Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1990, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1990, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990. Spumingin Eiga busavígslur rétt á sér? Guðmundur Hafsteinsson: Já, þær eru svo skemmtilegar. Þórunn Bjarnadóttir nemi: Já, já, en það mætti standa betur að þeim. Rakel Jóhannsdóttir nemi: Já, þær eru skemmtileg hefð. Ingibjörg ívarsdóttir hjúkrunarfr.: Æ nei. Eg er á móti þeim. Þær eru leiðinlega framkvæmdar. Steindór ögmundsson vélstjóri: Nei, mér fmnast þær vera ljótar. Ingibjörg Þórhallsdóttir verslun- arm.: Ég hef enga skoðun á því. Lesendur Álafoss enn á heljarþröm Þorsteinn Einarsson skrifar: Fyrirtækiö Álafoss er enn eina ferðina í fréttum, nú vegna tap- reksturs upp á 747 milljónir króna á sl. ári. Ennfremur kemur fram að tapiö sé um 2000 milljónir á tveimur og hálfu ári! Ætli menn geri sér nokkra grein fyrir því hvað þetta eru háar tölur sem hér um ræðir hjá einu fyrirtæki? - Ég held ekki því ef svo væri myndi næsta ráðstöfun hreinlega vera sú að loka fyrirtækinu og gera það upp svo að ekki þurfi um stærri sár aö binda að einu ári hðnu. Ekki er hægt að kenna Sovét- mönnum um þennan taprekstur nema að sáralitlu leyti því úti- standandi skuldir Álafoss í Sovét- ríkjunum eru þó ekki nema á ann- að hundrað milljónir króna. - Nú eru eignir Álafoss sagðar vera bók- færðar um 2.136 milljónir á móti heildarskuldum um 2.403 milljón- um. Úr því ekki er talin ástæða til að óttast greiðslufali frá hendi Sov- étmanna hlýtur besti kosturinn héðan af að vera sá að selja allar eignir fyrirtækisins, greiöa skuldir þess með því fé sem þannig fæst og því til viðbótar sem kemur sem greiðsla frá Rússum og láta slag standa með rúmar hundrað millj- ónir sem væntanlega yrðu greiddar með öðrum útistandandi skuldum. Þar sem nú er sögð mikil óvissa um framtíð Álafoss, og reksturinn sé því næst „sjálfdauður" eins og fram kom í Ríkisútvarpinu um málefni félagsins - ef ekki berist fljótlega greiðslurnar frá Sovétríkj- unum - getur vart önnur lausn verið heppilegri en að gera fyrir- tækið upp. Ummæli nýráðins for- stjóra Álafoss á útvarpsstöðinni Bylgjunni í morgun (19. sept.) þess efnis, að þeir fái „fullt af peningum á næstu mánuðum" eru heldur ekki ný bóla við þær aöstæður að fyrirtæki er á barmi gjaldþrots. - Þetta má heyra af vörum hvers for- stjórans á fætur öðrum þegar neyð- in er sem stærst. En ekki dugar aö vitna sífellt til nýráðins forstjóra sem hefur ekki lagt línurnar, heldur stjómin sem er ábyrg gagnvart eignaraðilum. Hvers vegna fjölmiðlar hlífa stjórn- armönnum við því að gera grein fyrir fyrirætlan þeirra til að lag- færa reksturinn er óskiljanlegt. Það er ekki við neina aukvisa að eiga þar sem stjórnendur Áiafoss eru. Þetta eru ýmist forstjórar eða stjórnarmenn stærstu fyrirtækja landsins, ásamt fyrrverandi við- skiptaráðherra landsins. Hér ætti því að vera samansöfnuð nokkur íjármálaþekking. Ekki gerðu fréttir svo lítiö úr því þegar þessi nýja stjórn var skipuð og end- urskipulagning var hafin - meira segja með aðstoð erlends ráðgjafa- fyrirtækis! Mér finnst vera kominn tími til að