Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1990, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990.
Viðskipti
Könnun DV í gær á ótrúlegri þjónustu Hagstofunnar:
„Þú verður bara að leggja
á og hringja aftur, vinur“
- Hagstofan gefur upplýsingar í smáskömmtum
DV gerði í gær skyndikönnun á
þjónustu Hagstofunnar eftir að einn
lesandi blaðsins úr viðskiptalífmu
hafði þá ótrúlegu sögu að segja um
stofnunina að hún gæfi upplýsingar
um kennitölur í smáskömmtum og
hringja yrði aftur og aftur til að fá
þessar upplýsingar. Taldi maðurinn
að hann hefði orðið vitni að íslands-
meti allra íslandsmeta í svifaseinum
vinnubrögðum kerfisins. Og væri þá
mikið sagt. Saga mannsins reyndist
rétt. Gefnar eru upp fimm kennitölur
í einu og er viðkomandi beðinn að
hringja aftur til að fá næstu fimm
og svo koll Eif kolli.
Vinsamleg rödd sagði
að nöfnin væru of mörg
Þetta mál byrjaði á því að maðurinn,
sem rekur ásamt öðrum fyrirtæki
hér í bæ, þurfti vinnu sinnar vegna
að hringja í Hagstofuna og fá kenni-
tölur þrettán einstaklinga og fyrir-
tækja. Vinsamleg rödd á Hagstofunni
svaraði manninum því til að þetta
væru of mörg nöfn og hann gæti að-
eins fengið hluta þeirra að þessu
sinni en hann yrði síðan að hringja
aftur til fá fleiri kennitölur uppgefn-
ar. Maðurinn trúði vart eigin eyrum
og sagði að þau skyldu þá bara byrja
á upptalningunni.
Þeir sem hringja i Hagstofuna og
biðja um kennitölur verða vitni að
hinu ótrúlega. Upplýsingar eru gefn-
ar í smáskömmtum. „Þú verður
bara að leggja á og hringja aftur,
vinur.“
„Sæl aftur, eigum við
þá ekki að halda áfram“
Greiðlega gekk aö gefa upp þessar
fimm kennitölur. Að því loknu sagði
hann:„Og hvað nú? Viltu að ég hringi
strax aftur til að fá næstu fimm
nöfn?“3 Svariö lét ekki á sér standa:
„Já, þú verður bara að leggja á og
hringja svo aftur, vinur.“
Hann lagði á, hringdi strax aftur
og sagði:„Sæl aftur, eigum við þá
ekki að halda áfram.“ Það varð úr,
næstu fimm kennitölur komu. Hann
hringdi síðan í þriðja skiptið og klár-
aði dæmið, fékk síðustu þrjár kenni-
tölurnar.
DV sannreyndi þessa sögu manns-
ins í gær. Valin voru af handahófi
tólf nöfn og heimilisföng. Hringt var
eftir hádegi, klukkan rúmlega hálf
tvö. Gefið var samband við Þjóðskrá
Hagstofunnar. Spurt var hvort ekki
væri hægt að fá kennitölur þessa
fólks.
„Fyrst þær eru tólf þá
höfum við þær sex og sex“
Svarað var ljúflega að ekki væri
tekið við svo mörgum nöfnum í einu.
Blaðamaður spurði þá hvort ekki
væri best að taka fimm nöfn eða svo.
Þá var sagt: „Raunar er skammtur-
inn hjá okkur fimm kennitölur í einu
en fyrst þetta eru tólf kennitölur
skulum við hafa þær sex og sex.“
Allt í besta lagi með það. Þegar sex
kennitölur höfðu verið gefnar upp
sagði undirritaöur að sex væru eftir.
Þá var sagt:„Já, ef þú ert með sex í
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
viðbót þá ætla ég að biðja þig um að
hringja aftur.“
Lagt var á og sagði undirritaður
starfsfélögum sínum að hið ótrúlega
skammtamál um Hagstofuna, sem
rætt hefði verið á ritstjórnarfundi
morgunsins, virtist vera rétt.
