Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1990.
Fréttir
24 ára maður í gæsluvarðhaldi vegna stóra bruggmálsins:
Viðurkenndi f ramleiðslu á
hundruðum lítra af landa
- haldlagtááþriðjahundraðþúsundkróna
Sakadómari í Reykjavík úrskurð-
aði í gær 24 ára gamlan mann í
gæsluvarðhald til 1. nóvember vegna
aðildar að stóru bruggmáli sem
komst upp um helgina. Lögreglan
hafði farið fram á varöhald yfir
manninum til 7. nóvember. Maður-
inn er eigandi íbúðar í Teigahverfi í
Reykjavík en þar fundust bruggtæki,
hundruð lítra af áfengi í geijun og
tilbúinn landi við húsleit lögreglu.
Hann hefur við yfirheyrslur játað að
hafa staðið að framleiðslu á hundr-
uðum lítra af landa.
Rannsóknardeild lögreglunnar í
Reykjavík hefur lagt hald á á þriðja
hundrað þúsund krónur í peningum
vegna þessa máls og annarrar brugg-
verksmiðju sem gerð var upptæk í
Garðabæ um helgina. Tveir piltar,
17 og 18 ára gamlir, hafa játað að
hafa staðið að sölustarfsemi á miklu
magni af landa í tengslum við brugg-
verksmiðjuna í Teigahverfi. Fram-
burði þeirra ber hins vegar ekki al-
veg saman við framburð eiganda
íbúðarinnar sem grunaöur er um að
vera höfuðpaur bruggstarfseminnar.
Lögreglan stöðvaði einnig starf-
semi bruggverksmiðju í Garðabæ
um helgina. Þar var 350 lítrum af
ógerjuðu áfengi hellt niður en hald
lagt á bruggtæki. 25 ára gamall mað-
ur viðurkenndi að hafa staðið aö
framleiðslunni en tveir 19 ára piltar
aö hafa selt bruggið. í þessum tveim-
ur málum hefur sölustarfsemin teygt
anga sína um allt höfðuborgarsvæðið
- Reykjavík, Hafnarfjörð, Garðabæ,
Kópavog og Mosfellsbæ. Ljóst er að
í tengslum við þessi tvö mál hefur
mikið magn af áfengi verið selt ungl-
ingum.
Margir foreldrar hringdu til lög-
reglunnar í gær og lýstu þakklæti
sínu fyrir framgöngu hennar við aö
upplýsa sölustarfsemi á þessu ólög-
lega áfengi sem hefur verið í umferð.
Náið samstarf var með foreldrum og
lögreglu við að upplýsa málið. Rann-
sókn málsins verður haldið áfram á
næstu dögum.
-ÓTT
Lögreglan lagði einnig hald á pen-
inga sem tengjast bruggmálunum
tveimur. Á borðinu hjá Pétri liggja
seðlabúnt með samtals á þriðja
hundrað þúsund krónum sem feng-
ust fyrir sölu á landa.
Pétur Sveinsson hjá rannsóknadeild lögreglunnar í Reykjavík við brugg-
tæki og tóma plastbrúsa fyrir landa sem lagt var hald á í íbúðinni í Teiga-
hverfi. DV-myndir GVA
Bruggtækin sem lagt var hald á í Garðabæ.
í dag mælir Dagfari
Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin í
prófkosningum hjá Sjálfstæðis-
flokknum. Nú hafa þeir haft fjögur
prófkjör í jafnmörgum kjördæm-
um og slátrað einum þingmanni í
hverju þeirra. Enda stendur slátur-
tíðin yfir og ekki ráð nema í tíma
sé tekið. Það verður spennandi að
fylgjast með slátrinu í þeim kjör-
dæmunum sem eftir eru.
Guðmundi Garðarssyni var slátr-
að í Reykjavík. Guðmundur er að
vonum sár og vonsvikinn enda veit
hann ekki til þess að hann hafi
gert flokknum mein og enginn var
búinn að vara hann við. Kjósendur
komu aftan aö honum og launuðu
honum dygga þjónustu í áranna rás
með því að sparka honum af þingi.
