Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1990, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1990, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 1990. 29 Fréttir Hinn nýi bátur Norðfirðinga, Hiifar Pétur. DV-mynd Hjörvar Sigurjónsson Neskaupstaður: Flotinn stækkar Hjörvar Sigurjónsson, DV, Neskaupstað: Fyrir skömmu bættist 63 tonna bát- ur, Hlífar Pétur NK-15, í flota Norð- firðinga. Eigandi bátsins er Saltfang hf. á Neskaupstað. Báturinn er keyptur frá Húsavík og hét áður Skólaberg. Hlífar Pétur er nú á trolli en fer síð- ar á línu. Skipstjóri er Jón Ölver Magnússon. Akranes: Metaðsókn í Fjöl- brautaskólann og Tónlistarskólann Sigurður Sverrissan, DV, Akranesi Metaösókn er að Fjölbrautaskóla ■Vesturlands á Akranesi og Tónlistar- skólanum á Akranesi í haust. Nem- endur við Fjölbrautaskólann eru 580 á haustönn og hafa aldrei verið fleiri. Nemendur við tónhstarskólann eru 220 og hafa heldur ekki verið fleiri. Þórir Ólafsson, skólameistari Fjöl- brautaskóla Vesturlands, sagði í samtali við DV að auk hefðbundins skólahalds ræki skólinn framhalds- deildir í Borgarnesi, á Hellissandi, í Stykkishólmi og Ólafsvík. Um 80 nemendur stunda nám í þessum deildum. Að sögn Lárusar Sighvatssonar, skólastjóra Tónlistarskólans, er nú mestur áhugi á námi í gítarleik en hann sagði píanóið alltaf standa fyrir sínu. Skólinn býr við mikla hús- næðiseklu og fer kennsla fram á fimm stöðum í bænum. Ný vatnsleiðsla á Hvammstanga: Vatnsskorti bægt frá Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki: Miklar vatnsveituframkvæmdir standa nú yfir á Hvammstanga. Fyr- ir um sex vikum var hafist handa um lagningu 11 kílómetra langrar vatnsleiðslu úr lind í Mjóadal, norð- austan kauptúnsins. Kostnaður viö þessar framkvæmd- ir er áætlaður um 17 milljónir króna. Að sögn Hauks Árnasonar, tækni- fræðings Hvammstangahrepps, er um þriðjungi verksins lokið. Vonast menn eftir góðri tíð í haust til að unnt verði að ljúka því verki fyrir veturinn. Þar með yrði vatnsmálum bæjarbúa borgið til langframa. Til þessa hefur á tíðum jaðrað við vatnsskort. „Rigningarnar undanfarið hafa taf- ið fyrir og gert okkur erfiðara með aðdrætti. Þar sem jörð er hvað blaut- ust höfum við þurft að beita sérút- búnum dráttarvélum," sagði Hauk- ur. Þrír verktakar úr röðum heima- manna tóku verkið að sér, pípari, vöruflutningabílstjóri og gröfumað- ur. lUmARIiUfTHÐAEICEnDUR muncmiÐimcno yninnBnnDUR SUZUKI rafstöðvar á verði frá 44.510.- stgr. Vélar & Tæki hf. Tryggvagata 18-121 Reykjavík Sími: 91-21460 - Fax.: 623437 SUZUKI utanborðsmótorar. 10% stgr. afsl. THERI vatnabátar á verði frá 59.778.- stgr. RAÐGREIÐSLUR FARKORT | FÍF Ferðaskrifstofan Saga efnir til sérstakrar hópferðar um Karíbahafið með skemmti- ferðaskipi. Farið verður um Orlando til Miami og siglt þaðan með einu glæsi- legasta skipi heims, Seaward, sem er rekið af norskum aðilum. Siglt verður til Jamaica og Grand Cayman eyja. Svo og Playa del Carmen og Conzumel í Mexíkó. Eftir siglinguna verður boðið upp á dvöl í Flórída. Brottför: 16. febrúar 1991 Heimkoma 4. mars 1991 Nákvæm ferðaáætlun liggur frammi á skrifstofunni. FERDASKRIFSTOFAN Suðurgötu 7 - Sími 624040 FLUGLEIDIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.