Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1990, Page 2
2
MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 1990.
Fréttir
Umrót vegna dreifibréfa frá Eggert Haukdal alþingismanni:
Sakar hreppstjóra um inn-
brot og prest um barsmíðar
„Svo sem kunnugt er barði og
hrakti séra Páll bam Guörúnar fyrir
nokkrum árum grátandi frá sínum
bæ og fyrirskipaði þvi að koma þang-
að aldrei framar." Þetta stendur.
meðal annars í löngu bréfl sem sent
var á flest heimili í Vestur-Landeyja-
hreppi. Tilvitnunin er í fyrra af
tveimur bréfum. Þeir hreppsbúar,
sem DV hefur rætt við, segja bréfin
vera frá þingmanninum Eggert
Haukdal.
„Það eru allir sannfærðir um að
það er Eggert Haukdal sem skrifar
þessi bréf,“ sagði Bjarni Halldórsson
á Skúmsstöðum.
í bréfunum er Eiríkur Ágústsson
hreppstjóri sakaöur um aö hafa brot-
ist inn í Njálsbúð nóttina fyrir kosn-
ingar í vor. í Vestur-Landeyjahreppi
eru tveir listar, K-hsti, þar sem Egg-
ert Haukdal er fremstur í flokki, og
H-listi. H-listinn bauð fyrst fram 1986
og fékk þá einn mann kjörinn. í kosn-
ingunum í vor fékk H-listinn tvo
menn. K-listinn hefur þrjá menn og
er í meirihluta. Eggert Haukdal er
oddviti sveitarinnar.
„En svo stendur á aö nefndur
hreppstjóri framdi innbrot í Njáls-
búð aöfaranótt síðustu alþingiskosn-
inga. Og ekki er vitaö að hann hafi
lagt fram kæru vegna þess inn-
brots,“ segir á einum stað í seinna
bréfinu. Þá segir einnig að hrepp-
stjórinn, það er Eiríkur Ágústsson,
skuldi einn foreldra nokkrar þús-
undir í mötuneytisreikning skólans.
„Þetta er alrangt," sagði Eiríkur
Ágústsson hreppstjóri þegar DV
ræddi við hann.
Við lestur bréfanna fer ekki á milli
mála að miklar deilur eru innan
hreppsnefndarinnar. í fyrra bréfmu
fær Haraldur Júliusson hrepps-
nefndarmaöur H-listans sendingar:
„Það er nauðsynlegt að upplýsa
íbúa Vestur-Landeyja um þá ófræg-
ingarherferð sem Haraldur og Co.
stundar gegn sumum sveitungum
sínum. En það er hins vegar ljóst,
að hvað oft sem sannleikurinn er
sagöur við Harald og Co. þá er það
næsta tilgangslaust, og nánast eins
og að stökkva vatni á gæs, því Har-
aldur er jú alltaf sannleikans megin.
- Hann einn veit. - Hann hefur há-
kristilegt umboð frá „Guði“ í gegnum
fulltrúa „Krists" í Landeyjum til að
„betrumbæta" Vestur-Landeyinga.
Allir „frelsarar mannkyns", og þar
er Haraldur og Co„ „frelsari V.-
Landeyja", engin undantekning,
styðjast við gömlu regluna að „til-
gangurinn helgar meðalið". Sam-
kvæmt þeirri reglu er allt leyfilegt
til að koma fram vilja sínum og und-
ir því merki er m.a. einskis svifist til
að hafa mannorð af mönnum." Þetta
er tilvitnun í annað bréfið.
Bréfin eru samtals 21 blaðsíða. í
seinna bréfinu er boöað framhald.
-sme
Davið Oddsson borgarstjóri ræsti dælur Nesjavallavirkjunar á laugardaginn. Mikið fjölmenni var við opnunina.
Hér sýna Davíð borgarstjóri og Páll Gíslason, (ormaður stjórnar Veitustofnana Reykjavikur, Vigdisi Finnbogadótt-
urforseta og Ástriði Thorarensen borgarstjórafrú líkan af virkjunarsvæðinu. DV-mynd Kristján Einarsson
Nesjavellir 1 gagnið:
Davíð lét dæluna ganga
- nýr sunnudagsrúntur meðfram leiðslunni
Kristján Einaisson, DV, Selfosá
Nesjavallavirkjun Hitaveitu Reykja-
víkur var formlega tekin í notkun á
laugardaginn aö viðstöddum um þrjú
hundruð gestum, þeirra á meðal for-
seta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur.
Það var borgarsfjórinn í Reykjavík,
Davíð Oddsson, sem ræsti dælur
virkjunarinnar.
Vatnið frá Nesjavallavirkjun er 83
gráða heitt. Það tekur það sjö
klukkustundir að renna til Reykja-
víkur og kólnar aðeins um 1 til 2
gráöur á leiðinni.
Meðfram leiðslunni frá Nesjavöll-
um að geymunum við Grafarholt viö
Reykjavík hefur veriö lagður vegur
sem ætlunin er aö leggja varanlegu
slitlagi og opna fyrir umferð. Þar með
er kominn nýr sunnudagsrúntur fyr-
ir borgarbúa.