Guðmundur ætlar að taka sér tíma
til að hugsa sitt ráð enda liggur það
engan veginn ljóst fyrir hvorum
þetta áfall er að kenna, honum eða
flokknum. Hins vegar hafa flokks-
menn hans og sigurvegaramir í
kosningunum verið ósparir á þær
yfirlýsingar að hstinn í Reykjavík
sé sigurstranglegur eftir að Guð-
mundur er dottinn út svo ekki
velkjast þeir í vafa um hver sé
sökudólgurinn. Flokkurinn styrk-
ist sem sagt við brotthvarf Guð-
mundar H. Garðarssonar.
Sláturtíð hjá íhaldinu
Á Suðurlandi feUur Eggert Hauk-
dal niður í þriðja sætið og fær
þannig sparkið sem Ámi Johnsen
var búinn að lofa honum. Eggert
hefur átt í útistöðum viö prestinn
á Bergþórshvoli eins og venja er
fyrir kosningar hjá íhaldinu á Suð-
urlandsundirlendinu. Ekki má þó
gleyma þvi að Eggert var sjálfur
búinn að bjóðast til að taka þriðja
sætið af fúsum og fijálsum vilja og
voru flokksmenn sammála þeirri
sætaröð í prófkosningunni enda
betra að hafa Vestmannaeyinginn
í öruggu sæti svo hann héldi ekki
áfram að egna prestinn gegn þing-
manninum aö óþörfu. Rangæingar
vilja ekki fleiri Njálsbrennur.
A Austfjörðum er Kristinn Pét-
ursson færður niður í þriðja sæti
listans sem er vonlaust sæti fyrir
íhaldið í þessu konungsríki Fram-
sóknar. Kristinn tók sæti Sverris
Hermannssonar þegar Sverrir
gerðist móöur á þingi og flutti sig
yfir í Landsbankann. Kristinn hef-
ur staðið sig vel á þingi og það þyk-
ir ekki vænlegt til árangurs fyrir
sjálfstæðismenn á Austurlandi sem
telja verkalýðsforingjann frá Eski-
firði heppilegri til óláta, saman með
bóndanum frá Seljavöllum. Sverrir
Hermannsson þótti aldrei frið-
semdarmaður á þingi og Austfirð-
ingar vilja frekar að þingmenn
þeirra haldi áfram að bíta í skjalda-
rendur heldur en að þeir standi sig
á þingi.
Á Vestfjörðum var Þorvaldi
Garðari Kristjánssyni slátrað með
bravör. Menn hafa lengi haldið að
Þorvaldur Garðar væri ódauðlegur
á þingi og hann hefur sjálfur staðið
í þeirri trú. Hann ásamt Matthíasi
Bjarnasyni er kominn vel til ára
sinna og hefur meðal annars gegnt
forsetastarfi á alþingi í háa herrans
tíð. Það er mikil tímaskekkja hjá
þeim Vestfirðingum að fella Þor-
vald, úr því þeir ákváðu að hafa
Matthías áfram en Matthías var
sniðugri heldur en Þorvaldur
vegna þess að hann var búinn að
lýsa yfir því aö hann vildi hætta á
þingi. Það geröi Þorvaldur hins
vegar ekki og það varð honum að
falli. Þeir einir ná kosningu sem
vilja hætta en þeir eru látnir hætta
sem ekki vilja hætta. Þessi er mun-
urinn þegar sláturtiðin gengur yfir
og Þorvaldur Garðar má bíta í það
súra epli að tapa í kosningum að
því hann vildi ekki hætta.
Hinn almenni kjósandi sleppur
þannig við að fella þá út af listum
Sjálfstæöisflokksins sem flokkur-
inn vill ekki hafa á þingi. Það eru
sem sagt stuöningsmennirnir sjálf-
ir sem setja rýtinginn í bakið á sín-
um eigin þingmönnum í staö þess
að láta andstæðingana um það.
Þetta er almennilegt af flokknum,
bæði gagnvart kjósendum í alþing-
iskosningum, sem og þingmönnun-
um sjálfum sem vaða í þeirri villu
að fólk úr öðrum flokkum sé þeirra
aðalóvinir. Annað kemur á daginn
sem sýnir og sannar þá gömlu
kenningu að maður eigi að varast
vini sína meir heldur en óvini sína.
Pólitískir andstæöingar Sjálf-
stæðisflokksins hafa verið að halda
því fram að þinglið flokksins sé lé-
legt. Sjálfstæðismenn hafa viður-
kennt þessar fullyrðingar með því
að efna til blóðugrar sláturtíðar.
Dagfari