Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Page 28
36
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1990.
Menning
I ævintýraheimi
Sögur Astrid Lindgren eiga það til að hitta unga les-
endur í hjartastað. í undraheimi hennar sveipast
hversdagslegustu atburðir töfraljóma, og ósköp venju-
legir krakkar eiga það til að hverfa fyrirvaralaust á
vit mikiRa ævintýra.
í sögunni, Elsku Míó minn, segir frá litlum strák,
Bússa, sem býr við takmarkað ástríki hjá fósturfor-
eldrum sínum. Hann er einmana og þráir sinn rétta
föður. Til að létta sér dapurlega tilveru flýr hann á
vit dagdrauma.
Einn góðan veðurdag finnur hann gamla maltflösku
og viti menn: í flöskunni leynist töfraandi og þá er
stutt i að ævintýrin fari að gerast.
Astrid Lindgren kann að venda sínu kvæði í kross,
þannig að litlum áhorfendum finnst ekkert sjálfsagð-
su'a en að fylgja Bússa til undraheima, til Landsins í
fjarskanum þar sem hann er konungssonur og heitir
Míó. Þar er allt bjart og fagurt en í Landinu fyrir hand-
an ríkir svarti riddarinn, Kató, sem rænir liúum börn-
um og heldur þeim i álögum hjá sér. Og auðvitað er
það hinn hugumprúði konungssonur Míó, sem einn
getur frelsað landið undan áþján svarta riddarans.
Það er engin tilviljun að konungurinn faðir hans lík-
ist pabba Benka, sem er besti vinur Bússa, en riddar-
inn illi, Kató, er hins vegar tvífari Sigstéins, fóstra
Bússa.
Þeir Jón Sævar Baldvinsson og Andrés Sigurvinsson
leikstjóri hafa gert sérstaka leikgerð fyrir þessa upp-
færslu, byggða á handriti Astrid Lindgren. Öll helstu
atriði sögunnar koma vel fram og tengingar ganga
snurðulaust fyrir sig. En besti mælikvarðinn á það
hvernig til hefur tekist eru þó undirtektir leikhúsgesta
sem ekki voru allir ýkja háir í loftinu á sýningunni,
sem ég sá. Ég tók eftir því að skijáfið í sælgætispokun-
um steinhætti eftir smástimd og allir fylgdust andakt-
ugir með þvi sem gerðist á sviðinu alveg til enda sýn-
ingarinnar.
Það er líka allt gert til þess að leyfa ævintýrinu að
blómstra og ekkert til sparað.
Leikmynd er hreyfanleg og breytist fyrirhafnarlítið
milli atriða og lýsing er mikið notuð til þess að skapa
hæfilegan ævintýrablæ. Búningamir vekja sérstaka
athygli, þeir eru íburðarmiklir og við konunga hæfi.
Höfundur er Rósberg Snædal og hann á stóran þátt í
því hvað þessi sýning er skrautleg og mikið sjónarspil
fyrir unga áhorfendur. Hún gefur innsýn í heima sí-
gildra ævintýra, Þúsund og eina nótt og aðrar sagnir,
sem nútímaböm kynnast varla nema í formi teikni-
mynda í sjónvarpi.
Leikarar eru auövitað áhugaleikarar af öllum stærð-
um og geröum, en aðalhlutverin eru í höndum tveggja
ungra pilta, þeirra Högna Þórs Högnasonar, sem leik-
ur Bússa/Míó og Ragnars Ólafssonar, í hlutverki'
Benka/Jum-Jums. Þeir era báðir einlægir og afslapp-
aðir í leik sínum og skiluðu hlutverkunum ágætlega.
Af öðrum leikurum má nefna Grétar Snæ Hjartarson,
sem var snöfurmannlegur í hlutverkum Sigsteins og
Svarta riddarans, þó án þess að vekja ótta hjá yngstu
Aðalhlutverkin eru í höndum þeirra Högna Þórs
Högnasonar, sem leikur Bússa/Míó, og Ragnars Ól-
afssonar, í hlutverki Benka/Jum-Jums.