farið verði aö rekja garn- irnar úr hinum „fjórum stóru“ í stjórn Álafoss hf. Það hlýtur að vera innifalið í stjórnarlaununum að koma fram fyrir alþjóð og skýra reksturinn, ekki síst þar sem hann er ekki ótengdur sameiginlegum sjóði landsmanna. „Hér ætti aö vera samansöfnuð nokkur fjármálaþekking," segir m.a. í bréfinu. - Hinir „fjórir stóru“ í stjórn Álafoss, Brynjólfur Bjarnason, for- stjóri Granda hf., Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins, Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi ráðherra, og Sigurður Heigason, stjórnarformaður Flugleiða hf. Veröbólga og vaxtagreiðslur: Ekki lækka nafnvextímir Ámi Árnason hringdi: ekki í takt við lækkandi verðbólgu Ég tek undir með þeim sem hafa að hann viti ekkert hvenær slíkt þoraö að láta í sér heyra og frá sér geti gerst. Bankamir verði að fá fara skrif um þann fáránleika sem að ,jafna sig fyrst", segir hann! nú viðgengst í efnahagslífi okkar Skyldi nokkurn undra? Ætli þaö og launamálum, og tengingu verð- séu ekki fieiri sem þurfa aö jafna bólgunnar við þessa þætti. - Ég er sig á annarri eins furðufrétt og helst á þvi sem einn lesandi 1 DV þeirri að verðbólga hjá þessari rík- sagði íyrir helgina að trúa engu af isstjóm sé skyndilega komin niður því sem nú er verið að mata okkur í 3%! á, td. því að verðbólgan sé komin Og það er allt eftir þessu. Launa- niður í um 3%. Hverjir eru þaö sem hækkanir sem nú eru gjaldfallnar þetta setja fram? - Jú, það eru em afgreiddar með óskipulegum menn sem em að einhveiju eða hætti og enginn viröist vita eða ölluleytitengdirflokksböndumvið hafa á hreinu hvernig með skuli núverandi ríkisstjórn eða einstaka fara. - Það má fyllilega hafa þaö til ráðherra, jafhvel venslaðir eín- marks um trúveröugheitin, að ef hveijum ráðherrum. Hvemig á nafhvextír lækka ekki í takt víð maður að geta tekið þetta alvar- fréttina um lágu veröbólguna, er lega? það einfaldlega vegna þess að verð- Oghvernigámaðuraðgetatekið bólgan er í raun miklu, miklu það alvarlega, að verðbólgan sé hærri en látið er í veðri vaka. - komin í 3% þegar bankastjóri viö Enda hefur grunnurinn fyrir út- einn stærsta bankann segir að- reikningi hennar allur verið spurður um hvort nafnvextir lækki skekktur að yfirlögöu ráði. Varhugaverður ávinningur M.H. hringdi: Kemur forráðamönnum íslendinga ekki til hugar hve varhugavert það getur verið að safna landslýðnum saman á lítinn skika á suðvestur- horni landsins - þar sem bæði er jarðskjálfta- og eldgosasvæði? En fólki er vorkunn þvi þótt flestir vilji helst búa í heimahögum neyðast þeir til að flytja þangaö sem atvinnu- möguleikarnir em. Nú er rætt um nýja atvinnumöguleika á Suðumesj- um, þ.e. álverið. - Ekki er það ávinn- ingur fyrir dreifbýlisfólk. Vonandi fáum við ekki eldgös eða öskugos yfir okkur í bráð! Hringið í síma , 27022 milli kl. 14 og 16 eða skrifið ATH.: Nafn og sími verður að fylgja bréfum. Kvískerjamyndin: Kúnstugt líf en kyrrlátt S.B.B. skrifar: Ég horfði á myndina um Kvískerja- systkinin í Sjónvarpinu. Þetta var hin besta afþreying. Maður hugsar margt þegar maður sér svona mynd og horfir á það líf sem þarna er lifað. Þaö er bæði