Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Qupperneq 13
ÞR'IÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991.
13
íslenskar fjöiskyldur hljóta að „eyða“ mjög mismiklu í happdrætti eftir því í hvaða happdrætti þær spila.
Að „eyða pening-
um“ í happdrætti
í síðasta hefti tímaritsins Þjóðlíf
er fróðlegur greinaflokkur um
spilafíkn íslendinga, happdrætti og
getraunir. Ýmislegt í þessum
greinaflokki á erindi til almennings
nú þegar happdrættin auglýsa sem
mest og margir reyna að rétta við
bágan fjárhag eftir jólavertíðina
með því að veðja á mismunandi
hesta. Það er nefnilega ekki allt
sem sýnist í happdrættis- og get-
raunaskóginum eins og fram kem-
ur í grein eftir Jón G. Hauksson
hér í DV 9. janúar. Hér verður þetta
rakið svolítið nánar.
Happdrættisveltan jafnvel
yfir 5 milljarðar
Velta helstu happdrætta og get-
rauna á landinu er til umræðu í
Þjóðlífl og DV en hún var samtals
rúmlega 5 milljarðar á sl. ári skv.
Þjóðlífi (DV telur hana reyndar 4,4
milljarða „samkvæmt lauslegu
mati“). Þetta er auðvitað há tala
og það má leika sér með hana á
ýmsa vegu. Þetta þýðir til dæmis,
segja Þjóðlífsmenn, „að hvert
heimili eyðir að meðaltali tæplega
sex þúsundum króna á mánuði í
happdrætti". Það er þó bót í máli,
segir Þjóðlífsritstjórinn, „að þeir
sem standa fyrir happdrættunum
eru yfirleitt miklar þjóðþrifastofn-
anir“.
Fjölgun happdrætta og
einkaleyfi Háskólans
í Þjóðlífsgreinunum kemur líka
fram að heildarvelta happdrætt-
anna jókst um 67% árin 1980-1987.
Sú aukning varð einkum vegna til-
komu ýmissa nýrra happdrætta,
ekki síst lottósins margfræga.
Reyndar er þessi fjölgun happ-
drætta dáhtið merkileg þegar haft
er í huga að Happdrætti Háskóla
íslands greiðir nú um 60 milljónir
á ári til ríkisins í svokallað einka-
leyfisgjald vegna þess að það hefur
lögum samkvæmt einkaleyfi til
þess að reka peningahappdrætti.
En það er nú önnur saga. •
Kjallarinn
Höskuldur Þráinsson
prófessor
Vinningshlutfall, velta og
eyðsla
Þegar heildarvelta íslenskra
happdrætta jókst á árunum eftir
1980 gerðist það að „raunverulegt
vinningshlutfall minnkaði á sama
tíma um 16%“, segja Þjóðlífsmenn.
Ástæðan er sú að vinningshlutfall
hinna ýmsu happdrætta og get-
rauna er mjög misjafnt og yfirleitt
lægra hjá nýju happdrættunum en
þeim sem fyrir voru á markaðnum.
Samkvæmt úttekt Þjóðlífsmanna
er vinningshlutfallið allt frá 4% og
upp í 70%. Það er lægst í skyndi-
happdrættum hinna ýmsu félaga-
samtaka. Þar segja Þjóðlífsmenn
að það geti farið niður í 4% (þótt
það megi reyndar ekki vera minna
en 16,66%) en sé oftast á bilinu
7-20%.
Happdrætti Háskóla Islands
greiðir aftur á móti hæst vinnings-
hlutfall eða 70% (spilakassar R.K.Í.
eru þá ekki taldir með af því að
erfitt er að fylgjast með því hvað
rennur í gegnum þá). Lottóið greið-
ir um 40% segja Þjóðlíf og DV, en
samkvæmt upplýsingum í grein í
viðskiptahluta Morgunblaðsins
hinn 6. desember sl. mun vinnings-
hlutfall lottósins þó vera heldur
lægra.
