Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1990.
23
M. Benz 307 D, árg. '86, til sölu,
ur, ekinn 103 þús. km, nýsprautaður,
fallegur bíll, verð 1200 þús. + Vsk,
góður staðgreiðsluafsláttur, skulda-
bréf kemur til greina. Einnig M. Benz
200, árg. ’83, fallegur og góður bíll.
Upplýsingar í síma 91-618899.
Saab turbo '86 m/öllu tll sölu, ekinn 283
þús. Góður bíll. Gangverð 1.100 þús-
und. Verð 680 þúsund. Uppl. hjá Aðal-
bílasölunni, sími 91-15014 og í síma
91-30565 eftir kl. 19.
Tilboð óskast. M. Benz 16-19, með 8 m
langan flutningskassa, ekinn ca 60
þús. á vél, heildarakstur bílsins er 330
þús., bíll í ágætu standi. Upplýsingar
í síma 985-29106 eða 91-53107.
Camaro Berlette, árg. ’84, til sölu, eklnn
31 þús. mílur. Uppl. á Bifreiðasölu ís-
lands, Bíldshöfða 8, sími 91-675200.
Smáauglýsingar
Tll sölu einstakur bfll. Dodge Aspen,
’79, sami eigandi frá upphafi, ekinn
aðeins 98 þús. km, skoðaðin- ’91, mjög
fallegur bíll sem á mikið eftir. Verð
240 þús., 200 þús. staðgreitt. Uppl. í
síma 91-657075.
f
■ Ymislegt
LJÓSRITUNARVÉLAR
Notaðar - nýjar.
Höfum til sölu nokkrar góðar, notaðar
ljósritunarvélar. Hafðu samband eða
líttu inn. Optima, Ármúla 8.
■ Líkamsrækt
Fótbolti, körfubolti, blak, skallatennis,
badminton -o.fl. Eigum nokkra tíma
lausa í íþróttasalina um helgar og fyi"
ir kl. 17 virka daga. Tilvalið fyrir
vaktavinnu- og skólafólk. Ath. mán-
aðarkort í tækjasal á aðeins 1900 kr.
Góður leiðbeinandi. Námskeið í leik-
fimi byrjar 1. nóvember og 1. desemb-
er, verð 3500 kr. Góður kennari.
Gullsport, Stórhöfða 15, s. 672270.
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast
fyrir kl. 17
föstudag!!!
27022
Skák
Kasparov heillum horfínn í áttundu
skákinni:
Karpov sneri
taflinu við
í tímahraki
- og á vinningsmöguleika í biðstöðunni
Heimsmeistarinn Garrí Kasp-
arov náði öruggu frumkvæði í átt-
undu einvígisskákinni við Karpov
í New York. Þar að auki lenti
Kcupov í tímahraki - átti aðeins
flmm mínútur á síðustu þrettán
leikina. En atburðarásin var hreint
ótrúleg. Þrátt fyrir tímaleysi sá
Karpov við öllum hótunum heims-
meistarans og tók peð sem að hon-
um var rétt. Er fjörtíu leikja mörk-
Skák
Jón L. Árnason
unum var náð voru vonbrigöi Ka-
sparovs greinileg. Hann lét fallast
niður í sætið og huldi andhtið í
höndum sér. Hann gæti sloppið
með jafntefli í biðstöðunni þrátt
fyrir algjört hrun á lokamínútun-
um. En margt bendir þó til þess að
Karpov vinni og nái þar með vinn-
ingsforskoti í einvíginu.
Með síðustu tveimur skákum
hefur einvígið algjörlega breytt um
stefnu. Karpov vann sinn fyrsta
sigur í sjöundu skákinni eftir afar
slaka taflmennsku heimsmeistar-
ans og nú er hann enn „móralsk-
ur“ sigurvegari, burtséð frá því
hvemig taflinu lyktar. í krappri
vöm og með tímann að íjara út
hugðu fáir honum líf.
„Sérfræðingar“ í New York
höfðu á orði að skákin í nótt hefði
fyrst og fremst einkennst af tauga-
stríði. Slaka taflmennsku Ka-
sparovs í tímahraki Karpovs skýra
þeir með því að hann hafi einfald-
lega „farið á taugum“. Stórmeistar-
inn Maxim Dlugy, sem jafnframt
er forseti bandaríska skáksam-
bandsins, sagði Kasparov verða að
fara að stilla sig. Flestir voru gátt-
aðir á því hve skákin tók óvænta
stefnu.
Enn tefldu þeir spænskan leik og
í tólfta leik bryddaði Kasparov upp
á nýbreytni frá sjöttu skákinni.
Karpov var við öllu búinn og
braust fram á miðborðinu tveimur
leikjum síðar. Kasparov lagðist þá
í þunga þanka - hugsaði í 45 mínút-
ur um stööuna. Honum tókst að
greiða úr flækjunum og fljótlega
varð ljóst að Karpov átti erfiða
vörn fyrir höndum. Það var með
ólíkindum hvað honum tókst að
þvælast fyrir í tímahrakinu og
hann var einnig maður til þess að
grípa tækifærið þegar það gafst.