kúnstugt og virðist eink- ar kyrrlátt, a.m.k. miðað við það sem gerist hér í Reykjavík. Ög það er margt fleira sem manni kemur í hug, t.d. það hvort þetta fólk greiði háa skatta af tekjum sínum, hvort tekjumar séu miklar, hvort þetta fólk þurfi að rísa úr rekkju kl. hálfsjö eða sjö á hverjum morgni til að ganga til starfa sinna. Em störfin fyrirfram ákveðin hvem dag, eða getur fólkið tekið sér fyrir hendur það sem það vill þann og þann dag- inn, t.d. gengið á jökul og athugað hvort einhver glufan í honum hefur stækkað frá því í fyrra? Allt þetta og miklu fleira kom mér í hug þegar ég horföi á myndina um systkinin á Kvískerjum. Mér kom t.d. það í hug hvort við Islendingar gætum ekki haft þennan hátt á, að dunda sér svona, hver og einn í sínu horni. Gætum jafnvel lokað landinu í svo sem 4 eöa 5 mánuði og lifað af því sem landið gefur af sér og því sem til er í forðabúrunum (kjöti, smjöri og fiski) og matvælum í verslunun- um. Myndum við geta sparað gjald- eyri með þessu, jafnvel greitt niður umtalsverðar erlendar skuldir? - Já, því ekki að reyna þetta einu sinni? Er þaö nokkuð verri uppástunga en þær sem koma frá hagfræöingunum, a.m.k. er ekki að sjá neinar úrbætur. En svona má víst ekki hugsa, hvað þá skrifa. - Læt það flakka samt, það er ekki hundrað i hættunni hjá mér. Ég er hvort eð er að fara af landi brott. - Einn af þeim sem ætla að koma mér fyrir annars staðar áður en landið veröur eitt. af fátækustu löndunum í Evrópu eins og einn hag- fræðingurinn spáir nú. - Takk fyrir samveruna. Slæm reynsla í vidgerðarþjónustu Ingibjörg Ólafsdóttir skrifar: Mig langar til að koma á framfæri þeirri slæmu reynslu sem ég varð fyrir nú fyrir skömmu. - Þannig var að sjónvarpstæki, sem ég á, bilaði. Ég fór með það í viðgerð á verkstæöi sem heitir Skjárinn við Bergstaða- stræti hér í borginni. Viðgerðarmað- urinn biður mig að hafa samband daginn eftir því þá átti tækið að verða tilbúiö. Ég hringi og tilkynnir hann mér þá að hann sé að bíða eftir stykki í tækið og segir mér að hringja aftur daginn eftir. Þetta gekk í sex daga, og á sjötta deginum hringdi ég að morgni. Þá tilkynnir hann mér að hann sé með tækið í höndunum og búist við að ljúka viðgerð seinni hluta dagsins. Ég hef síðan samband við manninn rétt fyrir kl. 18 þann dag. Þá segir hann mér að tækið sé ónýtt vegna þess að „lampinn sé farinn" í tæk- inu. - Reikningurinn hljóðaði upp á 3.000 krónur fyrir að dæma tækið ónýtt. Ég sætti mig engan veginn við það að rúmlega fjögurra ára gamalt tæki væri ónýtt og því síður aö greiða þessar 3 þúsund krónur. - Fyrir hvað? En eftir mikið þref við mann- inn var þó hægt aö lækka reikning- inn niður í 1.000 kr. og ég náði í tækið. Eftir þessa slæmu þjónustu og framkomu sneri ég mér aö Litsýn í Borgartúni til að láta kanna hvort tækiö væri virkilega ónýtt. Þar fékk ég snögga og góða þjónustu. Þeir sáu aö það var ekkert aö myndlampan- um sem fyrrgreindur viðgerðarmað- ur fullyrti að væri ónýtur. - Þetta finnst mér frásagnarvert og hér hefði getað farið verr en á horíðist, ég heíði getað tapað svo til nýju sjónvarps- tæki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.