Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1990, Blaðsíða 32
40 MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 1990. Sviðsljós Ólyginn sagði... Brigitte Bardot þótti eitt sinn allra kvenna feg- urst og gjörvallt karlkyniö fékk aðsvif af æsingi ef henni brá fyrir fáklæddri. Bardot hefur á seinni árum barist mjög harkalega fyrir dýravernd af öllu mögulegu og ómögulegu tagi. Síðast komst hún í fréttimar þegar hún lét gelda asna nágranna síns að grannan- um forspurðum. Nú eru það mál- efni sauðkinda sem fylla gömlu konuna heilagri reiði. Franskir mótmælendur slátruðu breskum kindum sem verið var að flytja á fæti til Frans og kveiktu síðan í skrokkunum. Bardot er ævareið og skammar landa sína blóðug- um skömmum og ásakar þá um heigulsskap af verstu sort að ráö- ast á varnarlausar kindur sem eigi sér engan málsvara og geti ekki borið klauf fyrir höfuð sér. Bjöm Borg gamla sænska tenniströllið, sem var að mestu hættur aö keppa, æfir nú sem aldrei fyrr og hyggst snúa aftur á tennisvöllinn með glæsibrag. Borg, sem er 34 ára, hafði safnast mikill auður á tenn- isvellinum. í stað tennisins hefur hann aö undanfórnu fengist við kaupskap og brask af ýmsu tagi. En upp á síðkastið hefur hann verið óheppinn á þeim vettvangi og slegið hvert vindhöggið á fæt- ur öðru. Fréttir herma að skuldir hans nemi 60 milljónum punda og hafi gengið verulega á höfuð- stól auðæfa hans. Borg kann ekk- ert nema að leika tennis og því snýr hann aftur og ætlar að slá í gegn. Nicole Kidman er áströlsk leikkona og örlög hennar eru ráðin. Hún hefur að undanfórnu orðið miklu frægari en hún nokkurn tíma var fyrir leik sinn fyrir að vera trúlofuð stórstjömunni Tom Cruise. Sagt er að Tom hafi fallið fyrir henni þegar hann sá hana leika í tryllin- um Dead Calm og búið í snar- heitum til hlutverk handa henni í nýjustu mynd sinni Days of Thunder. Þessi umtöluðu hjóna- korn stigu örlagaríkt skref, á hinni krókóttu leið sem endar uppi við altarið, þegar Kidman dröslaði Tomma með sér heim til Ástrahu þar sem hann var kynnt- ur fyrir foreldrum hennar. Eins og flestir karlmenn vita er erfitt að snúa við eftir það. Bárður fararstjóri Bárður Bárðarson heitir ungur maður sem leiðist að sitja auöum höndum. Hann býr á sambýli fyrir þroskahefta í Reykjavík. Bárði fmnst gaman að feröast en það er ekkert púður í að ferðast eimr- Hann hefur því í sumar skipulagt upp á eigin spýtur og staðið fyrir tveimur hóp- ferðum fyrir félaga sína. í fyrra skiptið var farið í dagsferð að Gullfossi og Geysi og tóku 40 manns þátt í ferðinni sem þótti tak- ast með miklum ágætum. I byrjun september var svo efnt til berjaferðar í Borgarfjörð. Þegar til kom var veör- ið frekar leiöinlegt svo lítið varð úr berjatínslu en þess í stað var ekið um héraðið meö viðkomu á sögustöð- um eins og Reykholti. Bárður er ekki af baki dottinn held- ur vinnur nú af fullum krafti að und- irbúningi helgarferðar á haustdög- um þar sem gist veröur í sumarhúsi á einhverjum fögrum stað. Bárður Bárðarson fararstjóri í berjaferðinni fyrir framan rútuna í hópi kátra ferðafélaga með nesti. Það er kuldalegur starfi að búa til kvikmynd á íslandi þegar vetur sest snemma að. Þessir leikmunaverðir urðu á vegi Ijósmyndara DV i Straum- svík en þar er unnið að kvikmyndun víkingamyndar fyrir sjónvarp, Hvíta víkingsins undir stjórn Hrafns Gunnlaugssonar. DV-mynd GVA Rushdie skrifar bamabók Rithöfundurinn Salman Rush- die, sem hefur verið í felum síðan Khomeini erkiklerkur