Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1990, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1990, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990. 15 Ræða óspilltrar rey kvískrar æsku Ágætu félagar! Haílö þiö leitt hugann aö því sem höfuðborgin hefur veitt okkur og hversu lítiö viö höfum lagt á okkur til aö ná alla leið aö hinum sósíal- íska aldingarði? Borgin sér um að allir geti ferð- ast hring eftir hring innan borgar- markanna. Hver annar gæti boðiö upp á slíkt? Auövaldsseggir og ill- menni myndu arðræna þá sem minna mega sín fengju þeir aö reka slíka þjónustu. Hin góða og mikla borg kemur í veg fyrir aö borgarastéttin troði hina smáu ofan í götusteinana á farþegavögnum sínum. Já, götima sem viö eigum saman og hin dá- samlega borg hefur gefið okkur af örlæti sínu og meö því aö starf- rækja námur þar sem hetjur sósíal- ismans höggva og bijóta (og hijóta) steina sem fluttir eru á undursam- legum tólum Vélamiðstöðvarinnar til guödómlegrar verksmiðju mal- biksins. Þessa smiðju eigum viö öll saman og getum þakkað hinum miklu leið- togum borgarinnar aö kapítalískir skúrkar fá ekki smánaö öreigana méö okri á malbiki. Ástkæra Hitaveita og Pípugerð Kvölds og morgna geta hetjur sósíalismans baðað sig og skrúbbað frá hvirfli til ilja meö heitu vatni sem kemur um öruggar og yndis- legar leiðslur Pípugerðar borgar- innar frá hinni miklu Hitaveitu. Það veitir okkur yl í ofnana okkar og flytur einnig súrefni sem tærir þá upp svo að fjöldi fólks fær vinnu Menning í yndis- legum miðstöðvum A kvöldin sér hin dásamlega borg um ýmis menningarleg atriði okk- ur til sáluhjálpar og frelsunar frá siðspillingarvélum borgarastéttar- innar. Við söfnumst saman á þá staöi sem leiðtogar borgarinnar hafa ýmist byggt eða hrifsað úr klóm peningahyggjunnar. Þetta eru hin dýrlegustu leikhús, listamiðstöðvar og danshús og af rausnarskap við sjáaldur okkar og til að leiða hugann frá ghngri auð- valdsins hefur borgin okkar byggt hálfkúlu úr glerefni sem mun snú- ast eilíflega og vera óræk sönnun um yfirburði sósíalismans. Þá hefur borgin yfir að ráða afl- mestu og bestu hljómflutnings- tækjum sem völ er á og getur mett- „Hafið þið leitt hugann að því sem höf- uðborgin hefur veitt okkur og hversu lítið við höfum lagt á okkur til að ná alla leið að hinum sósíalíska aldin- garði?“ aö hlustir okkar í órafjarlægð. Þannig má yfirgnæfa skarkala neysluþjóðfélagsins og vernda okk- ur fyrir úrkynjuðum veinum skemmtanaiðnaðarins. Félagslegt hreinlæti Allt rusl er fjarlægt á afkasta- miklum bílum borgarinnar. Allt verður hreint og fínt. Enginn auð- viö að smiða nýja og getur satt sár- asta hungrið. Allir geta fengið eins mikið vatn og þeir vilja og við erum þakklát í huga og klökk þegar við stígum úr baðkerinu og þerrum okkur og vit- um að borgin verndar okkur fyrir því að feitir karlar með dollara- merki í augunum setji kalt vatn í kranana okkar. KjaUariim Glúmur Jón Björnsson efnafræðinemi í HÍ Skref inn i framtíðina? Framfaraspor borgarinnar með rekstri samyrkju- bús. - Úr húsdýragarðinum í Laugardal. valdseggur getur nú hent rusli og drasli í okkur og heimtað borgun fyrir að flytja það burt. Hann getur heldur ekki hagnast á því að endurvinna það sorp sem þeir smáu láta frá sér. Gott á hann. Náttúran beisluð Og þegar snjóar þá birtast öflugir bílar frá Vélamiðstöðinni og nátt- úran má