Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1990. Félagar í Skipstjóra- og stýrimannafélaginu Kára Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FFSÍ og LlÚ fer fram daglega á skrifstofu Sjómannafélags Hafnar- fjarðar, Strandgötu 11, frá kl. 9-16 til föstudagsins 2. nóv. 1990. Öll gögn varðandi samninginn liggja frammi á skrifstofunní. Skipstjóra- og stýrimannafélagið Kári FÆÐU- SAMTÖK GECN ASTMA OG OFNÆMI OFNÆMI Fræðslufundur um fæóuofnæmi veróur haldinn í Múlabæ, Ármúla 34,3. hæð, á morgun, miövikudaginn 31. október, kl. 17. Björn Árdal læknir, sérfræðingur í of næmissjúk- dómum barna, heldur erindi og svarar fyrirspurn- um. Kaffiveitingar. Allt áhugafólk er velkomió á fundinn.-Athugiö breyttan fundartíma. SAMTÖK GEGN ASTMA OG OFNÆMi Bílasalan Borgarbíllinn Höfðatúni 10 - í hjarta borgarinnar Sími 622177 Toyota Corolla XL, árg. '88, ekinn 30 þ. km. Verð 750 þús. Toyota Tercel árg. ’84, ekinn 91 þ. km. Verð 345 þús. Vantar allar gerðir bíla á skrá og á staðinn. Bílasalan Borgarbíllinn Honda Civic, árg. ’89, ekinn 26 þ. km. Verð 850 þús. Opel Kadett, árg. ’86, ekinn 47 þ. km. Verð 490 þús. MMC Galant GLS 2000, árg. ’86, ekinn 68 þ. km. Verð 690 þús. Seat Ibiza, árg. ’86, ekinn 73 þ. km. Verð 330 þús. Uflönd í Frakklandi ríkir mikill fögnuður með að fjöldi Frakka, sem innlyksa varð í Irak og Kúvæt, er nú kominn heim. I nótt komu gíslarnir til Rossy-flugvallar við París þar sem ættingjar þeirra fögnuðu þeim. Símamynd Reuter Öryggisráðið tekur harðari afstöðu til íraka: Saddam á engar undankomuleiðir - dómur fyrir stríðsglæpi bíður þótt hann fari frá Kúvæt en mörg ríki, sem eiga fulltrúa í ráð- inu, töldu ekki rétt að loka þannig í reynd leiöum fyrir friðsamlegri lausn málsins. Eftir ályktun Öryggisráðsins eru kostir Saddams í fáir. Hann sleppur ekki frá málinu með því einu að draga her sinn frá Kúvæt því Banda- ríkjamenn virðast staðráðnir í að hann sleppi ekki án eftirmála. Sovétmenn reyna enn að finna frið- samlega lausn á málinu og hefur Gorbatsjov sent Primakov, sérlegan sendimanna sinn, í aðra för til íraks í von um að hann geti talið Saddam á að draga her sinn til baka. Prima- kov var svartsýnn eftir fór sína en Gorbatsjov túlkaði niðurstöðuna þannig að enn væri möguleiki á því sem hann kallaði „arabíska lausn“. Saddam reynir enn að friðmælast við Frakka og eru nú fjölmargir gísl- ar komnir heim til Frakklands. Svo viröist sem Saddam bindi vonir við að Francois Mitterrand geti miðlað málum á endanum þótt Frakklands- forseti hafi ekki tekið undir fagur- gala leiðtoga íraks. Reuter Sænskir þingmenn í Bagdad: Vonast eftir viðtali við íraksforseta Bandaríkjamenn hafa enn varað Saddam Hussein viö aö þolinmæði þeirra sé á þrotum og að senn verði ekki bjá því komist að beita hervaldi til að hrekja íraka frá Kúvæt. írak James Baker hefur varað Saddam Hussein við að þolinmæði þjóða heims sé á þrotum. Simamynd Reuter hefur nú verið nánast í herkví í þrjá mánuði. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að Saddam þyrfti ekki að velkjast í vafa um að Bandaríkjamenn gætu þurft að taka Kúvæt með hervaldi fyrr eða síðar. „Saddam Hussein verður að gera sér ljóst að það eru takmörk fyrir þolin- mæði þjóða heims,“ sagði Baker í yfirlýsingu. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun þess efnis að írakar verði látnir svara til saka fyrir stríðsglæpi í Kúvæt og þeim veröi óhjákvæmilega gert aö greiöa stríðsskaðabætur fyrir það tjón sem þeir hafa valdið Kúvæt. Saddam var í viðtah hjá sjónvarps- stöðinni CNN í gær og gaf þá ekkert í skyn sem benti til að hann ætlaði aö draga her sinn frá Kúvæt. Álykt- un Öryggisráðsins taldi hann þar engu breyta. Treglega gekk að fá ályktunina samþykkta í Öryggisráöinu. Banda- ríkjamenn lögðu mikla áherslu á aö þrengja enn að Saddam með því að hóta honum dómi fyrir stríðsglæpi Sendinefnd sænskra þingmanna í írak hafði í gær enn ekki fengið til- kynningu um hvort hún fengi að hitta Saddam Hussein íraksforseta að máli. Sendinefndin hefur nú verið í viku í írak og hefur hún átt viðræð- ur við upplýsingaráðherra, heil- brigðismálaráðherra, aðstoðarfor- sætisráðherra, aðstoðarutanríkis- ráðherra og aðstoðariðnaðarráð- herra landsins. Hafa sænsku þingmennirnir lagt á það áherslu að þeir eigi erfitt með að skilja aö frönskum gíslum skuli vera sleppt þar sem frönsk yfirvöld hafi sent hermenn til Persaflóasvæð- isins en Svíum frá hlutlausu landi skuli vera haldið um kyrrt. í viðræöunum við íraska heilbrigö- ismálaráðherrann bauðst sendi- nefndin tii að ræöa við Rauða kross- inn í Sviþjóð og aðrar hjálparstofn- anir um möguleikana á að senda lyf til íraskra bama. Bíður néfndin nú eftir lista frá heilbrigöisráðuneytinu. Sendinefndin hefur frestað fór sinni frá Bagdad nokkrum sinnum en gerir nú ráö fyrir að fara frá Bagdad á morgun. Norðmenn eru sagðir vera að skipuleggja för þriggja fyrrverandi stjórnmálamanna til íraks til að reyna aö fá látna lausa norska gísla. Heimildarmenn Arbeiderbladet segja að stjórnmálamennirnir muni ekki verða fulltrúar norskra stjórn- valda. Sjö Norðmenn í Bagdad og einn í Kúvæt hafa ekki fengið fararleyfi. Auk þess er þremur starfsmönnum sendiráðsins í Kúvæt meinað að fara fráBagdad. TTogNTB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.