Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Qupperneq 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1990.
Útlönd
Kjamorkutilraunlr Sovétinanna á Novaja Zemlja:
Fulltrúar Norðurlanda
fá að rannsaka svæðið
- greinilegt sundurlyndi í Sovétríkjunum um stefnuna í kjamorkumálum
Sendiherrar Norðurlandanna
fimm í Moskvu hafa fengið vilyrði frá
Viktor Karpov, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, um að
senda sérfræðinga til að láta rann-
saka svæðið þar sem Sovétmenn hafa
verið að gera tilraunir með kjam-
orkuvopn á heimskautaeyjunum
Novíóa Zemlja.
Sovétmenn sprengdu þar kjarn-
orkusprengju neðanjarðar í síðustu
viku en höfðu þá ekki gert tilraunir
með kjamorkuvopn í heilt ár. Áður
höfðu komið vísbendingar frá Sovét-
ríkjunum um að þau hygðust hætta
öllum tilraunum með kjamorku-
vopn. Skyndilega varð breyting þar
á og hafa háttsettir aðilar innan sov-
éska stjómkerfisins gefið í skyn að
valdabarátta í Krem hafi valdið því
að herinn ákvað að ganga þvert gegn
vilja Gorbatsjovs forseta.
í Æðsta ráöinu hafa komið fram
mótmæh við frekari tilraunum með
kjamorkuvopn og hafa fulltrúar frá
norðurhémðunum sagt að spreng-
ingin síðasta miðvikudag hafi verið
móðgun við friðarverðlaunahafann
Gorbatsjov. Nikolaj Vorontsov her-
málaráðherra hefur viðurkennt aö
Gorbatsjov hafi ekki veriö látinn vita
af því fyrir fram að gera ætti tilraun-
ina.
Einn fulltrúi í Æðsta ráðinu hefur
fullyrt að sprengingin hafi enga
hemaðarlega þýðingu og sé aðeins
hluti af valdataflinu innanlands.
Þessi maður segir að öU kjamorku-
vopn Sovétmanna séu svo þraut-
reynd að enga þýðingu hafi að
sprengja eina sprengju í viðbót. Hins
vegar Uki yfirmönnum hersins ekki
hve staða Gorbatsjovs er orðin sterk
á alþjóðavettvangi og þeir vilji koma
honum í bobba þar.
Þá hefur verið bent á að aðilar inn-
an hersins hafi ekkert á móti því
þótt sambandið milU Gorbatsjov og
þings Rússlands versni. Á rússneska
þinginu ræður Boris Jeltsín lögum
og lofum en deilur við hann hafa
verið eitt erfiðasta vandamál Gor-
batsjovs á undanfömum mánuðum.
Novaja Zemlja er á landsvæði Rúss-
lands og sprengingin hefur mætt
andstöðu þar.
Mönnum sem til þekkja þykir þó
sýnt aö hernum verði ekki kápan úr
því klæðinu að spUla fyrir Gor-
batsjov því hans menn hafi þegar
eftir sprenginguna talað opinskátt
um að hún hafi verið Uður í valda-
baráttu inna Kremlarmúra. Gor-
batsjov hafi því þegar tekist að bjarga
sínu skinni en herinn sitji uppi með
alla skömmina.
TT
Indland:
Blóðugur
bardagi í
þrjá klukku-
tíma
Mörg þúsund hindúar reyndu í
morgun að brjóta sér leið fram hjá
öflugum herverði að mosku músUma
í bænum Ayodhya. Til harðra átaka
kom og er vitað að fjöldi manna
særðist. Áhlaupinu var hmndið en
þó er búist við að aftur eigi eftir að
sjóða upp úr.
Hindúar vfija að moskan verði rifin
og ætla sér aö byggja eigið hof á þess-
um sama stað. Herinn skaut gúmmí-
kúlum að árásarmönnunum og beitti
táragasi. Sagt er að slagurinn hafi
staðið í fufia þrjá klukkutíma og eru
þetta einhver alvarlegustu átök trú-
arhópa á Indlandi í langan tíma.