Biðstaðan verður tefld áfram í
kvöld og nótt.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
RfB 5. 6-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8.
c3 0-0 9. h3 Rd7 10. d4 BfB 11. a4 Bb7
12. Be3
Sama afbrigði er til umræðu og í
sjöttu skákinni en nú breytir Ka-
sparov út af. Þar tefldist 12. cixb5
axb5 13. Hxa8 Dxa8 14. d5 Ra5 15.
Bc2 Rc4! og Karpov fékk mjög fram-
hærilega stöðu. Kasparov hefur
undirbúið aðra leikaðferð en
Karpov er bersýnilega við öllu bú-
inn.
Garrí Kasparov heimsmeistari á í vök að verjast gegn Karpov.
Reutermyndir
12. - Ra5 13. Bc2 Rc4 14. Bcl d5!?
I * X*
iii
i i.
i ii
A % A A
A £> A
A Jt A A
a M
ABCDEFGH
Síðasti leikur Karpovs er vafalítið
árangur heimavinnunnar - hann
tefldi fyrstu leikina a.m.k. hratt og
ákveðiö. Þetta virtist koma Ka-
sparov í opna skjöldu sem velti nú
vöngum um næsta leik í 45 mínút-
ur. Staðan er auðug af möguleik-
um. Kasparov finnur leið sem
tryggir honum að þvi er virðist
varanlegt frumkvæði.
15. dxe5 Rdxe5 16. Rxe5 Rxe5 17.
axb5 axb5 18. Hxa8 Dxa8 19. f4 Rg6
20. e5 Bh4 21. Hfl
Svartur sýnist ekki öfundsverður
af stöðunni. Fjögur peð hvíts gegn
þremur á kóngsvæng tryggja hon-
um góða sóknarmöguleika í mið-
taflinu. Umframpeð svarts á
drottningarvæng nýtist honum
helst í endatafli en þangað er enn
langur vegur. Það er athyglisvert
að sjá hvemig Karpov teflir vörn-
ina. Hann flýtir sér ekki að reyna
að ná gagnfærum með c7-c5 heldur
leitar fyrst eftir uppskiptum.
21. - Be7 22. Rd2 Bc5 + 23. Kh2 d4
24. De2 dxc3 25. bxc3 Hd8 26. Re4
Ekki 26. f5? vegna 26. - Rxe5! og
riddarinn er friðhelgur vegna 27. -
Bd6 og leppar drottninguna.
26. - Ba3! 27. Bxa3 Bxe4
Karpov átti nú aðeins fimm mín-
útur eftir af umhugsunartíma sín-
um og því er eðlilegt að hann reyni
að einfalda taflið. En staða Ka-
sparovs er sterk.
28. Dxe4 Dxa3 29. f5 Re7 30. Dh4
E.t.v. ekki besti leikurinn. Svara
mátti 30. f6 með'30. - Rg6 en staðan
býður upp á ýmsa aðra möguleika.
30. - f6!
Þrátt fyrir mikið tímahrak finnur
Karpov nú ætíö besta leikinn. Nú
stöðvar hann skriö hvítu peðanna
og lokar biskupslínunni endanlega.
Ef 31. exfB, þá 31. - Dd6+ og nær
peöinu aftur.
31. Dg3 Kf8! 32. Khl
Kasparov gat unnið peð með 32.
exfB gxfB 33. Dxc7 en eftir 33. -
Dd6+ 34. Dxd6 Hxd6 ætti svartur
að halda jafntefli án teljandi erf-
iðleika. Karpov hefur tekist að
halda stöðunni saman, þótt færi
hvíts verði vissulega enn að telja
betri.
32. - Dc5 33. exffi gxf6 34. Bb3 Rd5
35. Dh4(?)
Upphafið að feigðarflani. Hættu-
legri möguleiki virðist 35. Hdl c6
36. Hd4!? með hugmyndinni að
sveifla hróknum yfir á g-línuna.
með drottninguna til stuðnings.
35. - Kg7 36. Hdl c6 37. Hd4??
Ótrúleg yfirsjón. Betra er 37. Hd3
en nú er hætt við að staða Karpovs
sé orðin nægilega styrk.
37. - Dxc3 38. Hg4+ Kh8 39. Bxd5
Dal+ 40. Kh2 De5+
Hér fór skákin í bið og lék Kasp-
arov (hvítt) biðleik, enda stendur
kóngur hans í skák. Eftir 41. Hg3
cxd5 (en ekki 41. - Hxd5?? 42. Dg4
með máthótunum á g7 og g8) 42.
Dg4 De7 hefur Karpov náð að bægja
hættu frá og á peði meira. En þrátt
fyrir að staða heimsmeistarans
fyki út í veður og vind á síðustu
mínútunum er ekki útilokaö að
hann sleppi með jafntefli.
-JLÁ