Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991,
3
Vatnsleysið í Hafnarfirði:
Fréttir
Það er verið að reyna
í okkur þolrif in
- segir Albert Valdimarsson, íbúi í Hafnarfirði
gusurnar á móti mönnunum þar.
Slökkviliðið hafði samband við bæj-
arstarfsmenn sem komu en vildu
ekki trúa því strax að þetta væri
kalda vatnið af því þetta var svo
gruggugt. En eftir því sem vatnið
rann lengur varð þaö hreinna og
hreinna og þá fóru menn í aö reyna
að loka æðinni. Þeir voru ekki búnir
að því fyrr en um fimmleytið," segir
Albert.
Þegar farið var að grafa niður að
æðinni og hún skoðuð kom í ljós að
þriggja metra löng sprunga var eftir
henni endilangri. Viðgerðir hófust
strax og búist var við að vatn yrði
komið á um klukkan sjö í gær-
kvöldi. Skólum var lokað og börn
send heim af dagvistarheimilum þar
sem loka þurfti fyrir allt vatn í bæn-
um.
Lánið hefur ekki beint leikið við
Hafnfirðinga í vetur. Fyrst urðu hús
köld vegna útfellinga hjá Hitaveit-
unni, síðan urðu rafmagnstruflanir
vegna Stálbræðslunnar, þá var það
ólyktin sem gaus upp nýlega og svo
vatnsleysi. „Maður er nú hættur að
verða hissa. Ég er kominn í þá
stemmningu að ég býst við hverju
sem er. Annars er þetta nú ekki mik-
iö miðað við það sem er að gerast í
heiminum,“ segir Albert. -ns
Jóhannes Nordal um frestun álviðræðufunda:
Alvarlegt ef langur
tími líður án funda
„ÆUi það sé ekki verið að reyna í
okku'r þolrifin, Hafnfirðingum, en ég
held að við klórum okkur út úr þessu
eins og öðru,“ segir Albert Valdi-
marsson sem býr í húsi við Öldugötu
í Hafnarfirði. Það var beint fyrir
framan húsið hans sem aðalvatnsæð
bæjarins sprakk og vatn flæddi inn
í hús og garða.
„Það var um þrjúleytið i nótt að
dyrabjöllunni var hringt og maður,
sem hafði verið að keyra niður göt-
una, sá gosbrunn við húsið og lét
mig vita. Ég leit út og sá vatnsflaum
í götunni. Þá fór ég niður í kjallara
til að athuga ástandið þar og þá var
komið vatn upp í mjóalegg. Ég
hringdi í slökkviliðið sem kom en
hélt að þetta væri frá klóakinu og
reif upp brunna. Þá komu vatns-
Fyrr i vetur rann ekkert heitt vatn úr krananum hjá Albert Valdimarssyni i
Hatnarfirði. Núna rennur hins vegar ekkert kalt vatn. DV-mynd BG
Kristján Karlsson tekur við verð-
launum sinum.
DV-mynd Brynjar Gauti
Kristján
Karlsson
hlaut Davíðs-
pennann
„Ég held að frestunin á þessum
fundi út af fyrir sig sé ekki svo alvar-
leg ef aörir fundir á næstunni þurfa
ekki að frestast mikið. Sameiginlegri
vinnu er haldið áfram eftir fremsta
megni. Menn skiptast á upplýsingum
og gögnum þó ekki sé hægt að hittast
á formlegum fundum. Á meðan stríð-
ið stendur geta hins vegar frestast
samingar um fjáröflun álversins.
Fjármögnunin er eitt aðalverkefnið
sem fram undan er hjá álfyrirtækj-
unum,“ sagði Jóhannes Nordal
vegna frestunar á fundum íslensku
álviðræðunefndarinnar og forstjóra
Atlantsálfyrirtækjanna sem áttu að
vera í New York um síðustu helgi.
Vegna stríðsins við Persaflca hafa
fyrirtæki í Bandaríkjunum sett
ferðabann á starfsmenn sína eða
beint þeim tilmælum til þeirra að
þeir ferðist ekki. Þess vegna var við-
ræðufundinum í New York frestað.
- Hefur þessi frestun áhrif á tíma-
setningu endanlegrar undirritunar?
„Viö þurfum enn sem komið er
ekki að hafa áhyggjur af því. Þaö
ætti aö vera hægt að vinna upp þessa
fimm dag sem nú hafa tapast. En
staðan verður alvarlegri því lengri
timi sem líður án funda.“
íslenska orkuviðræðunefndin á að
funda með Atlantsálmönnum í
Amsterdam og New York í febrúar.
Jóhannes sagði óvissu vera um þessa
fundi og fylgdust menn með frá degi
til dags til að ákveða nánar um þá.
-hlh
Bæjarstarfsmenn unnu hörðum höndum að viðgerðum á aðalæðinni sem
sprakk. Þriggja metra löng sprunga reyndist vera eftir endilangri æðinni.
DV-mynd BG
Verðbólgan 14,6 prósent
Verðbólga á íslandi fer vaxandi.
Seðlabankinn hefur reiknað út nýja
lánskjaravísitölu sem gildir frá og
með 1. febrúar og nemur hækkunin
frá áramótum 1,15 prósentum. Það
jafngildir 14,6 prósent verðbólgu á
heilu ári. Spáð var um 14 prósenta
veröbólgu í janúar.
í fréttaljósi DV um verðbólgu og
vexti hinn 21. desember síðastliðinn
var sagt að verðbólgan færi á skrið
í janúar, lækkaði síðan í febrúar og
stigi lítillega upp aftur í mars.
-JGH
FERDASKRIFSTOFAN LAND & SAGA SIMI627144 - 610061
SKEMMTILEGAR SÉRFERÐIR - ÁRSHÁTÍÐARFERÐIR - HÓPFERÐIR - SKÍÐAFERÐIR - BORGARFERÐIR
Bókmenntaverðlaun Félags ís-
lenskra rithöfunda voru veitt í fyrsta
sinn í gær. Kristján Karlsson hlaut
verölaunin fyrir ljóðabók sína,
Kvæði 90. Verðlaunin eru Davíðs-
penninn, sem er kenndur við Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi, en ein-
mitt í gær, 21. janúar, var fæðingar-
dagur hans. Hefði hann þá orðið 96
ára. Auk þess fékk Kristján 100 þús-
und krónur afhentar.
Það var á aðalfundi Félags ís-
lenskra rithöfunda í fyrra að ákveðið
var að veita verðlaun einu sinni á
ári til eflingar íslenskum bókmennt-
um og menningu í landinu. Var um
leið ákveðið að þau yrðu helguð
minningu Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi.
Amsterdam PuIIman Capítol 4 nætur kr. 31.650,- Washíngton Lombardy 3 nætur kr. 33.330,- Verð é mann, tveir i herbergi án flugvallarskatts Kaupmannahöfn Cab-Inn 3 nætur kr. 35.600,-
- VIÐSKIPTI SEM VIT ER í -
JðM 11 Ifflll l
BANKASTRÆTI 2 - TORFUNNI S. 627144 - 610061
-HK