Hindúamir fóm í nokkram hópum
og vom menn vopnaðir. Herinn varð
þvi að bregðast við nýjum og nýjum
áhlaupum en tókst að veijast í öll
skiptin. TaUð er að um 250 þúsund
hermenn hafi í aUt verið kaUaðir út
tU að gæta moskunnar og fleiri voru
ÍVÍðbragÖSStÖðu. Reuter
Mikill fjöldi hermanna hefur verið kallaður út til að verja mosku i bænum Ayodhya á lndlandi. Hindúar vilja rífa
hana niður og byggja hof. Simamynd Reuter
Hungrað tígrisdýr
gómaði strokuf anga
Hungrað tígrisdýr gómaði inn í frumskóginn. Þar með var
strokuíanga í Indónesíu með því hremmingum hans alls ekki lokið
að hrekja hann upp í tré. Þar mátti því á vegi hans varö hungrað tígris-
fanginn dúsa í tvo daga áöur en dýr. Kennarinn greip tíl þess ráös
hann gafst upp á frelsinu og gaf sig aö kUfra upp i tré en tígrisdýrið
íram. beið rólegt í tvo daga áður en það
Strokufanginn telst að vísu ekki gafst upp.
tU stórglæpamanna. Hann er kenn- Kennarinn var hins vegar oröinn
ari um fertugt og hefur undanfarin það svangur eftir biöina í trénu að
ár kennt í þeim hluta landsins þar hann ranglaði aö næsta húsi og bað
sem fólk er múhameðstrúar. Kenn- um mat. Hann var hins vegar svo
arinn braut það af sér aö strjúka óheppinn aö í húsinu bjó lögreglu-
með einum nemenda sinna. þjónn sem þegar bar kennsl á
Okkarmaðurnáðistogvarsettur manninn og færði hann í fanga-
í fangelsi. Ekki undi hann vistinni geymslurnar á ný;
þar og tókst aö brjótast úr og flýja Reuter
Ferðabann í ísrael
Nauðungaruppboð
þríðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Austurberg 28, íb. 02-01, þingl. eig.
Lálja G. Valdimarsdóttir, fer fram á
eigninni sjálfri fimmtud. 1. nóv. ’90
kl. 16.30. Uppboðsbeiðendur eru Jón
Þóroddsson hdl. og Kristinn Hall-
grímsson hdl.
Bragagata 16, 2. hæð, þingl. eig. Þur-
íður Hauksdóttir, fer fram á eigninni
sjálfri fimmtud. 1. nóv. ’90 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan
í Reykjavík, Veðdeild Landsbanka
íslands, tollstjórinn í Reykjavík og
Ólafur Gústafsson hrl.
Eldshöfði 12, þingl. eig. Sigurður Sig-
urðsson, fer fram á eigninni sjálfri
fimmtud. 1. nóv. ’90 kl. 18.00. Uppboðs-
beiðendur eru Gjaldheimtan í Reykja-
vík og Iðnlánasjóður.
Funahöfði 17, þingl. eig. Entek á ís-
landi hf., fer fram á eigninni sjálfri
fimmtud. 1. nóv. ’90 kl. 17.30. Uppboðs-
beiðendur em Ólafur Gústafsson hrl.,
Gjaldheimtan í Reykjavík, Guðríður
Guðmundsdóttir hdl., Klemens Egg-
ertsson hdl., Guimar Jóh. Birgisson
hdl., Fjárheimtan hf., Iðnþróunarsjóð-
ur og Garðar Briem hdl.
Glaðheimar 18, hluti, þingl. eig. Jó-
hann Hallvarðsson, fer fram á eign-
inni sjálfri fimmtud. 1. nóv. ’90 kl.
17.00. Uppboðsbeiðendur em Gjald-
heimtan í Reykjavík, Skúli J. Pálma-
son hrl., Landsbanki Islands, Guðjón
Ármann Jónsson hdl., Ólafur Bjöms-
son, hdl., Baldur Guðlaugsson hrl. og
Ásgeir Thoroddsen hrl.
Gullteigur 4,1. hæð, suðurendi, þingl.
eig. Jón Elíasson, fer fram á eigninni
sjálfri fimmtud. 1. nóv. ’90 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er Tryggingastofii-
un ríkisins.
Tjamargata 39, 3. hæð og ris, þingl.
eig. Jóhanna S. Pálsdóttir, fer fram á
eigninni sjálfri fimmtud. 1. nóv. ’90
kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur em
Landsbanki íslands, Gjaldheimtan í
Reykjavík, Veðdeild Landsbanka ís-
lands, Tómas H. Heiðar lögfr. og Guð-
jón Ármann Jónsson hdl.
