Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1990, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1990, Blaðsíða 24
48 Afmæli MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990. Ættu ekki hinir vel menntuðu að huga að þessum launamismun helst og fremst, segir greinarhöfundur. Frá mótmælafundi BHMR-manna í vikunni. Ábendingum komið áleiðis Það hefur verið býsna fróðlegt að fmna og heyra áht hins almenna manns í landinu á þeim þætti þjóð- málaumræðunnar, sem hæst hefur borið í sumar, deilu BHMR og ríkis- valdsins. Sjálfur ætla ég ekki að gerast þær dómari þó ég hafi margt við launa- stefnu hinna háskólamenntuðu aö athuga og þó ég viðurkenni einnig rétt þeirra til að ríkisvaldið virði samning sinn við þá. Skilaboð til háskólamanna Ég ætla þess í stað aö tæpa á nokkru því sem fram hefur komið í viðræöum við fólk það sem annað- hvort leggur leið sína hingað eða hefur samband símleiðis. Þess skal þá einnig getið að það fólk sem ég heyri í er annars vegar fólk sem verður að lifa á trygginga- bótum einum eða svo til og svo kunningjar og vinir utan af lands- byggðinni sem hringja af og til og m.a. er þar að finna fólk sem lifir á marglofuðum „fijálsum" töxtum frystihúsanna, svo dæmi sé tekið. Ég segi þetta svona viljandi af því að þetta fólk hefur oft beðið mig skila til háskólamannanna að þeir megi gjaman taka mið af þessum töxtum í öllum launasamanburði sínum við hinn almenna markað þó auðvitað sé það ofurfjarri vel- metinni virðingu þeirra að lúta svo lágt eins og kona ein orðaði það við mig á dögunum. Já, því er ekki að leyna að þessu fólki þykir hið háskólamenntaða hreykja sér býsna hátt yfir almennt erfiðisfólk og hefur það á tilfmn- ingunni að þessu vel menntaða fólki þyki því gerð hin versta lítils- virðing ef líkja á því í einhverju við rétta og slétta ræstingakonu, karl- inn í saltfiskinum eða frysti- húsa„kellinguna“. Þessu fólki finnst einfaldlega að því háskólamenntaða þyki verð- gildi vinnunnar með sérfræði- stimplinum svo margfalt æðra striti erfiðismannsins aö engan samanburð megi þar hafa. Og það er jafnframt talað um lítilsvirðingu á erfiðisvinnunni sem enga menntagráðu á að baki. Nú er margt hér af lítilli sann- gimi mælt og alhæfingar eru alltaf hæpnar en samt sækir það á mig að þetta fólk kunni að hafa grátlega mikið til síns máls. Grátlega mikið segi ég því áður- nefnd viðhorf eiga ekki samleið með sannri mennt í einu eða neinu. í stað klifurmúsakapphlaups Margt af þessu annars ágæta fólki hefur um of misst öll tengsl KjaUaiinn Helgi Seljan félagsmálafulltrúi ÖBÍ við uppruna sinn og telur að í eigin menntun sé allur sannleikur og öll verðmæti fólgin, annað komist ekki þar í samjöfnuð. Slíkt verð- mætamat er stórhættulegt og sem betur fer hygg ég nú að það sé ekki svo ýkja stór hópur sem það hefur en því háværari og meira áberandi er hann. Verðmæti góðrar menntunar er yfir allan efa hafið en sérfræði á þröngu sviði kann oft að bitna á víðsýni þess sem henni gefst á vald og menntahrokinn margfrægi er þá oft skammt undan og hann er öðrum hroka leiðari af því að sönn menntun á að sópa hvers konar hroka á burt. En tryggingaþegarnir mínir horfa líka á launatölur og það að