beygja sig fyrir borginni okkar. Ljótir eiginhagsmunaseggir aka um á negldum hjólbörðum og spæna upp hin góöu efni sem mal- bikunarverksmiðjan hefur gefið okkur til að njóta í sameiningu. Verslunarfíklar sektaðir Borgin sér hka til þess að viö lát- um ekki glepjast af lögmálum markaöarins og sektar auðvitað alla þá sem dvelja léngur en klukkustund í verslunum. Stöðumælasektirnar eru því eitt helsta vopn öreiganna gegn arðráni verslunarbraskara. Þá setur borg- in reglugerðir um afgreiðslutíma lastabæla Bakkusar og óhollustu- staða sem nefndir hafa verið skyndibitastaðir. Nýr heigidómur hinna forsjálu Úr vatni rís nýtt musteri þeirra sem vaka yfir okkur og gæta þess er áður er upp talið. í anddyri verð- ur allt ísland saman komið og verð- ur hægt að renna því fram og til baka til mikilla heilla fyrir stöðu landsins í samfélagi þjóða og færir okkur nær hinum mörg þúsund einstaklingum í Brussel sem bera þungar skjalatöskur fullar af mik- ilvægum skjölum fram og til baka í höfuðstöðvum Evrópubandalags- ins. - En það er nú önnur saga. Samyrkjubú - skref inn í framtíðina Að lokum vil ég minnast á það framfaraspor borgarinnar okkar að hefja rekstur samyrkjubús með öllum dýrategundum landsins. Örkin hans Nóa er algjör brandari í samanburði við þetta og dýrunum hefur verið forðað frá græðgi og skepnuskap peningasinna. Lifi minning Lenins. Glúmur Jón Björnsson Almálið: Enn ein mistökin Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra. með endemum hvernig hann hefur att saman ýmsum byggðarlögum og látið þau bjóða i álveriö," segir Hallgrímur m.a. í grein sinni. Undanfama daga hefur það kom- iö greinilega fram hve vitlaust iðn- aðarráðherra, Jón Sigurðsson, hef- ur staðið að samningum um nýtt álver. í stað þess að ákveða fyrir- fram að hverju átti að stefna í mengunarvörnum, raforkuverði, sköttum og staðsetningu byrjaði hann á öfugum enda. Ráðgjafar og samningamenn ráð- herra hafa margir hverjir féngist við þessi mál áður. En það er eins og sumum sé gjörsamlega fyrir- munað að læra af reynslunni. Hvað veldur því að íslenskir ráðamenn kikna strax í hpjáliðun- um þegar þeir sjá erlendan álfor- stjóra í nánd? Ég ætla ekki að svara því að sinni en þess í stað ætla ég að rifja upp nokkur atriði úr sam- skiptum íslendinga við álfurstana. Dómsvald úr landi Árið 1966 var fyrsti samningur- inn gerður við Alusuisse um álver- ið í Straumsvík. Hanp var sam- þykktur á Alþingi af sjálfstæöis- og alþýðuflokksmönnum. Samning- urinn var vægast sagt mjög hag- stæður fyrir Svisslendingana. Raf- orkuverðið var hlægilega lágt, framleiðslugjald, sem koma átti í stað skattheimtu, var ófullnægþ andi og ekki var gert ráð fyrir hreinsitækjum vegna loftmengun- ar. Einnig var samþykkt að erlendur dómstóll ætti aö dæma í ágrein- ingsmálum. Þennan lélega samn- ing mátti aö nokkru rekja til þess aö margir töldu að Íslendingar væru að missa af stóriðjulestinni vegna ódýrrar kjarnorku. Það kom svo fljótlega í ljós að þessi ótti var ástæðulaus. - Kjarnorkuver reynd- ust ekki eins hagkvæm og haldið Kjallaxiim Hallgrímur Hróðmarsson kennari í MH var í fyrstu. í janúar 1973 var ísal gefmn sex mánaða frestur af þáverandi heil- brigðisráðherra, Magnúsi Kjart- anssyni, til að koma upp hreinsi- búnaði. í mars 1973 kom svar frá ísal þar sem lofað var að setja hann upp. Það tók svo níu ár að efna lof- orðið. Bókhaldssvik Á