Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1990, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1990, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990. Utlönd Hussein Jórdaniukonungur og Saddam Hussein íraksforseti eru hliö við hliö á nýju dagatali sem var til sölu í Amman, höfuðborg Jórdaníu, í gær. Velvilji Jórdaniukongungs í garð íraksforseta hefur sætt gagnrýni af hálfu Bandaríkjamanna, Saudi-Araba og annarra þjóða við Persaflóa. Á dagatal- ið eru orðin „Guð er með okkur“ letruð. Simamynd Reuter því að eyðileggja allar olíulindir við Persaflóa. Mikill órói var á verðbréfamörkuð- um í Evrópu og Japan í gær vegna ótta manna um stríð við Persaflóa og það jafnvel áður en síðasta yfirlýs- ing íraka var birt. Verð á hlutabréf- um var það lægsta sem af er þessu ári en olíuverð hækkaði og fór tunn- an í 35 dollara. Hemaðaruppbygging Bandaríkja- manna og bandamanna þeirra held- ur áfram við Persaflóa. Bandarískir hermenn á svæðinu eru nú að minnsta kosti hundrað og fimmtíu þúsund og herskip Bandaríkjanna þar em yfir fjörutíu. Alls em her- menn Bandaríkjanna og banda- manna þeirra við Persaflóa yfir tvö hundmð þúsund. Frá Hvíta húsinu í Washington bárust þær fregnir í gær aö Bush forseta langaði til að heimsækja bandarísku hermennina við Persa- flóa. Ekki var sagt hvenær hann myndi vilja láta verða af heimsókn- inni. Samkvæmt skoðanakönnun ABC-sjónvarpsstöövarinnar banda- rísku og blaðsins Wall Street Joumal segjast 56 prósent Bandaríkjamanna vera hlynntir hernaðaraðgerðum Bandaríkjanna til þess aö reka íraka frá Kúvæt ef efnahagsþvinganir hefðu ekki neytt þá til að hörfa innan þriggja mánaða. Háttsettir indverskir embættis- menn sögðu í morgun að írakar hefðu leyft að indverskar flugvélar yrðu sendar eftir innlyksa fndveij- um í írak og Kúvæt. Sögðu embætt- ismennimir íraka hafa fallið frá fyrri skilyrðum um aö flugvélar sem kæmu til íraks yrðu að flytja mat- væh. fndversk yfirvöld hafa staðið í samningaviðræðum við íraksstjóm um flutninga á þegnum sínum frá því að innrásin í Kúvæt var gerð. Reuter Iraksforseti: Búið ykkur undir stríð Saddam Hussein íraksforseti sagði írökum í gær að búa sig undir stríð. Byltingarráð hans sendi í gærkvöldi frá sér yfirlýsingu, þá harðorðustu til þessa frá því að innrásin í Kúvæt var gerð, þar sem sagði að írakar myndu aldrei hörfa. Var gert hlé á dagskránni í íraska sjónvarpinu til þess að sjónvarpa yfirlýsingunni sem virtist vera svar við viðvörun Bush Bandaríkjaforseta um hertar aðgerð- ir yfirgefi írakar ekki Kúvæt. Það var haft eftir Saddam Hussein í gær að hann væri reiðubúinn að heyja langvarandi stríð við Banda- ríkin, jafnvel svo árum skipti. Upp- lýsingaráðherra íraksforseta sagði að írakar myndu svara árásum með Bagdadbúi kreppir hnefann til að lýsa yfir óánægju sinni með að þurfa að biö? klukkustundum saman eftir mjólk og brauði sem er skammtaö. Símamynd Reuter StOiTS't ^ 41118*5 613*0*7 7 14 £* 9$ \ ------------ Meðal efnis: Urval FYRIR BLAÐSIÐUR KRONUR Nýtt hefti á næsta blaðsölu stað Áskriftarsíminn er 27022 Boris Jeltsín í umferðarslysi Boris Jeltsín, forseti Rússneska lýðveldisins, lenti í umferðarslysi í morgun þegar hann var á leið til þingfundar í rússneska þinginu. Hann varð að fara í læknisskoðun eftir óhappið en ekki er vitað hvort hann slasaðist eitthvað. Talsmaöur lögreglunnar í Moskvu sagði að ekið hefði verið á Volgabif- reið Jeltsíns á Tverskoi stræti, nærri heimili hans. Volgan varð óökufær og forsetinn var fluttur á sjúkrahús til skoðunar. Þingfundur var settur án Jeltsíns en blaðafulltrúi hans sagði að hann væri við góða heilsu og hefði talað við konu sína. Lögreglan sagði fyrst að Jeltsín hefði haldið fór sinni tii þings áfram í nýjum bíl en síðar kom í ljós að hann var fluttur á sjúkrahús Reuter Stjóm Búlgaríu endurskipulögð: Stjórnarandstaðan neitar að vera með Ný stjóm hefur verið mynduð í Búlgaríu. Enn er það þó arftaki gamla kommúnistaflokksins í landinu sem situr einn viö stjóm- vöhnn enda hefur flokkurinn meiri- hluta á búlgarska þinginu. Þótt flokkurinn hafi skipt um nafn er hann þó enn gamli kommúnista- flokkurinn nánast óbreyttur. Andrei Lukanov, forsætisráðherra fyrri stjómar, fékk nýjan ráðherra- Usta samþykktan í þinginu seint í gær eftir að hafa reynt að fá stjórnar- andstæðinga tU að taka sæti í stjóm- inni. Bandalag lýðræðisafla, sem kemur fram sem einn stjónarandstöðu- flokkur í þinginu, neitaöi með öUu að vera með og nýtur stjómin því aðeins stuðnings gamla kommún- istaflokkins eins og sú fyrri. Talsmenn Bandalagsins segja að gömlu kommúnistamir verði að bera ábyrgð á gerðum kommúnistaflokks- ins meðan hann hafði óskorað ein- veldi í landinu. Þessi menn hljóti að sæta ábyrgð þótt þeir starfi nú í flokki með nýju nafni. Vandræði fara nú vaxandi í efna- hagslífi Búlgaríu. Skortur er á mat- vælum og erfiðlega gengur að auka framleiðsluna. Stjómarandstæðing- ar segja að stjómin hafi engin úr- ræði til að bæta úr þessu heldur bíði átekta eftir~að ný efnahagsskipan komist á í Sovétríkjunum. Þá verði svipuð áætlun tekin upp í Búlgaríu eins og alltaf áður jafnvel þótt ástandið krefiist skjótra aðgerða nú. Leiðtogi stjómarandstöðunncU' gekk úr þingsalnum þegar nýja sfiómin var kjörin til að mótmæla einræði gömlu kommúnistanna. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.