Leiklist
Auður Eydal
áhorfendunum,.og Sigurð L. Einarsson, sem var mikil-
úðlegur í gerfi sverðssmiðsins.
Leikfélag Mosfellssveitar hefur lagt mikið í að gera
sýninguna sem best úr garði og aðstaða öll í Hlégarði
hefur verið bætt til muna. Elsku Míó minn er leiksýn-
ing, sem óhætt er að mæla með fyrir börn á öllum
aldri og ástæðulaust að hnjóta um það þó að leikendur
sýni ekki takta atvinnumanna í listinni. Miklu meira
er um vert að allir gera sitt besta og leikstjóri hefur
samhæft hópinn vel.
Leikfélag Mosfellssveitar sýnir i Hlégarði:
Elsku Míó minn
Höfundur: Astrid Lindgren
Leikgerð: Jón Sævar Baldvinsson, Andrés Sigurvinsson
Leikstjórn: Andrés Sigurvinsson
Leikmynd og búningar: Rósberg Snædal
Lýsing: Árni J. Baldvinsson
Tónlist: Eyþór Arnalds
Framkvæmdastjórn: Jón Sævar Baldvinsson
-AE
Andlát
Ágúst F. Petersen listmálari lést í
Landspítalanum 7. nóvember.
Jarðarfarir
Brynjólfur B. Ólafsson verður jarð-
sunginn frá Fossvogskapellu föstu-
daginn 9. nóvember.
María Gíslína Björnsdóttir, Hagamel
45, verður jarðstyiginn frá Neskirkju
föstudaginn 9. nóvember kl. 13.30.
Óskar Gísli Gissurarson, Bólstaðar-
hlíð 62, verður jarðsunginn frá Há-
teigskirkju föstudaginn 9. nóvember
kl. 15.
Ágústa S. Andrésdóttir lést 31. októ-
ber. Hún var fædd á Bæ í Kjós 10.
Drögum úr hraða
-ökum af skynsemi!
iJU^EBOAfl
Sími:
694100
fFLUGBJQRGUNARSVElTINl
nk. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Félagsheimili
F.E.B og starfsemi þess í vetur. 2. Fjáröfl-
un. 3. Önnur mál. Vikuferðir til Luxem-
borgar dagana 22.-29. nóvember og 6.-13.
desember. Nánari upplýsingar á skrif-
stofu félagsins í síma 28812 og 689912.
Bridgesamband íslands
Þeir sem ætla að vera með í stofnana-
keppninni '90 eijr minntir á að lája skrá
sig sem fyrst. Spiladagar verða 11. nóv.
kl. 14, 13. nóv. kl. 19.30 og 18. nóv. kl. 14.
Þátttökugjaldið er 12.000 kr. á sveit. Spil-
að veröur í Sigtúni 9 og 'keppnisstjóri
verður Agnar Jörgensen. Reglurnar um
þá sem geta verið með í þessari keppni
hafa verið rýmkaðar mikið og geta því
flestir veriö með. Skráning og allar frek-
ari upplýsingar eru veittar í síma Bridge-
sambandsins 91-689360 eftir kl. 14 á dag-
Tónlistardagar
Dómkirkjunnar
Um þessar mundir standa yfir Tónlistardagar Dómkirkjunnar og hóf-
ust þeir í gærkvöldi með kórtónleikum Dómkórsins, sem söng undir stjórn
Marteins H. Friðrikssonar. Orgelleikari var Orthulf Prunner. Á næstu
dögum verða fleiri tónleikar á vegum Dómkirkjunnar þar sem koma fram
auk Dómkórsins ýmsir einleikarar.
Það er þægileg tilbreyting að hlusta á tónlist-í hinum þurra hljómburði
Dómkirkjunnar, sem er mjög ólíkur því sem er í ýmsum nýrri og stærri
kirkjum borgarinnar. Þessi hljómburður gerir að vissu leyti meiri kröfur
til kórsins þar sem allt heyrist skýrara þar með taldir allir agnúar og
mistök sem kunna að verða í flutningi. Á hinn bóginn koma innviðir
tónlistarinnar einnig að sumu leyti skýrar fram og getur það verið mik-
ill kostur í flókinni fjölradda tónlist.