vonum. Þegar þeir eru að baska við að framfæra sig af t.d. 40 þúsundum, sem er algeng upphæð mánaðar- lega, er vart við því aö búast að samúð þeirra sé með þeim er gráta þau grimmu örlög að hafa ekki nema 120-130 þúsund til sömu eða svipaðra lifsþarfa. Og ég segi í einlægni sjálfur: Ætti nú ríkisvaldið ekki að gæta sín gagnvart þessum launamismun og ættu ekki hinir vel menntuðu að huga að honmum helzt og fremst í stað endalauss samanburðar við aðra með hærri laun en vel aö merkja oft minni réttindi, einkum ef litið er til örorku og elli. Væri máski ráð að snúa sér að lagfæringum í lægstu þrepum launastigans, jafna og bæta úr brýnni neyö í stað klifurmúsakapp- hlaups ójafnaðarins, sem þeir há- skólamenntuðu ástunda helzt og fremst að mati þeirra sem álengdar standa með lífsframfærslu sína í þriðjungi þess, sem aðrir telja aum- lega smán. Ég hlýt að koma þessum boðum á framfæri þó ég taki ekki undir allt. Skýr skilaboð Og svo kom rúsínan í pylsuend- ann frá málvini minum sem leit hér inn í morgun og baö mig nú blessaðan að verja æru og heiður minnar gömlu stéttar. Einhver ágætur fulltrúi þeirrar stéttar, forkólfur í þokkabót hafði fjallað um kjaramál kennara út frá kurteisi. Þessi málvinur minn sagði kenn- arann hafa sagt að nú loks ætluðu kennarar að fara að verða kurteis- ir, svo skelfilega kurteisir að kennsla nemendanna yrði að víkja. Ég sá þetta ekki né heyrði en ég sannfrétti síðar að svo fjarstæðu- kennt, sem mér þótti þetta, var þetta víst dagsatt. Hið kurteisa andsvar kennara- stéttarinnar var nefnilega kurteist um of, svo öllum virðist hafa runn- ið til rifja hve rugluð stéttin var orðin, þ.e. hinn háskólamenntaði hluti hennar, sem hafði gleymt kurteisisskyldunni öll þessi ár en ætlaði nú að gleyma kennsluskyld- unni. Er nema von að venjulegu fólki ofbjóði? sagði málvinur minn og ég held ég sé ekki að veija svona hjá minni gömlu kæru sétt enda er ég ekki svona lærður. Ég þykist svo sem vita að blessað háskólafólkið, sem er heitt í hamsi, eðlilega, vísi svona „þjóöarsálarrugli" á bug með öllu. En það eru því miöur alltof mörg sannleikskorn í þessu „rugh“ sem ég hefi aö hluta til komið til skila. Þetta eru skýr skilaboö þeirra mörgu er hér mæla og ég geri þau í verulegum mæli að mínum. Helgi Seljan „Já, því er ekki að leyna að þessu fólki þykir hið háskólamenntaða hreykja sér býsna hátt yfir almennt erfiðisfólk.“ Anna Guðný Jónsdóttir Anna Guðný Jónsdóttir húsmóðir, Tunguseli 1, Reykjavík, er sextug í dag. Anna Guðrún fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í vesturbænum við Bræðraborgarstíginn og á Brekk- ustíg. Hún lauk bamaskólaprófi og stundaði nám við Húsmæðraskól- ann að Staðarfelh. Anna var síðan húsmóðir alla tíö, fyrstu hjúskapar- árin í vesturbænum, í Kópavogi 1960-70, síðan á Háaleitisbrautinni og loks í Tunguseh þar sem hún nú býr. Anna giftist 28.4.1949 Guðmundi Karlssyni, f. í Reykjavík 31.8.1919, d. 13.3.1979, brunaverði, blaða- manni, m.a. hjá Vísi og Vikunni, og loks verslunarmanni. Faðir Guð- mundar var Karl Óskar Bjarnason, f. 16.10.1895, d. 25.3.1960, vara- slökkviliðsstjóri í Reykjavík, sonur Bjama Jakobssonar, trésmiðs í Reykjavík, og Sólveigar Ólafsdóttur, ljósmóður frá Hhði í Reykjavík. Móðir Guðmundar var Kristín Lo- vísa Sigurðardóttir, f. 23.3.1898, d. 31.10.1971, alþingismaður í Reykja- vík, dóttir Siguröar Þórólfssonar, skólastjóra á Hvítárbakka í Borgar- firði, og Önnu Guðmundsdóttur, skipstjóra í Hafnarfirði, Ólafssonar. Börn Önnu Guðnýjar og Guð- mundar era Jón Gunnar, f. 28.9. 