Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1990, Side 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
skrift - Dreifing: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1990
BlysíBreiðdal:
Ljósin á lofti
í eina mínútu
Tilkynnt var um þrjú rauð neyð-
arblys í Breiðdal rétt um miðnættið
í nótt. Landhelgisgæslu og Slysa-
varnafélagi var gert viðvart. Varð-
skip var á þessum slóðum en skip-
veijar urðu ekki varir við neitt
óvenjulegt. Tilkynningin kom frá
bænum Ásgarði í Breiðdal.
„Við vorum þrú og sáum þessi ljós
koma þrisvar sinnum upp,“ sagði
Sigríður Reimarsdóttir, húsfreyja í
Ásgarði, í morgun. „Það var stjörnu-
bjart og við slökktum ljósin á bænum
til að sjá þetta betur. Þetta var eins
og fallhlífarflugeldar og mjög raun-
veralegt. Við sáum þegar ljósin fóru
á loft með skömmu millibili, þetta
stoppaði í loftinu og hvert ljós var á
uppi í eina mínútu - þetta var svona
ljósrautt. Það er ekki gott að segja
hvaðan ljósin komu en hraun þvert
yfir dalin skyggir á útsýni að sjó. Það
var ekki gott að átta sig á hvað þetta
var en enginn bær er í þessari stefnu.
Þess vegna fannst okkur ástæða til
að tilkynna um þetta,“ sagði Sigríður
húsfreyja. -ÓTT
Vinnudeilusjóður BSRB:
50milljónir úr
íslandsbanka?
Stjórn Vinnudeilusjóðs BSRB kem-
ur saman til fundar síðdegis í dag til
að ræða hvort hætta eigi viðskiptum
við íslandsbanka. Samkvæmt heim-
ildum DV á sjóðurinn um 50 milljón-
ir inni á reikningi hjá bankanum.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, sagði að engar ákvarðanir
hafi verið teknar en að til fundarins
væri boðað vegna mikils og vaxandi
þrýstings innan bandalagsins um að
taka viðskipti við islandsbanka til
endurskoðunnar.
„Það er mikil reiði í garð íslands-
banka innan BSRB vegna vaxta-
stefnu hans og þó sérstaklega vegna
þeirrar ákvörðunar hans að hækka
vexti, þrátt fyrir mótmæli okkar og
annarra samtaka launafólks," segir
Ögmundur. -kaa
íslandsbanki:
Endurskoðun
ekki rædd
Þrátt fyrir að ríkisbankarnir og
Sparisjóðirnir hyggi ekki á vaxta-
hækkun á næstunni er ekkert sem
bendir til að íslandsbanki dragi
ákvörðun sína til baka um hækkun
vaxta. Valur Valsson, bankastjóri ís-
landsbanka, sagði í morgun að um
þetta hafi ekki veriö rætt innan
bankans. -kaa
LOKI
Er Hjörleifur loksins
búinn aötala af séröll
atkvæðin?
Hjörleif ur lenti
í þriðja sætinu
Einar Már Sigurðarson kennari ustu alþingiskosningum. um það,“ sagði Elma Guðmunds- stuðningsmenn milli hinna til-
fékk langflestar tilnefningar í fyrri „Þetta er staðfesting á því sem dóttir sem varð önnur í forvalinu nefndu úr alþýðubandalagsfélög-
umferð forvals'Alþýðubandalags- ég þóttist vita fyrirfram. Þessi nið- á undan Hjörleifi. Elma var bæjar- um í öllu kjördæminu. Síðari um-
ins í Neskaupstað, höfuðvígi urstaðasegir ísjálfusérekkertum fulltrúi í Neskaupstað í átta ár og feröin fer fram l. desember.
flókksins á Austurlandi. Forvalið endanleg úrsht i kjördæminu en hefur setið í kjördæmisráði. Forvalið í gærkvöldi fór fram á
fór ffam í gærkvöldi. þetta var ágæt könnun í flokks- Ekki náðist í Hjörleif Guttorms- ahnennum félagsfundi í Alþýðu-
Einar sigraðí þar með fyrsta ein- félaginu okkar Hjörleifs hér i Nes- sonþar semhannhélttilSkotlands bandalagsfélaginu í Neskaupstað.
vígið við aðalkeppinaut sinn, Hjör- kaupstað,“ sagði Einar Már við DV í morgun þar sem hann er forseti Þar mættu um 30 manns og til-
leif Guttormsson, en Hjörleifur í morgun. ' alþjóðlegrar ráðstefnu um kjarn- nefhdi hver fundarmaður fimm
lenti í þriöja sæti á eftir Elmu Guð- „Þetta er náttúrlega mjög sterk orkuvopnalaus svæði. mamts. Alls hlutu 25 manns til-
mundsdóttur. Fjórða var Þuríður stuðningsjdirlýsing en það er ekki Forval Alþýðubandalagsins fer nefhingu.
Backinan frá Egilsstöðum. Elma er gefið að ég geíi kost á mér í al- fram í tveimur umferðum. í þeirri -hlh
sú eina í þessum hópi semekki var þingiskosningum. Það á eftir að fjTri koma fram tilnefningar en í
á lista Alþýðubandalagsins í sið- tala við alla sem fengu tilnefningu þeirri seinni kjósa flokksmenn og
Á annað tonn af kjöti, sem kom með Klakki VE, fargað hjá sorpbrennslunni í Vestmannaeyjum.
DV-mynd ÓG
Vestmannaeyjar:
Tonn af
smyglkjöti
brennt
Tollverðir frá rannsóknardeild
Tollgæslunnar í Reykjavík fundu
1.295 kíló af ólöglegu kjöti við leit í
Klakki VE í Vestmannaeyjum í fyrri-
nótt. Mest fannst af nautakjöti en
einnig var lagt hald á svínakjöt og
fuglakjöt. Auk þess var lagt hald á
tvo frystiskápa, tvær uppþvottavélar
og eina þvottavél.
Leit var hafin þegar skipið kom til
Vestmannaeyja í fyrradag. Menn frá
rannsóknardeild Tollgæslunnar í
Reykjavík fóru til Vestmannaeyja til
að framkvæma leit um kvöldið. Tog-
arinn var að koma úr sölutúr i Bre-
merhaven í Þýskalandi.
Tollverðirnir fundu kjötið í frysti-
geymslum skipsins. Kjötiö var ekki
fahð en mestur hluti þess var nauta-
kjöt. Heimilistækin voru hins vegar
geymd í lest skipsins. Skipverjarnir
hafa gengist við því að hafa átt það
sem tollverðir lögðu hald á. Kjötinu,
sem gert var upptækt í fyrrinótt, var
fargað í sorpbrennslu Vestmanna-
eyja strax í gærmorgun.
-ÓTT
Veðrið á morgun:
Suðurlandi
Á morgun verður austan- og
suðaustanátt, allhvöss við suður-
ströndina en annars gola eða
kaldi. Rigning á Suður- og Suð-
austurlandi en annars þurrt.
Víða bjart veður norðanlands.
Hiti 2-7 stig.