Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Side 9
aaawavön « hud/.(1utmmí''I
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 19«0.
9
Úllönd
Forsetakosningamar á írlandi:
írskar konur fjöl-
menntu á kjörstaði
- góð kjörsókn talin Mary Robinson í hag
Konur fjölmenntu á kjörstaði á Ir-
landi í forsetakosningunum í gær.
Það þykir góðs vitir fyrir Mary Rob-
inson, sem fyrst kvenna reynir að
ná kjöri sem forseti landins.
Takið er þó að kjörsókn verði að-
eins um 60% en það er þó sýnu meira
en í síðstu forsetakosningum árið
1973. Mikil kjörsókn er talin Robin-
son í hag í baráttunni við mótfram-
bjóðandann Brian Lenihan.
Lenihan var ráðherra í ríkisstjórn
írlands til skamms tíma en varð að
víkja þaðan vegna sögusagna um
símahlernir. Skoðanakannanir fyrir
kosningamar sýndu þó að litlu mun-
aði á fylgi frambjóðendanna. Austin
Currie, þriðji frambjóðandinn, er
ekki talinn eiga möguleika á kjöri.
Þó er talið líklegast að framboð hans
verði til að taka fylgi af Lenihan.
Þótt staða forseta á írlandi hafi
ekki póhtíska þýðingu þá geta kosn-
ingarnar að þessu sinni haft það.
Lenihan er nánasti samstarfsmaður
Charles Haughey forsætisráðherra
og ósigur hans gæti orið stjórninni
að falli. Fari svo er framtíð Haugheys
einnig í hættu því innan flokks þeirra
gætir óánægju með forystuna.
En hvernig sem fer þá em írskir
veðmangarar þegar farnir að hrósa
sigri. Veðmál hafa ekki verið svo líf-
leg fyrir kosningar í langan tíma. Hjá
veðmöngurunum eru líkurnar á sigri
Robinson og Lenihan taldar því næst
jafnar. Ekki er tcdið að endalegar
niðurstöður í kosningunum liggi fyr-
irfyrrenámorgun. Reuter
Nauðungaruppboð
Að kröfu Ásgeirs Thoroddsen hdl., Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl., Sig-
urður I. Halldórssonar hdl. og innheimtumanns ríkissjóðs í Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu fer fram opinbert nauðungaruppboð á eftirtöldu lausafé:
Bifreiðir: ES653-Chevrolet Nova '77 GF325-Honda Civic'81
F0662-Peugeot '80 FF252- Lada Vaz '79
IV187-Lada station 1500 '87 TB057-tengivagn '83
Grafa: ZD356-JCB3D '82
Annað: Ricoh R250 myndbandstökuvél
Uppboðið fer fram við sýsluhúsið að Bjarnarbraut 2, Borgarnesi, fimmtudag-
inn 15. nóvember nk. og hefst kl. 10.00.
Uppboðsskilmálar eru til sýnis á sýsluskrifstofunni að Bjarnarbraut 2, Borgar-
nesi.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
BllASAlAAAJfflAÉ
RAGNARS BJARNASONAR
ELDSHÖFÐA18,112 REYKJAVÍK 06734 34
IJpí
Daihatsu Feroza ’89, ek. 27.000. Ath. skipti á ódýrari. Ford Sierra 1600 cl ’88, ek. 17.000. Ath. skipti á ódýrari.
Sjgli
Honda Civic ’88, ek. 53.000. Ath. Ford Bronco XLT ’86, upph. á 33"
skipti á ódýrari. dekkjum, ek. 63.000. Ath. skipti á
ódýrari.
Vantar bíla
á skrá og á staðinn.
SÍMI 673434
Mary Robinson er talin eiga góða Þótt Charles Haughey sé ekki í framboði geta niðurstöður forsetakosning-
möguleika á að verða næsti forseti anna ráðið miklu um framtíð hans. Símamynd Reuter
irlands. Símamynd Reuter
Noregur:
Gro útilokar ekki
EB-aðild fyrir 1992
Gro Harlem Brundtland, forsæt-
isráðherra Noregs, útilokar ekki
að Noregur sæki um aðild að Evr-
ópubandalaginu fyrir næsta lands-
fund Verkamannaflokksins 1992.