Því miður, allar línur
eru uppteknar, hringdu beint
Aftur var hringt í Hagstofuna.
Langur tími leið en ekki náðist sam-
band. Enn var reynt. Það hringdi og
hringdi og loks náðist samband. Beð-
ið var um Þjóðskrána og var þá svar-
Valur Valsson, bankastjóri íslandsbanka:
Ekki hægt að rökstyðja
vaxtalækkun fyir en nú
- fyrir stuttu héldu menn að það yrði verðbólgusprenging
Verðbólga og vextir bankanna
o mmm imwii iiiíiiií iijiiiii* i«»»ii]i mæmm ■■
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst s«
Veröbólgan og nafnvextir bankanna á almennum óverðtryggðum skulda-
bréfum. Raunvextir eru nú um 11 prósent á þessum lánum.
Valur Valsson, bankastjóri íslands-
banka, segir að ekki hafi verið hægt
að rökstyðja vaxtalækkun i ágúst
eða byrjun september. „í ágúst
héldu menn að það yrði verðbólgu-
sprenging vegna samninganna viö
háskólamenn hjá ríkinu en komið
var í veg fyrir þá sprengingu með
lögum."
Vextir bankanna haf a ekki
lækkað eins og verðbólgan
- nú eru yflr 11 prtsent raunvextir á (iverfttryatftum lánum
Frétt DV í gær um að vextir bank-
anna að undanförnu hafi ekki lækk-
að í takt við lækkandi verðbólgu.
Valur Valsson, bankastjóri ís-
landsbanka, segir vegna fréttar DV í
gær um að vextir bankanna að und-
anfómu hafi ekki lækkað í takt við
lækkandi verðbólgu, að ekki hafl
verið hægt aö rökstyðja vaxtalækk-
un fyrr, í ágúst eða byijun septem-
ber, þar sem ekki hafi þá verið séð
fyrir að verðbólgan færi lækkandi.
„í ágúst héldu menn ekki að verð-
bólgan myndi lækka heldur að það
yrði verðbólgusprenging vegna
samninganna við háskólamenn hjá
ríkinu. En komiö var í veg fyrir þá
verðbólgusprengingu með lögum.“
Valur segir ennfremur að bankam-
ir hafi gert samning við aðila vinnu-
markaðarins á fyrstu mánuðum árs-
ins í tengslum við þjóðarsáttina um
aö hraða lækkun vaxta til að ná
markmiðum um lága verðbólgu.
Jafnframt hafi verið samið um að
bankarnir myndu meta verðbólguna
með sama hætti þannig að útreikn-
ingarnir byggðust á verðbólguspá
fyrir tvo mánuöi fram í tímann og
raunveralegri veröbólgu liðins mán-
aðar.
Bankarnir hafa haft
þjóðarsáttina að leiðarljósi
„Bankarnir hafa staðið fullkom-
lega við sitt og haft þetta samkomu-
lag um þjóðarsáttina að leiðarljósi.
Vextir hafa verið lækkaðir og enginn
efast um að bankamir hafa átt veru-
legan þátt í að koma verðbólgunni
möur.“
- Nú htur þaö einkennilega út í
fijálsri samkeppni að bankamir séu
alhr langtímum saman með svo til
sömu vexti? Eru bankamir með sam-
ráð?
„Nei. Bankamir hafa fyrst og
fremst komið sér saman um að meta
verðbólguna með sama hætti vegna
samningsins um þjóðarsáttina. Ann-
að ekki. Þó munurinn sé lítill á vöxt-
um bankanna tel ég ekkert óeðlilegt
við það. í fijálsri samkeppni er það
svo að markaðurinn myndar ákveðið
verð á vöm og þjónustu og eru sam-
keppnisaðilar ævinlega allir nálægt
því verði. Þaö sama er að segja um
vexti bankanna."
