Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1990, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1990, Blaðsíða 27
MID^KVt^f?;1#5- SEPJEMBER ;. 51 dv________________________________________________________LífSsstOI DV kannar verð á smurbrauðsstofum: Allt að helmings verð- munur á smurðu brauði Neytendasíða DV gerði í gær verð- könnun á smurðu brauði á höfuð- borgarsvæðinu. Könnunin náði yfir kokkteilsnittur, kafíisnittur, þrjár tegundir af átta manna brauðtertum, þrjár tegundir af tólf manna brauð- tertum og hálfum brauðsneiðum. Mikill verðmunur var jafnan á milli hæsta og lægsta verðs, eða frá 23% og upp í 97% Tekið var meðalverð á blönduðum snittum. Brauðstofa Ás- laugar var með tvær stærðir af kokk- teilsnittum og gefið er upp verð á báðum. Gera má ráð fyrir aö um ein- hvern stærðarmun á snittum og brauðum sé að ræða milii brauðstofa og að áleggið sé misvel útilátið. Einn- ig skal það tekið skýrt fram að ekk- ert mat er hér lagt á gæði heldur ein- ungis leitast við að gera samanburð á verði. Kokkteilsnitturnar voru ódýrastar hjá Brauðstofunni Birninum og kost- uðu þar 57 krónur. Dýrastar voru þær hjá Brauðbæ og Stúdíó-Brauði, kostuðu 70 krónur. Mismunur á hæsta og lægsta verði var því 23%. Kaffisnittur kostuðu frá 56 krónum hjá Brauðstofunni Birninum og Brauðstofunni Gleymmérei upp í að kosta 80 krónur í Veitingahöllinni. Munurinn þar er einnig 23% Átta manna brauöterta með laxi var ódýrust hjá Brauðstofunni Gleymmérei, kostaði þar 2.300 krón- ur. Dýrust var hún hjá Brauðbæ, kostaði 3250. Mismunur á hæsta og lægsta verði var 41% Atta manna brauðterta með annað- hvort skinku eða rækjum var ódýr- ust hjá Veitingamanninum og kost- aði þar 2221 krónu. Dýrust var hún hjá Brauðbæ en þar kostaði hún 2850 krónur. Verðmunur var 28% Tólf manna brauðterta með laxi var ódýrust í Veitingahöllinni og kostaði þar 2290 krónur. Dýrust var hún í Smurbrauðsstofu Nýja Köku- hússins, kostaði 4519 krónur. Verð- mismunur var 97% en það var mesti munur á milli sömu vörutegundar. Neytendur Það hlýtur að vera mönnum um- hugsunarefni þegar helmings verð- munur er á sömu vörutegund hvort slíkt getur talist eðlilegt. Tólf manna brauðterta með annað- hvort skinku eða rækjum var ódýr- ust í Veitingahöllinni og kostaði þar 2290 krónur. Dýrust var hún í Smur- brauðsstofu Nýja Kökuhússins þar sem hún kostaði 3319 krónur. Mun- urinn á hæsta og lægsta verði var því 45%. Veislan á Seltjarnarnesi var einungis með 16 manna brauðtertur og kostuðu þær 2800 krónur. Hálfar brauðsneiðar kostuðu frá 220 krónum upp í 320 krónur. Þar er miðað við að keyptar séu 20 brauð- sneiðar eða fleiri. Ódýrastar voru þær í Matborðinu en dýrastar hjá Veislustöð Kópavogs. Mismunur á hæsta og lægsta verði var 45% -hge Strætisvagnar Akureyrar: Fargjöldin hækka og lækka Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Fargjöldum strætisvagna á Akur- eyri var breytt fyrir skömmu og gildir breytingin til áramóta. Helsta breytingin er sú að nú greiða 12-16 ára unglingar sama fargjald og börn 7-12 ára. Barnafar- gjöld hækka úr 17 í 20 krónur og 20 miða kort úr 225 í 265 krónur. Unglingar á aldrinum 12-16 ára greiða því þetta fargjald en greiddu áður fullorðinsgjald, 55 krónur, og 815 krónur fyrir 20 miða kort. Nem- endum í framhaldsskólum verður gefinn kostur á 25% afslætti af far- gjöldum. dýrar í Eyjum Reiður Vestmannaeyingur hafði samband við neytendasíðuna í gær og hafði verið að lesa um verð á kart- öflum á Reykjavíkursvæðinu. Kvað hann kartöfluverð í Eyjum allt að helmingi hærra en í Reykjavík og nefndi tölur máh sínu til stuðnings. Við slógum á þráðinn til þeirra verslana í Vestmannaeyjum sem selja kartöflur og könnuðum verðið. Hæst var það í Tanganum. Þar kostaði kílóið 130 krónur. Verslunin Hressingaskálinn seldi kílóið á 110 krónur, Eyjakjör á 113, Eyjakaup á 109 krónur, Heimaver á 92 krónur og hjá Kaupfélagi Vestmannaeyja kostaði kartöflukílóið 94 krónur. -hge Gífurlegur verðmunur er á smurðu brauði. Kokkteil- snittur Kaffi- snittur Brauðtert. m. laxi, 8 m. Brauðtert. m. laxi, 12m. Hálfar brauðsneiðar Matborðið 68 75 Sggjj 2 j § g 220 Brauðst. Ingu 57 67 2500 240 Brauðst.Áslaugar 60-64 69 2700 3200 250 Brauðbær 70 74 3250 3600 275 Stúdíóbrauö 70 75 2500 2920 300 Brauðst. Björninn 57 65 2450 300 Brauðst. Gleymmérei 58 65 2300 2700 250 Veislan, Seltjarnarnesi 63 73 sjá texta 230 Veitingahöllin 65 80 2290 310 Skútan (Snekkjan), Hafnarf. 65 76 2395 2660 250 Veitingamaðurínn 59 70 2431 2906 250 Veitingaþj. Lárusar 60 70 2700 250 Veislust., Kópav. 62 70 320 Smurbrauðsst. Ástu 65 69 2390 2890 260 Smurbrst. Nýja Kökuh. 68 76 2981 4519 250 Hæsta verð: 70 80 3250 4519 320 Lægsta verð: 57 65 2300 2290 220 Mism. á hæsta og lægsta í % 23% 23% 41% 97% 45% Kartöflur eru sagðar allt að helmingi dýrari i Eyjum en í Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.