Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1990, Page 9
FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990.
9
Utlönd
Áætlun um efnahagsmál í Sovétríkjunum:
Kemur Ryzhkov
í veg fyrir
atkvæðagreiðslu?
Ráðgert hafði verið að atkvæða-
greiðsla færi fram í Æðsta ráði Sov-
étríkjanna í dag um áætlanir er
varöa framtíðarstefnu á efnahags-
sviðinu en seint í gærkvöldi virtist
sem málið myndi tefjast vegna
ágreinings um ýmis atriði.
Forsætisráðherra Sovétríkjanna,
Nikolai Ryzhkov, hefur gefið í skyn
að hann muni segja af sér ef fimm
hundruð daga áætlunin, sem kennd
er viö hagfræðinginn Stanislav Sjat-
ahn, verður samþykkt. Hún kveður
á um að frjálsu markaðshagkerfi
veröi komið á í Sovétríkjunum á
fimm hundruð dögum. Gorbatsjov,
forseti Sovétríkjanna, styður áætl-
unina en Ryzhkov vdll fara hægar í
sakirnar.
Er jafnvel búist vdð að hann muni
á síðustu stundu reyna að koma í veg
fyrir atkvæðagreiðslu. Telja menn
ekki ólíklegt að hann muni halda því
fram að Æðsta ráðið hafi ekki lagaleg
réttindi til þess að samþykkja áætl-
unina. Aðstoðarforsætisráðherra
Sovétríkjanna, Leonid Abalkin, hélt
því fram í þessari viku að einungis
fulltrúaþingið gæti tekið ákvörðun.
Þing Rússlands, stærsta lýðveldis
Sovétríkjanna, hefur hvatt Ryzhkov
til að víkja fyrir nýrri stjórn er njóti
stuðnings almennings. Rússneska
þingið hefur þegar samþykkt drög
að fimm hundruð daga áætluninni.
Vegna alls ágreiningsins um efna-
hagsáætlunina var í gærkvöldi óljóst
hvort Gorbatsjov myndi h&da fast
Búist er við að Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, reyni á síðustu
stundu að koma í veg fyrir atkvæðagreiðslu um áætlun er varðar framtiðar-
stefnu á efnahagssviðinu í Sovétríkjunum. Simamynd Reuter
vdð þá tillögu sem hann sagði fram á greáðslu. um eignarhald á landi.
mánudaginn um þjóðaratkvæða-' Reuter
FeUibyljimir Ed og Fló valda usla:
Þrjátíu fórust í Japan
og ellef u í Víetnam
Kröftugur felhbylur gekk inn
yfir strönd Víetnams á síðasta
sólarhring og olli dauða 11
manna. Felhbylurinn heitir Ed
og einn sá kröftugasti á svæðinu
í langan tíma. Verst varð veðrið
um miðhluta landsins, hrís-
gijónayppskera eyðhagðist og vdð
ströndina sukku 200 bátar.
Nú er ljóst að fellibylurinn, sem
gengið hefur yfir Japan síðustu
tvo daga, er sá versti í áratugi.
Veðurfræðingar segja aö í það
minnsta verði að leita aftur um
þijá áratugi til að fmna annan
sambærilegan.
Nú er vdtað að um 30 manns em
hefur látið lífið af völdum fehi-
bylsins sem á máli veðurfræð-
inga hefur fengið nafnið Fló. Þá
eru í það minnsta 90 menn slasað-
ir og ótölulegur fjöldi fólks hefur
orðiö fyrir miklum óþægindum.
Mikh úrkoma fylgdi veðrinu
fyrir utan vdndhraða sem náði 182
kílómetrum á klukkustund þegar
mest gekk á. Veðurhamurinn var
verstur á suðureyjunum en
stormsins gætti lítið í Tokýo þar
sem einn maður lét þó lífið af
völdum hans.
Reuter
Skemmdir urðu víða miklar i Japan og bilar lágu eins og hráviði um götur.