1949, stýrimaður á Akureyri, kvæntur Margréti Völu Grétars- dóttur og eiga þau þijú börn; Krist- inn Óskar, f. 22.7.1954, sjómaður í Keflavík, kvæntur Höllu Harðar- dóttur og eiga þau eitt barn, auk þess sem Kristinn á eitt bam frá fyrra hjónabandi; Ólafur Sveinn, f. 10.11.1958, matreiðslumeistariog nemi í markaðs- og viöskiptafræði í Svíþjóð, en sambýliskona hans er Kristín Ragnarsdóttir og eiga þau tvö böm; Guðrún Hrefna, f. 20.6. 1960, skrifstofustjóri í Reykjavík, gift Hilmari Snorrasyni skipstjóra og eiga þau tvö börn. Anna Guðný á þrjú alsystkini sem öll eru á lífi. Þau eru Kristmundur, f. 27.3.1929, verslunarmaður í Reykjavík, kvæntur Sigríði Júhus- dóttur og eiga þau fjögur böm; Margrét, f. 7.11.1937, húsmóðir í Kópavogi, giftTeiti Símonarsyni bifvélavirkja og eiga þau þijú böm, auk þess sem Margrét á eitt barn frá Anna Guðný Jónsdóttir. fyrra hjónabandi, og Magnea Stein- ey, f. 29.4.1941, ritari, búsett á Sel- tjarnarnesi, gift Guöna Ólafi Guðna- syni kennara og eiga þau þijú börn. Foreldrar Önnu Guðrúnar voru Jón Sveinsson, f. 28.4.1897, d. 2.1. 1953, sjómaður og verslunarmaður í Reykjavík, og Guðrún Krist- mundsdóttir, f. 14.11.1900, d. 22.12. 1978, húsmóðir í Reykjavík. Systir Jóns var Ingibjörg, móðir Sveins Björnssonar, kaupmanns og forseta í SÍ. Bróðir Jóns var Guð- mundur Ingi, aðstoðarpóst- og síma- málastjóri. Jón var sonur Sveins, b. og búfræðings á Hálsi í Grandar- firði, Sveinssonar. Móðir Jóns var Guðný Eggertsdóttir, systir Krist- jáns, fóður Eggerts, stórkaupmanns íReykjavík. Guðrún var dóttir Kristmundar, sjómanns í Hafnarfirði, Eysteins- sonar, b. í Hraunsholti í Garða- hreppi, ættfóður Hraunsholtsættar- innar, Jónssonar. Eysteinn var bróðir Kristjáns, fööur Vigdisar myndhstarkonu og Þorsteins, íþrót- takennara og ghmumanns. Móðir Guðrúnar var Ehn, systir Valgerð- ar, móður Guðmundar Einarssonar, hstamanns frá Miðdal, föður Errós myndlistarmanns og Ara Trausta jarðfræðings. Elín var dóttir Jóns, formanns á Bárekseyri á Álftanesi, Guðmundssonar, og Sigríðar Júh- önu Tómasdóttur, systur Margrétar Zoega, langömmu Einars Bene- diktssonar sendiherra. Reynir Kristinsson Reynir Kristinsson, vörubifreiða- stjóri á Vörubifreiöastöðinni Þrótti, til heimihs að Ljósheimum 14A, Reykjavík, er sextugur í dag. Reynir fæddist í Reykjavik og ólst þar upp, á Njálsgötunni. Hann kvæntist 26.10.1957 Ernu Haraldsdóttur húsmóður, f. 17.11. 1939, d. 13.6.1977. Dætur Reynis og Ernu eru Ehn, f. 9.3.1958; Vilborg, f. 28.4.1959; Kristín, f. 15.6.1961, og Erna, f. 2.9. 1968. Foreldrar Reynis: Kristinn Kristj- ánsson, f. 3.6.1903, d. 23.3.1963, bif- reiðastjóri og sérleyfishafi, og Vil- borg Sigmundsdóttir, f. 2.9.1906, fyrrv. kaupmaður í Reykjavík. Reynir verður aö heiman á af- mæhsdaginn. Gerum ekki margt í einu við stýrið..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.