Það var árið 1947 sem fyrst var far-
ið aö gera athuganir á Nesjavöllum.
Árið 1964 keypti svo Hitaveita
Reykjavíkur jörðina og hófust þá
kerfisbundnar rannsóknir og boran-
ir á svæðinu. Framkvæmdir við
virkjunina hófust fyrir þremur
árum.
EggertHaukdal:
Var að svara
fyrir mig
„Það er rétt að ég skrifaði þessi
bréf. Ég var að svara bréfum sem
H-hsta menn hafa skrifað og sent um
sveitina," sagi Eggert Haukdal, al-
þingismaður og oddviti í Vestur-
Landeyjum, þegar hann var spurður
hvort rétt væri aö hann hefði skrifaö
dreifibréfm sem getið er um í frétt
hér á síðunni.
Eggert segist hafa verið að svara
bréfum frá H-listanum. í þeim bréf-
um segir meðal annars: „Leitað verði
leiða til nýrrar atvinnusköpunar og
sveitastjórn hætti að braska með
jarðir." Þess skal getið að K-hsti, listi
Eggerts og hans félaga, er og hefur
verið með hreinan meirihluta í sveit-
arstjórninni. . . . meirihlutinn ákv-
að að ráða sérlegan fundarritara á
fundi hreppsnefndar og var hann
mættur til starfa strax í upphafi
fundar. Ekki kom fram hvort meiri-
hlutinn er óskrifandi. . . “
-sme
Sjálfstæðismenn á Suðurlandi:
58 vi|ja prófkjör
en32ámóti
- tilIagaEggertsHaukdalkolfelld
Á fundi kjördæmisráðs Sjálfstæð-
isflokksins á Suðurlandi, sem hald-
inn var á laugardag, var ákveöið að
viðhafa prófkjör við val frambjóð-
enda á framboðshsta flokksins fyrir
alþingiskosningarnar. Fyrir um einu
ári var samþykkt að hafa prófkjör.
Fundurinn nú var haldinn vegna
bréfs sem Eggert Haukdal alþingis-
maður skrifaöi stjórn kjördæmis-
ráðsins. Þar bauðst Eggert til aö taka
þriðja sæti listans. Vegna þess var
kjördæmisráðið kallað saman á laug-
ardag. 90 fundarmenn greiddu at-
kvæði um hvort halda ætti prófkjör
eða ekki. 58 vildu prófkjör en 32 voru
á móti.
Búist er við að til átaka kunni að
koma milli stuðningsmanna Eggerts
Haukdal og Árna Johnsen um annað
og þriðja sæti listans. Viðmælendur
DV eru á því að átökin geti allt eins
orðið til þess að annar, og jafnvel
báðir, muni missa sæti sín ofarlega
á framböðslistanum. Þorsteinn Páls-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins,
er álitinn öruggur með fyrsta sæti
listans. Sjálfstæðismenn telja nokk-
uð víst að flokkurinn bæti við sig
einum þingmanni og fái þrjá menn
kjörna í kosningunum í vor.
„Ég var mest undrandi á því að
Vestmannaeyingar vildu hafa próf-
kjör. Með tillögu Eggerts Haukdal
var verið að færa Eyjamönnum þing-
sæti á silfurfati. Samt voru þeir
ákveðnir að viija prófkjör," sagði
einn fundarmanna í samtali við DV.
-sme
Stef ni á fyrsta sæti listans
- í opnu prófkjöri krata á Reykjanesi, segir Karl Steinar Guðnason
„Ég ætla að gefa kost á mér í
prófkjörið og set stefnuna á að
halda því sæti sem ég er í, fyrsta
sætinu,“ segir Karl Steinar Guðna-
son, þingmaður Alþýöuflokksins í
Reykj aneskj ördæmi.
Kjördæmisráö Alþýðuflokksins í
Reykjaneskjördæmi samþykkti á
laugardaginn á fundi sínum í
Keflavík að efna til opins prófkjörs
fyrir alþingiskosningarnnar. Fimm
efstu sætin í prófkjörinu eru bind-
andi fyrir lista flokksins í komandi
kosningum. Prófkjörinu á að vera
lokið fyrir lok nóvember.
Auk Karls Steinars, sem er Kefl-
víkingur, hefur annar þingmaður
Alþýðuflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi, Rannveig Guðmundsdóttir,
úr Kópavogi, ákveöið að gefa kost
á sér í prófkjörsslaginn.
Ekki verður kosið sérstaklega um
einstök sæti heldur hlýtur sá fyrsta
sætið sem fær flest atkvæði í próf-
kjörinu. Annað sætið fær sá sem
fær næstflest atkvæði og svo koll
af kolli fyrir fimm efstu sætin.
Alþýöuflokkurinn hefur tvo
þingmenn úr Reykjaneskjördæmi.
Kjartan Jóhannsson skipaði efsta
sætið í síöustu kosningum. Hann
hætti hins vegar á þingi fyrir
tveimur árum er hann tók við starfi
sendiherra. Við það færðist Karl
Steinar í fyrsta sætið. Rannveig
Guðmundsdóttir, sem skipaði síð-
ast þriðja sætið og var varaþing-
maður, kom við þessa skiptingu
inn á þing og tók annaö sætið.
-JGH