Tómasarhagi 9, ris, þingl. eig. Hólm-
fríður Hulda Mariasdóttir, fer fram á
eigninni sjálfri fimmtud. 1. nóv. ’90
kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur em
Gjaldheimtan í Reykjavík og Lands-
banki íslands.
BORGARFÓGETAEMBÆTH) í REYKJAVÍK
Stjóm Israels hefur hert skilyrðin
fyrir því að Palestínumenn fái að
ferðast um herteknu svæðin á vest-
urbakka Jórdanar og Gazasvæðinu.
Þetta er gert til að koma í veg fyrir
síendurteknar árásir Palestínu-
manna á gyðinga.
Moshe Arens, varnarmálaráðherra
ísraels, ákvað þetta eftir fund með
yfirmönnum hersins. Þá var því lýst
að ekki yrði hikað viö að fangelsa
Palestínumenn sem brytu gegn
ákvörðuninni.
Reuter
stæðinga sína um víðtæk kosn-
ingasvik. Símamynd Reuter
Pakistan:
stuðning
franskrarsendi-
nefndar
Frönsk sendinefnd lögfræöinga
og dómara hefur tekið undir
ásakanir Benazirs Bhutto um að
víðtæk kosningasvik hafi verið
höfð í frammi við kosningamar í
landinu. Benazir galt þá afhroð
en hefur sagt að stjórnarflokkur-
inn hafi með brögðum komið í
veg fyrir sigur hennar.
Aður hefur alþjóðleg sendi-
nefnd gefið út að kosningasvik
hafi ekki verið umtalsverö og
engan veginn sé hægt aö rekja
ósigur Benazirs til brota á kosn-
ingalögum landins. Hins vegar
séu reglur um kosningar ófull-
komnar og hljóti að vekja efa-
semdir um heilindi þeirra sem
skipuleggja kosningarnar.
Þaö hefur vakið grunsemdir að
stjómarflokkurinn fékk litlu
fleiri atkvæöi en flokkur Benaz-
irs en þó helmingi fleiri þingsæti.
Svo virðist sem stjórnarflokkur-
inn hafi í mörgum kjördæmum
farið naumlega með sigur af
hólmi og telja frönsku nefndar-
mennirnir að flokknum hafi ver-
ið tryggður sigur meö „viðbótar-
atkvæðum“ sem bætt hafi verið
við kjörgögnin.
Benazir hefur neitað að viður-
kenna úrslitin og líkir þeim við
rán um hábjartan dag. „Pakist-
anska þjóðin hefur verið svikin,“
sagði Benazir í ræðu í gær. „Þeir
hafa rænt okkur frelsinu rétt eins
og þeir hafa stohð atkvæðunum."
Áfstaða frönsku sendinefhdar-
innar er greinilega mun harðari
en þeirrar alþjóðlegu og er álit
Frakkanna fyrsti stuðningurinn
sem Benazir fær á alþjóðavett-
vangi við ásökunum sínum um
kOSnÍngaSVÍk. Reuter
Þýskaland:
Kommúnistarí
skuggaljár-
málahneykslis
Gamli kommúnistaflokkurinn í
Austur-Þýskalandi reynir nú allt
til að ná hylli landa sinna þrátt
fyrir að flokkurinn verði aö bjóða
fram í skugga mikils fiármála-
hneykslis og að honum sé öðrum
freraur kennt um hvernig komið
er í efnahagslífi landsins.
Flokkurinn býður fram í
landinu öUu undír nafni lýðræð-
islegs sósíalisma en nafniö eitt
dugar ekki til að breyta imynd
flokksins. í gær efhdi fiokkurinn
til mikillar kosningahátíðar i
íþróttahöllinni í Cologne þar sem
boðið var upp á rokktónlist í
bland við pólitíkina.
Þaö reynist þó flokknum þyngst
í skauti í kosningabaráttunni aö
grunur leikur á að flokksmenn
hafi reynt að koma um 100 millj-
ónum marka af gömlu flokksjóö-
unum úr landi. Fyrir þetta verða
leiðtogar flokksins að svara i
kosningabaráttunni og gengur að
vonum illa.
Fjármálahneyksiið virðist ætla
að draga aö sér alla athyglina á
upphafsdögum kosningabarát-
tunnar en kosningar verða
haldnar í byrjum desember.
Reuter