Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Side 7
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER löf
Sandkom
Fréttir
Hrútspungar
með koklcteslsósu
Ósúrsaða
hrútspunga er
siundumaöi'ai
verslunum.
Flestirhorða
millifótakcm-
fektiðnú
reyndarsúrsaö
ensveitamaönr
áSuöui'landi
hefurfundið
uppnýjaaðferð
til að matreiða
ferskahrúts-
l>unga. Fung-
arnircru
skomir í sneiðar, velt upp úr raspi,
steiktir í smjöri á pönnu og kryddað-
ir með salti og pipar. Þegar pungarn-
ir eru steiktir em þeir bornir á borð
með soðnum kartöflum og kokkteil-
sósu. Að sögn mannsins er þetta hið
mestahnossgæti.
„Frambær'
skvísa
Þuríði Bernod-
usdóttur úr
Vestmannaeyj-
umskautuppá
stjörnuhimin-
innhjáFram
sókn á Suður-
landiiskoð-
anakönnun
tlokksinsseni
framfórfyrír
nokkru.Kom
óvænturframi
Þuriðar nokk-
uð á óvart. At
þvi tileini var
þessivisaort.
Þreytt er hún orðin á þorski og ýsu,
þurrkuðum fiski í einum bing.
Framsókn vantaði „framþæra“
skvísu,
flaug hún á Bakkann og s vo á þing.
Heiladauði
Hvenærer
tnaðurdauður
oghvenærekki
erspurning
sem margir
hafa velt tyrir
sérogsýnist
sitthvetjumí
þeim cfnum,
eins og gengur.
Eða svona ailt
eíttrþvíhvað
telsthagkvæm-
ast.ihvenum
nma. Nú liggur
fyrir Aiþingi
frumvarp þess efhis að fólk skuli tal-
ið dautt þegar heilinn er hættnr að
starfa. Þegar málið hafði verið kruflð
til mergjar í stærsta stjómmálaflokki
landsins varð einum þingmanni að
orði. Það er ekki hægt að samþykkja
að menn séu látnir þegar heilinn er
hættur að funkera þ ví þá my ndi
Framsóknarflokkurinn þurrkast út í
heilu lagi.
Hjörleifur
úti í kuldanum
Eins ogalþjóð
erkunnugthef-
urEinarMár
Sigurðarson
boðíðsigframí
fyrstasætiðhjá
allabölium í
Austurlands-
kjördæniiog
keppirhann ■;
þarviðflokks-
bróðursinn,
HjörleifGutt-
ormsson. Mál-
gagn Alþýöu-
bandalagsins í
kjördæminu er þykkblöðungminn
Austurland. Hjörleifur hefur á und-
anfomum árum skrifaö dtjúgan
hluta blaðsins og stundum hefur ver-
ið haft á orði að blaðið hafl litið út
eíns ogeinkamálgagn hans. Nú vill
hins vegar svo til að Einar Már situr
í ritneíhd Austurlands og menn velta
því nú fyrir sér fyrir austan h vort
Hjörleifur fái birtan stafkrók eftir sig
íblaðinuhéreftir.
Umsjón: Jóhanna Margrét Einarsdóttir
Kratareystra:
Færist Magnús
íefstasæti?
„Ég get ekki neitað því að það hefur
verið talað við mig um að vera í
fyrsta sæti á framboðslista flokksins.
Eg hef hins vegar ekki tekið neina
ákvörðun í þeim efnum,“ sagði
Magnús Guðmundsson á Seyðisfirði, •
en hann skipaði annað sæti á lista
Alþýðuflokksins á Austurlandi fyrir
fjórum árum.
Kjördæmisþing alþýðuflokks-
manna á Austurlandi verður um
helgina og þá verður stefnan í fram-
þoðsmálum mörkuð.
Guðmundur Einarsson, nú fram-
kvæmdastjóri Alþýðuflokksins, var
í fyrsta sæti á Austurlandi fyrir fjór-
um árum, en hefur tilkynnt að hann
gefl ekki kost á sér áfram.
-hlh
Nýtt frumvarp:'
Tíu ára ábyrgð
verði á steypu
Alþingismenn úr öllum þingflokk-
um hafa lagt fram á Alþingi frum-
varp til laga um að kröfur vegna
galla í steinsteypu, sem keypt er til-
búin frá framleiðanda, fyrnist á 10
árum frá afhendingu vörunnar,
nema seljandi hafi skuldbundið sig
til að ábyrgjast vöruna í lengri tíma
eða haft svik í frammi. Nú er fyming-
arfrestur krafna, sem rísa vegna
galla í steinsteypu, aðeins eitt ár.
Frumvarp þetta er flutt að frum-
kvæði Húseigendafélags Reykjavík-
ur. Tilgangur þess er að sjálfsögðu
að auka vemd húsbyggjenda og ann-
arra kaupenda steinsteypu gagnvart
göllum sem leynast kunna í steyp-
unni og auka ábyrgð framleiðenda,
verktaka og eftirlitsaðila að sama
skapi.
Steinsteypa fellur undir lög um
lausafjárkaup frá árinu 1922. Þar er
gert ráð fyrir eins árs fyrningar-
_ fresti.
-S.dór
Norðurland eystra:
Listi kvenna
tilbúinn
um áramótin
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri:
Kvennahstakonur í Norðurlands-
kjördæmi eystra stefna að því að
framboðslisti þeirra verði tilbúinn
um áramótin.
Konurnar ætla að fara þá leið að
leita álits félagsmanna sinna og
kanna hvaða konur þær vilja sjá á
framboðslistanum. Síðan verður haft
samband við þær konur sem þar
verða nefndar og kannað hvort þær
vilja taka sæti á listanum. Loks mun
félagsfundur kjósa í þijú efstu sætin
en uppstillingarnefnd mun síðan
ganga frá listanum.
Kvennalistinn á eina konu á þingi
úr Norðurlandskjördæmi eystra,
Málmfríði Sigurðardóttur, og er ekki,
vitað hvort hún hyggur á framboð
að nýju.
Selfoss:
10 ára félag
Regína Thoiaiensen, DV, Selfossi:
í haust eru 10 ár frá stofnum Fé-
lags eldri borgara hér á Selfossi.
Haldið verður upp á afmæhð í byrjun
desember, - það á að slá saman litlu
jólunum og afmælinu og slá með því
tvær flugur í einu höggi.
Formaður Félags eldri borgara á
Selfossi er Einar Sigurðarson og hef-
ur verið það frá stofnun þess. Hann
er vaxandi formaður; - tekur meiri
þátt í félagsmálum gamla fólksins en
áður og hefur spilað með því á hverj-
um fimmtudegi síðan í haust.
BYGGIIMGAMARKAÐUR VESTURBÆJAR
Hringbraut 120. - Opið laugardaga kl. 10-14,
teppadeild, símar 28605 og 28600.
Á alþingi þarf fólk með mikla reynslu af sveitar-
stjórnarmálum og brennandi áhuga á atvinnumál-
um.
Sigríður Anna
sat í sveitarstjórn í 12 ár,
þar af 6 ár sem oddviti.
situr í miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins og í 5 manna
framkvæmdastjórn hans.
- er formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna.
- er íslenskufræðingur og
hefur starfað við kennslu
síðastliðin 14 ár.
Framboð Sigríðar Önnu styrkir Sjálfstæðis-
flokkinn til sigurs í komandi kosningum.
Kjósum Sigríði Önnu Þórðardóttur
í öruggt sæti
í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi
laugardaginn 10. nóvember nk.
Kosningaskrifstofa í síma: 52140, 52755 og 53143.