Ef við höfum þessar staðreyndir
í huga, sjáum við að íslenskar fjöl-
skyldur hljóta að „eyða“ mjög
mismiklu í happdrætti eftir því í
hvaða happdrætti þær spila. Effjöl-
skylda kaupir miöa í einhveiju
skyndihappdrættinu fyrir sex þús-
und krónur einhvern mánuðinn,
eins og talað er um í áðurnefndu
Þjóðlífsblaði, eru ekki miklar líkur
til að hún fái það fé til baka og
þess vegna hefur hún í raun og
veru eytt því fé. DV telur að íslend-
ingar fái um 2,1 milljarð til baka
af þeim 4,4 sem þeir leggja í happ-
drætti og lukkuspil að mati blaðs-
ins - eða tæp 48%. En ef íslending-
ar notuðu allt happdrættisfé sitt til
að kaupa miða í því happdrætti sem
greiðir mest til baka, þ.e. Happ-
drætti Háskólans, færu 70% af því
aftur til kaupendanna. Það jafn-
gildir sem næst því að hvert heim-
ih fengi að jafnaði um 4.200 kr. á
mánuði í vinning. Kannski Árni
Tryggvason dytti þá loksins í
lukkupottinn!
Höskuldur Þráinsson.
. eflslendingarnotuðuallthapp-
drættisfé sitt til að kaupa miða 1 því
happdrætti sem greiðir mest til baka,
þ.e. Happdrætti Háskólans, færu 70%
af því aftur til kaupendanna.“
Verkamannafélagið Dagsbrún
KOSNING
stjórnar, varastjórnar, stjórnar vinnudeilusjóðs,
stjórnar styrktarsjóðs Dagsbrúnarmanna, endurskoð-
enda og trúnaðarráðs Verkamannafélagsins Dags-
brúnar fyrir árið 1991 fer fram að viðhafðri allsherjar-
atkvæðagreiðslu að Lindargötu 9 dagana 25., 26.
og 27. janúar 1991.
Föstudaginn 25. janúar hefst kjörfundur kl. 13.00
og stendur til kl. 20!00. Laugardag 26. janúar hefst
kjörfundur kl. 10.00 og stendur til kl. 19.00. Sunnu-
dag 27. janúar hefst kjörfundur kl. 10.00 og stendur
til kl. 17.00 og er þá kosningu lokið.
Atkvæðisrétt hafa aðeins aðalfélagar, sem skuldlaus-
ir eru fyrir árið 1990, þ.e. hafa greitt kr. 2000 í félags-
gjöld eða meira.
Þeir sem skulda geta greitt gjöld sín meðan kosning
stendur yfir og öðlast þá atkvæðisrétt. Ekki verður
tekið á móti inntökubeiðnum eftir að kosning er
hafin.
Kjörstaður er að Lindargötu 9, 1. hæð.
Kjörstjórn Dagsbrúnar.
JAFNT í BAK OG STJÓR
Sjómannablaðið Víkingur er ekki fyrir sjó-
menn eingöngu.
Við lifum öll af auðæfum hafsins.
Þessvegna kemur umræða um sjávarútveg
og siglingar sérhverjum íslendingi við,
hvar í stétt sem hann starfar, af hvoru kyn-
inu sem hann er, á hvaða aldri sem hann er.
Sjómamabíaðiö
VÍKINGUR
Jafnt í bak og stjór
Áskriftasími: 91-629933
Nauðungaruppboð
Vegna vanefnda uppboðskaupanda verður fasteignin Rauðarárstígur 13,
þinglýst eign Margrétar Hreggviðsdóttur og Haraldar Gunnarssonar, boðin
upp að nýju og seld á nauðungaruppboði sem fram fer á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 24. janúar 1991 kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru Árni Ein-
arsson hdl., Fjárheimtan hf„ Tryggingarstofnun ríkisins, Helgi V. Jónsson
hrl., Rúnar Mogensen hdl., Ásgeir Björnsson hdl., Baldur Guðlaugsson
hrl„ Valgeir Kristinsson hrl„ Sigríður Thorlacius hdl. og Veðdeild Lands-
banka íslands.
BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK
Nauðungaruppboð
Þriðja og síðasta á fasteigninni Vesturgötu 71, íb. 03-01, þingl. eig. Sigur-
björg Ögmundsd. og Snæbjörn Ágústss., fer fram á eigninni sjálfri fimmtud.
24 jan. '91 kl. 16.00> Uppboðsbeiðendur eru Veðdeild Landsbanda íslands
og Guðjón Ármann Jónsson hdl.
BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ i REYKJAVÍK
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Vesturgötu 73, íþ. 01-01, þingl. eigandi
Hólaberg sf„ fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 24 jan. '91 kl. 16.15. Upp-
boðsbeiðendur eru Guðjón Ármann Jónsson hdl„ Ásgeir Thoroddsen hrl.
og Gjaldheimtan í Reykjavík.
BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ Í REYKJAVÍK