Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1990, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1990, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990. Lesendur________________i>v Kosningar í október Spumingin Hvernig fer leikurinn? (ísland - Frakkland) Þórður Helgason framkvstj.: 2-1 fyr- ir Frakka. Skúli Bjarnason nemi: íslendingar vinna þetta, 2-1. Arnór og Pétur skora mörkin. Guðmundur Arngrímsson nemi: 1-0 fyrir Frakkland. Við náum í mesta lagi jafntefli. Ragnar Arngrímsson nemi: 2-1 fyrir Frakkland. Eg ætla ekki á völlinn. Halla Sigurjónsdóttir: Jafnteíli, 0-0 eða 1-0 fyrir Frakka. Valur Valsson bakaranemi: 1-0 fyrir ísland. Pétur Pétursson skorar markið. Ég ætla aö mæta. Guðmundur Ásgeirsson skrifar: Eftir þeim sólarmerkjum að dæma, sem nú eru sýnileg í íslenskum stjómmálum og þjóðlífi öllu, tel ég aö ekki sé hægt að komast hjá hjá því að efna til alþingiskosninga fljót- lega, og þá áður en Alþingi kemur saman. - Deilur, sem standa um hin ýmsu stórmál sem hafa ekki verið íbúi í blokk skrifar: Ég er einn af sameigendum í íbúðablokk hér í borginni. Eins og gengur þarf að semja um viðgerðir og viðhald á henni og hefur það geng- ið svona og svona gegnum árin, en þó hafa eigendur ekki orðiö fyrir telj- andi skakkafóllum eins og því miður er titt hjá mörgum íbúum sameigna í borginni - og sennilega víðar. Nú í vor var ákveðið að láta mála blokkina að utan. Nú var illu heilli ekki ákveðinn sérstakur tími eða þá að samiö væri um að aðeins væri unnið við málningu í þurru og góðu veðri. Þótti það svo sjálfsagt að ekki þyrfti að semja um það sérstaklega. Það kom þó annað á daginn. Þegar verkið var hafið var sæmi- lega þurrt veður og allt virtist í góðu gengi en þar kom að yfir þyrmdi og dumbungur og regn skall yfir blokk- ina okkar eins og aðrar byggingar. - Og viti menn, vinna við málninguna hélt áfram eins og ekkert hefði í skor- ist. - Ég vil nú ekki segja að verktak- ar hafi lagt sig í líma við að mála í mestu rigningunni, en í mjög röku lofti og fíngerðum úða var haldið áfram og það merkilega var að eng- leyst nema til bráðabirgða, gera það að verkum að sú ríkisstjórn, sem nú situr, mun ekki leysa þær svo viðun- andi sé. Og þótt næsta löggjafarþing eigi að verða stutt vegna væntanlegra kosn- inga að vori þá er fráleitt að á þingi verði sá vinnufriður sem þarf til að leiða einhver mál til lykta. - Ekki er inn í blokkinni hreyfði mótmælum. Ég var sá eini sem hóf að bera fram mótbárur gegn því að áfram væri haldið við vinnuna. Viðbrögðin gegn mótmælum mínum voru akkúrat engin, hvorki til né frá. Engin orða- skipti, bara var yppt öxlum og haldið áfram að vinna. - Ég var nú að vísu ekki sá eini sem var óánægður meö framgang mála en engin samtök virt- ist mega hafa uppi til að fara t.d. fram á frestun á vinnu þar til veður yrði þurrt. - Sagt var að ef við færum að malda í móinn myndu verktakar hreinlega fara en krefjast fullrar greiðslu engu að síður! Blokkin var svo máluð að fullu og verkiö greitt en ég stend eftir með þá fullvissu að verkið sé ekki í sam- ræmi við það sem við báðum um og eftirköstin eigi eftir að sýna sig fyrr en síðar. - Það hefur verið sagt að enginn lofi einbýlið sem vert er. Ég er farinn að halda að tími sé nú kom- inn til að fara að huga að einbýlinu og láta lítilþægum blokkareigendum eftir áfóllin af viðgerðum og viö- haldi. En einkennilegur er samtaka- mátturinn í landi okkar, oftast snýst hann upp í algjört samtakaleysi. séð að nokkur samstaða verði um einstök þingmál, hvað þá um lausn einfaldra aðgerða sem grípa veröur til svo aö vinnufriður haldist sam- felldur til vors. Kosningar verða því það ráð sem grípa verður til, jafnvel þótt ný ríkisstjórn sjái ekki dagsins ljós fyrr en í lok ársins. Til munu þeir sem eru því mót- Gísli Ólafsson skrifar: Það fer margt öðruvísi en ætlað er í þessu lífi. Þegar áfengur bjór var til umræðu hér var ein helsta hættan með tilkomu hans sögð vera sú að hér yrði bókstaflega allt fljótandi í