í íran hét á alla réttrúaða múslíma aö drepa hann hvar sem til hans næðist, hefur gefið út nýja bók. Viðfangsef- nið er nokkuð annað en í Söngvum Satans því hér er um bamabók að ræða. Bókin heitir Harotm og sagnasjórinn og greinir frá ind- verskum sapaþul sem missir hæfileikana til frásagnar af völdum grimmlynds harðstjóra. Haroun, sonur sagnaþulsins, skorar óvin- inn á hólm, vinnur sigur og endur- heimtir þar með skáldgáfu fóður- ins. Rushdie tileinkar syni sinum bókina. Kollegi Rushdies, Anthony Burg- ess, reit ritdóm um bókina í breska bíaðiö Observer. Þar segir hann að andi Rushdies sé greinilega óbrot- inn þrátt fyrir harðræðið og bókin sé heiUandi og fyndin. Aðrir hafa tekið í sama streng og taliö bókina hoUa lesningu bæði börnum og fuUorðnum. Fjölskylda furstans af Mónakó stillir sér upp fyrir Ijósmyndara í tilefni árlegr- ar skemmtunar sem haldin er til styrktar minningarsjóði Grace furstaynju. Skemmtunin var haldin um borð í snekkju fjölskyldunnar i höfn í New York. Talið frá vinstri: Stefano Casiraghi, eiginmaður Karólínu, Stefanía prins- essa, Karólína prinsessa, Rainier fursti og Albert prins. Ingmar Bergman játar afglöp Hinn þekkti sænski kvikmynda- leikstjóri Ingmar Bergman viður- kennir í óútgefinni ævisögu sinni að fyrsta stórmyndin sem hann gerði á erlendri grund hafi verið afar misheppnuð. Hann kennir um sálarástandi sínu sem hafi á þeim tíma varnað honum að sjá mistök sin. Ævisaga Bergmans heitir Myndir og kemur út í haust en útdrættir úr bókinni hafa birst í sænska blað- inu Dagens Nyheter. Fyrra bindi ævisögu Bergmans, Töfraluktin, kom út 1987. Myndin, sem Bergman þykir svo misheppnuð, hét The Serpents Egg og var gerð í Þýskalandi árið 1977. Bergman taldi sig vera að skapa meistaraverk og lét það ekki á sig fá þótt frægir leikarar á borð við Redford og Hoffman höfnuðu hlut- verkum í myndinni sem hlaut að lokum slaka dóma gagnrýnenda. Árið áður hafði Bergman verið handtekinn heima í Svíþjóð og yfir- heyrður um meint skattamisferh. Sú aðför olli honum hugarangri sem skyggði á dómgreind hans um langa hríð. í kjölfarið reit hann harðort opið bréf til sænskra yfir- valda og settist síðan að í Þýska- landi þar sem hann var í útlegö allt til ársins 1985. Þrátt fyrir meint mistök mun það samdóma álit manna að Bergman sé einn af meisturum kvikmynda- gerðar seinni tíma. Meðal helstu verka hans eru: Myndir úr hjóna- bandi, Fanny og Alexander og Per- sona. Bifreið Saddams Hussein kyrrsett í Ameriku. Bifreið Sadd- ams kyrrsett Viðskiptabann vestrænna ríkja gegn írak hefur meðal annars haft þær afleiðingar að Saddam Hussein forseti er nú án einkabifreiðar sinnar. Eins og þjóðhöfðingja er sið- ur ekur hann milli staða í sérhönn- uðum glæsivögnum. Einn slíkur var sendur til Banda- ríkjanna í yfirhalningu rétt áður en eigandinn blés til ófriðar gegn ná- grönnum sínum í Kúvæt. Drossían var send á sérstakt límúsínuverk- stæði í Michigan þar sem sérfræðing- ar yfirfóru hana. Bifreiðin er af gerðinni Cadillac og vegur fimm tonn. Fullkomin bryn- vörn verndar hana gegn árásum og hægt er að skjóta táragassprengjum úr bifreiðinni ef sótt yrði að far- þegunum. Kerra eins og þessi kostar litla 300 þúsund dollara eða tæpar 17 milljónir íslenskra króna. Hvort Saddam Hussein þarf nú að ferðast á fæti um eyðimörkina er ekki vitað en glæsivagninn hefur verið kyrrsettur í Ameríku og safnar nú ryki í húsakynnum tollgæslunnar þar í landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.