árunum 1974-75 kom í ljós við endurskoðun á reikningum ísal að eitthvað var gruggugt við kaup dótturfyrirtækisins á súráli frá mömmunni í Sviss. Endurskoðend- ur frá Coopers & Lybrandt sýndu fram á að súrálsverðiö milh óskyldra aðila væri 10-33% lægra en verðið sem ísal gaf upp. Samningarnir við álfélagið voru svo endurskoðaðir 1975-76 en ekk- ert var aöhafst af hálfu íslenskra ráðamanna vegna bókhaldssvik- anna. Þessi endurskoðaði samn- ingur var samþykktur á Alþingi af þingmönnum álflokkanna þriggja: Alþýðuflokks, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. - Samningurinn gaf hærra orkuverð en skattar voru lækkaðir ríflega á móti þann- ig að heldur hallaði á íslenska ríkiö. í tíð Hjörleifs Guttormssonar iön- aðarráöherra voru áðurnefndir endurskoðendur fengnir aftur til aö kanna reikninga ísal. í ljós kom að á árunum 1975-81 var hagnaður ísal 35,8 milljónum dollara meiri en fram kom í bókhaldi fyrirtækis- ins. í framhaldi af því var fram- leiðslugjaldið til ríkisins hækkað um 6,6 milljónir dala, meö viður- lögum nam það 10,4 miUjónum. Þegar Hjörleifur kynnti niður- stöður endurskoðendanna varð mikill taugatitringur í herbúðum álflokkanna þriggja. Fulltrúar þeirra höfðu aldrei viljað við það kannast að álfurstarnir hefðu snú- ið á þá í samningunum. AUt kapp var nú lagt á það af forystumönn- um Alþýðuflokks, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks að gera iðnaðar- ráðherra tortryggilegan. Álhringurinn ákvað nú að vísa málinu í alþjóðlegan gerðardóm og féllst iðnaðarráðuneytið á það þann 9. maí 1983 og var málsundir- búningur hafinn vegna gerðar- dómsins áður en ríkisstjórnar- skiptin urðu 26. maí 1983. Sakaruppgjöf En ný ríkisstjóm Framsóknar og Sjálfstæðisflokks glutraði málinu niður. Hún samdi um sakaruppgjöf í bókhaldsmálinu gegn greiðslu 3 mUljóna $. MiUjónirnar tíu skruppu saman í þrjár og má telja víst að íslensk fyrirtæki sem staöin væru að skattsvikum myndu una shkri lausn vel. En hvað kom fleira út úr þessum samningi? Skattareglur voru enn lagfærðar álhringnum í hag. En á móti fékkst rafmagnsverðið loks lagfært. í 12-18 miU/kwh (var 6,45 mill/kwh árið 1985). Þessi nýkla hækkun, sem alls ekki var nægileg, sýnir hve fyrri samningar voru hrikalega lélegir. Sterk samningsstaða íslands gegn álhringnum var því alls ekki nýtt tU fullnustu. A þessum tíma greiddu álver úti í heimi talsvert hærra orkuverð þar sem þau þurftu aö kaupa orkuna frá óskyld- um aðilum, 16-17 mill í Evrópu og 26 mill í Norður-Ameríku. Og enn kikna þeir... Já, þetta er sannkölluö rauna- saga og það versta við hana er aö íslenskir ráðamenn neita að læra af henni. Jón Sigurðsson hefur reynt ýmsar nýjar kúnstir, ekki vantar það, en aUt verður auð- hringunum í vil. - Það er með end- emum hvernig hann hefur att sam- an ýmsum byggðarlögum landsins og látið þau bjóða í álverið. íslenskir ráðamenn geta ekki vik- ið sér undan þeirri skyldu að taka ákvarðanir um staðsetninguna og eðlilegar kröfur í mengunarvörn- um. Eins er það með stefnu í skatta- málum og orkusölu tU erlendrar stóriðju. Það hefði þjónað hags- munum íslands betur ef ákvarðan- irnar hefðu legið fyrir áður en til samninga var gengið. Hallgrímur Hróðmarsson „Það hefði þjónað hagsmunum Islands betur ef ákvarðanirnar hefðu legið fyr- ir áður en til samninga var gengið.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.