Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1990.
Fréttir
íslendingar eru í
f immtánda sæti
íslendingar eru í 15. sæti yflr mestu
fiskveiöiþjóðir heims á síðasta ári.
Þetta kemur fram í ritinu Útvegur
sem Fiskifélag íslands gefur út.
Japanar eru mesta fiskveiðiþjóð
heims með samtals 11,8 milljónir
lesta en Sovétmenn eru í öðru sæti
rétt á eftir með 11,1 milljón lesta.
Kínverjar eru í 3. sæti með 9,3 millj-
ónir lesta en síðan kemur langt bil
þar sem Bandaríkjamenn eru í 4.
sæti með 5,7 milljónir lesta.
Ársafli Japana hefur verið svo til
óbreyttur frá árinu 1978, eða frá 9,9
milljónum lesta minnst árið 1979 og
upp í 12 milljónir mest árið 1984.
Heimsaflinn hefur aukist jafnt og
þétt frá árinu 1978 en þá var hann
70 milljónir lesta. Hann hefur síðan
vaxið stöðugt og var mestur í fyrra,
92,6 milljónir iesta.
Hér fylgir kort sem sýnir afla
þeirra þjóða sem veiddu meira en 500
þúsundlestiraffiskiáriðl989. -S.dór
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA I
REYKJANESKJÖRDÆMI 10. NÓVEMBER 1990
SIGURÐUR HELGASON
Framboð Sigurðar Helgasonar er einfalt, látlaust og
lýðræðislegt. Sjálfstæðismenn í Reykjaneskjördæmi eru
beðnir um að kynna sér starf hans og reynslu á liðnum
áratugum, jafnt á sviði lögmennsku sem stjórnmála.
Það er kjósenda að ákveða röð á framboðslistann.
Sigurður er reiðubúinn til hvaða sætis sem er.
STUÐNINGSMENN SIGURÐAR HELGASONAR