Ef svo kynni að fara yrði nauðsyn-
legt að boða til sérstaks lands-
fundar, sagði Brundtland á fundi
með fréttamönnum í gær. Verka-
mannaflokkurinn heldur lands-
fund nú um helgina.
Norski forsætisráðherrann sagði
að nú yrði lögð aðaláhersla á að
ljúka samningaviðræðum EFTA,
Fríverslunarsamtaka Evrópu, og
Evrópubandalagsins um sameigin-
legt evrópskt efnahagssvæði.
Möguleiki væri að einhver árangur
næðist fyrir jól.
Brundtland benti á að þó svo að
Svíþjóð sækti um aðild í vor að
Evrópubandalaginu yrðl landið
ekki aðili fyrr en í fyrsta lagi 1994.
Annað væri misskilningur.
Samkvæmt nýjustu skoðana-
könnunum er meirihluti félaga í
Verkamannaflokknum andvígur
aðild að Evrópubandalaginu. Ekki
er ætlunin að komast að niður-
stöðu á landsfundinum nú. Flokks-
stjórnin leggur hins vegar áherslu
á umfangsmikiar umræður sem
haldi áfram til næsta landsfundar.
NTB
Færeyjar:
EB-aðild gerð að kosningamáli
Þjóðveldisflokkurinn í Færeyjum
reynir nú að draga umræðuna um
framtiðarafstöðu landsins til Evr-
ópubandalagsins, EB, inn í baráttuna
fyrir lögþingskosningarnar í næstu
viku. Hinir flokkarnir hafa áður neit-
að að gera máhð að kosningamáli og
meðal annars vísað til þess aö nú
standi yfir samningaviðræður milli
Færeyja og Evrópubandalagsins um
frjálsa verslun.
Innan Þjóðveldisflokksins og hinna
flokkanna viröist reyndar ekki vera
um breytingu að ræða á afstöðunni
frá því í byrjun áttunda áratugarins
þegar lögþingið sagði nei við aðild
að Evrópubandalaginu. Máhð er þó
rætt innan flokkanna. Einn af fram-
bjóðendum Fólkaflokksins, Birgir
Danielsen, sem er forstjóri stærsta
fiskútflutningsfyrirtækisins, er til
dæmis hlynntur aðild.
Fiskútflytjendur telja sig munu
græða á aðild þar sem 80 prósent af
fiskinum eru flutt á markað í Evr-
ópubandalagslöndunum. Samtök
iðnrekenda eru hins vegar efins um
ágæti aðildar og samningaviðræð-
anna um frjálsa verslun. Segja iðn-
rekendur að afnám tolla muni verða
til þess að iðnaður á Færeyjum legg-
ist niður.
Hingað til hafa efnahagsmál ein-
kennt umræðurnar um aðild að Evr-
ópubandalaginu en formaður Þjóð-
veldisflokksins, Finnbogi Isakson,
hefur nú vakið athygli á stjórnmála-
legum afleiðingum aðildar. í grein,
sem birtist í færeysku blaði í gær,
benti Isakson á að aðeins sjálfstæð
lönd gætu orðið aðilar. Danmörk
gæti í besta falli samþykkt að lands-
hlutinn Færeyjar yrði aðili. Og ef
Danir yrðu örlátir fengju Færeying-
ar einn af sextán fulltrúum þeirra á
Evrópuþinginu. Færeyingar skyldu
ekki gera sér vonir um aðra tilhögun
mála. Færeyingar hefðu til dæmis
engan fulltrúa í ráðherraráðinu.
Niðurstaða Isaksons var því sú að
ef menn vildu yfirhöfuð íhuga aðild
að Evrópubandalaginu væri sjálf-
stæði Færeyja fyrsta skilyrðið.
Ritzau
BJÓRWHÖLUNhe
KÁNTRÍKV ÖLD
I KVOLD
Kántrísöngvararnir Ann Andreasen og Einar Jónsson
leika ný kántrilög frá Bandaríkjunum.
Óvæntir gestir koma í heimsókn.
Þambskeppni? Verðlaun I. II.
Munið dansgólfið þar sem léttir snúningar eiga sér stað.
Snyrtilegur klæðnaður.
BJÓRWHÖLUNhe
GERÐUBERGII
111REYKJAVÍK SÍMI75800