Símamynd Reuter
EB samþykkir
kröfur EFTA
Fulltrúar aöildarríkja Evrópu-
bandalagsins, EB, féllust í gær á kröf-
ur aðildarríkja Fríverslunarsamtaka
Evrópu, EFTA, um strangari reglur
á sviði heilbrigðismála, umhverfis-
mála og öryggis á vinnustöðum.
Þetta þykja kaflaskil í viðræðunum
um sameiginlegt evrópskt efnahags-
svæði sem nefnt er EES.
Thslakanir þessar af hálfu EB
þykja þó haldast í hendur viö þá
stefnu í umhverfisverndarmálum
sem nú er að verða ofan á. Bæði inn-
an aðildarríkja EB og í bandalaginu
sjálfu er lögð áhersla á að þróa um-
hverfisverndarpólitíkina. Það þætti
því heldur óheppilegt ef svo vdrtist
sem ekki væri hægt að samræma
umhverfisvernd og evrópska sam-
vdnnu.
Að fá að halda strangari reglum
um umhverfismál hefur verið ein
aðalkrafa EFTA-ríkjanna í EES-
vdðræðunum við EB. Við upphaf
tveggja daga samningafundar í gær-
morgun hófu EFTA-ríkin máls á
þessari kröfu. Lögðu þau á það
áherslu að pólitíska staöan í EFTA-
ríkjunum yrði mjög erfið ef þau
neyddust til að taka upp vægari regl-
ur í umhverfismálum.
Til aö koma til móts við EB hafa
EFTA-ríkin skuldbundið sig til þess
að aðlaga sig að þeim reglum sem eru
strangari í EB-ríkjunum en EFTA-
ríkjunum.
Þó svo að EB hafi í grundvallarat-
riðum fallist á aðalkröfur EFTA þá
er eftir að fjalla um þær í smáatrið-
um. Verða EFTA-ríkin í hverju ein-
stöku tilfelli að færa rök fyrir því að
kröfur þeirra séu byggðar á faglegum
grundvelli og aö ekki sé um að ræða
reglur sem hafa það eitt að markmiði
að halda erlendum samkeppnisaðil-
um fyrir utan. NTB
AfstaðantilEB:
Motzfeldt vill
samvinnu við
íslendinga
Jonathan Motzfeldt, formaður
grænlensku heimastjórnarinnar, er
ekki þeirrar skoðunar að þörf sé á
nýrri umræðu einmitt nú um aðild
að Evrópubandalaginu, EB. Vill
nann heldur að Grænland, ísland og
Færeyjar beiti sér vdð það að sam-
ræma stefnu sína gagnvart EB.
Umræöan um EB-aðild hefur bloss-
að upp á ný á Grænlandi eftir aö
Atassut-flokkurinn lýsti því yfir að
Grænland ætti að gerast aðili að EB
frá og með árinu 1995 þegar núver-
andi fiskveiðisamningur milli Græn-
lands og EB fellur úr gildi. Grænland
sagði sig úr bandalaginu 1. janúar
1985 með fullum stuðningi Siumut-
flokksins, flokks Motzfeldts.
Motzfeldt sagði í Kaupmannahöfn
í gær, þar sem hann ræddi meðal
annars við Schlúter forsætisráð-
herra, að í stað þess að ræða um
EB-aðild ættu Grænlendingar að
verja tíma sínum í að ræða við ís-
lendinga og Færeyinga.
Motsfeldt hefur boðið forsætisráð-
herra íslands og lögmanni Færeyja
til vdðræðna á Grænlandi í október-
lok. Ritzau
BIZERBH
í FARARBRODDI
Laxaskurðarvélar og vogir
Erum á sjávarútvegssýning
unni í Laugardal, bás E 16.
RÖKRÁS HF.
Rafeinda og Rafverktaki
Bíldshöfða 18, s. 671020