Ríkið þrýsti raunvöxtum upp
Um þaö hvers vegna meðalvextir á
verðtryggðum skuldabréfum bank-
anna hafi hækkað úr 8 prósentum í
byrjun sumars í 8,2 prósent um mitt
sumar, í miöri þjóðarsátt, segir Valur
að raunvextir á markaðinum hafi
hækkað þegar fjármálaráðuneytið
hati hækkað vextina á spariskírtein-
um til stórra kaupenda úr 6 prósent-
um í 7 prósent.
„Ríkið er stór samkeppnisaðili á
peningamarkaðinum. Þegar það
hækkar vexti á spariskírteinum hlýt-
ur það að vera leiðandi og þrýsta á
vaxtahækkun á markaðinum í heild
sinni. Nú er ríkiö hins vegar búið að
ná sölumarkmiðum sínum og um
leið hætt að bjóða stórum kaupend-
um 7 prósent vexti á spariskírteinun-
um.“ -JGH
að að því miður væru allar hnur
þangað uppteknar og viðkomandi
beðinn um að hringja seinna og þá í
beinan síma 609850.
Eftir nokkra bið náðist samband
og seinni sex kennitölumar voru
gefnar upp. Sagan var sannreynd.
Þess skal getið að ' undirritaður
kynnti sig ekki sérstaklega sem
blaðamann á DV og taldi Hagstofan
því að um venjulegan viðskiptavin
úti í bæ væri að ræða.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 3,0 Allir
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-4 ib.Sp
6mán. uppsögn 4-5 ib.Sb
12mán.uppsögn 5-5,5 lb
18mán. uppsögn 11 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar 3,0 Allir
Innlán verðtryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6mán. uppsögn 2.5-3.0 Allir nema Ib
Innlán með sérkjörum 3-3,25 Ib.Bb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 6,6-7 lb
Sterlingspund 13-13,6 Sp
Vestur-þýsk mörk 6,75-7,1 Sp
Danskar krónur 6,5-9,2 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv) 13,75 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.) (1)* kaupgengi
Almennskuldabréf 12,25-14,25 Ib
Viðskiptaskuldabréf(1) ♦ kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17,5 Bb
Utlán verðtryggð 4
Skuldabréf 6,5-8,75 Ib
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 14-14,25 Sp
SDR 11-11,25 Ib
Bandaríkjadalir 9,75-10 ib
Sterlingspund 16,5-16,7 Sp
Vestur-þýsk mörk 10-10,2 Sp
Húsnæðislán 4,0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
Överötr. ágúst 90 14,2
Verðtr. ágúst 90 8,2
VlSITÖLUR
Lánskjaravísitala sept. 2932 stig
Lánskjaravísitala okt. 2934 stig
Byggingavisitala sept. 551 stig
Byggingavísitala sept. 172,2 stig
Framfærsluvísitala júlí 146,8 stig
Húsaleiguvísitala hækkaði 1,5% l.júlí.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,077
Einingabréf 2 2,761
Einingabréf 3 3,344
Skammtímabréf 1,712
Lífeyrisbréf
Kjarabréf 5,034
Markbréf 2,681
Tekjubréf 2,026
Skyndibréf 1,502
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,441
Sjóðsbréf 2 1,768
Sjóðsbréf 3 1,702
Sjóðsbréf 4 1,456
Sjóðsbréf 5 1,025
Vaxtarbréf 1,7215
Valbréf 1,6185
Islandsbréf 1,054
Fjórðungsbréf 1,054
Þingbréf 1,054
Öndvegisbréf 1,049
Sýslubréf 1,057
Reiðubréf 1,040
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 544 kr.
Flugleiðir 213 kr.
Hampiðjan 173 kr.
Hlutabréfasjóður 170 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 171 kr.
Eignfél. Alþýðub. 131 kr.
Skagstrendingur hf. 410 kr.
Islandsbanki hf. 171 kr.
Eignfél. Verslunarb. 140 kr.
Oliufélagið hf 557 kr.
Grandi hf. 188 kr.
Tollvörugeymslan hf. 110 kr.
Skeljungur hf. 593 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb = Búnaðarbankinn,
lb = Islandsbanki Lb = Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.