öli. Krár spryttu upp á hverju götu- horni og menn myndu falla fyrir þessum nýfengna miði og það kæmi svo aftur niöur á vinnu, heimilislífi og síðast en ekki síst myndi umferð- arslysum af völdum ölvunaraksturs fjölga verulega. - Blóð og tár væru það eina sem við sætum uppi með eftir innleiðingu bjórsins. Raunar kom lítið fram af þessum spádómum nema þetta með bjór- krárnar sem spruttu upp víöa. Þær urðu þó ekkert í líkingu viö þær sem þekkjast erlendis, að vera bara bjórkrár þar sem fólk labbar inn, fær sér eitt eða tvö glös af bjór og kannski samloku eða léttan rétt, gengur svo út aftur til vinnu sinnar eða annarra erinda og lætur sér vel líka. Þær eru heldur ekki aðsetur hverf- isijölskyldunnar sem oftar en ekki fær sér kvöldsnarlið á kránni með fallnir að hafa kosningar á hausti komanda og hafa heyrst samhljóða raddir um agnúa á þeirri fram- kvæmd úr öllum stjórnmálaflokk- um. Það eru þó helst eldri þingmenn- irnir sem ekki vilja fá kosningar fyrr en í vor, einkum af ótta við prófkjör, sem talið er að búið sé að ákveða í sumum flokkunum. - Yngri þing- menn og þeir sem eru nýir vonbiðlar þingsæta eru hins vegar ákafir stuðningsmenn kosninga í haust, og telja að ekki verði lengur unað við bráðabirgðaúrlausnir og hringl- andahátt stjórnarinnar í mikilvæg- ustu málum. Málin, sem aðallega brenna á stjórnvöldum og einstökum ráðherr- um, og myndu vera betur komin hjá nýrri ríkisstjórn, hvemig svo sem hún þó yrði samsett eru t.d. álmálið og staðsetning næstu stóriðju, varan-. leg deila BHMR við núverandi stjórnarherra, sýnileg óheillaþróun í samkomulagi um nýjan búvöru- samning og framtíðarskipan í flug- málum landsmanna, bæði hvaö varðar hugsanlega skiptingu á áætl- unarleiöum til útlanda og milhríkja- samninga við erlenda aðila. - Allt þetta og miklu fleira mælir gegn því að ríkisstjórn, sem ekki ræður við málin, geti eða eigi að sitja eitt þing- tímabil til viðbótar. krökkunum og horfir á sjónvarps- fréttirnar og rabbar um þær - eöa tekur í spil með kunningjunum yfir bjórglasi sem kostar minna eöa sama og gosdrykkur og hverfur svo á braut að hæfilegum tíma liðnum. Þetta varö ekki hlutskipti bjór- kránna á íslandi. Bjórkrárnar hér urðu einfaldlega einn skemmtistað- urinn enn sem menn heimsækja vart nema um eða fyrir helgar - þar sem fólk verður að sæta sama verði á bjór og fyrir hvert annað áfengi, greiöa þetta 300 til 500 krónur fyrir flöskuna eftir því hvað staðurinn heitir. Bjórkrárnar urðu því aldrei annaö en fylliríisskútar sem ekkert gefa eft- ir öðrum slark- og skemmtistöðum á íslenska vísu. Við íslendingar höfum því í raun og veru ekki enn fengið í landið þá bjórmenningu sem menn héldu að hér gæti orðið landlæg - ekki þann góöa, ódýra og þægilegur afþreyingardrykk sem myndi bæta og blanda annars þurrt og einhæft mannlíf til muna. - Bjórkrárnar brugðust herfilega. Bjórkrárnar, aðeins einn skemmtistaðurinn til? „Ríkisstjórn sem ekki ræður við rnálin", segir m.a. í bréfinu. Of beldi í þjó* félaginu Soffia hringdi: Barnsforræðismáhö hefur veriö mér ofarlega í huga aö undanfömu. Þaö er hræðilegt að heyra hvemig þjóðfélagið er orðið. - Hvað er það annað en ofbeldi sem stúlkan er beitt? - Niu ára stúlkubarn talar frá eigin brjósti. Hún segist vera barin og skömmuö hjá fóðumum og fær ekki matarmiöa tíl að fara með í skólann eins og félagar hennar. Hvaða áhrif hefur þetta á barns- sálina, jafnviðkvæm og hún er? Að ekki sé talaö um ef hún er með- höndluð sem tilíinningalaus vera! - Ég skora á dómsmálaráðherra, sem ég veít og hef víða heyrt að sé hinn mætasti maður og góðviljað- ur, að koma stúlkubarninu til hjálpar og einnig að koma því til leiðar að bamið fái aö vera hjá raóður sinni. - Þetta er mannúðar- mál. Ef þetta nær hins vegar ekki fram að ganga eins og máhð virðist vera í pottinn búið þessa stundina meg- um . við íslendingar hreinlega skammast okkar, alhr upp til hópa. Málningarvinna í rígningu? Bjórkrárnar brugðust

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.