Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1990, Side 25
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1990.
25
DV
Ólyginn
sagði...
David Cassidy
hefur tekist aö brúa kynslóðabil-
iö. Þessi sætabrauðsdrengur, sem
söng sig inn í hjörtu almennings
fyrir tæpum 20 árum með vellu-
legum ástarsöngvum og lék í
sjónvarpsþáttunum um
Partridge fjölskylduna, sem var
sá allra lummulegasti, hefur nú
gefið út nýja plötu. Að þessu sinni
reynir hann að höfða til unglinga
nútímans með fáguðu þunga-
rokki. Ef marka má amerísk slúð-
urblöð þá hefur honum tekist
það. Það sem er fróðlegt er að
Davíð lítur nákvæmlega eins út
og hann gerði fyrir tveimur ára-
tugum. Slíkt er ekki hægt nema
með annaðhvort engilhreinu líf-
erni eða andlitslyftingum. Hvorn
kostinn Dabbi hefur valið er vont
að segja en trúlega hefur hann
lagst undir hnííinn og fómað
nokkrum fellingum.
Penelope Ann Miller
er ung og upprennandi leikkona
sem meðal annars gefur aö líta í
nýrri kvikmynd í Stjömubíói þar
sem hún leikur dótfur mafíósans
sem leikinn er af Marlon Brando.
Eins og fleiri ungir leikarar var
hún nokkuð taugaóstyrk yfir þvi
að þurfa að leika á móti lifandi
goðsögn sem var að springa úr
spiki í þokkabót. Hún segir að
þetta hafi verið afar skemmtileg
reynsla og Brando hafi kennt sér
eina haldgóða brellu. Það er að
þykjast svelgjast á eða fá skyndi-
legt hóstakast ef maður gleymir
textanum. Þá er ráðrúm til þess
að'rifja upp textann eða ná sam-
bandi við hvíslarann. Auk þess
fullyrti Brando að leikstjórar
væru ávallt hrifnir af dramatísk-
um hósta.
HenryThomas
varð svokölluð barnastjarna þeg-
ar hann lék í fjölskyldumyndinni
um E.T. geimbúann góðlega sem
minnti á vanskapaðan frosk.
Thomas er nú 18 ára gamall óg
hefur heldur betur söðlað um í
hlutverkavali sínu því hann fer á
kostum í kvikmyndinni Psycho
IV en óprúttnir peningamenn eru
langt komnir með að gera þetta
gamla meistaraverk Hitchcocks
að einhvers konar endaleysu í
formi framhaldsmynda. Thomas
er brattur yfir sínum hlut og seg-
ir að ungar stúlkur fái í hnén á
stefnumótum þegar hann segi
þeim frá morðum sem hann hefur
framið á hvíta tjaldinu.
Sviðsljós
Fnrðuverk á Kjarvalsstööum
Nú stendur yfir sýning á Kjarvals-
stöðum á verkum Brynhildar Þor-
geirsdóttur myndhöggvara. Bryn-
hildur er búsett í Bandaríkjunum og
sýnir samlöndum sínum skúlptúra
úr gleri, steinsteypu og hrosshári.
Verkin líkjast oft einhverjum stein-
runnum dýrum eða furðuverkum.
Fjölmenni var að vonum við opnun
sýningarinnar enda telst hún til
stærri listviðburða.
wm
Eins og hvað er þetta eiginlega?
DV-myndir Brynjar Gauti
i:; ;•
> ílltll.'i
A myndinni má meðal annars þekkja Arna Bergmann ritstjóra.
Neita að framselja
dóttur Brandos
Frönsk yfirvöld neita að fram-
selja Cheyenne Brando, dóttur
leikarans góðkunna, til Bandaríkj-
anna svo að hún geti borið vitni í
morðmáh sem höfðað er gegn hálf-
bróður hennar. Cheyenne dvelst á
Tahiti sem er frönsk nýlenda en
réttarhöldin fara fram í Kalifomíu.
Hún er franskur ríkisborgari.
Christian Brando er ákærður fyr-
ir að hafa skotið til bana Dag Drol-
let, heitmann hálfsystur sinnar.
Hann hefur lýst sig saklausan en
segir skot hafa hlaupið úr byssunni
þegar hann og Drollet tókust á.
Arnarflug sáluga hélt árshátið sína á dögunum eins og ekkert hefði í skor-
ist en félagið hefur nú verið tekið til gjaldþrotaskipta. Á myndinni sjást
Kristinn Sigtryggsson framkvæmdastjóri og Geir Gunnarsson stjórnarfor-
maður spá í bolla af kaffi. DV-mynd Brynjar Gauti
Ingerborg Kolseth er Ijóshærð og
bláeyg. Símamynd Reuter
Ungfrú
Iille-
hammer
Þessi íturvaxna blondína frá Lille-
hammer er framlag frænda okkar
Norðmanna til alþjóölegrar kven-
legrar fegurðar. Þessa stúlku kusu
þeir þá fegurstu í Noregi og ætlar
hún því að etja kappi við aðrar feg-
urðardísir heimsins um titilinn feg-
ursta kona heims..
Frökenin heitir Ingerborg Kolseth
og er ljóshærð með blá augu. Hún
er fimm fet og tíu þumlungar á hæð
og leikur á fiðlu í frístundum sínum
en starfar í gestamóttöku. Á mynd-
inni er hún á heimaslóðum í Lille-
hammer en þar eiga næstu vetrar-
ólympíuleikar að fara fram.
Allsberir kúnnar
Hljómplötuverslun í Melbourne í
Ástralíu datt niður á óvenjulega að-
ferð til þess að laða til sín viðskipta-
vini á dögunum. Hún lofaði, hverjum
þeim sem treysti sér til þess að
spranga nakinn um búðina og
gramsa, ókeypis tímum í stúdíói.
Þeir voru talsvert margir sem tóku
kaupmennina á orðinu og vöppuðu á
fæðingarfótunum um verslunina
öðrum til augnayndis og sjálfum sér
til framdráttar.
Naktir kunnar í verslun í Melbourne.
Símamynd Reuter
Bush í hundana
Þrátt fyrir hugsanlegan Flóabar-
daga á Persaflóa gefur önnum kafinn
forseti Bandaríkjanna sér tíma til
þess að bregða á leik með ferfættum
vinum. Forsetahjónin eiga nokkra
hreinræktaða hunda og er ættmóðir-
in Millie eflaust þeirra þekktust en
hún komst á síður heimspressunnar
í fyrra þegar jiún fann moldvörpu í
garði Hvíta hússins.