Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 22, JANÚAR 1991.
Fréttir
Hundruð skoða vegsummerki átakanna 1 Lettlandi:
Sjáið nú hvernig sovéska
lýðræðið fer með okkur
sagði kona og starði í blóðpoll á torginu
Hundruö Letta komu saman á
torginu framan viö byggingu inn-
anríkisráöuneytisins í Riga í gær
og störöu óttaslegnir á ummerki
átakanna á sunnudagskvöld. Sum-
ir komu kertum fyrir á átakasvæö-
inu, aörir lögðu þar blómvendi og
báru mynd af heilagri Maríu. Fólk
var slegið og reitt yfir valdbeitingu
sérsveita Sovétmanna.
„Ég gat ekki hætt aö gráta þegar
ég heyrði fréttimar og hef ekki sof-
iö neitt síöan,“ sagði miðaldra kona
sem hélt á rós og staröi á blóðpoll
á torginu. „Sjáið nú hvernig hið
dásamlega sovéska lýðræði fer með
okkur.“
Maður stóð í ströngu við að
hreinsa glerbrot eftir átökin. Á
neðri hæðum byggingarinnar voru
veggirnir munstraðir eftir byssu-
kúlur og næsta fáir gluggar voru
heihr. Mikil ringulreið varð þegar
sveitir svörtu húfanna réðust gegn
ráðuneytisbyggingunni og hljóp
fólk öskrandi undan kúlnahríö-
inni. Gluggar hótelsins á móti
ráðuneytinu voru brotnir en for-
sætisráðherra landsins var þar
staddur þegar átökin hófust. Hann
mun hafa sloppið út um bakdyr
hótelsins.
Reuter
Hvíldarstund hjá vörðum borgarbúa innan þinghússins í Vilnu.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og Landsbergis, forseti Sandpokar og gæsla við innganginn í þinghúsið í Vilnu.
Litháens. DV-myndirebs
í dag mælír Dagfari
Forval allaballa
Alþýðubandalagið í Reykjavík
hafði forval um helgina. Kosning-
arétt höfðu 1190 félagar í flokknum.
Þar af kusu samtals 456 manns.
Verður ekki annað sagt að þetta sé
mikið fjölmenni og ekki nema von
að allur þessi fjöldi myndi um sig
flokk og bjóði fram til Alþingis. Að
vísu munu nokkrir til viðbótar
kjósa Alþýðubandalagið í almenn-
um kosningum en þeir komast ekki
að í forvali sem sinnir ekki mann-
þröng þegar frambjóðendur eru
ákveðnir. Það eru jú takmörk fyrir
því hvað hægt er að hleypa óbreytt-
um hðsmönnum nálægt sér þegar
foringjamir eru annars vegar.
Þaö kom ekki á óvart að Svavar
Gestsson yrði efstur í þessu forv-
ali. Hlaut hann glæsilega kosningu
og fékk samtals 384 atkvæði og af
því atkvæðamagni er ljóst að vin-
sældir Svavars ná langt út fyrir
nánasta frændgarð hans og vina-
hóp og má Svavar vel við una eftir
áratuga þrotlausa baráttu í þágu
Alþýðubandalagsins. Það þarf aö
eiga sterk ítök í flokki af þessu tagi
til aö fá fólk th að leggja það á sig
að mæta á kjörstað og greiða Sva-
vari atkvæði og í rauninni mundi
enginn gera það, nema Svavar
þyrfti á því að halda. Kjósendur
vissu sem var að það munar um
hvert atkvæðið þegar allur þessi
fjöldi tekur þátt.
Næst í rööinni var forseti Sam-
einaðs Alþingis, Guðrún Helga-
dóttir. Guðrún fékk 245 atkvæði
eða rétt rúmlega helming. Ekki
liggur það fyrir hvers vegna hinn
helmingur kjósendanna í forvalinu
kaus ekki Guðrúnu, enda hefur
hún ekkert gert þessu fólki nema
að hafa skoðanir og stjóma Alþingi
af skömngsskap. Einhveijir hafa
svikið Gunnu út á hvahna og aðrir
hafa svikið út á kjólana og svo eru
kannski einhverjir sem eru á móti
bamabókunum hennar Guðrúnar
Helgadóttur. En Guðrún kemst á
listann og hún kemst á þing út á
þessi 245 atkvæði og ef ekki þarf
meira til þá er ástæðulaust að fara
fram á meira.
„Flokkurinn hefur taiað“ segir
Guðrún og á þá við aha þessa 245
sem kusu hana. Og hver getur
rengt það?
í þriðja sæti kemur Auöur nokk-
ur Sveinsdóttir landslagsarkitekt
og vinnur glæsilegan kosningasig-
ur með samtals 113 atkvæði í þriðja
sætið. Það kemur sér vel fyrir
flokkinn að hafa landslagsarkitekt
á sínum snærum. Auöur vill ekki
eyðileggja landslagið með álverum
og verksmiðjum og leggur áherslu
á hreint land og fagra byggð og hún
túlkar úrshtin á þá leið að Al-
þýðubandalagið fylgi henni aö mál-
um.
Þar að auki má th sanns vegar
færa að landslagið í Alþýðubanda-
laginu hefur verið óljóst og þoku-
kennt aö undanfómu og það þarf
að draga réttar línur og átta sig á
því hvar landamærin eru þegar
Alþýðubandalagiö stendur á þeim
krossgötum að vita ekki hvar fylg-
ismenn sínir era niðurkomnir.
í fjórða sæti 'er Guðmundur Þ.
Jónsson, formaður Iðju og fulltrúi
verkalýðshreyfingarinnar: Guð-
mundur fékk 8 atkvæði í fyrsta
sæti, 101 í annað, 41 í það þriðja og
52 í íjórða sætið, sem hann hreppti.
Þetta er góöur árangur í þessu fjöl-
menna forvali og ljóst aö allur
verkalýðsarmur Alþýðubanda-
lagsins hefur mætt á kjörstað og
greitt Guðmundi öll sín atkvæði í
fyrsta sæti. Guðmundur þarf ekki
að kvarta undan liðhlaupi og það
er misskilningur hjá Iðjuformann-
inum að hér sé verið að staðfesta
bilið milli verkalýðshreyfingarinn-
ar og flokksins. Um þetta bil er
löngu vitað og kemur ekki á óvart.
Flokkurinn hefur fyrir löngu hrist
af sér aðra launþega heldur en þá
átta sem kusu Guðmund. Verka-
lýðsarmurinn skhaði sér, allur með
tölu, og Guðmundur getur ekki far-
ið fram á meira.
Alþýðubandalagið hefur enda
ekkert haft nema ónæði af verka-
lýðshreyfingunni. Sú stefna er öll-
um kjósendum kunn að Alþýðu-
bandalagið hefur smám saman ver-
ið að hreinsa sig af því fólki og
þeim kjósendum sem sífellt era að
ónáða þennan góða hokk með lýð-
ræðiskjaftæði. Guðmundur Þ.
Jónsson hefur greirúlega ekki skil-
ið þessa flokkstefnu og er enn að
þvælast í Alþýðubandalaginu fyrir
hreinan misskhning. Miðað við þá
stöðu, telstþað kraftaverk að Guð-
mundur nái fjórða sæti og má vera
hæstánægður með það hlutskipti.
Dagfari