Efnisskrá tónleikanna mótaðist af ferð Dómkórsins til Leipzig í fyrra-
sumar og var helguð þessari frægu tónlistarborg með því að velja verk
eftir tónskáld sem hafa starfað eða numið þar bæði íslensk og erlend.
Þannig var fluttur orgel forleikur og orgelsónata eftir J.S. Bach auk sálma-
lagsútsetningar fyrir kór. Sónatan var sérlega glaðlegt og skemmtilegt
Tóiúist
Finnur Torfi Stefánsson
verk. Þá var athyglisvert að heyra þrjár mótettur eftir Jóhannes Brahms;
„Ich aber bin elend“, „Ach, arme Welt, du tragest mich“ og „Ich aber
bin elend“. Eins og við var að búast eru þessi verk í fjölrödduðum hermi-
stíl og sýnir Brahms að hann kann full skil á þessari fornu tækni. Þá
voru flutt „Bænin má aldrei bresta þig“ eftir Pál Isólfsson og „Ég er krist-
inn“ eftir Hallgrím Helgason, en bæði þessi íslensku tónskáld stunduðu
tónlistarnám í Leizig. Lokaverkið á efnisskránni var mótetta eftir Kurt
Hessenberg „O, Herr, mache mich zum Werkzeug deines Friedens". í
þessu verki er kvennaröddum teflt gegn karlaröddum og þótt tónamálið
sé að mestu tónalt eru í því nokkrar tilraunir með afhrigði þar frá sem
gefa töluverðan lit. Hins vegar var eins og kraftinn vantaði til að kýja
framvindu verksins og virtist það á köflum heldur kyrrstætt.
Dómkórinn og stjórnandi hans Marteinn H. Friðriksson komst með
mikilli prýði frá þessum viðfangsefnum. Kórinn virðist vera í prýðilegri
þjálfun og hljómaði oft mjög fallega. Staðfestist'það enn að ekki er ofsög-
um sagt af ágæti kórastarfs á íslandi. Orgelleikur Dr. Prunners var ekki
slæmur en smávillur og ónákvæmni í hrynjandi drógu úr áhrifum hans.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag
fimmtudag kl. 14. Frjáls spilamennska,
kl. 19.30 félagsvist, kl. 21 dansað. Félag
eldri borgara óskar eftir fólki til að selja
jólakort félagsins. Upplýsingar í síma
28812.
Skólahald í Vík I
Mýrdal 100 ára
Um þessar mundir á skólahald í Vik í
Mýrdal og nágrenni þrefalt afmæli. Eitt
hundrað ár eru hðin síðan bamafræðsla
hófst á þessum slóöum, níutíu ár síðan
kennsla hófst í Vík og áttatíu ár síðan
fyrsta skólahúsið í Vík var tekið í notk-
un. Þessara tímamóta minnast nemendur
og kennarar Víkurskóla sunnudaginn 11.
nóvember með hátíðardagskrá og sýn-
ingu í skólanum og afmæhskaffi í Leik-
skálum. Fyrrum nemendur og starfsfólk
skólans auk annarra velunnara eru vel-
komnir.
30 þúsund bókatitlar á
bókamarkaði Bókavörðunnar
Hinn árlegi stórbókamarkaöur Bóka-
vöröunnar, Hafnarstræti 4, er hafmn. Á
þessum markaði verður meira af bókum
en nokkru sinni fyrr. Ahs verða til sölu,
þessa 6 daga sem markaðurinn stendur
5ffir, rúmlega 30.000 bækur. Og verðin eru
sem fyrr mjög sanngjörn. íslenskar bæk-
ur í bandi kosta kr 200, íslenskar bækur
óbundnar kosta kr. 100, bæklingar ís-
lenskir kr. 100, allar erlendar bækur
kosta 50 kr. Bókamarkaðurinn stendur
yfir þessa viku og er opinn á venjulegum
verslimartíma.
