Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1 /U.
Snyrtifræðingar
Til sölu amerískt snyrtivöruumboö. Góðir
tekjumöguleikar, lítill lager. Tilboð sendist DV
fyrir 12. nóv., merkt
„Snyrtivöruumboð 44444“.
Nauðungaruppboð
Að kröfu innheimtumanns ríkissjóðs i Mýra- og Borgarfjarðarsýslu fer fram
opinbert nauðungaruppboð á járnbrú á Geltá á Langjökulsleið, af Kaldadals-
vegi, Hálsahreppi, Borgarfjarðarsýslu.
Uppboðið fer fram á eigninni fimmtudaginn 15. nóvember nk. og hefst
kl. 15.00.
Uppboðsskilmálar eru til sýnis á sýsluskrifstofunni að Bjarnarbraut 2, Borgar-
nesi. Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
KOSNINGASTÖÐ LILJU
Sunnuflöt 9, Garðabæ
Opin virka daga frá kl. 11.00 til 19.00
og um helgar frá kl. 13.00 til 17.00.
Símar: 91-656180 og 91-657634.
Verið velkomin.
Bygging
hjúkrunarheimilis
Magnús L. Sveinsson
Séra Sigurður H.
Guðniundsson
Elín Elíasdóttir
Félagsfundur:
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur
almennan félagsfund að Hótel Sögu, Súlna-
sal, sunnudaginn 11. nóvember n.k. kl. 15:00.
Fundarefni:
1. Kynnt skipulagsskrá fyrir umönnunar- og
hjúkrunarheimilið Eir.
2. Tekin ákvörðun um þátttöku Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur í byggingu
hjúkrunarheimilis.
Framsögumenn:
Magnús L. Sveinsson, formaður V.R.
Séra Sigurður H. Guðmundsson, for-
maður stjórnar Skjóls.
Fundarstjóri:
Elrn Elíasdóttir, varaformaður V.R.
Félagsmenn Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur eru hvattir til að fjölmenna á
fundinn og taka þátt í ákvörðuna'rtöku um
þetta þýðingarmikla mál.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Utlönd
Willy Brandt, fyrrum kanslari Vestur-Þýskalands, á tali við Saddam Hussein íraksforseta í gær. Saddam lofaði
Brandt frelsi hundrað og tuttugu vestrænna gisla. Símamynd Reuter
Hemaðaruppbygging Bandaríkjanna:
Þúsundir her-
manna frá Evrópu
til Persaflóa
Bæði bresk og írösk yfirvöld gáfu
til kynna í gær að stríð við Persaflóa
væri yfirvofandi samtímis því sem
Bandaríkin hófu að undirbúa flutn-
ing á þúsundum hermanna og
hundruðum skriðdreka frá Evrópu
til Persaflóa.
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, sagði í viðtali við bandaríska
dagblaðiö The New York Times í
morgun að bíða ætti í að minnsta
kosti tvo til þrjá máriuði til að sjá
hvort viðskiptabannið neyddi ekki
íraka frá Kúvæt. Samtímis varaði
Mubarak Saddam Hussein íraks-
forseta við stríði ef hann kallaði ekki
herlið sitt til baka. Enginn annar
kostur væri fyrir hendi.
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, sagði í gær að frest-
ur íraksforseta til að kalla heim her-
liö sitt frá Kúvæt væri að renna út.
Ef hann gerði það ekki skjótt yrði
vopnavaldi beitt. Upplýsingaráð-
herra íraks, Latif Nassim al-Jassem,
sagði greinilegt að Thatcher væri
ekki í andlegu jafnvægi og sennileg-
ast haldin illum anda.
írakar hafa hvatt allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna til að ræða
hernaðaruppbyggingu Bandaríkj-
anna við Persaflóa en nú eru um 230
þúsund bandarískir hermenn á
svæðinu. Ónafngreindir bandarískir
embættismenn hafa sagt að þúsundir
hermanna, staðsettir í Evrópu, verði
sendir frá Þýskalandi til Persaflóa
fyrir árslok. Embættismennirnir
vildu ekki staðfesta aö íjörutíu þús-
und hermenn yrðu sendir eins og
fram hafði komið í sjónvarpsfréttum.
Þeir sögðu hins vegar að Baker utan-
ríkisráðherra þætti sem samstaðan
gegn írak væri að eflast og aukinn
stuðningur væri við mögulega álykt-
James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heilsar Turgut Özal, for-
seta Tyrklands, i Ankara I gær. Baker er nú á ferðalagi til að afla stuðn-
ings við stefnu Bandaríkjanna í Persaflóadeilunni. Simamynd Reuter
un Sameinuðu þjóðanna um heimild
til beitingar vopnavalds. Baker er nú
á ferðalagi til að afla stuðnings við
stefnu Bandaríkjamanna í Persaflóa-
deilunni.
í dag er búist við að nokkur hundr-
uð gíslar fari frá írak en enn eru
þúsundir eftir. Willý Brandt, fyrrum
kanslara Vestúr-Þýskalands, var í
gær geflð loforð úm frelsi hundrað
og tuttugu Vesturlandabúa, þar af
voru hundrað Þjóðverjar. Yflrvöld í
írak hafa veitt tvö hundruð þrjátíu
og átta Pólverjum leyfl til að fljúga
heim í dag en hundrað og fimmtíu
hefur verið neitað um vegabréfsárit-
anir, að þvf er talsmaður pólsku
stjórnarinnar tilkynnti í gær.
Yasuhiro Nakasone, fyrrum for-
sætisráöherra Japans, fór í gær heim
með sjötíu og ijóra landa sína. Voru
ílestir þeirra sjúkir og aldraðir karl-
ar auk nokkurra námsmanna.
Marlin Fitzwater, talsmaður Hvíta
hússins í Washington, lýsti í gær yfir
vanþóknun sinni á ferðum aldraðra
þekktra stjórnmálamanna til íraks
og sagði að þeir létu nota sig.
Formaður þeirrar nefndar Örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna sem
fylgist með viðskiptabanninu gegn
írak, Marjatta Rasi frá Finnlandi,
sagðist í gær óttast að írösk yfirvöld
myndu nota lyíjabirgðir sínar við
gerð efnavopna. írakar eru taldir
eiga lyijabirgðir til tíu ára. Sérfræð-
ingar telja þó litlar líkur á slíku.
Reuter
Anker Jörgensen fær
vegabréfsáritun
Anker Jörgensen, forsætisráð-
herra Danmerkur, fær vegabréfsá-
ritun til íraks á morgun. Bæði íraska
sendiráðið í Amman í Jórdaníu þar
sem Jörgensen dvelur nú og sendiráð
Danmerkur i Bagdad hafa tilkynnt
að vegabréfsáritunin verði tilbúin á
morgun. Jörgensen kvaðst þó aðeins
hafa fengið tilkynningu um þetta
munnlega.
Hann kvaðst gera ráð fyrir að
samningaviðræðumar við íraska
ráðamenn færu fram á laugardag og
sunnudag þó svo að enn hefði ekkert
verið ákveðið fyrirfram. Jörgensen
sagðist í gær ekki vita hversu lengi
hann yrði í írak en það skipti ekki
máli. Mikilvægast væri að fá loforð
fyrir fararleyfi gíslanna.
Ritzau