanda Suðumesjamanna en það verður engin björgun nema fyrir því sé þokkalegur rekstrargrundvöllur,“ sagði ráðherra. -SMJ Fíkmefinalögreglan upplýsti viðamikið fíkniefnamál: Játuðu sölu og neyslu á rösku kílói af hassi Tveirmennumtvítugthafajátað þeir voru handteknir þann 24. að ýafa flutt inn, selt og dreift 1,3 ágúst síöastliðinn. Greiðlega gekk kílóum hassi hér á landi. Mennirn- aö upplýsa málið að sögn Reynis ir vom handtekriir af flkniefnalög- Kjartanssonar hjá fíkniefnadeild reglunni er þeir vom með um eitt lögreglunnar. hundrað grömm af hassi í fórum Höfðu mennimir náð að seija sínum - það eina sem eftir var af nær allt efnið hér á landi, 1,2 kíló. þvf sem þeim hafði tekíst aö flytja Það eina sem eftir var vom um eitt inn til landsins og koma í dreif- hundrað grömm en það höfðu þeir ingu. í fórum sínum er þeir voru hand- Við yfirheyrslur játuðu þeir aö teknir. Töluverðs hluta efnisins hafa flutt efniö inn til landsins i hofðu mennirnir þó neytt sjálfir tvennu lagi með flugvél frá Lúxem- með vinum og kunningjum. borg. Fyrri ferðin var farin seinni Nokkrir voru yfirheyrðir vegna hlutan í júli en sú seinni i ágúst. málsins. Fíkniefnalögreglunni Hér var um að ræða samtals 1.300 þótti ekki ástæða til aö óska eftir grömm af hassi. úrskurðí um gæsluvaröhald yfir Tvímenningarnir sáu sjálfir um neinum vegna málsins þar sem að flytja efnið inn til landsins. játningar lágu fljótlega fyrír. Málið Mennimir vom búnir að selja og er talið upplýst að fullu og bíða dreifa mestum hluta þess þegar mennirnir nú dóms. -ÓTT Flugleiðir: Hækka f argjöld í byrjun október? Flugleiðamenn vinna nú að út- reikningum á hækkunarþörf far- gjalda og munu aö sögn Einars Sig- urðssonar blaðafulltrúa leggja inn hækkunarbeiðni til samgönguráðu- neytisins í vikulokin. Ef fallist verð- ur á beiönina hækka fargjöld í byrj- un október. Einar sagði að óvenjulegt ástand á eldsneytismörkuðum gerði það að vérkum að útreikningar á hækkun- arþörfinni væru vandasamir og þeir vildu gefa sér tíma til að meta raun- hæfa þörf. Ennfremur sagöi hann að á'móti kæmi að gengisþróun hefði vérið þeim hagstæð að undanfómu og myndi það koma til mótvægis. -hge Þjóðleikhúsið: Fimm umsóknir bárust Fimm umsóknir bárust um stöðu Þjóðleikhússtjóra, frá fiórum ein- staklingum og tveim sem sóttu sam- an um stöðuna. Umsækjendur eru Hlín Agnarsdóttir, María Kristjáns- dóttir Stefán Baldursson og Þórhild- ur Þorleifsdóttir og Hafliöi Arn- grímsson og Guðjón Petersen, sem sóttu saman um stööuna. Líklegast þykir að barátta um emb- ættið standi á milli Stefáns Baldurs- sonar, leikstjóra og fyrrverandi leik- hússtjóra hjá Leikfélagi Reykjavík- ur, og Þórhildar Þorleifsdóttur, al- þingismanns og leikstjóra. -HK Þorsteinn Pálsson: Fullveldi Eystrasaltslandanna I ávarpi sínu við setningu Æðsta ráðsins, þings Litháen, sagði Þor- steinn Pálsson m.a. að Sjálfstæðis- flokkurinn mundi leggja til á Alþingi aö ísland viðurkenndi fullveldi allra Eystrasaltslandanna. Einnig mun hann leggja til í Norðurlandaráði að Eystrasaltslöndin fái þar stöðu áheymarfulltrúa. -pj Fimm katta saknað 1 viku: Köttur skotinn með riff li - síðan hefur verið hringt, hlegið í símann og skellt á „Á fostudagsmorguninn, þegar ég kom heim, heyrði ég eins og barns- grát úti við hlöðu og þar lá einn kött- urinn nær dauða en lífi,“ sagði Hreinn Pálsson, ábúandi á Gunnars- hólma, sem hefur saknað fimm katta síðan á miðvikudag í síðustu viku. „Ég sá strax að hann var meö skot- gat á skrokknum við framlöppina. Ég fór með hann á dýraspítalann þar sem þeir sögðu að hann hefði verið skotinn með rifíli og einnig hefði verið reynt að hengja hann með ól- inni. Þar var honum lógaö. Ég fór síðan til nágrannans sem viður- kenndi að hafa skotið tvo af köttun- um en við vitum betur, hann hefur skotið þá alla. Það þarf að taka byssuleyfið af þessum manni. Síðan ég kærði manninn hefur verið hringt hingað, hlegiö í símann og svo skellt á. Nú þorum við ekki að fara öll frá bænum í einu, við erum hrædd um að næst skjóti hann hundinn." Nágranninn vill ekki kannast við aö hafa drepið kettina hans. Hins vegar segist hann hafa drepið villi- ketti, sex ketti og ellefu kettlinga. Þegar Hreinn kom til hans sagðist hann hafa drepið tvo ketti kvöldið áður en ekki hans ketti. Hreinn Pálsson átti sjö ketti. Nú á hann aðeins tvo eftir. Vottorð dýralæknis sem álitur að um skotsár hafi verið að ræða. DV-myndir Brynjar Gauti „Þegar ég drap þá fór ég út í grenið með hákarl, dró þá hingað að bæn- um, negldi þá við spýtu og skaut þá svo úr glugganum. Enginn þeirra var með ól. Þetta voru allt villikettir og höfðust ekki við á Gunnarshólma, ef svo væri þá væru það sveltir kett- ir. Nágrannarnir og fólk í sumarbú- stöðunum hefur verið að kvarta yfir þessum villiköttum. Tveir þeirra komust inn og rifu í konuna mína þannig að hún er særð eftir.“ Þorsteinn Sigurðsson, sumarbú- staðareigandi á staðnum, segir að oft hafi verið brotist inn í bústaðina og meðal annars hafi verið stolið frá honum 22 kalíbera rifili 0g skotum Ekki kannaðist hann við neina villi- ketti í hverfinu: -pj Loðnan ófundin Skip Hafrannsóknarstofnunar, þau Ami Sigurjónsson og Bjarni Sæmundsson, hafa verið við seið- arannsóknir fyrir Noröur-, Austur- og Vesturlandi og á Grænlands- hafi. í þessum leiðöngrum hefur og verið leitað að tveggja og þriggja ára loðnu en mjög lítið hefur fund- ist af henni. „Við fundum nokkurt magn af ársgamalli loðnu en hún verður ekki veiðanleg fyrr en 1991. Skip Hafrannsóknarstofnunar munu fara til loðnuleitar í byijun október og vera við leit þann mánuð og í nóvember. Þá hlýtur loðnan að finnast,“ segir Sveinn Sveinbjörns- son fiskifræðingur. Engin skip munu nú vera á loðnumiðunum, hvorki islensk né erlend. -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.