Kvenfélag Kópavogs
Basar verður haldinn í félagsheimilinu
sunnudaginn 11. nóvember kl. 14. Tekið
verður á móti kökum og munum milh
kl. 13-17 fóstudag og frá kl. 10 á sunnu-
dagsmorgun.
Blúskvöld á Tveimur vinum
í kvöld 8. nóvember verður blúskvöld að
venju á skemmtistaðnum Tveir vinir og
annar í frh. Blúskompaníið kemur fram,
en hljómsveitina skipa Magnús Eiríks-
son, Pálmi Gunnarsson, Sigurður Reyn-
isson og Karl Sighvatsson.
Fundir
Afmælis- og kynningarfundur
Al-Anon samtakanna
Opinn afmælis- og kynningarfundur Al-
Anon samtakanna verður haldinn
sunnudaginn 18. nóvember 1990, í Bú-
staðakirkju kl. 16. Al-Anon samtökin
voru stofnuð á íslandi 18. nóvember 1972
og eru félagsskapur ættingja og vina
alkóhóhsta. Al-Anon samtökin hafa að-
eins eirrn tilgang, að hjálpa aðstendend-
um alkóhóhsta. Á fundinum munu koma
fram og segja sina sögu, þrír Al-Anon
félagar, einn féiagi AA samtakanna, sem
eru samtök alkóhóhsta, og einn félagi frá
Aiateen, en þau samtök eru félagsskapur
aðstandenda alkóhóhsta 12-19 ára. Nán-
ari upplýsingar um samtökin er hægt að
fá á Al-Anon skrifstofu í síma 19282 frá
kl. 9-12 aha virka daga.
Fjölmiðlar
ágúst 1906, dóttir hjónanna Olafar
Gestsdóttur og Andrésar ÓMssonar.
Ágústa giftist Þorvaröi Guöbrands-
syni en hann lést árið 1975. Þau hjón-
in eignuðust tvo syni. Útför Ágústu
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag
kl. 15.
Tilkyiiiiingar
Breiðfirðingafélagið
Félagsvist og dans nk. fóstudag 9. nóv-
ember kl. 20.30 í Breiðfirðingabúð, Faxa-
feni 14. Ahir velkomnir.
Félag eldri borgara
Félagsfundur verður haldinn í nýja
félagsheimih Félags eldri borgara að
Hverfisgötu 105, íostudaginn 9. nóvember
Blað sem þorir
Loksins hillir undir að komið sé
blað sem virkilega þorir. Þar á ég
aö sjálfsögöu viö Pressuna eftir að
nýir ritstjórar settust þar 1 stóla.
Það verður spennandi að sjá
hvernig strákamir fylgja þessu svo
eftir en byrj unin lofar vissulega
góöu.
Eins og búast mátti við þustu
menn um víðan völl með gífuryrði
og heilaga vandlætingu þegar
Pressumenn sönnuðu að þeir væra
aö fara af stað með „harðan" fjöl-
miðil sem hvorki væri bundinn af
póbtískum duttlungum ósýnilegra
eigenda né væluskjóðum úr vestur-
bænum. Blaðamenn lenda því mið-
ur oft í þ ví hlutverki að vera
strengjabrúður sem, hvortsem
þeim likar betur eða verr, verða að
lúta hagsmunum og pólitískri
stefnu eigenda og yfirboðara.
Það er aö vísu ofureðlilegt að þeim
sem eru í feluleik meö hluti sem
ekki þola dagsins ljós standi stuggur
af íjölmiðlurn sem liklegir eru að
varpa ijósi á myrkraverkin. Rétt
eins og krimmamir sem hafa iiian
bifur á löggunni. Þaö hefur sýnt sig
aö harðir íjölmiðlar veita aðhald og
halda uppi eðlilegu og sjálfsögðu
frelsi blaöamanna til að segja opin-
skátt irá hlutunum án þess að þurfa
aðvcfja þá inn í glanspappir.
Ég tek ofan fyrir Pressumönnum,
þetta eru menn sem þora.
Helga Guðrún